Morgunblaðið - 28.03.1999, Side 9

Morgunblaðið - 28.03.1999, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999 9 Með Volvo S80 hefst nýr og spennandi kafli í langrí þróunarsögu. Aldrei áður hefur Volvo lagt jafnmikla vinnu í hönnun fólksbíls. Volvo S80 er ekki bara öruggasti fólksbíll sem Volvo hefur nokkru sinni smíðað - hann er einstök upplifun. Þægindi í hæsta gæðafiokki Volvo S80 er frábærlega hannaður, hvemig sem á hann er litið, jafnt að innan sem utan. Farþegarýmið er með því stærsta og vandaðasta sem þekkist. Fjölbreyttar stillingar á stýri og sæti gera ökumanni kleift að finna hina fullkomnu akstursstellingu. I aftursætinu geta þrír fullorðnir notið fyllstu þæginda með yfirdrifið rými til fóta. Þegar þörf er á auknu farangursrými má fella niður aftursætisbakið, að hluta eða í heild. Bakið á farþega- sætinu er einnig hægt að leggja niður. Einstakir aksturseiginleikar Volvo S80 hefur einstaka aksturseiginleika. Undirvagninn er einn sá fullkomnasti sem framleiddur hefur verið og bíllinn helst nánast alveg láréttur við allar aðstæður. Oflugt ABS hemlakerfi með loftkældum diskum og EBD átaksdreifingu lágmarkar hemlunar- vegalengd. STC spólvöm tryggir ávallt besta mögulegt veggrip og DSTC skriðvöm vinnur gegn því að bíllinn skríði til hliðar. Feiknarkraftur Volvo S80 er boðinn með tveimur öflugum og þýðgengum vélum. Fimm strokka vélin er 2,4 lítra og skilar 170 hestöflum. Hún nýtir eldsneytið sérlega vel og hefur mikinn togkraft á öllu snúningssviðinu. Volvo S80 T6 er fyrsti bíll í heiminum með þverliggjandi sex strokka línuvél. Vélin skilar 272 hestöflum og kemur bílnum í 100 km hraða á 7,2 sekúndum. Bíllinn er með nýja Geartronic skiptingu sem sameinar kosti sjálfskiptingar og beinskiptingar. Nýr mælikvarði á öryggi Með Volvo S80 kemur nýr mælikvarði á öryggi fólksbíla. Af öryggisbúnaði má nefna tvær heimsnýjungar, WHIPS aftanákeyrsluvörn og IC loftpúðatjöld fyrir hliðarglugga. Bíllinn er með SIPS hliðarárekstravörn og hliðarloftpúða í framsætum. Öll fimm sætin eru með þriggja punkta kippibeltum. Öryggi bama er séstaklega tryggt í Volvo S80, meðal annars er hægt að fá innbyggðan bamastól í aftursæti. Fullkomnasta tölvukerfi í fólksbíl Tölvukerfið í Volvo S80 er það fullkomnasta sem boðið hefur verið í fólksbíl. Kerfið auðveldar viðhald og gefur ótrúlega möguleika á uppfærslu búnaðar. Verði bilun í bílnum birtast ökumanni upplýsingar um rétt viðbrögð á tölvuskjá í mælaborðinu. Sami skjár getur einnig sýnt upplýsingar úr aksturstölvu, svo sem bensíneyðslu. Rafeindastýrð þjófavöm útilokar að bíllinn sé ræstur án rétta lykilsins. Búnaður fyrir þá kröfuhörðustu Staðalbúnaður Volvo S80 hefur hvergi verið sparaður og auka- búnaðurinn mætir ýtrustu kröfum. Allur búnaður hefur verið hannaður með öryggi í huga. Ökumaður getur til dæmis stjómað hljómtækjum, farsíma og hraðastilli án þess að taka hendur af stýri. Innbyggður farsími er með hljóðnema í baksýnisspegli og hátalara í höfuðpúða ökumanns. Hægt er að gera bílinn að fullkomnum hljómleikasal með Dolby Surround Pro Logic hljómflutningskerfí með níu hátölurum. VOLVO S80 FRUMSÝNDUR Sunnudag kl. 13-16 VOLVO brimborg Bíldshöfða 6 - Sími 515 7000 ÖRUGGASTIKOSTURINN... ... GETUR LIKA VERIÐ MEST SPENNANDI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.