Morgunblaðið - 25.03.1999, Síða 1

Morgunblaðið - 25.03.1999, Síða 1
CeBIT Gagnleg martröð /6 SHISEIDO „Rolls Royce snyrti- vörnheimsins“ /5 SPARISJÓÐIR Áherslan á aukn- ingu útlána /8 VIDSKDTIAIVINNULÍF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 25. MARZ1999 BLAÐ Viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- ráðherra, sem fara með málefni Fjárfesting-arbanka atvinnuh'fsins, hafa tilkynnt stjórnarformanni bank- ans að á næstu tveimur mánuðum verði undirbúin sala á hlutafé ríkis- ins í FBA, þannig að ný ríkisstjórn geti hrint sölunni í framkvæmd. Þetta kom fram í ræðu Þorsteins Ólafssonar, sfjórnarformaims FBA, á aðalfundi bankans í gær. /2 Olíufélagið Geir Magnússon, forstjóri Oh'ufélags- ins hf., mótmælir því að flutnings- jöfnunarsjóður olíuvara greiði niður flutningskostnað Olíufélagsins hf. á nokkurn hátt líkt og Kristinn Bjöms- son, forsfjóri Skeljungs, hélt fram í ræðu sinni á aðalftmdi Skeljungs hf. /4 KÍ Yfirgnæfandi meirihluti félaga í Kaupmannasamtökum Islands sam- þykkti á aðalfundi samtakanna í gær ályktun um að fela stjóm þeirra að tryggja að KÍ yrði stofnaðili í nýjum hagsmunasamtökum verslunar og þjónustugreina, Samtökum verslun- ar og þjónustu, sem áformað er að stofna í næsta mánuði. Benedikt Kri- stjánsson var endurkjörinn formað- ur samtakanna á fundinum. /2 SÖLUGENGI DOLLARS Gengi bréfa í Kögun hf. hækkaði skyndilega á Opna tilboðsmarkaðnum Orðrómur um sölusamn- ing sennileg skýring NATO kannar kaup á flug- stjórnarhermi Kögunar GENGI á bréfum í Kögun hf. hækkaði skyndilega í gær og sagði Gunnlaugur M. Sigmundsson, for- stjóri fyrirtækisins, í samtali við Morgunblaðið að hann kynni engar skýringar á þessu. Helst teldi hann að einhver orðrómur hefði komist á kreik um að búið væri að ganga frá samningi um sölu á flugstjómarhermi sem Kögun hefur varið tug- mihjónum í að þróa, en þetta hugbúnaðarkerfi er að fullu tiibúið og er Atlantshafsbandalagið, NATO, nú með það tii skoðunar. Einnig gæti ver- ið um að ræða orðróm um að gengið hafi verið frá öðrum samningum sem væru í deiglunni hjá Kög- un hf. ,J’að er vitað mál að við höfum verið að vinna í því að búa til ákveðinn hugbúnað sem við erum ekki búnir að selja, en þetta hugbúnaðarkerfi er ætlað til notkunar við þjálfun flugumferðarstjóra. Eg veit ekki hvort menn telja að við séum búnir að selja hann, en það er einnig fleira á döfinni sem við emm ekki búnir að lenda og ég vii ekki tjá mig um að svo stöddu,“ sagði Gunnlaugur. Hann sagði að Kögun hefði nú í á annað ár unn- ið að gerð flugstjómarhermisins, og ef það tækist að selja hann væri gífurleg framlegð í slíkum bún- aði. Sagði hann markaðsstarf í sambandi við sölu hugbúnaðarins þegar vera hafið í Bandaríkjunum og búið væri að verja talsverðum fjármunum í það. NATO vill kaupa herminn til reynslu „Menn hafa vitað um þennan hermi hjá okkur í nokkum tíma, og þó ég telji að ég sé nálægt því að selja hann núna þá er ég einfaldlega ekki búinn að því,“ sagði Gunnlaugur. Hann sagði að NATO hefði lýst vilja til að kaupa eintak af fiugstjómarherminum til reynslu og varið til þess fjármunum, en menn á vegum Kögunar em nú að kynna herminn erlendis. Nú reyndi hins vegar á það hvort fleiri aðilar byðu GUNNLAUGUR M. Sigmundsson, framkvæmdastjóri Kögunar hf. á skrifstofu sinni. fullkomnari búnað af þessari gerð og það gæti orð- ið til þess að ekkert yrði úr frekari viðskiptum. Hins vegar væri honum ekki kunnugt um að slíkur búnaður væri til. Mikil hækkun á gengi bréfa í tölvufyrirtækjuin Gengi bréfa Kögunar hækkaði á Opna tilboðs- markaðnum í gær úr 16 í 20 en lækkaði síðan örh't- ið þegar leið á daginn. Frá því jöfnunarhlutabréf í félaginu vora gefin út síðastliðið haust hefur gengi bréfa í Kögun hækkað um 45%. Viðskipti með hlutabréf á Verðbréfaþingi ís- lands námu 113 milljónum króna í gær og mikil viðskipti vora með hlutabréf tölvufyrirtækja sem hækkuðu mikið. Velta með hlutabréf þeirra var alis 60 milljónir króna, en mest með hlutabréf Op- inna kerfa, eða 39 milljónir króna. Vísitala upplýs- ingatækni hækkaði í gær um 7,34%, en þá hækk- aði gengi bréfa Skýrr um 16,2%, Tæknivals um 12,4%, Nýherja um 5,5% og Opinna kerfa um 3%. Hækkun á gengi hlutabréfa tölvuiyrirtækja frá áramótum hefur verið gífurlega mikil, og þannig hafa hlutabréf Skýrr hækkað um 89%, Nýheija um 88%, Tæknivals um 67% og Opinna kerfa um 27%. V ERÐBRÉFASJÓÐIR LANDSBRÉFA - þú velur þann sem gefur þér mest Peningabréf eru kjörin leið fyrir þá sem vilja festa fé til skamms tíma, s.s. fyrirtæki, sjóði, sveitarfélög, tryggingarfélög og einstaklinga. Peningabréf eru laus til útborgunar án kostnaðar þegar 3 dagar eru liðnir frá kaupum. Yfir tveir milljarðar í öruggum höndum. Nafnávöxtun sl. 3 daga 8,37% Nafnávöxtun sl. 5 daga 7,81% Nafnávöxtun sl. 20 daga 7,82% Láttu lausaféð vinna fyrir þig. Aðeins eitt símtal...nýttu þér ráðgjafaþjónustu okkar og umboðsmanna okkar í öllum útibúum Landsbanka íslands. LANDSBREF HF. Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðli að Veröbréfaþingi íslands. M I 5 3 5 2 0 0 1 , VEFSÍÐA w w w . I a n d s b r e <.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.