Morgunblaðið - 28.03.1999, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 28.03.1999, Qupperneq 57
SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999 5 7 I MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRETTUM I sigurinn . ÞAÐ var mögnuð stemmning og mikil spenna þegar Menntaskólinn við Hamrahlíð og Menntaskólinn í Reykjavík áttust við í úrslitum spurningakeppninnar Gettu betur í Valsheimilinu á föstudagskvöld. Bæði liðin voru sigurviss fyrir keppnina og stóðu sig vel en M.R. hafði betur og sigraði með 26 stig- um gegn 24 stigum M.H. í verð- laun fengu sigurliðið, þjálfari þess og liðsstjóri vikuferð til Barcelona með Ferðaskrifstofu stúdenta auk bókmenntaverðlauna en bæði liðin fengu fyrstu þrjú bindi Islenskrar bókmenntasögu. Auk þess fengu öll nemendafélög þeirra skóla sem tóku þátt í átta liða úrslitum iMac tölvu frá Aco. Mikil vinna dómara Það er ekki síst dómari keppn- innar sem gerir hana spennandi. Að þessu sinni gegndi Illugi Jök- ulsson því embætti og með hnyttn- um og vel útfærðum spumingum hans var keppnin líflegri en oft áð- ur. „Eg er algerlega eins og undin tuska og barinn hundur og annað eftir því eftir þessa lokaviðureign,“ sagði Illugi sem taldi að spennu- falls gæti orðið vart hjá sér hvað af hverju. „Þetta er miklu meiri vinna en ég hélt og ég hef reynt að kanna hverja spurningu í bak og fyrir áð- ur en henni er varpað fram en samt er ég aldrei viss um nokkum einasta hlut. Það var um 40 mínút- um fyrir þessa úrslitakeppni sem síðustu spurningunni var hagrætt örlítið svo að ekkert færi nú á milli mála.“ Það hefur ef til vill viljað MR-ingum til happs enda réðust úrslitin á lokamínútunum. Sigur sjöunda árið í röð Liðsmenn sigurliðsins, þeir Hjalti Snær Erlingsson, Sverrir Guðmundsson og Arnar Þór Stef- ánsson, höfðu tekið lífinu með ró á keppnisdaginn og vom afslappaðir rétt fyrir keppnina og að henni lok- inni vom þeir í sjöunda himni. „Mér líður mjög vel, hefur aldrei liðið betur,“ sagði Hjalti og brosti sínu blíðasta með fullt fang blóma. „Þetta er sætasti sigurinn, stærsti salurinn og besta stemmn- ingin hingað til að mínu mati,“ sagði Sverrir og Amar bætti við að þetta hefði verið glæsilegur árang- ur. „Við þökkum sigurinn miklum æfingum, góðum þjálfurum og traustum aðstandendum," hélt hann áfram. „Það hefur verið talað um H-in þrjú: Hæfnin, heppnin og hefðin en það virðist vera hún sem skapar sigurinn," sögðu Sverrir og Hjalti einum rómi og Amar var sammála og bætti við: „Við viljum þakka M.H. fyrir drengilega keppni en minnum þau á að það þýðir ekkert að kæra núna.“ -Hvernig ætlið þið að fagna sigrinum? „Við emm á leið í útgáfuteiti hjá skóla- blaðinu okkar á L.A. Café og síðan verður haldið heim til mín býst ég við,“ sagði Sverrir. „Og þai- verður dansað og sungið fram á rauða nótt,“ sögðu félagarnir hlæjandi að lokum og tilhlökkunin skein úr augunum á þeim. Morgunblaðið/Jón Svavarsson ÞEIR Iljalti, Sverrir og Arnar voru að vonum ánægðir með sigurinn. FULLT var út úr dyrum í Valsheimil- inu og hvöttu stuðnings- menn sitt lið til dáða. I I 1 Komdu viö í FJALLAHJOLABUÐINNI Faxafeni 7 og fáöu boðsmiða á sérstaka forsýningu á myndinni Blast fpom the Past í Laugarásbíó 29. mars kl. 9.00. HASKOLABIO LAUGARÁSs - SÍMI 5200 200 - OPIÐ MÁNUD. TIL FÖSTUD. KL. 9-18. LAUGARD. KL. 10 - 14 (D RAÐGREIÐSLUR DX 3.3 DX 3.5 DX 3.7 ■ DX 5.3 Stell: Cro-Mo Framskiptir: Shimano TY-32 Afturskiptir: Shimano 7 speed Skiptar: Shimano ST-EF 28 Bremsur: V Stell: Cro-Mo Framskiptir: Shimano TY-32 Afturskiptir: Shimano 7 speed Skiptar: Grip Shift Bremsur: V Stell: Cro-Mo Framskiptir: Shimano Altus Afturskiptir: Shimano Alivio Skiptar: Shimano Alivio Bremsur: V Stell: Cro-Mo Framskiptir: Shimano Acera X Afturskiptir: Shimano Alivio Skiptar: ShimanoMC18 Bremsur: V *Kr. 25.931,- ^ Kr. 29.352,- J Kr. 33.842,- 1 Kr. 47.730,-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.