Morgunblaðið - 28.03.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
legri byggð. Ég fagna því að hafa
kynnst Jóhanni á Sauðárkróki árið
1979 og átt saman góða rabbfundi
um landsins gagn og nauðsynjar og
fengið að hlýða á frásagnir hans úr
Platey. Móðurafi minn, Sigurður
Hólmsteinn Jónsson, var Flateying-
ur og þekktust fjölskyldur afa og
Jóhanns vel og eins og gengur var
mikill samgangur í litlu samfélagi.
Breiðfirðingar sem ég hefi kynnst
á lífsleiðinni hafa verið dugnaðar-
fólk og alltaf brugðið fyrir kímni og
örlítilli stríðni í fari þeirra. Alltaf
þegar fundum okkar Jóhanns bar
saman var slegið á létta strengi og
gert góðlátlegt grín að mannlífinu.
Nokkrum sinnum áttum við saman
spjall á þýzku svona til þess að liðka
tungumálakunnáttuna og var Jó-
hann vel mælandi á þeirri tungu og
hafði mikið dálæti á dugnaði og
eljusemi Þjóðverja. Það er auðvitað
þannig að þeir sem sjálfir eru dug-
andi og eljusamir dá oft þá eigin-
leika hjá öðrum.
Með þessum orðum kveð ég Jó-
hann Salberg með söknuði og votta
öllum aðstandendum hans mína
dýpstu samúð.
Friðrik Ásmundsson Brekkan.
Þegar Jóhann Salberg er allur,
get ég ekki látið hjá líða að minnast
hans með nokkrum orðum. Við vor-
um kunningjar í nokkur ár, eða sið-
an hann fluttist, ásamt konu sinni, í
nágrenni við mig í höfuðstað lands-
ins.
Jóhanns Salbergs heyrði ég fyrst
getið er ráðið var að hann tæki við
sýslumannsembætti í Skagafjarðar-
sýslu haustið 1957. Þá var ég i burt-
búningi úr Fljótum eftir þriggja ára
dvöl þar sem skólastjóri. Það mun
hafa verið Hermann Jónsson,
hreppstjóri á Ysta-Mói, sem tjáði
mér þetta og lýsti hann ánægju
sinni með þessa ráðstöfun. Þeir
voru nefnilega kunnugir frá fyrri
tíð, báðir úr Barðastrandarsýslu,
Hermann frá Bíldudal en Jóhann
Salberg úr Flatey á Breiðafirði. Þá
var Sigurður Sigurðsson frá Vigur
að ljúka ferli sínum sem yfirvald
Skagfirðinga, eftir aldarþriðjungs
sýsluvöld. Jóhann Salberg sat
óvenju lengi sem sýslumaður, eða í
samtals 44 ár. Nýútskrifuðum lög-
fræðingi var honum veitt Stranda-
sýsla, og sat á Hólmavík í 19 ár.
Þetta var alþjóð kunnugt. Hann
gegndi einnig margvíslegum og
mikilverðum trúnaðarstörfum á
heimaslóðum.
Gaman var að blanda geði við Jó-
hann Salberg á heimili hans. Marga
stundina sátum við og röbbuðum
saman, um leið og við dreyptum á
ginger ale eða engiferöli. Það er
góður drykkur. Meira var þó vert
um létt rabb húsbóndans, sem
kunni frá mörgu að segja. Vel kunni
hann að meta vel gerðar vísur og
skrýtlur úr hinu daglega lífi. Við
fætur okkar á gólfi var útbreitt
skinn af sebradýri. Þau hjón voru
víðreist, og áttu ýmsa hluti úr ferð-
um sínum.
Að lokum vil ég þakka fyrir ágæt
og ógleymanleg kynni, og votta að-
standendum Jóhanns Salbergs sam-
úð við burtför hans af þessum
heimi.
Auðunn Bragi Sveinsson,
fyrrum skólastjóri.
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
um.
t
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð
og vináttu við andlát og útför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
SIGRÚNAR H. GUÐBJÖRNSDÓTTUR
frá Arney,
síðast til heimilis
á dvalarheimilinu Hrafnistu, Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Björg ívarsdóttir
Helga Ivarsdóttir,
Örlygur ívarsson, Bryndís Þorvaidsdóttir,
Brynjar G. ívarsson, Halldóra G. Karvelsdóttir,
Leifur ívarsson, Jónína S. Þorgeirsdóttir,
Svala ívarsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
t
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur hlýhug, samúð og vináttu við
andlát og útför eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
HILDIGUNNAR ENGILBERTSDÓTTUR,
Brekkubraut 23,
Akranesi.
Sérstakar þakkir viljum við færa læknum og
öðru starfsfólki á deild B-6 Sjúkrahúss Reykjavíkur fyrir frábæra
umönnun og hlýlegt viðmót.
Ásgeir Samúelsson,
Þórunn Ásgeirsdóttir, Gunnar L. Stefánsson,
Einar Ásgeirsson, Helga Jónsdóttir,
Hrönn Ásgeirsdóttir, Svavar S. Guðmundsson,
Svandís Ásgeirsdóttir, Sigurbjörn Guðmundsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
ÓSKARSJÓNSSONAR
fyrrverandi forstjóra,
Þiljuvöllum 30,
Neskaupstað.
Sigríður Vigfúsdóttir,
Guðný Óskarsdóttir, Einar Jóhannsson,
Örn Óskarsson, Ólöf Þórarinsdóttir,
Ingibjörg Óskarsdóttir, Guðmundur Guðbjartsson,
Svanhildur Óskarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför
GARÐARS STEFÁNSSONAR,
Ægisbraut 11,
Blönduósi.
Guðlaug Sigurðardóttir,
Æsgerður Garðarsdóttir, Júlíus Arnórsson,
Ingibjörg Garðarsdóttir, Bjarni Björnsson,
Þorbjörg Garðarsdóttir, Gísli Pétursson,
Stefanía Garðarsdóttir, Þormar Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ELSU H0JGAARD EINARSDÓTTUR,
Hamrahlíð 32,
Vopnafirði.
Páll Jónsson,
Einar Ólafur Einarsson, Heimir Kristinsson,
Einar Ólafur Sigurjónsson,
Aðalbjörg Sigurjónsdóttir, Kristinn Jón Einarsson,
Aðalbjörg Þorsteinsdóttir, Viðar Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999 39
t
Ástkær eiginmaður minn, stjúpfaðir, sonur,
fóstursonur og bróðir,
KJARTAN BALDURSSON,
Skógarási 11,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju þriðju-
daginn 30. mars kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vildu minnast hans, er bent á minningarsjóð hjúkrunarþjón-
ustu Karitas.
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir,
Snorri Örn Kristinsson,
Guðrún Rósa Sigurðardóttir, Hjörtur Magnús Guðmundsson
og systkini.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
EINARS LONG BERGSVEINSSONAR
Hjallalundi 3c,
Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við læknum og
hjúkrunarfólki á FSA sem önnuðust hann.
Anna Guðbjörg Sigfúsdóttir,
Guðbjörg Guðmundsdóttir, Sigurður K. Einarsson,
Þorgerður Einarsdóttir,
Valdís Vera Einarsdóttir,
Óskar Long Einarsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför
FRIÐRIKS VILHJÁLMSSONAR
netagerðarmeistara,
Klapparstíg 1,
Reykjavík.
Starfsfólki á deild G-2, Hrafnistu, Reykjavík,
eru færðar sérstakar þakkir fyrir góða
umönnun og elskulegheit.
Þóranna Stefánsdóttir.
t'
Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug og blóma-
sendingar við andlát og útför elskulegrar eig-
inkonu minnar og dóttur okkar,
HULDU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Hátúni 12,
Reykjavík.
Heiðar Þórðarson,
Sigfríð Valdimarsdóttir, Guðmundur Einarsson.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug, vináttu og
blómasendingar við andlát og útför eigin-
manns míns,
GUNNARS SIGMARS SIGURJÓNSSONAR,
frá Skefilsstöðum á Skaga,
Víðilundi 24,
Akureyri.
Guð blessi ykkur öll.
Kristrún Anna Finnsdóttir.
t
Við þökkum öllum þeim sem sýndu okkur W 'I
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
ÖNNU L. RIST. llilljg /£?SL"1
Lena Margret Rist wHHHHp i:'iir^rc
og fjölskylda.