Morgunblaðið - 28.03.1999, Page 11

Morgunblaðið - 28.03.1999, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999 11 Ahrif virkjana og stíflugarða VERNDARSJÓÐUR villtra laxastofna hefur tekið saman eftirfarandi lista yfir þau vandamál sem stíflugarðar valda í ám: Þeir eru hindinn í vegi göngufiska, bæði á leið upp árnar og í niðurgöngu. Hvort tveggja hefur neikvæð áhrif. Þeir breyta vatnsrennsli, bæði ofan og neðan þeirra. Þeir breyta hitastigi vatns- ins. Þeir breyta magni uppleysts súrefnis í vatninu. Þeir breyta dreifingu botn- falls um árfarveginn. Rennslisbreytingar breyta farveginum. Flóra vatnaskordýra og ann- arra hryggleysingja breytist. Afstaða rándýra til bráða tekur breytinguin. Dreifing næringarefna í vatninu raskast. Búsvæði breytast, einkum þau sem eru nauðsynleg göngufiskum. Breyting á búsvæðum eru staðbundnum tegundum frekar í hag en göngufiskum. Stífiugarðar auka líkur á að mengunarefni sitji eftir í vatnakerfinu. Stíflur hvetja til aukinnar notkunar klak- og eldisstöðva „til lausnar“ vandamálum sem stíflugarðarnir valda. straumar við ósana eru hraðir og sjór endurnýjast því þar mjög hratt. NASF segir að telja megi fullvíst að Elliðaárvirkjun eins og hún sé í dag stæðist ekki þær umhverfis- kröfur sem nú séu gerðar. Reglu- gerðir verða sífellt strangari og við bætast kostnaðarsamir eftirlits- þættir. „Umhverfismælingar sem nú fara fram á áhrifum virkjana víðs vegar í heiminum eru mún víðtæk- ari en þær sem farið hafa fram við Elliðaámar á undanförnum árum.“ NASF telur ímynd ánna standa lélega og hún sé óheppileg fyrir stefnumótun Reykjavíkurborgar í menningar- og ferðamál- um. „Hrein og tær á með heilbrigðum laxastofni er mikilvægur þáttur í hugum borgarbúa og ferðamanna sem koma til dvalar í Reykjavík. Is- land er forystuland í vemdun villtra laxastofna." Flestir sérfræðingar sem NASF leitaði til bentu á alvarlega áhættu- þætti og telur NASF mikilvægt að endurskoða stefnumótun varðandi árnar með tilliti til farsællar lausn- ar til langs tíma litið. „Stilla þarf nýtingaráfonnum í hóf og efla reglulegar rannsóknir, ekki síst hagnýtar rannsóknir sem þurfa að taka mið af endurreisn og upp- byggingu náttúrulega laxastofnsins í ánum.“ Varðandi virkjunina segir NASF efnahagsleg rök hníga að því að raf- orkuframleiðslunni verði hætt. „Kostnaður við rannsóknir, eftirlit og varnarbaráttu er þegar umtals- verður og mun á allra næstu ámm verða langtum hærri en hugsanleg aukaútgjöld við orkukaup annars staðar frá.“ I þessari samantekt NASF kemur fram, að ekki muni kosta Reykjavíkurborg nema 18-20 milljónir á ári að kaupa þá orku annars staðar frá sem rafstöðin við Elliðaár framleiði. Þá segir að lög, reglugerðir og aðhald almennings geri sífellt meiri kröfur til varúðarráðstafana og til þess að vel sé staðið að verki. „NASF hefur ekki, þrátt fyrir mikla eftirgrennslan, tekist að finna sérstakar heimildir eða laga- leyfi til rekstrarins eins og vatna- lögin frá 1923 kveða á um, né fyrir þeim framkvæmdum eða breyting- um sem gerðar vora á virkjuninni eftir setningu vatnalaganna. Ovissa um stöðu virkjunarinnar mun aukast á næstu misserum.“ Merkilegt að ástandið skuli ekki vera verra Orri Vigfússon segir, að bara við það eitt að hætt yrði að framleiða raforku í Elliðaánum fengju þær að renna í eðlilegum farvegi sínum. Það væri nóg til að byrja með. „Raunar er merkilegt að ástandið í Elliðaánum skuli ekki vera enn verra eftir sjö áratuga raforku- framleiðslu," segir hann. „Forráða- menn Rafmagnsveitu Reykjavíkur hafa borið gæfu til að fara þarna með ýtrastu varkárni og það gefur okkur færi á að endurreisa villta laxastofninn í ánni á næstu 10-20 árum. Hins vegar ætti að taka stjórnskipulag Elliðaánna til end- urskoðunar hið fyrsta. Innan Raf- magnsveitunnar, og nú Orkuveitu Reykjavíkur, takast á tvenn sjónar- mið, sjónarmið virkjunai'innar og sjónarmið vemdunar. Hættan á hagsmunaárekstram er of mikil og því ættu borgaryfirvöld að fela sjálfseignarstofnun, sjóði, rekstrar- félagi eða álíka aðila yfiramsjón með umhverfisvernd ánna.“ Orri segir að virkjun ánna 1921, Elliða- og Árbæjarstíflur, lokun bú- svæða og vatnstaka úr Gvendarbrunnum hafi gert að engu möguleika laxastofnsins til sjálf- bærni. Knud Ziemsen borgarstjóri hafi séð hvert stefndi og keypt í nokkur ár kviðpokaseiði til slepp- ingar í árnar. Það hafi hins vegar dugað skammt og því hafi verið reist klakhús við árnar í byrjun fjórða áratugarins. „Á þessum tíma þekktu menn ekki til neikvæðra áhrifa erfðablöndunar og þessar að- gerðir vora því allar af góðum hug. Menn þykjast vita að nú sé tiltölu- lega lítill hluti hrygningarstofnsins náttúralegur, en bestu skil úr sjó koma frá laxi þar sem báðir for- eldrar era uppranalegir eða nátt- úralegir," segir Orri. Hann vísar í þessu sambandi til erlendra rannsókna. I erindi á ráðstefnu Alþjóða hafrannsóknar- stofnunarinnar og Nasco í apríl 1997 flutti norski prófessorinn Br- or Jonsson erindi um athuganir á víxlverkandi samskiptum villtra laxa við eldislaxa í norskum ám sem, eins og í ám við Fundy-flóa í Kanada, hafa orðið til fyrir blönd- un af völdum slysa eða tilviljana. „Rannsóknir hans staðfesta að laxar af eldisuppruna eru síður hæfir til að lifa af í náttúrunni. Þá geta stór sumaralin seiði einnig verið varasöm. Þau hafa sums staðar mælst taka frá búsvæði og fæðu villtra seiða, sem oft geta sýnst veikburða en skila sér margfalt betur úr hafi. Prófessorinn sagði ekki ólíklegt að þetta geti leitt til mun verra ástands fiski- stofna." Orri Vigfússon vísar einnig til skýrslu Veiðimálastofnunar frá síð- asta ári, þar sem fram hafi komið að aðeins 57% vatnakerfis ánna sé óskert. Virkjunin hafi raskað vatna- kerfinu mest og auk slíkra beinna áhrifa sé bent á áhrif vegna hraðra rennslisbreytinga, bæði neðst í án- um og á kaflanum frá Elliðavatni niður í Árbæjarlón. „í skýrslunni er borgaryfirvöldum bent á að skoða aðra orkuöflunarkosti og meta alvarlega fýsileik þess að hætta raforkuvinnslu í elliðaánum og rífa þar með Árbæjarstíflu,“ segir Orri. „Niðurstaðan er sú, að endurheimt og viðhald búsvæða líf- vera ánna hljóti að vera forgangs- verkefni." „Innstreymi af hafbeitarfiski og kvíafiski er hættulegt“ „Hrein og tær á með heil- brigðum laxastofni“ Barist fyrir verndun búsvæða víða um heim Orri Vigfússon segir að áhersla NASF á endurheimt Elliðaánna sé ekki einsdæmi í heiminum. Hann vísar máli sínu til stuðnings í bar- áttu samtaka í Englandi, Wales og Irlandi fyrir verndun búsvæða í laxám og tilraunir þarlendra til að koma í veg fyrir aðvilltir laxastofn- ar erfðamengist. í umsögn Nátt- úraverndarstofnunar Bandaríkj- anna, National Fish and Wildlife Foundation, til NASF í janúar sl. segir m.a. frá niðurrifi stíflugarða og enduraeisn laxáa. I umsögninni kemur fram, að á síðustu tveimur áram hefur Náttúraverndarstofn- unin beitt sé fyrir samstarfsáætlun verndarsamtaka, íyrirtækja, um- sjónaraðila og eigenda stífla til þess að leita uppi tækifæri til endur- reisnar og umbóta og hrinda þeim í framkvæmd. Niðurrif stíflna hafi í for með sér að fjölbreytni vistkerf- isins aukist, fiskistofnar stækki og öðram vatnalífveram fjölgi, vatns- gæði aukist, vistkerfi og búsvæði batni, efnahagsáhrifin séu jákvæð, m.a. vegna þess að stangaveiði verði arðsamari og viðhaldskostn- aður á stíflum falli niður um leið og þörf fyrir fiskirækt minnki. Vandinn fer vaxandi Orri Vigfússon segir líklegt að vandamál Elliðaánna muni fara hraðvaxandi á næstu áram. „Hlið- stæð vandamál era þekkt þar sem byggð er við laxár. Þær era við- kvæmar og bíða mikið tjón sé ekki gripið til nauðsynlegra varúðarráð- stafana í tíma. I stefnumótun Reykjavíkurborgar er gert ráð fyr- ir að Reykjavíkurborg verði árið 2002 þekkt fyrir hreinleika, stór- brotna náttúra og sem áhugaverð- ur áfangastaður við dyr óspilltrar náttúra. Elliðaárnar verða ekki hluti af þessum veraleika nema tek- ið verði í taumana strax.“ Léttar stuttbuxur úr 100% bómull með stórum vösum sem hægt er að geyma mikið í. Kr. 3.990.- <&Columbia Sportswear Company* Skeifunni 1 9 - S. 568 1 71 7 Ef þér leiðist farðu þá þangað sem veðrið hentar fötunum Elkhom stuttbuxur 3 mánuðir í líkamsrækt og 10 tímar í ljós á aðeins 9.990 kr. ^UFUfíMj ÞAR 5EM ÞÚ SKIPTIR MALI Eróhikk, Spinning, Yoga, Kickhoxing, Body Pump, kvennaleikfimi, karialeikfimi, glæsilegur Hammer Strengfh tækjasalur, aðgangur að sundlaug Garðabæjar. Einnig býður Betrunarhúsið fitubrennslunámskeið, liu litsu námskeið, einkaþjálfun, ljósastofu og bamagæslu Leiðbeinendur ávallt til staðar og sjúkraþjálfari 4 sinnum í viku. Bekunarhúsið er í glæsilegu 1.QD0 fm. húsnæði og alltaf næg bílastæði. Allar nánari upplýsingar í sima: 565 8898 og 565 8872 eða á staðnum: Garðatorgi 1, Garðabæ. « J3JiTrf. UNÁRJ r

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.