Morgunblaðið - 17.03.1999, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 17.03.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1999 47 MINNINGAR + Aðalsteinn Sveinbjörn Óskarsson fæddist á Hverhóli í í Skíða- dal 16. ágúst 1916. Hann lést á heimili sínu á Akureyri 13. febrúar sfðastliðinn og fór útför hans fram frá Dalvíkur- kirkju 20. febrúar. Mig langar í fáeinum orðum að minnast Að- alsteins, eða afa eins og ég kallaði hann alltaf. Það er eins og það hafi gerst í gær, svo minnisstæð er mér sú stund, elsku afi, þótt um 20 ár séu síðan við frændsystkinin fjögur sem þá bjuggum á Ashóli þar sem ég er fædd og uppalin, ég þá á áttunda ári, Anna systir sex ára, Nonni frændi líka á áttunda ári og svo bróðir hans hann Siggi litli á sjötta ári, héldum fund í verkfærahúsinu í Áshóli. Umræðu- efni fundarins var hvort við ættum að þora að spyrja þig hvort við mættum kalla þig „afa“ en á þess- um tíma vorum við rétt að byrja að kynnast þér. Endirinn varð sá að sá yngsti í hópnum, hann Siggi litli, var skipaður í verkið. Þú og amma voruð við girðingar- vinnu við kartöflu- garðinn upp við kart- öflugeymslu þegar við frændsystkinin geng- um hægum og óörugg- um skrefum, með hjartað á yfirhraða, alls ekki viss um rétt- mæti erindis okkar, upp heimreiðina í átt að þér. Við tvístigum lengi allt í kring um þig, gjóandi ákveðnum augum að Sigga litla sem þorði ekki annað en að herða sig upp og spyrja þig. Þú svaraðir okkur blíðlega að auðvitað mættum við kalla þig afa og þín væri ánægj- an. Við gengum heldur léttari í spori niður heimreiðina með reglu- legri hjartslátt og brostum stolt til Sigga litla, ánægð með afrek dags- ins. Við höfðum sko sannarlega ekki þurft að kvíða svona fyrir, því ró- legt, hlýtt og notalegt viðmót þitt bræddi okkar stressuðu hjörtu strax. Allt síðan þetta var höfum við alltaf kallað þig afa og þú alltaf gengið okkur í afa stað. Notalegt, hlýtt og góðlegt viðmót þitt mun ég ætíð muna, þú varst snyrtimenni, alltaf fínn og flottur til fara. En þinn tími var kominn elsku afi, og athafnasamur maður eins og þú varst svo sannarlega búinn að skila þínu í þessu lífí og er þinnar kostgæfni örugglega notið á æðri stöðum. Ég þakka þér fyrir hönd okkar systra úr Áshóli fyrir þessa rétt tæpu tvo áratugi sem við fengum þín notið. Og mig langar að láta fylgja hér ljóð sem er eftir þig og er að finna í ,Hugarflugi bóndans í Birkimel“ sem er ljóðasafn sem gef- ið var út í tilefni af áttræðisafmæli þínu. Ó, þú draumur sem varst mig í bemsku þú barst þegar bárurnar léku við strðnd, hversu ljúf var sú stund er ég leið á þinn fúnd lyftum huga um draumanna lönd. Hve þitt handtak var hlýtt bros þitt hjartnæmt og blítt það var hátindur lífs míns að njóta. þar ég öryggi fann er í brjósti þér brann bemskuminninga unað að hljóta. Nú er liðin sú tíð æskan blundar samt blíð þegar brjóst mitt er þanið af söng. Hugur flögrar um fjöll þó þar fyki oft mjöll fundust æskunni dægrin ei löng. Ó, minn ástkæri bær blíðu og blessun þú ljær veittu öldruðum unað og fró. þegar sól okkar sest gefðu gæði okkur mest Guðs í almætti fmnum við ró (Aðalsteinn Óskarsson.) Ég sendi ömmu minni, dætrum þín- um, tengdasonum og afkomendum þeirra mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Sigríður Bergvinsdóttir. Kynningarfundur um 5. Rammaáætlun Evrópusambandsins LÍFSGÆÐI OG STJÓRNUN LÍFRÆNNA AUÐLINDA Mánudaginn 22.mars 1999, Borgartúni 6. kl. 9:00-11:00 AÐALS TEINN SVEINBJÖRN ÓKARSSON ANNA JÓNSDÓTTIR + Anna Jónsdóttir fæddist á Skóg- um í Fnjóskadal 25. júní 1925. Hún lést á Landspi'talanum 1. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Miklabæj- arkirkju í Skaga- firði 13. mars. Góður granni, hug- ljúf heiðurskona, Anna Jónsdóttir húsmóðir á Stóru-Ökrum, er látin. í huganum geymum við minningu um fyrirmynd og fræðara, sem með hlýju og natni hvatti til góðra verka og sýndi okk- ur samferðafólkinu fram á, með öllu sínu atferli, að smáverkin eru jafnmikilvæg og stórverkin, þótt minnumst þín. stundum fari meira fyrir þeim. Veitul, ötul, verkin vönd vöktu hrifning mína. Litlu fólki lipra hönd léðir gjama þína. Af þér gafstu einatt hér ástríki og hlýju. Mikið þakka mega þér Maja og bömin níu. Minningamar margar, góðar, mikils nutum, bjarmi skín. Bænir okkar heitar, hljóðar, með hjartans þökk við Guð blessi minningu hennar og syrgjandi fjölskyldu. Fjölskylda Maríu og Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. DAGSKRÁ • Yfirlít yfir þemaáætlunina: Lífsgæði og stjórnun lífrænna auðlinda Dr. Ingileif Jónsdóttir, Rannsóknastofa Háskólans í ónæmisfræði • Lykilsvið 4: Verksmiðja frumunnar og skild svið Indriði Benediktsson, sérfræðingur Framkvæmdastjórnar ESB, DG XII • Lykilsvið 5: Fiskveiðar, fiskeldi og fiskvinnsla Björn Ævar Steinarsson, sérfræðingur Framkvæmdastjórnar ESB, DG XIV • Reynsla af samstarfsverkefni innan Rammaáætlunarinnar; Bættur ferill 5 saltfiskvinnslu Borgey hf., Vísir hf. og SÍF. “ Sjöfn Sigurgísladóttir, verkefnisstjóri, Iðntæknistofnun íslands J tn • Fyrirspurnir og umræður | Fundarstjóri: Hörður Jónsson, forstöðumaður Tæknisjóðs, Rannsóknarráði íslands Fundurinn er ókeypis og öllum opinn en þátttakendur eru beðnir um að tilkynna þátttöku sína í síma RANNÍS, 5621320 eða með tölvupósti: rannis@rannis.is RANIUÍS Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • Sími 562 1320 • Bréfsími 552 9814 Netfang rannis@rannis.is • Heimasíða http://www.rannis.is ÝMISLEGT FYRSTA FLOKKS FJÁRMÖGNUN Áhættuljármagn í boði fyrir verkefni og fyrirtæki á vegum stjómvalda, sem eru til sölu. Stór verkefni og fyrirtæki er okkar sérsvið. Einnig langti'mafjármögnun fyrir stór og smá fyrirtæki. Engin umboðslaun fyrr en fjármagn fæst. FULLTRÚI óskast til að vera milliliður. Vinsamlegast sendið upplýsingar á ensku. VENTURE CAPITAL CONSULTANTS Investment Bankers 16311 Ventura Blvd., Suite 999, Encino, Kaliforníu 91436, U.S.A. Fax 001 818 905 1698 Sími 001 818 789 0422 Viðskiptatækifæri í Norður-Ameríku Íslenskt-Norður amerískt markaðsfyrirtæki vill komast í samband við íslenskt fyrirtæki með mikinn áhuga og fjármagn til að kynna sínar vörur/hugvit/þjónustu í USA og Kanada. ítarlegar upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 23. mars, merktar: „V — 7716". TIL 5ÖLU Byggingarland Til sölu er mjög gott byggingarland. Landið er 20 km frá stór-Reykjavíkursvæðinu, 15 km frá Keflavíkurflugvelli. Það liggur að sjó og frá því er mjög fagurt útsýni. Landið er grunn- skipulagt. Upplýsingar í síma, 424 6540 Magnús, 424 6542 Jón, fax 424 6689. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF □ GLITNIR 5999031719 I I.O.O.F. 18 = 1793178 I.O.O.F. 7 = 179031781/2 = Bk. I.O.O.F. 9 ■ 1793178/2 = □ HELGAFELL 5999031719 VI Hörgshlíð 12. Boðun fagnadareríndisins. Bænastund ( kvöld kl. 20.00. éSAMBAND ÍSLENZKRA ___' KRISTNIBOÐSFÉLAGA Háaleitisbraut 58 Samkoma i kvöld kl. 20.30. Ræðumaður er Friðrik Hilmars- son. Snorri Waage flytur ferða- þátt frá Kenýju. Allir velkomnir. REGLA MUSTERISRIDDARA RM Hekla 17-3-HS-MT Frá Sálar- rannsóknar- félagi íslands Töfrar ólíkra heima! Hvernig getum við tengt okkur við sjálf okkur, orku og huliðs- vætti náttúrunnar? Stefnt er að námskeiði helgina 10. og 11. apríl. Leiðbeinendur verða Erla Stef- ánsdóttir sjáandi og Kaare H. Sör- ensen leiðbeinandi. Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum, hugleiðslu, tilraunum og æfing- um innan- og utandyra. Þeir, sem hafa áhuga, hafi samband sem allra fyrst, við skrifstofu félagsins í Garðastræti 8, sími 551 8130 milli kl. 10 og 15 virka daga. srfI.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.