Morgunblaðið - 16.03.1999, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 16.03.1999, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1999 FRETTIR AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Pétur Ármannsson arkitekt um Reykjavíkurflugvöll Ennþá hægt að af- stýra skipulagsslysi „ÞAÐ er trú okkar að enn sé hægt að afstýra því skipulagsslysi sem er bygging nýs flugvallar á núverandi flugvallarstæði í Vatnsmýri," sagði Pétur Armannsson arkitekt meðal annars í erindi sem hann flutti um starfsemi Samtaka um betri byggð á aðalfundi Þróunarfélags Reykjavík- ur á föstudag. Pétur segir forsvars- menn samtakanna þeirrar skoðunar að með íyrirhuguðum framkvæmd- um við völlinn muni hann festast í sessi, ljóst sé að verið sé að gera meira en sinna biýnasta viðhaldi. Forsvarsmenn Samtaka um betri byggð telja að gera megi við Reykja- víkurflugvöll fyrir um 220 milljónir króna og fá með því ráðrúm til að huga að nýju flugvallarstæði, t.d. á uppfyllingu á Skerjafírði. Samþykktum fyrir Þróunarfélag Reykjavíkur var breytt á aðalfundi þess í fyrradag og heitir það nú Þró- unarfélag miðborgarinnar. Eiga hvorki yfirvöld Reykjavíkurborgar né ríkis fulltrúa sína í stjóminni en hlutverk félagsins er að efla miðborg Reykjavíkur sem miðstöð stjóm- sýslu, menningarlífs, verslunar og þjónustu. Taka þai'f málin nýjum tökum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri flutti ávarp á aðalfundinum og sagði meðal annars að ýmsar til- lögur Þróunarfélags Reykjavíkui- um vöxt og viðgang miðborgarinnar hefðu átt erfitt uppdráttar og eðli- legt væri að taka málin nú nýjum tökum og freista þess að fara nýjar leiðir. Væri það gert með hinni nýju miðborgarstjóm borgaryfirvalda og með nánara samráði við hagsmuna- aðila. Borgarstjóri sagði nú fysilegt að byggja upp og standa að fjárfest- ingum í miðborginni og nefndi dæmi um nýbyggingar sem fyrirhugað væri að ráðast í af ýmsum aðilum og gat um átaksverkefnið Reykjavík í sparifötunum, sem ætlað væri að búa borgina undir að verða menn- ingarborg árið 2000. Þá minntist borgarstjórinn á svæðaskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið sem nú er unnið að og sagði það gefa gott tækifæri til Morgunblaðið/Þorkell NAFNI Þróunarfélags Reykjavíkur var breytt á aðalfundi þess á föstudag og heitir það nú Þróunarfélag miðborgarinnar. að samræmingar á uppbyggingu og stefnu viðkomandi sveitarfélaga t.d. hvað varðar staðarval verslunar- kjarna. Stjórnannenn Þróunarfélags mið- borgarinnar era nú fimm en átta sátu í stjóm Þróunarfélags Reykja- víkur þar sem borgaryfirvöld og for- sætisráðuneytið tilnefna ekki lengur fulltrúa sína. I nýrri stjóm Þróunar- félags miðborgarinnai- sitja Edda Sverrisdóttir, tiinefnd af Verslunar- ráði Islands, Hermann Eyjólfsson, tilnefndur af Sambandi íslenski-a viðskiptabanka, Jón Ásbjömsson, tilnefndur af íslenskiá verslun og Róbert G. Róbertsson og Einar Ni- elsen frá Miðborgarsamtökunum. Auk venjulegra aðalfundarstaifa greindi Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, sviðsstjóri hjá Borgarskipulagi, frá vinnu við þróunaráætlun fyrir mið- borg Reykjavíkur en lokið er þriðja áfanga hennar. Markmið hennai’ er meðal annars að hvetja til fjárfest- ingar í miðborginni, bæta aðgengi og auka samráð við hagsmunaaðila. Á fundinum flutti Pétur Ármanns- son, arkitekt og deildarstjóri Lista- safns Reykjartkur, erindi um Sam- tök um betri byggð sem stofnuð vora um miðjan síðasta mánuð. Tilgang þeirra sagði hann vera þann að beita sér fyrir þróun og kynningu nýrra Aflí «Q mtw * Kvemtöítektmt á iisrr-boteteim StmtyOunQV ’ Hrfuf þú af fS á viíbétaif^fSspímJÍF? * Oteóhf* kcflum í AíjarsBþm * Löftsf 1 Bang fiang' M knmaK áiíam j kjrtítmjm ~ hogísiðma m kynumái^rár * Lilabófcfl FjöJskyMur * P1 " ' Ast i ' NÝ VERA ER KOMIN ÚT, FULL AF VEKJANDI EFN ■ Valdalausar kennslukonur. 1 Kvennalistakonur í Samfylkingunni. - Að komast áfram á kjaftinum o.fl. hugmynda um umhverfismál og þró- un byggðai' í þéttbýli með áherslu á þéttingu og endumýjun byggðar sem valkost við áframhaldandi út- þenslu byggðar. Pétur gerði Reykja- víkurflugvöll að umtalsefni og sagði að eftir að hann festist í sessi eftir stríðið hefði borgin ekki náð að þró- ast á eðlilegan hátt, að verða sam- felld og heilsteypt byggð með öflug- um miðbæjarkjama. Borgin hefði þess í stað byggst upp í aðgreindum hverfishlutum. Hann sagði skipu- lagshugmyndir hafa ýtt undir þessa þróun fyrst eftir stríð en á síðustu 15 til 20 áram hefði stefnumörkun í skipulagsmálum borga um allan heim beinst að því að leiðrétta mis- tök og hefði verið leitast við að end- urlífga miðborgir. Sátt mun aldrei ríkja um flugvöllinn „I nýlega samþykktu aðalskipu- lagi Reykjavíkur er skipulagsslysið í Vatnsmýrinni fest í sessi fram til ársins 2016, þó svo mengun og slysahætta af þess völdum sé öllum ljós og fyrir liggi að um þetta mann- virki muni aldrei ríkja sátt,“ sagði Pétur meðal annars. Hann sagði for- svarsmenn samtakanna hafa bent á ýmsar lausnir til eflingar miðboi'g Reykjavíkur, svo sem að flytja flug- völlinn á uppfyllingu í Skerjafirði. „Illu heilli vh-ðist yfii-völdum skipu- lags- og samgöngumála vera full al- vara með því að festa í sessi hálfrar aldar gömul mistök sem era ein helsta orsök þess vanda sem við blasir í skipulagi borgarinnar og þar með hamla gegn þróun byggðar af því tagi sem víðast hvar annars stað- ar er talin heppileg. Talsmenn fiug- vallarins láta í veðri vaka að einung- is sé verið að sinna brýnasta viðhaldi en áætlanir þeiira segja ólíka sögu,‘ sagði Pétur. Hann sagði að í raun væri um end- urbyggingu vallarins að ræða og það með mun varanlegri hætti en í upp- hafi. Pétur sagði það skoðun forráða- manna samtakanna að enn væri hægt að afstýra því sem hann nefndi skipulagsslys. Lausleg athugun benti til þess að hægt væri að kom- ast af með viðgerð á flugvellinum fyrir um 220 milljónir króna í stað um 1.500 milljóna sem myndi duga vellinum meðan unnið væri að því að finna farsæla lausn á flugvallarmál- um höfuðborgarsvæðisins. „Mestu skiptir að áframhaldandi nýting flugvallarsvæðisins verði nú þegar bundin skýrum tímamörkum, t.d. við árið 2010 eða 2016, þannig að unnt sé að hefjast handa strax við undirbúning og endurskipulagningu höfuðborgarsvæðisins út frá þeim forsendum, þó svo að til fram- kvæmda komi ekki strax,“ sagði Pét- ur undir lok erindis síns. Guðrún Ágústsdóttir, sem verið hefur formaður Þróunarfélags Reykjavíkur, sagði í lokaorðum sín- um á fundinum að Ijóst væri að flug- völlurinn hefti framgang miðborgar- innar. Framkvæmdastjóri Atvinnu- þróunarfélags Austurlands Gamlar lausnir duga ekki lengur ENDURHANNA þarf atvinnulíf á tilteknum stöðum á landsbyggðinni, gamlar lausnir til að halda uppi at- vinnulífi í litlum sjávarplássum duga ekki lengur. Þetta kom fram í máli Gunnars Vignissonar framkvæmda- stjóra Atvinnuþróunai’félags Austur- lands á fundi Rannsóknarráðs Is- lands sem haldinn var í Háskólanum á Akureyri, en þai' var rætt um þekk- ingarbúskap og byggðaþróun. Gunnar sagði það viðtekna venju þegar sjávarútvegsfyrirtæki væra að eða hefðu komist í þrot að ráðast í kaup á kvóta til að fá hjólin til að snú- ast á ný. Það væri úrelt lausn sem ekki skilaði árangri, í raun einungis tilfærsla á vandanum. Aflaheimilir væra takmarkaðar, fengi einn meira væri það á kostnað einhvers annars. Þá nefndi hann líka að störf í litlum fiskvinnslufyrirtækjum höfðuðu ekki lengur til ungra Islendinga. Ný störf byggjast á upplýsinga- tækni og þekkingu Nefndi Gunnar í þessu sambandi að það væri ótækt að vandamál lítilla sjávarþorpa eins og Breiðdalsvíkur væri ekki hægt að leysa með öðra en kvótakaupum og endurreisn fisk- vinnslu. Það væri dýrasta lausnin sem hægt væri að finna og í raun eng- in lausn heldur áhættusöm tilfærsla á vandamálum sem litlu skilaði til fram- búðar fyrir staðinn. Telur Gunnai' einsýnt að hægt hefði verið að endur- byggja atvinnulíf á stöðum eins og Breiðdalsvík fyrii' 150 til 200 milljónir ki'óna en endurreisn fiskvinnslunnai' kostaði gott á annan milljarð. Þau nýju störf sem fremur ætti að huga að þurfa að byggjast á upplýs- ingatækni og þekkingu. Bæði er um að ræða störf sem lúta að meðhöndl- un einfaldra upplýsinga og ki'efjast til þess að gera lítillar starfsþjálfunar og hins vegar flóknari þekkingarstörf sem m.a. snúast um hugbúnaðargerð. Sem dæmi um hið fyrrnefnda benti Gunnar á upplýsingaþjónustu Land- síma íslands hf. í 118, en þar væri um að ræða tiltölulega einföld störf sem hægt væri að þjálfa starfsfólk upp í á nokkrum vikum og gætu verið hvar sem er á landsbyggðinni. „Þetta eru mun ódýrari lausnir en að starta ft-ystihúsi upp á nýtt,“ sagði Gunnar. Hann sagði að víða um land þjrfti að endurhanna atvinnulíf upp á nýtt. Samþjöppun í sjávarútvegi væri hvergi nærri lokið, en hægt væri að kortleggja þá staði á landinu þar sem sjávarátvegur stæði veikum fótum og reyna að beina atvinnulifi þein-a inn á nýjar brautir. Þar til höggvið yrði á hnútinn yrðu margir litlir staðir í til- vistai’bai'áttu. 18 milljarðar á næstu þremur árum Umbylting er að eiga sér stað varð- andi aðgang að áhættufjármagni til nýsköpunar á landsbyggðinni og nefndi Gunnai' í því sambandi að á þessu ári myndi Framtakssjóður Ný- sköpunai'sjóðs og áhættufjárfesting- arfélög útdeila 1,5 milljörðum ki'óna til áhættufjái-festinga. Eignarhaldsfé- lög í eigu Byggðastofnunar, sveitaifé- laga og einkaaðila myndu setja 750 milljónir ki'óna í umferð á þessu ári og halda áfram með sama hætti næstu þrjú ár sem þýddi ráma 2,2 milljarða ki'óna í viðbót. Á næstu þremur árum megi gera ráð fyrir um 4,5 milljörðum króna í áhættustofnfé frá þessum aðil- um og á þá eftir að taka tilliti til mót- framlaga þein-a sem standa að fjár- festingunum. Heiidai'upphæð til ný- sköpunai' og fjárfestinga á lands- byggðinni gæti þannig numið 18 millj- örðum króna á þessu tímabili. „Það er afar mikilvægt að þessu fé verði varið skynsamlega. Áður var oft lítið hugað að arðsemi fjárfesting- anna, en nú era viðhorfin gerbreytt, gerð er rík krafa um arðsemi. Það gerir að verkum að vinna atvinnuþró- unarfélaganna á landsbyggðinni verð- ur að vera með sama hætti og tíðkast í atvinnulífinu almennt, vinna verður út frá bláköldum viðskiptasjónarmið- um,“ sagði Gunnar. Maraþonkennsla í Brekkuskóla Morgunblaðið/Kristján KRISTJÁN Guðmundsson var að kenna tíundubekkingum í Brekku- skóla ensku og var Nanna Huld, eins og hálfs árs ddttir hans, pabba sínum til aðstoðar. Ilún hafði hins vegar fengið sér blund er ljósmynd- ari Morgunblaðsins var þar á ferð. N emendur safna í ferðasjóð NEMENDUR í 10. bekk í Brekku- skóla, alls um 30 talsins, settust í maraþonkennslu kl. 08 sl. föstu- dagsmorgun og voru í kennslu samfleytt í einn sólarhring. Til- gangurinn var að safna peningum í ferðasjóð 10. bekkinga en krakk- arnir höfðu áður safnað áheitum með góðum árangri. Kennarar skólans tóku að sjálf- sögðu þátt £ þessari uppákomu með nemendum sínum og sáu um kennslu í hefðbundnum fögum. Krakkarnir fóru einnig £ sund og leikfimi en sfðasti tfminn £ mara- þoninu var einmitt leikfiini, þar sem átti að hressa þau vel við eftir erfiðan sólarhring. Jóhannes Bjarnason kennari £ Brekkuskóla sagði að nemendur og kennarar Gagnfræðaskóla Akur- eyrar hefðu átt frumkvæðið að þvf hér á landi, fyrir rúmum 10 árum, að standa fyrir maraþonkennslu. I kjölfarið hefðu aðrir skólar tekið þennan sið upp og jafnvel hafið keppni s£n £ milli um hver gæti ver- ið lengst að. Sem kunnugt er hefur GA sameinast Barnaskóla Akur- eyrar undir nafninu Brekkuskóli.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.