Morgunblaðið - 25.03.1999, Síða 2

Morgunblaðið - 25.03.1999, Síða 2
2 C FIMMTUDAGUR 25. MARZ 1999 HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Golli ÍR-ingar vilja fá Jón sem þjálfara JÓN Kristjánsson, sem hefur þjálfað meistaraflokk Vals undanfarin ár, hef- ur verið í viðræðum við Fram um þjálf- un næsta vetur eins og Morgunblaðið skýrði frá á þriðjudag. Nú hafa ÍR-ing- ar einnig sett sig í samband við Jón og vilja fá hann til að taka við iiðinu af Kristjáni Halldórssyni, sem þjálfar í Noregi næsta vetur. „Ég hef fundað bæði með stjórn handknattleiksdeildar Fram og ÍR. Ég er þessa dagana að kynna mér stöðu liðanna og það vinnuumhverfi sem fé- lögin bjóða upp á. Það er óljóst hvaða leikmenn verða áfram, sérstaklega hjá Fram. En það er kannski f verkahring nýs þjálfara að taka ákvörðun um það í samstarfl við stjórnina," sagði Jón. Hann sagðist reikna með að ákveða á allra næstu dögum hvað hann geri í sambandi við þjálfun næsta vetur. Ólafur Þór á ferð og flugl ÓLAFUR Þór Gunnarsson, markvörð- ur, sem nýverið gekk til liðs við Skaga- menn, verður á faraldsfæti næstu daga. Ólafur kom frá Bandaríkjunum í gær- morgun og hafði klukkutfma viðdvöl á Keflavíkurflugvelli. Þá hélt, hann af landi brott með Skagamönnum í æf- ingaferð til Spánar. Ólafur verður á Spáni fram á sunnu- dag, en þá heldur hann með félaga sín- um í Skagaliðinu, Reyni Leóssyni, til liðs við 21 árs landsliðið í Þýskalandi. Þaðan heldur liðið til Úkraínu og leikur gegn heimamönnum í undankeppni EM þann 30. mars. URSLIT Fram - IBV 19:15 Iþróttahús Fram við Safamýri, íslandsmót- ið í handknattleik - X. deild kvenna, þriðji leikur í 8-liða úrslitum, miðvikudaginn 24. mars 1999. Gangur leiksins: 7:0, 8:2, 12:2, 12:3, 15:3, 15:6,16:8,17:10,19:10,19:15. Mörk Fram: Marina Zoveva 6, Díana Guð- jónsdóttir 5, Ama Steinsen 2, Olga Prohorova 2, Svanhildur Þengilsdóttir 2, Jóna B. Pálmadóttir 1, Guðríður Guðjóns- dóttir 1. Varin skot: Hugrún Þorsteinsdóttir 24/2 (þar af 8/2 aftur til mótherja), Ema Eiríks- dóttir 2 (þar af eitt aftur til mótherja). Utan vallar: 8 mínútur. Mörk ÍBV: Amela Hegic 5/2, Guðbjörg Guð- mannsdóttir 4, Jenny Martinsson 2, Ingi- björg Jónsdóttir 2, Hind Hannesdóttir 1, Anita Ársælsdóttir 1. Varin skot: Lukreeija Bokan 15/1 (þar af sex til mótherja). Utan vallar: Aldrei. Dómarar: Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson voru góðir. Áhorfendur: Um 220. Þýskaland Magdeburg - Dutenhofen............24:17 ■Ólafur Stefánsson gerði 9 mörk, þar af 7 úr vítum fyrir Magdeburg. Kiel- Eisenach....................36:25 ■Julian Róbert Duranona gerði 2/1 mörk fyrir Eisenach. Lemgo - Essen ....................24:22 ■Páll Þórólfsson gerði 4 mörk fyrir Essen. Niederwurzbach - Flensburg........27:25 Knattspyrna Reykjavíkurmótið Leiknir - Fjölnir...................3:0 Kjartan Hjálmarsson, Þórður Jensson, Tómas Þór Kárason. England 1. deild Huddersfield - Norwich .............1:1 FRAMSTÚLKUR fögnuðu vel sigrinum á ÍBV í gærkvöldi enda voru þær nokkuð smeykar við þriðja leikinn eftir slæmt tap í Eyjum. Frá vinstri eru Svanhildur Þengilsdóttir, Guðríður Guðjónsdóttir, Marina Zoveva, Díana Guðjónsdóttir, Olga Prohorova, Erna Eiríksdóttir, Arna Steinsen, Hugrún Þor steinsdóttír, Þuríður Hjartardóttir, Jóna Björg Pálmadóttir, Signý Sigurvinsdóttir og Sara Smart. Sveiflur í Safamýrínni 1 kvöld HANDKNATTLEIKUR tírslitakeppni karla: Varmá: UMFA - HK .. 20.30 Vestm.: ÍBV - Haukar .... KÖRFUKNATTLEIKUR Úrslitakeppni kvenna: .. 20.30 Kennarah.: ÍS - Keflavík .. .. 20.15 Sveiflurnar í leik Fram og ÍBV, þegar liðin háðu oddaleik um að komast í undanúrslit Islands- mótsins í handknatt- leik, voru ótrúlegar - Framstúlkur röðuðu inn 12 mörkum fyrir hlé á meðan Eyja- stúlkur náðu aðeins tveimur því Hugrún Þorsteinsdóttir í marki Fram fór á kostum. Eftir hlé kom kafli þar sem gestimir úr Eyjum skoruðu 12 á móti fjórum mörkum Stefán Stefansson rtfai ÞJALFARAMENNTUN KSÍ Barnaþjálfun -11. apríl 10.- Fræðslunefnd KSÍ heldur þjálfaranámskeið, Barnaþjálfun, í Reykjavík 10.—11. apríl 1999 samkvæmt kennsluskrá um þjálfaramenntun. Þátttakendur þurfa að hafa lokið A-stigi KSÍ. Námskeiðsþættir: Sálarfræði Leikfræði Þjálffræði Kennslufræði Líffæra- og lífeðlisfræði Knattspyrnutækni Skráning er hafin á skrifstofu KSÍ sem veitir allar nánari upplýsingar í síma 510 2900. GÓÐ ÞJÁLFUN BETRI KNATTSPYRNA KSI Fram en þegar upp var staðið hafði Fram betur, 19:15, og keppir við FH í undanúrslitum. Frá fyrstu mínútu reyndu Eyja- stúlkur að taka Guðríði Guðjóns- dóttur og Marinu Zovevu úr um- ferð - það gekk vel í fyrri leik lið- anna í Eyjum - en þær hefðu mátt vita að þjálfari Fram léti slíkt ekki henda sig aftur. Fjórar á móti fjór- um léku Framstúlkur á als oddi með því að ná 12:2 forystu þar sem Olga Prohorova lék af mikilli skyn- semi en Eyjastúlkur skoruðu sitt fyrsta mark á 17. mínútu í 16. sókn sinni og þá hafði Hugrún varið 11 skot, þar af tvö vítaskot. Eftir hlé héldu gestirnar áfram að taka Guðríði og Marinu úr um- ferð en margir hefðu talið það full- reynt enda munaði þá tólf mörk- um á liðunum, 15:3. Eyjastúlkur héldu þó sínu striki, gáfust aldrei alveg upp og þegar þær fengu kjark á ný til að skjóta á markið uppskáru þær strax mörk, sem gaf aukið sjálfstraust. Framliðið gaf eftir og ÍBV gekk á lagið, saxaði á forskotið og þegar þjálf- ari Fram hóf að skipta inná af varamannabekknum síðustu tíu mínúturnar í stöðunni 19:10, minnkaði forskotið enn frekar - Eyjastúlkur skoruðu þá fímm síð- ustu mörk leiksins án þess að Framstúlkur næðu að svara fyrir sig en Hugrún markvörður kom í veg fyrir að hætta skapaðist. „Við vorum reiðar og mjög ósátt- ar við okkur sjálfar eftir „slysið“ í Eyjum og ætluðum að sýna og sanna að við getum betur,“ sagði Hugrún, markvörður og fyrirliði, sem átti stórleik en þungu fargi var af henni létt eftir afhroðið í Eyjum. „Þetta fór eins og við ætl- uðum okkur, varnarleikurinn var höfúðverkur í Eyjum en nú gekk hann vel og þá kemur sóknarleik- urinn til en það var svo veisla að fá að vera fjórar á móti fjórum þegar þær tóku tvær úr umferð í sóknar- leiknum hjá okkur. Mér líst vel á að spila við FH í undanúrslitum, við unnum báða leikina en í úrslita- keppni eru allir leikir mjög erfiðir - það verður barist til síðasta blóð- dropa,“ bætti Hugrún við en hún, ásamt Olgu, bar uppi leik Fram. Díana Guðjónsdóttir, Svanhildur Þengilsdóttir og Marina, sem var þó vandlega gætt, gerðu einnig góða hluti. Fyrirliði IBV, Ingibjörg Jóns- dóttir, var ekki eins sátt. „Ég er sveitt og pirruð, við spiluðum að- eins handbolta í tuttugu mínútur af sextíu og náðum ekki að opna vörn þeirra og skora mörk og við það kom stress upp hjá okkur,“ sagði Ingibjörg eftir leikinn. „Við misstum þær of langt frá okkur í byi-jum og hættum of seint að taka tvær úr umferð. Þetta var annað en leikurinn í Eyjum þegar við mættum einbeittar til leiks en þær með hangandi haus.“ Eyjastúlkur kvöddu leiktímabilið með ágætum lokaspretti - síðari hálfleik - og mega eiga að þær gáfust aldrei upp. Lukrecija Bokan í marki þeirra stóð sig vel og Ingibjörg, Amela Hegic og Jenny Martinsson einnig.. Mannekla hjá Keegan KEVTN Keegan, þjálfari enska iandsliðsins, hefur kallað á Chris Armstrong, leikmann Tottenham, fyrir laudsleik gegn Pélverjum í undankeppni EM. Ástíeðan eru meiðsl sem lirjá leikmenn enska liðsins. í gær kom í Ijós að Michael Owen og Robbie Fowler, Liverpool, Dar- ren Anderton, Tottenham, og Chris Sutton, Blackburn, yrðu ekki með í landsleiknum á laug- ardag vegna ineiðsia. Fyrr í vikunni höfðu Andy Hinchcliffe, Sheff. Wed., og David Batty, Leeds, dregið sig úr hópnum vegua veikinda og meiðsla. Þá er óvíst hvort David Seaman, markvörður Arsenal, nái sér góðum fyrir leikinn. Chris Arinstrong, sem er 27 ára, hefur ekki áður leikið landsleik. Hann hefur ekki átt fast sæti í liði Tottenham í vetur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.