Morgunblaðið - 16.03.1999, Page 17

Morgunblaðið - 16.03.1999, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1999 17 AKUREYRI Aukalandsþing Félags framhaldsskólanema fjallar um umfangsmiklar breytingatillögur á skipulagi Svæðisráð framhalds- skólanema stofnað FORSVARSMENN nemenda í Verkmenntaskólanum á Akureyri og Menntaskólanum á Akureyri, þeir Gestur Einars.son og Guðfinn- ur Sigurvinsson, hafa verið kjörnir til að stýra svæðisráði framhalds- skólanema á svæðinu frá Isafirði og austur á Neskaupstað. A þessu svæði eru 8 skólar, á Vestfjörðum, Norðurlandi, Þingeyjarsýslu og Austurlandi, með vel á þriðja þús- und nemenda. Aukalandsþing Félags fram- haldsskólanema, FF, verður haldið 20. mars nk., þar sem umfangs- miklar tillögur um breytingar á skipulagi félagsins verða teknar til afgreiðslu. Gestur og Guðfinnur fóra fyrir þessum tillögum en þær njóta stuðnings fjölda annarra skóla. Þar er lagt til að ráðinn verði framkvæmdastjóri fyrir félagið í fullt starf og fjármálastjóri í hálft starf. Jafnframt að skipuð verði þrjú svæðisráð, tvö á landsbyggð- inni og eitt í Reykjavík. Svæðisráðin starfa innan Félags framhaldsskólanema en tilgangur- inn með stofnun þeirra er m.a. sá að skoðanir nemenda heyrist betur og að forsvarsmenn á nálægum svæðum hittist og ræði málin. Gestur og Guðfinnur hafa átt fundi með Kristjáni Þór Júlíussyni, bæjarstjóra á Akureyri, og Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra. Gestur sagði að Kristján Þór hefði tekið þeim mjög vel en leitað var eftir því að miðstöð svæðisráðsins yrði rekin í Kompaníinu, þar sem er öll aðstaða til skrifstofuhalds. Bæjarstjóri tók þeirri málaleitan vel og lýsti jafnframt yfir ánægju með þá hugmynd að færa valdið heim í hérað. Mikil vinna eftir Guðfinnur sagði að menntamála- ráðherra hefði einnig sýnt þessum hugmyndum mikinn áhuga og lýst yfir hrifningu með að virkja félagið á landsbyggðinni. „Það kom fram í máli ráðherra að fjármögnun á starfsemi Félags framhaldsskóla- nema væri hins vegar nokkurt vandamál og taldi það ekki traust- vekjandi að menntamálaráðuneytið færi að reka félagið. Styrkur ríkis- ins til félagsins er mjög lítill en ráðherra benti á ýmsar fjáröflun- arleiðir og upplýsti um möguleika á styi’kjum til ýmissa verkefna,“ sagði Guðfinnur. Þeir félagar voru bjartsýnir á að tillögur þeirra um breytingar á skipulagi FF næðu fram að ganga á aukalandsþinginu. „Það mun jafnframt verða til þess að nem- endur almennt átti sig betur á mik- ilvægi þess að félagið starfi af krafti, til hagsbóta fyrir alla. En samt er gríðarleg vinna eftir og þetta mun taka einhvem tíma.“ Morgunblaðið/Kristj án ÁSGEIR Magnússon forstöðumaður Skrifstofu atvinnulífsins á Akur- eyri og formaður bæjarráðs og Guðbrandur Sigurðsson framkvæmda- stjóri Utgerðarfélags Akureyrar rýna í skýrslu um stefnumótun í at- vinnumálum en hún var kynnt á fundi í gær. Símenntim og nýsköpun fái forgang STOFNUN „Símenntunarmið- stöðvar Norðurlands" og Nýsköp- unarseturs eru á meðal þeirra verkefna sem brýnast er að hefja nú þegar undirbúning að í atvinnu- málum á Akureyri að því er fram kom á fundi þar sem niðurstöður skýrslunnar Stefnumótun í at- vinnumálum fyrir Akureyri voru kynntar. Alls tóku 85 fulltrúar úr atvinnu- lífinu í bænum þátt í stefnumótun- arverkefninu en vinna við það hófst síðastliðið haust. Bæjarstjórn Akureyrar hefur fjallað um og samþykkt stefnumótunina. Leggur atvinnumálanefnd nú áherslu á að hafist verði handa við framkvæmd verkefna sem tillögur eru gerðar um í niðurstöðum stefnumótunar í atvinnumálum. Hefur verkefnum verið raðað í forgangsröð og er unnið að verkáætlun um hvert verkefni, en nefndin hefur raðað þeim upp í forgangsröð og gerði Berglind Hallgrímsdóttir forstöðu- maður Atvinnumálaskrifstofu Akrueyrarbæjar gi-ein fyrir henni. Aðgangur að öflugu þróunarumhverfi Brýnast þykir að stofna „Sí- menntunarmiðstöð N orðurlands", en í tillögum er gert ráð fyrir að sí- menntunarsvið Rannsóknarstofn- unar Háskólans á Akureyri fái nýtt hlutverk með þátttöku skóla, at- vinnulífs, bæjarfélags, héraðs- nefndar, fag- og verkalýðsfélaga. Þá þykir einnig brýnt að koma á fót Nýsköpunarsetri með það að markmiði að fyrirtæki í bænum fái greiðan aðgang að öflugu þróunar- umhverfi. I því skyni á að setja upp sjálfseignarstofnun sem sinni þró- unar- og tæknimálum á fjölbreyttu sviði atvinnugreina, en starfsvett- vangur setursins yrði á sviði mat- væla, hugbúnaðar og sprotafyrir- tækja sem sérhæfa sig í hátækni- lausnum fyrir sjávarútveg. Mikil áhersla er lögð á að móta stefnu um hvaða tegundir orku- freks iðnaðar eru eftirsóknarverð- ar fyrir Akureyri og Eyjafjörð. Efla á orkurannsóknir á norður- slóðum og á Norðurlandi og vinna markvisst að því að kynna svæðið erlendum fjárfestum. Meðal verk- efna sem sett eru í forgang at- vinnumálanefndar er stofnun fyrir- tækjanets sem hefur að markmiði að auka útrás akureyi'skra fyrir- tækja og gera þau hæfari til að takast á við sérhæfðar lausnir. Þá er stefnt að því að stofna alþjóð- lega miðstöð viðskipta og útflutn- ings á Akureyri og koma á sam- vinnu sjávarútvegs- og hugbúnað- arfyrirtækja. Hvatningin mikils virði Mjög er horft til Háskólans á Akureyri varðandi mörg verkefn- anna og sagði Þorsteinn Gunnars- son rektor í ávarpi sínu að stuðn- ingur bæjaryfirvalda og fleiri við að hrinda ýmsum verkefnum í framkvæmd væri mikils virði og myndi efla starfsemi háskólans á næstu árum. „Það skiptir miklu máli fyrir háskólann að fá þessa hvatningu frá bæjarfélaginu," sagð Þorsteinn. Síðar í þessum mánuði líta tillögur starfshóps um stofnun matvælaseturs dagsins ljós og kvaðst rektor vel geta séð slíkt set- ur sem hluta af fyrirhuguðu Ný- sköpunarsetri. Upplýsti Þorsteinn að unnið væri að því í sjávarútvegs- deild háskólans að þróa námskeið yfir á ensku en miklir möguleikar væru á að ná erlendum nemendum til Akureyi-ar. KJÖTVINNSLAN ESJA EHF. SMIÐJUVEGI 10 KÓPAVOGI SÍMI 567 6640 Vertu gestur í eigin boði og hafðu Drottningarskinku á borðum þegar halda á afmælisveislu, fermingarveislu eða aðrar stórveislur. Fáðu þér eintak af nýja bæklingnum okkar og kynntu þér möguleikana. Drottningarskinka og Reykt Drottningarskinka eru eingöngu unnar úr Gaeðagrís frá Svínabúinu Brautarholti á Kjalarnesi, sem er eitt stærsta og fullkomnasta svínabú landsins. Stórveisla án fyrirhafnar! Veldu Drottningarskinku á veisluborðið. Drottningarskinka er ekki síður freistandi köld eða sem lúxusálegg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.