Morgunblaðið - 28.03.1999, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 28.03.1999, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Biörgvin hefur bætt sig í báðum greinum Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson SKÍÐAFÆRIÐ á skíðasvæði ísfirðinga í Tungudal er eins og best verður á kosið þessa dagana. Gunnar Þórðarson, formaður Skíðafélags ísafjarðar, Gylfi Guðmundsson, mótstjóri landsmótsins, Ellert B. Schram, formaður íþrótta- og ólympíusambandsins, og Egill Jóhanns- son, formaður Skíðasambands íslands, prófuðu brekkurnar í síðustu viku og þótti mikið til koma. 20 erlendir keppendur á Skíðamóti íslands SKÍÐAMÓT íslands fer fram á skíðasvæði ísfirðinga í Tungudal í næstu viku. Mótið stendur yfir frá mánudegi til fimmtudags. 120 keppendur eru skráðir til leiks og þar af allt besta skíðafólk landsins og auk þess 20 erlendir þátttakendur í alpagreinum. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, mun setja mótið á Silf- urtorgi á mánudagskvöld. Búist er við spennandi keppni enda hafa margir skíðamenn dvalið erlendis við æfingar og eru að keppa við þá sem hafa æft hér heima í fyrsta sinn í vetur. ÍSLENSKA skíðalandsliðið í alpagreinum hefur æft er- lendis í vetur og ef árangur- inn vetrarins er skoðaður kemur í ljós að Björgvin Björgvinsson frá Dalvík er eini landsliðsmaðurinn sem hefur bætt sig bæði í svigi og stórsvigi. Kristinn Björnsson hóf keppnistíma- bilið í 16. sæti á heimslistan- um í svigi en er nú kominn niður í 51. sæti. Hann hefúr hins vegar bætt sig aðeins í stórsviginu, farið úr 281. sæti í 272. sætið. Björgvin er bestur ís- lensku skiðamannanna í stórsvigi samkvæmt heims- Iistanum, er með 29,51 stig og er í 230. sæti og hefur bætt sig um níu sæti frá því á listanum í nóvember. I sviginu var hann í 653. sæti fyrir tímabilið en er nú kominn upp í 384. sæti. Arnór Gunnarsson frá ísafirði er á svipuðu róli í sviginu og stórsviginu núna og fyrir túnabilið, hefúr reyndar bætt sig hvað punkta varðar en er aftar á heimslistanum. Jóliaiin Haukur Hafstein úr Ar- manni hefúr bætt sig í svig- inu en dalað í stórsviginu. Sveinn Brynjólfsson, Dal- vík, hefúr sigið neðar á list- anum í svigi en bætt sig töluvert í stórsviginu. Jó- hann Friðrik Haraldsson, KR, er á svipuðum stað í sviginu nú og í nóvember, en hefur bætt sig í stórsvigi. Sigríður Þorláksdóttir frá Isafírði, sem sleit kross- bönd í hné fyrir skömmu, er fremst íslensku kvenn- anna í svigi. Hún er nú í _J92. sæti en var númer 203 á nóvemberlistanum. Hinar stúlkurnar hafa allar fallið neðar á listann frá því sem þær voru fyrir áramót bæði í svigi og stórsvigi. Undirbúningur mótsins hefur staðið yfir_ í nokkra mánuði enda leggja Isfirðingar mikinn metnað í að gera mótið sem glæsi- legast. Opnuð hefur verið vefsíða með dagskrá mótsins og hinnar ár- legu Skíðaviku sem hefst formiega á skírdag. A heimasíðunni verður hægt að fletta upp öllum úrslitum mótsins um leið og þau verða til- kynnt af dómurum. Netfang heimasíðunnar er: www.snerpa .is/sfi. 60 ár eru hðin síðan fyrsta Skíðamót Islands var haldið á Isa- firði, en þetta er í 61. sinn sem landsmótið er haldið, en fyrst fór það fram á Siglufirði árið 1937. Is- firðingar státa af flestum Islands- meistaratitlum í sögu landsmót- anna. Þeir hafa 93 sinnum fagnað íslandsmeistaratitli í alpagreinum og 56 sinnum í norrænum greinum. Akureyringar eiga 87 Islands- meistara í alpagreinum og 21 í nor- rænum greinum. Kristinn Bjömsson frá Ólafsfirði verður að teljast líklegur til afreka í alpagreinum. Hann varð Islands- meistari í svigi á Akureyri í fyrra, en ætlar sér líklega stærri hluti núna. Hann fær eflaust harða keppni frá Dalvíkingnum unga, Björgvini Björgvinssyni, sem varð íslandsmeistari í risasvigi í fyrra pg Hauki Amórsson úr Armanni, Islandsmeistara í stórsvigi, sem hefur aðeins æft hér á landi í vetur. Síðan má ekki gleyma Jóhanni Hauki Hafstein, Jóhanni Friðriki Haraldssyni og Sveini Brynjólfs- syni, sem allir hafa æft í Lil- lehammer í vetur. Brynja Þorsteinsdóttir og Theo- dóra Mathiesen verða að teljast líklegastar til afreka í alpagreinum kvenna, sérstaklega vegna þess að Isfirðingurinn Sigríður Þorláks- dóttir, sem var þrefaldur meistari í fyrra, verður ekki með vegna meiðsla. Þá verður fróðlegt að sjá yngri stúlkumar sem hafa verið að gera það gott hér heima í vetur. Kynslóðaskipti era í skíðagöng- unni hér á landi og því er erfitt að spá um úrslit þar. Haukur Eiríks- son frá Akureyri hefur verið sterkastur í karlaflokki í vetur, en hann varð fyrst Islandsmeistari fyrir tíu árum. Þá hafa ísfirsku göngukonumar, Stella Hjaltadóttir og Auður Yngvadóttir, hafið keppni að nýju og verður forvitni- legt að fylgjast með þeim á mótinu. Landsmótið hefst á mánudag með keppni í 30 km skíðagöngu karla, 10 km göngu kvenna og 15 km göngu pilta 17-19 ára. Þá verð- ur keppt í eldri flokkum, 35 ára og eldri. A þriðjudag verður keppt í stórsvigi karla og kvenna. A mið- vikudag verður svigi karla og kvenna og ganga í öllum flokkum 17 ára og eldri. Þá verður keppni á snjóbettum og er það kynningar- grein á landsmótinu. Landsmótinu lýkur á skírdag með keppni í boð- göngu karla og kvenna. Þá verður einnig keppt í stórsvigi karla og kvenna og era það jafnframt al- þjóðleg stigamót. Af erlendu keppendunum er Norðmaðurinn Aane Saeter með bestu punktastöðuna samkvæmt heimslistanum. Hann er með 13,59 FlS-stig í svigi sem er aðeins betra en Kristinn Björnsson hefur, en hann er með 13,85 FlS-stig. Finnska stúlkan Caroline Pellat er með bestu punktastöðu kvenna, 36,14 FlS-stig í svigi og 25,35 FIS- stig í stórsvigi. Frakkinn Francois Simon ætlaði að mæta á Skíðamót íslands, en hann handleggsbrotnaði á franska meistaramótinu um síðustu helgi og varð því að hætta við þátttöku. Simon hefur verið í fyrsta ráshópi í svigi heimsbikarsins í vetur. Árangur íslenska iandsliðsins í alpagreinum í vetur, mældur í FlS-stigum og stöðu á heimslista iPp. Smanburður ástöðu þeirra í nóvember 1998 og í mars 1999 I SVIG I Nóv. 1998 Mars 1999 NÓV. 1998 Mars 1999 FIS- Sæti stig álista FIS- Sæti stig álista FIS- Sæti stig álista FIS- Sæti stig á lista Kristinn Björnsson 7,79 16. 13,85 51. 33,9 281. 32,21 272. Arnór Gunnarsson 31,84 176. 31,44 186. 54,79 711. 53,1 731. Björgvin Björgvinsson 61,91 653. 45,93 384. 31,20 239. 29,51 230. Jóhann H. Hafstein 56,75 598. 53,37 531. 37,75 364. 38,01 393. Sveinn Brynjólfsson 54,08 506. 53,51 536. 47,01 539. 40,65 444. Jóhann F. Haraldsson 60,12 621. 57,66 629. 73,19 1245. 67,84 1177. Sigríður Þorláksdóttir 43,12 203. 39,11 192. 46,72 313. 50,84 375. Brynja Þorsteinsdóttir 41,69 193. 40,69 219. 47,41 326. 48,09 335. Theodora Mathiesen 48,18 256. 46,91 276. 38,95 227. 53,56 419. Dagný L. Kristjánsdó. 137,42 1452. 140,05 1686. 51,36 376. 57,07 496. Leó þjálfar kvenna- lið Skagamanna LEÓ Jóhannesson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs IA í knattspyrnu. Samningur Leós gildir til næsta hausts, en stefnt er að því að ráða þjálfara að þeiin tíma liðnum til lengri tíma. Leó lék áður með liði Skagamanna. Laufey Sigurðai-dóttir, sem þjálfaði kvennalið Skagamanna síð- astliðið sumar, mun aðstoða liðið áfram. Talsverðar breytingar hafa orðið á ieikmannahópi liðsins, nokkrir eldri leikmcnn hafa hætt og verður liðið að mestu leyti byggt í kringum leikmenn í yngri kantinum. Anelka áfram hjá Arsenal FRANSKI landsliðsmiðheijinn hjá Englands- og bikarmeistur- um Arsenal, Nicolas Anelka, kveðst ekki á förum frá félag- inu í náinni framtíð. Yfirlýsing Anelka kemur í kjölfar frétta um að ftalska stórliðið Juvent- us hyggist bjóða fúlgur fjár fyrir kappann. Juventus er talið tilbúið að greiða um 20 milljónir punda fyrir Anelka, en það samsvarar ríflega tveimur milljörðum ís- lenskra króna. Fyrir hjá ítalska liðinu eru þrír franskir landsliðsmenn, þeir Zinedinc Zidane, Thierry Henry og Di- dier Deschamps, og þeir hafa lagt hart að kappanum að flytj- ast til ítalfu. Anelka hefur hins vegar nú tekið af öll tvímæli - framtíðin liggi á Highbury í Norður-Lundúnum. „Þessa stundina er enginn vafi í mfnum huga að ég muni leika áfram í Englandi á næstu leiktíð og í treyju Arsenal," sagði Anelka. „Thierry hefur sagt mér frá Iífinu á Ítalíu og hversu vel hafi gengið að aðlagast leik Ju- ventus. Við höfum hins vegar ekki rætt komu mína þangað. Það getur vel verið að ég verði einn dag leikmaður Juve, kannski eftir þrjú eða tíu ár. En það verður ekki á næstu leiktíð,“ sagði Anelka enn- fremur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.