Morgunblaðið - 28.03.1999, Síða 12

Morgunblaðið - 28.03.1999, Síða 12
12 SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ___________________ERLENT_________ Prodi: Stefna til að fylgja eða mál til að leysa? Kröfurnar til hins verðandi formanns framkvæmdanefndar ESB eru ofur- mannlegar. En spurning er ekki aðeins hvort Romano Prodi sé ofurmenni, heldur hvort ESB fínni stefnumið, segir Sigrún Davíðsdóttir, Reuters PRODI ræðir við blaðamenn. Honum á vinstri hönd er kona hans, Flavia. „ÚTNEFNING.Prodis hreif eng- an, en það var heldur enginn sér- lega ergilegur yfir henni,“ skrifaði ítalska blaðið II manifesto, meðan La Repubblica var heldur há- stemmdara og skrifaði: „Evrópa hyllir Prodi.“ „Þetta er sögulegt tækifæri, sem ekki má glatast," sagði Massimo D’Alema, forsætis- ráðherra ítala, sem í október var fyrstur til að stinga upp á Romano Prodi sem formanni framkvæmda- stjómar ESB. Alvaran að baki til- nefningu D’Alema er umdeild og heima fyrir er álitið að D’Alema hafí verið að koma hættulegum andstæðingi frá. En ítölum fínnst líka tími til kominn að þeirra mað- ur setjist í stólinn, þar sem enginn ítali hefur setið síðan Franco Maria Malfatti sat 1970-72, á þeim árum þegar fæstir vissu af emb- ættinu. „Ofurmenni og dýrðlingur" voru eiginleikarair, sem þegar í vetur var sagt að næsti formaður fram- kvæmdastjómar Evrópusambands- ins þyrfti að hafa til að bera. Eftir afsögn framkvæmdastjómarinnar nýlega vegna spillingarmála era kröfumar til Prodi enn meiri. Jafn- framt vora kröfur á hendur forsæt- isráðherra ESB-landanna um að vera snöggir að tilnefna nýjan for- mann og það tók þá aðeins tæpa klukkustund á koma sér saman um Prodi, sem auk mannkosta var á lausu. En ný framkvæmdastjóm verður varla tilbúin fyrr en í júlí, þó mörgum þyki óbærilegt að á meðan sitji lömuð framkvæmdastjóm, sem ekki geti sinnt stórmálum eins og hörðum viðskiptadeilum við Banda- ríkin. Iðulega er nefnt að Prodi hafi tekist það kraftaverk að koma Itöl- um í Efnahags- og myntsamband Evrópu, EMU. Þó má einnig efast um dugnað Prodis, en vandi hans verður líka að stefna ESB er óklár í ýmsum meginmálum. Prodi verður sextugur í sumar, er hagfræðiprófessor í Bologna, fædd- ur á Norður-Italíu, yngstur níu systkina. Hann lærði í Mílanó og í London School of Economics og tal- ar því góða ensku, sem er sjaldgæft meðal Itala af eldri kynslóðinni. Hann er kaþólskur miðjumaður og þó hann hafi komið inn í ítölsk stjórnmál eins og afl utan frá gamla kerfinu er það þó ekki alveg rétt. Hann var iðnaðarráðherra í fimm mánuði 1978-79 í stjórn Giulio Andreottis og framkvæmdastjóri Iri 1982-89 og aftur 1993, eignar- haldsfélags ríkisins á ýmsum ríkis- fyrirtækjum, sem með einkavæð- ingu undanfarin ár er verið að reyna að leysa upp. Hann býr í Bologna ásamt Flaviu konu sinni, þau eiga tvö uppkomin börn. I Bologna hjólar fólk og þá einnig Prodi. Þegar vinstrivængurinn ítalski fór að freista endurskipulagningar eftir evrópsk og ítölsk umbrot upp úr 1990 var Prodi fenginn til að vera í forystu fyrir Olífuhreyfingunni, samstai-fi mið- og vinstriflokka, og varð forsætisráðherra eftir kosn- ingar vorið 1996. En Massimo D’Alema, formaður stærsta vinstri- flokksins, sem stefnir á að verða breiður vinstri- og miðflokkur í lík- ingu við breska Verkamannaflokk- inn, náði völdum í haust eftir stjórn- arkreppu. Prodi áleit að stefndi í kosningar er Olífuhreyfingin ætti góða möguleika á að vinna og leyndi ekki biturð sinni yfir bragði D’Alema. Kraftaverkamaður eða hagræðingarmaður? Prodi kom ítölum í EMU. En sagan af stjómartíma Prodis er ekki eingöngu saga sigra. ftölum var í mun að verða viðurkenndir sem kjarnaþjóð í Evrópu og komast að í EMU. Viljinn var óbilandi, en leiðin óljós. Eftir að hafa fyrst reynt árangurslaust að fá Spánverja í lið með sér til að slaka á aðildarkröf- um, varð hann að snúast á hæl og fylgja kröfunum. Aðildinni náði hann ekki með uppskurði á ríkisfjármálunum, frek- ar en aðrar þjóðir, heldur seldi rík- iseignir og skattaði sig í EMU- markið. Eftir lágu óleyst mál eins og uppskurður á eftirlaunakerfinu, vanþróun Suður-Ítalíu og stjórnar- skrárbreytingar til að rífa upp kjöl- festu gamla flokkakerfisins. ítalir geta efast um að Prodi sé kraftaverkamaður, en honum tókst að hagræða ýmsu og hann þykir lip- ur samningamaður, sem vísast er ómissandi kostur í formannsstóln- um nú. Yfirbragð hans er ekki yfir- bragð hins sleipa og þaulvana stjórnmálamanns. Hann er mjúkur og manneskjulegur, talar ekki í slagorðum, heldur í útskýrandi orð- um háskólamannsins, sem ekki passa inn í stutt fréttaskot. Hann virðist hugsa um leið og hann talar. Yfirbragð hans er ögn klaufalegt, sem ítalskir skopteiknarar nýta sér til hins ýtrasta. Hann brosir og hlær, en getur líka reiðst, er vina- legur og alþýðlegur. ESB: Seglum hagað eftir vindi þjóðríkjanna Fyrir ítali var EMU-takmarkið skýrt. Hvert Prodi á að koma ESB er öllu óljósara, því þar eru fimmtán óskir í hverju máli og hagsmunir fimmtán landa, en dýpra á heildar- hagsmunum Evrópu. Kjaminn í átökunum um fram- kvæmdanefndina nú og um öll önn- ur skipulagsmál er áratuga innri valdatogstreita í ESB milli þriggja aðila. Ráðherraráðið, skipað ráð- herrum landanna fimmtán, hefur lagasetningarvald er það deilir með þinginu og framkvæmdavald er það deilir með framkvæmdanefndinni. Þingið hefur flókið lagasetningar- og umsagnarhlutverk er styrkist með Amsterdam-sáttmálanum sem gengur í gildi á árinu. Fram- kvæmdanefndin hefur tillögurétt, er í mörgum tilvikum framkvæmdaað- ili og stýrir embættismannakerfinu. Atburðirnir undanfarið og Am- sterdam-sáttmálinn hafa styrkt þingið, en kraftur nefndarinnar hef- ur aldrei verið sá sami eftir að Jacques Santer tók við af nafna sín- um Delors. En það er einföldun að álíta að þetta ráðist af einstakling- um. I þjóðríkjunum vex mörgum í augum valdastreymið til Brussel og þá einkum til framkvæmdanefndar- innar. Farvegur valds þjóðríkjanna annars vegar og yfirþjóðlegs valds ESB á eftir að verða ásteytingar- steinn um mörg ókomin ár. Samfléttaður þessu er lýðræðis- hallinn í ESB. Þó einkum norrænir stjórnmálamenn kvarti undan hon- um er hann engin tilviljun. Meðan þeir vilja ekki evrópskt sambands- ríki með kosinni stjórn og kosnu þingi með hliðstæðum skyldum og þjóðþing er erfitt að feta einstigið milli lýðræðislegra kjörinna for- svara og útnefndra. Það er einfalt að tala um „Evrópu þjóðanna" og „Evrópu svæðanna", en erfiðara að framkvæma slíka hugarsmíð á lýð- ræðislegan hátt. Væntanleg útnefning nýrrar framkvæmdastjórnar mun enn á ný leiða í ljós togstreitu þjóðarhags- muna og Evrópuhagsmuna. Þjóð- irnar tilnefna ekki endilega þá sem þeir álíta besta í þágu evrópskra hagsmuna, heldur þá, sem mega missa sín í heimastjórnmálunum. Þetta loðir einnig við Prodi. Með stækkun ESB mun tog- streita ríkrar og fátækrar Evrópu bætast við. Þjóðartekjur á mann í umsóknarlöndunum era vel innan við helmingur þeirra evrópsku og skýrir af hverju stækkunaráhugi landanna fimmtán er ljóslega meiri í orði en á borði. Þýska stjórnin, sem talar fjálglega um stækkun hefur sett evrópskt vamarbandalag á oddinn, nú þegar EMU sé komið í gegn. „Hvern á ég að hringja í ef mig vantar að tala við Evrópu?“ spurði Henry Kissinger, fyrrver- andi utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, eitt sinn. Nú stendur til að til- nefna mann til að taka símann, en hvaða myndugleik hann fær er enn óljóst og eins hver hann verður. Þó ESB og Bandaríkin eigi sam- eiginlegra hagsmuna að gæta ber meira á deiluefnunum þessa mánuð- ina. Bananakvótar ESB og reglur um flugvélabúnað, hormónakjöt og genabreytt matvæli era í banda- rískum augum verslunartálmanir í andstöðu við reglur Alþjóða versl- unarsamtakanna, WTO. Því varar Sir Leon Brittan, sem farið hefur með þessi mál í framkvæmdastjóm- inni, viðýómariiminu í kjölfar falls framkvæmdastjórnarinnar. Vestan- hafs verður Brittan saknað, því sög- ur herma að það eina sem gerði Clinton Bandaríkjaforseta bærilegt að hlusta á rök ESB var breskur hástéttarframburður Brittans á orðinu „bananar“. ESB-sinnar benda á að með EMU hafi ESB sýnt sig megnugt að taka viðamiklar ákvarðanir. Gagnrýnendumir benda á að EMU sé aðeins nauðsynleg viðbrögð við alþjóðavæðingu. ESB eigi enn eftir að sýna stefnumótun á eigin for- sendum. Og undir hinu pólitíska kerfi ólgar spumingin um nauðsyn Evrópusamrunans. Almenningur í Evrópu hefur undanfarin ár mátt þola niðurskurð í heilögu nafni sam- runans, meðan Bandaríkjamenn eru komnir á níunda hagvaxtar- og vel- megunarárið í röð, sem er met. Þegar Prodi vék úr forsætisráð- herrastól í haust skrifaði franska blaðið Le Monde: „Prodi gerði ítala trúverðuga á nýjan leik og færði landinu alþjóðlegan ljóma." Ef Prodi gæti nú gert hið sama fyrir ESB sannaði hann sig sem krafta- verkamaður. En með fimmtán þjóð- arleiðtoga, sem haga seglum eftir vindi þjóðríkjanna en stýra ekki eft- ir evrópskum áttavita, gæti reynst erfitt að hitta á kraftaverkin. Endurskoðun fjármála ESB á leiðtogafundinum í Berlín Sparnaðurinn of lítill LEIÐTOGAR Evrópusambands- ríkjanna fimmtán eru fegnir að hafa loks náð einhverju samkomu- lagi um hina svokölluðu „Dagskrá 2000“, það er endurskoðaðan fjár- hagsramma sambandsins fyrir næstu sjö árin. Með þeim endurbót- um sem ákveðnar vora á landbún- aðarkerfinu var ætlunin að búa í haginn fyrir inngöngu nýrra aðild- arríkja í Mið- og Austur-Evrópu, sem öll era mun fátækari en þau fimmtán sem fyrir era. En nú þegar era komnar upp efa- semdir um að nóg sé að gert til að þetta sé mögulegt. Lækkunin sem ákveðin var á viðmiðunarverði land- búnaðarafurða var of lítil og kerf- isumbætumar í heild of „útvatnað- ar“ til að gera landbúnaðarsjóða- kerfið fært um að taka herskara fá- tækra austur-evrópskra bænda upp á sína arma. Þýzka dagblaðið Die Welt hefur eftir samningamönnum Þjóðverja, sem fara með formennsku í ráð- herraráði ESB þetta misserið og stýrðu því viðræðum á leiðtogafund- inum, að „fyrir stækkunina til aust- urs verði að stokka landbúnaðar- kerfið aftur upp“. Josehka Fischer, utanríkisráð- herra Þýzkalands, lauk að vísu lofs- orði á þá niðurstöðu sem náðist eftir langar og strangar samningavið- ræður sem lauk ekki fyrr en undir morgun. Hún sé „mjög góður grannur" að byggja á. En þrátt fyr- ir það, bendir Die Welt á, segir Fischer frekari umbætur nauðsyn- legar. Það sé verkefni næsta for- mennskuríkis. Finnar taka við for- mennskunni um mitt þetta ár. Ka- levi Hemila, landbúnaðarráðherra Finnlands, lét reyndar strax á föstudag svo ummælt, að breyting- arnar gengju of skammt til að þær dygðu til að gera ESB kleift að hleypa Austur-Evrópuríkjunum inn í sambandið. I lokaályktun Berlínarfundarins var kveðið á um, að framkvæmda- stjórn ESB skyldi þegar árið 2002 leggja fram nýjar tillögur um frek- ari spamað í kerfinu. Þetta er ótví- rætt merki um að leiðtogamir gerðu sér grein fyrir að of skammt væri gengið að þessu sinni. „títvötnuð" málamiðlun Þessa „útvötnuðu" málamiðlunar- niðurstöðu má rekja til þess hve miklir fjárhagslegir hagsmunir voru í húfi fyrir aðildarríkin hvert fyrir sig. Spánverjar til dæmis, sem ásamt Portúgölum, Grikkjum, Suð- ur-ítölum og Iram hafa vanizt því að fá háar upphæðir í styrki úr sam- eiginlegum sjóðum sambandsins, beittu þeirri aðferð að segja alltaf „nei“ þar til við lá að samningavið- ræðurnar færu út um þúfur. „Eg sagði ‘nei’ um miðnætti, ég sagði ‘nei’ kl. tvö e.m. Loks sagði ég ‘já’ kl. 5:30,“ sagði José Maria Azn- ar, forsætisráðherra Spánar, að viðræðunum loknum, sáttur við sinn hlut, enda tókst honum að tryggja Spáni áframhaldandi væna styrki, m.a. til uppbyggingar sam- gangna. HELSTU ATRÍÐI BERLINARSAMKOMULAGSINS Leiðtogar ESB komust undir dögun á föstudag að málamiðiunarsamkomulagi um róttæka uppstokkun fjármáia ESB, sem kölluð hefur verið Dagskrá 2000 • Eigin tekjur ESB verða . Endurgreiðslur Breta haldast óbreyttar, áfram að hámarki 1,27% en hagnaður þeirra af lækkun virðis- af VLF aðildarlandanna aukaskattsgreiðslna jafnast út * Hámarkshlutfall innheimts virðis- aukaskatts, sem rennur til ESB, lækkar i 0,75% árið 2002 og í 0,50% 2004 Korn (2000 / 2002) • 15% lækkun viðmiðunarverðs Hlutur Austurríkis, Þýskalands, Hollands og Svíþjóðar í endurgreiðslunum til Breta minnkaðar niður í 25% af fullum hluta Byggðastyrkjakerfið (hlutfall (%)-2000-2003) • Ræktunarstyrkir hækkaðir um 9 evrur á tonn Nautakjöt og mjólk • 20% lækkun kjötverðs Atvinnuleysi, starfsþjálfun o.s.trv. 12,3% Svæði sem eiga við skipu- lags- og uppbyggingar- vanda að stríða 11,5% • 15% hækkun mjólkurframleiðslu- kvóta fyrir öll aðildarríki (2005 - 2006) Réttur til viðbótar- mjólkurkvóta (frá2000) Norður-frland Irland ftalia Spánn Grikkland w Sérstakir byggða- styrkir (2000-2003) Skosku hálöndin og eyjamar € 300m Noröur-írland € 500m Irland € 100m Holland € 500in Lissabon € 500m Viðbótarstyrkir (2000-2003) Podúgal € 450m Grikkland €450m Irland € 40m Spánn € 200m 3 Svæöi með lágar meðaltekjur á íbúa 69,7%

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.