Morgunblaðið - 19.03.1999, Síða 1

Morgunblaðið - 19.03.1999, Síða 1
65. TBL. 87. ÁRG. FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuters. Stj órnkerfiskreppa Evrópusambandsins Agreiningur virðist aukast Brussel. Reuters. ÁGREININGUR virtist í gær hafa aukizt milli rfldsstjóma aðildarlanda Evrópusambandsins um hvaða leið skuli farin til að leysa þá stjóm- kerfiskreppu sem upp er komin eftir að framkvæmdastjóm sambandsins sagði öll af sér fyrr í vikunni. Þjóðverjar, sem gegna nú for- mennsku í ráðherraráði ESB, og Bretar hafa farið fyi-ir þeim sem vilja að snarlega verði skipaðir nýir menn í framkvæmdastjórnina. José Maria Aznar, forsætisráð- herra Spánar, sagði í gær að vissu- lega yrði að skipa nýja fram- kvæmdastjórn fljótlega, en ekki fyrr en búið væri að ganga frá samkomulagi um uppstokkun fjár- mála sambandsins og helzt ekki fyrr en eftir að kosningar til Evr- ópuþingsins era um garð gengnar. Þær fara fram 13. júní nk. Aznar, sem ræddi málið við Gerhard Schröder Þýzka- landskanzlara í Madríd í gær, sagði að afsögn framkvæmda- stjórnarinnar hefði skapað „mjög slæmt ástand“ en það gæti batnað til muna ef löndin 15 næðu sam- komulagi um endurskoðun fjár- málanna á aukaleiðtogafundi í Berlín í næstu viku. ■ Schröder/39 Fulltrúar Kosovo-Albana skrifuðu undir bráðabirgðasamkomulag um frið Búist við að Serbar fái frest fram í næstu viku París, Washington. Reuters. FULLTRUAR Kosovo-Albana í viðræðunum í Frakklandi undirrituðu í gær bráðabirgðasamkomulag um frið í héraðinu en fulltrúar Serba ekki. Var búist við, að þeim yrði gefinn fresþur til þess fram á miðvikudag í næstu viku. Fulltrúar vestrænna ríkja og ígor ívanov, utanrfldsráðherra Rúss- lands, skoraðu í gær á serbnesku sendinefndina að fallast á samkomulagið og Madeleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði, að undir- búningi undir hernaðaraðgerðir gegn Sérbum væri lokið og NATO reiðubú- ið að láta til skarar skríða. Reuters CHRISTOPHER Hill (fyrir miðju) og Wolfgang Petritsch, sáttasemjar- ar vestrænna ríkja, skrifa undir samkomulagið um frið í Kosovo. Að baki Hill stendur Ibrahim Rugova, einn helsti leiðtogi Kosovo-Albana. Lokaáfangi belgflugsins Genf. Reuters. Útför í Lurgan Lurgan. Reuters. ÞÚSUNDIR syrgjenda voru við út- för Rosemary Nelson, lögfræðings- ins kaþólska sem myrt var á mánu- dag af öfgasinnuðum sambands- sinnum, í bænum Lurgan á Norður- Irlandi í gær. Um tvö hundruð skólabörn stóðu heiðursvörð þegar líkbíllinn ók framhjá og fjöldi manns fylgdist þegjandi með. Gífurleg spenna er nú á Norður- írlandi í kjölfar morðsins á Nelson og kom til átaka í Portadown á miðvikudagskvöld. Þá um daginn hafði maður einnig verið myrtur í Belfast í innbyrðis átökum öfga- hópa sambandssinna. Skyggðu þessir atburðir alveg á tilraunir stjórnmálamanna til að leysa ágreining sinn um afvopnun öfga- hópa og myndun heimasljórnar á N-Irlandi. Oeirðir brutust aftur út í Portadown í gærkvöld og var kveikt í nokkrum bifreiðum með bensínsprengjum. ■ Vaxandi spenna/24 --------------- Hallar á fínnska jafn- aðarmenn Helsinki. Reuters. PAAVO Lipponen, forsætisráðherra Finnlands, viðurkenndi í gær, að flokkur sinn, Jafnaðarmannaflokkur- inn, ætti á brattann að sækja hjá kjósendum en þingkosningar verða í landinu á sunnudag. Undanfarna mánuði hafa þrír stærstu flokkarnir í Finnlandi notið álíka mikils fylgis í skoðanakönnun- um, um 23% hver, en í könnun, sem birt var í gær, fær Miðflokkurinn 23,8%, Hægriflokkurinn 23,2% en Jafnaðarmannaflokkurinn 21,5%. Jafnaðarmenn fengu 28% atkvæða í kosningunum 1995 en hann hefur goldið hneykslismála, sem komu upp á síðasta ári og tengdust honum. Þá mæltust efnahagsumbætumar, sem grípið var til í því skyni að tryggja aðild Finnlands að evrópska mynt- bandalaginu, líka misvel fyi'ir. LOFTBELGSFARARNIR, sem era að reyna að komast í kringum jörðiná, vorú yfir Karíbahafi í gær og ákváðu þá eftir vandlega íhugun að leggja í síðasta áfangann, yfir Atlantshafið til Máritaníu í Afríku. Svisslendingurinn Bertrand Piccard og Bretinn Brian Jones vora á báðum áttum um það í gær hvort halda skyldi ferðinni áfram, enda eru eldneytisbirgðirnar orðn- ar litlar og nokkur vafi lék á um, að vindarnir yrðu nógu hagstæðir. Þegar þeir félagarnir fóru yfir Pu- erto Rico var ákveðið að láta slag standa og reyna að komast yfir Atlantshafið og yfir „marklínuna" í Máritaníu. Ef allt gengur vel gæti það orðið um klukkan 17 á morg- un. Aðeins tveir af þremur alþjóðleg- um sáttasemjurum, Bandaríkja- maðurinn Chris Hill og Wolfgang Petritsch, fulltrúi Evrópusam- bandsins, ESB, skrifuðu undir sam- komulagið ásamt Kosovo-Albönun- um, en Borís Majorskí, fulltrúi Rússa, lét það ógert. Endurspeglar það ágreining Rússa og vestrænna ríkja í þessu máli en Majorskí sagði, að undirritun annars deiluaðilans dygði ekki. Undirritun Kosovo- Albana er þó mjög mikilvæg vegna þess, að nú stendur það upp á Serba eina að kjósa frið eða áframhaldandi blóðsúthellingar. Búist var við, að þeir Hubert Vedrine, utanríkisráðherra Frakk- lands, og Robin Cook, utanríkisráð- heraa Bretlands, myndu biðja serbnesku sendinefndina að fara heim til Belgrad og gefa lokasvar sitt við friðax'tillögunum ekki síðar en um miðja næstu viku. Serbar halda áfram liðsafnaði sín- um og hernaðarappbyggingu í Kosovo og virðast vera að búa sig undir mikla sókn gegn skæraliðum UCK, Frelsishers Kosovo. Serbneski hershöfðinginn Nebojsa Pavkovic sagði þó í gær, að lítil ógn stafaði af skæruliðum og ekki yrði ráðist gegn þeim nema NATO réð- ist til atlögu. Vestrænar leyniþjón- ustur vísa þessari yfirlýsingu á bug og telja fullvíst, að Serbar hyggi á sókn í þeirri trú, að NATO-ríkin heykist á að ráðast á þá. NATO reiðubúið Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varaði Slobodan Milosevic, forseta Júgóslavíu, við í gær og sagði, að NATO væri reiðu- búið að ráðast gegn herafla Serba ef þeir neituðu að fallast á frið. Tók Joe Lockhart, talsmaður Hvíta hússins, í sama streng og í tilkynn- ingu frá bandaríska hermálaráðu- neytinu sagði, að sex bandarísk herskip, vopnuð langdrægum stýriflaugum, og tveir kafbátar væru við öllu búin á Miðjarðarhafi og á Adríahafi. Þar að auki væru um 200 bandarískar orrustuþotur af um 400 NATO-þotum alls tilbún- ar til átaka. Wesley Clark, yfírmaður NATO, sagði í gær í Makedóníu, að leiðtog- ar Serba ættu ekki að fara í neinar grafgötur með það, að réðist NATO til atlögu myndi það gersigra serbneska herinn. Vojislav Seselj, aðstoðarforsætisráðheiTa Serbíu, sagði hins vegar, að Serbar myndu verjast af hörku og herflutningar þeirra að undanfórnu væru liður í því. Öflugt loftvamakerfi Bandaríska varnarmálaráðuneyt- ið sagði í gær, að búið væri að velja skotmörkin kæmi til árása á Serba en Michael Ryan, yfirmaður banda- ríska flughersins, sagði á fundi með hermálanefnd öldungadeildarinnar, að loftvamakerfi Serba væri öflugt, meðal annars búið rússneskum flugskeytum, og því mætti búast við, að ekki snera allar NATO-þot- urnar aftur kæmi til átaka. ívanov, utanríkisráðherra Rúss- lands, skoraði í gær á Serba að und- irrita friðartillögurnar og þeir A1 Gore, varaforseti Bandaríkjanna, og Jevgení Prímakov, forsætisráð- herra Rússlands, ræddu málið í síma í gærkvöld. Prímakov kemur til Washington í næstu viku og þá mun hann eiga viðræður við Bill Clinton Bandaríkjaforseta um stöð- una í Kosovo. Þúsundir manna vora á flótta í Kosovo í gær vegna hernaðar Serba, þar af um 7.000 manns frá aðeins einum bæ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.