Morgunblaðið - 07.04.1999, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1999 37
LISTIR
Spræk sýning á Héraði
Vortónleikar Karla-
kórs Reykjavíkur
KARLAKÓR Reykjavíkur held-
ur árlega vortónleika sína dag-
ana 10. til 17. aprfl nk.
Þeir verða haldnir sem hér
segir: Víðistaðakirkja: Laugar-
dagur 10. aprfl kl. 17. Fella- og
Hólakirkja: Sunnudagur 11.
aprfl kl. 17. Langholtskirkja:
Þriðjudagur 13. aprfl kl. 20.
Langholtskirkja: Fimmtudagur
15. aprfl kl. 20. Langholts-
kirkja: Laugardagur 17. aprfl
kl. 16.
Einsöngvari á tónleikunum
verður Loftur Erlingsson og
Anna Guðný Guðmundsdóttir
mun annast undirleik. I söng
munkanna, In Taberna quando
sumus, úr Carmina Burana eftir
Carl Orff leika þær Anna Guð-
ný og Krystyna Cortes á tvo
flygla og með þeim þrír slag-
verksleikarar.
• „Flying Too Close to the Sun:
the Success and Failure of the
New-Entrant Airlines" er heiti á
nýrri bók eftir dr. Svein Viðar
Guðmundsson.
I bókinni er fjallað um nýgengi
flugfélaga í frjálsu markaðsum-
hverfí með sérstakri áherslu á
Bandaríkin. Miklar vonir voru
bundnar við slík flugfélög eftir að
ílug var gefíð frjálst í Bandaríkj-
unum árið 1978.
Mörg ný og smærri eldri ílugfé-
lög spruttu upp og nýttu sér hið
nýfengna frelsi í flugi. Flugfélögin
áttu mikilli velgengni að fagna ef
vöxtur er lagður til hliðsjónar, en
þegar komið var fram undir 1987
voru flest þessi upphaflegu fíugfé-
lög hoi-fin af sjónarsviðinu og ljóst
Á efnisskránni kennir að
venju margra grasa og fara
saman þekkt íslensk og erlend
kórlög, óperukórar og þjóðlög
og þar sem með kórnum syngur
að þessu sinni baríton syngur
kórinn nokkur þeirra laga sem
haldið hafa nafni Karlakórs
Reykjavíkur og karlakórasöng
almennt mjög á loft undanfarna
áratugi.
Sérstök ástæða er til að vekja
athygli á flutningi lagsins Þér
landnemar úr Alþingishátíðar-
kantötunni 1930 eftir Pál ísólfs-
son sem sjaldan er nú flutt, auk
tveggja kóra úr Carmina
Burana.
Söngsljóri Karlakórs Reykja-
víkur er Friðrik S. Kristinsson
en ásamt honum annaðist
Signý Sæmundsdóttir radd-
þjálfun.
orðið að nýherjaflugfélög áttu
mjög upp á pallborðið í samkeppn-
inni við sér stærri flugfélög. í bók-
inni er fjallað um stjómun, stefnu-
mótun og umhverfi flugfélaganna
til að aðstoða stjórnendur við að
leggja drög að velgengni til lengri
tíma.
Bókin er að stórum hluta byggð
á könnun meðal stjórnenda flugfé-
laga og greiningu á rekstri út frá
ýmsum gagnagrunnum. Bókin er
fáanleg hjá útgefanda Ashgate
Publishing, i gegnum
www.amazon.com eða
www.barnesnoble.com.
Dr. Sveinn Viðar Guðmundsson
er dósent í samgöngum og vöru-
flæði við Maastricht Universiteit í
Hollandi.
LEIKLIST
L e i k f é 1 a g
Fljótsdalshéraðs
MY FAIR LADY
(MÍN FRAUKAN FRÍÐA)
eftir Alan J. Lerner í þýðingu Ragn-
ars Jóhannessonar og Þórarins Eld-
járns. Höfundur tónlistar: Frcderic
Loewe. Leikstjóri: Oddur Bjarni Þor-
kelsson. Hljómsveitarstjóri: Charles
Ross. Söngstjóri: Suncana Slamning.
Leikmynd: Oddur B. Þorkelsson,
Daníel Behrend, Börkur Vígþórsson.
Búningar: Kristrún Jónsdóttir, Förð-
un: Ingunn Jónasdóttir. Lýsing: Guð-
mundur Steingrímsson. Leikendur:
Einar Rafn Haraldsson, Agnes
Vogler, Daníel Þorsteinsson, Heiða
Skúladóttir, Daníel Behrend, Jónas
Bjarnason, Ágúst Ólafsson, Björn
Sveinsson, Erla S. Einarsdóttir, Haf-
dís Bjarnadóttir, Guðrún Gunnars-
dóttir, Hrafnkell Kárason, Fjóla
Sverrisdóttir, Jóhanna Bergmann,
Vígþór Zóphaníasson, Snæbrá K.
Jónsdóttir, Margrét Stefánsdóttir,
Ólafur Ágústsson, Stefán Vilhelms-
son, Þórður I. Guðmundsson, Kristín
A. Sigurðardóttir, Erla D. Vogler,
Ásta K. Jóhannsdóttir, Þórunn G.
Sigurðardóttir, Nanna Vilhelmsdótt-
ir, Helga Guðmundsdóttir. Kór og
hljómsveit. Sýning f Valaskjálf á
Egilsstöðum, 31. apríl.
Á HÉRAÐI leggja heilu fjöl-
skyldurnar sitt til svo blómasölu-
stúlkan Elísa Doolittle geti látið
prófessorinn Henry Higgins
skamma sig í Valaskjálf. Mín
fraukan fríða er mannfrekur söng-
leikur og honum fylgir auðvitað
kór og hljómsveit. Þess vegna er
mamma í sminkinu en börnin á
sviði en þar er, sýnist mér af leik-
skránni, annar hver maður tengd-
ur einhverjum meðleikurum sínum
blóð- eða ástarböndum. Og sumir
leggja það á sig að gerast svo sann-
færandi flámæltir að áhorfendur fá
sem snöggvast í magann. En í
heild er afraksturinn sá, að þessi
austfirska uppsetning á My Fair
Lady er góð skemmtun þar sem
ungir og aldnir fá tækifæri til að
sýna hvað þeir geta og til að
þroskast á sviðinu. Austfirðingar
hafa löngum sýnt að þeir eru
lúnknir þegar kemur að auglýs-
ingabrellum. Þótt ekki sé ég sann-
færður um að Ameríkanar flykkist
á Hérað til að sjá þessa sýningu er
vissulega ástæða til að hvetja Aust-
fírðinga til að eyða kvöldstund í
Valaskjálf með gi’önnum sínum,
breyttum en ljóslifandi.
Eins og gefur að skilja munu
þeir ekki sjá atvinnumannasýn-
ingu: Tónlistin mætti vera þéttari
og ég hef heyrt fólk syngja betur.
En það skiptir í sjálfu sér ekki
meginmáli. Þessi sýning er glöð og
spræk og það er ástæða til að
minnast á sumt sem er prýðilega
vel gert. Búningarnir eru fínir og
leikmyndin haganleg og þeir sem
eru í aðalhlutverkunum sýna svo
sannarlega hvað í þeim býr. Einar
Rafn Haraldsson er þaulvanur
leikhúsmaður, bæði á sviði og utan
þess sem leikstjóri. Einar slær
ekki feilnótu sem prófessor Henry
Higgins og hefur greinilega hugsað
persónusköpun sína til hlítar: Þessi
Higgins er ævinlega samur við sig,
í málfari, tilsvörum og töktum.
Hann er bæði skemmtilegur og
sannfærandi. Og svo er það Elísa
Doolittle í meðförum Agnesar
Voglers. Að sumu leyti er þetta
hennar kvöld, því þótt Agnes sé
enginn nýgræðingur á sviði tekst
þessari glæsilegu austfirsku stúlku
mjög vel að sýna þau stakkaskipti
sem verða á blómastúlkunni
bresku, bæði til orðs og æðis. Það
fór fíðringur og gleðihrollur um
okkur á áhorfendabekkjunum þeg-
ar hún nær loks tökum á tungutaki
yfirstéttarinnar. Töfrandi augna-
blik.
Þau Heiða Skúladóttir og Daníel
Þorsteinsson standa sig einnig
ágætlega sem meðreiðarsveinar
prófessorsins, og þá er Daníel
Behrend geislandi fínn og í góðu
gervi sem faðir Elísu, Alfred
Dolittle. Hópatriðin eru góð og
sama gildir um hópsönginn. Hljóm-
sveitin situr á veggsvölum og þar
sést Charles Ross stjórna hljóm-
sveitinni af röggsemi. Að sýningu
lokinni stóð hljómsveitin á fætur og
hneigði sig pent eins og vera ber.
Þá áttaði ég mig á því, að hún er
nær eingöngu skipuð ungu fólki
sem er við nám við Tónskóla Aust-
ur-Héraðs og þótti vænna um
framleg þeirra til sýningarinnar
fyrir bragðið. Þau gerðu sitt besta.
Þeirra er framtíðin og fræknir
sigrar.
Guðbrandur Gíslason
Olíumálverk
í HAFNARBORG, menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar,
var opnuð sýning á verkum Arn-
ars Herbertssonar 27. mars sl.
Arnar hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga bæði á Islandi og
erlendis. Hann hefur einnig
haldið einkasýningar; t.d. í Ás-
mundarsal og FIM-salnum.
Verk eftir hann eru m.a. í eigu
í Hafnarborg
Listasafns Islands, Nýlista-
safnsins og Listasafns Reykja-
víkur.
Á sýningunni í Hafnarborg
sýnir Arnar tólf málverk sem
unnin eru með olíulitum, silfur-
bronsi og fernis.
Sýningin er opin alla daga
nema þriðjudaga frá kl. 12 til 18
og henni lýkur 12 apríl.
Nýjar bækur
Amerísku
undrakpemin
frá
Institute • Fop • Skin • Therapy
ÞAU VIRKA!
HVAD SEGJA ÞÆR SEM REYNT HAFA?
ANNA KARLSDÓTTIR - 49 ára
„Amerísku undrakremin virka svo sannar-
lega og eru satt að segja miklu betri en ég
þorði að vona, eftir að hafa prófað hinar og
þessar tegundir í gegnum árin og ekki þær
ódýrustu, án mikils sýnilegs árangurs.
Kremin eru létt, smjúga inn í húðina, gefa
einhvernveginn hreina tilfinningu og eru
alveg ótrúlega drjúg. Ekki skaðar að þau
eru ilmefnalaus og ofnæmisprófuð, þv( ekki
þoli ég hvað sem er í þessum málum. Ég
er með frekar feita húð, svo að ollulausa
rakakremið er hara hreinlega bjargvættur.
Maður verður virkilega sléttur og fínn I
framan af þessum snyrtivörum og ég verð
að minnast á C-vítamíndropana, sem ég
get ekki lengur lifað án, frekar en annarra
snyrtivara frá Institute For Skin Therapy.
GUÐNÝ SIGURÐARDÓTTIR, 31 árs
Aðstæður hjá mér eru þannig, að ég get
ekki eytt miklum tíma I andlitssnyrtingu,
verð að vera snögg að hlutunum, 4 lítil
börn og nokkrir hundar á heimilinu sjátil
þess. Amerísku undrakremin frá IFST
hafa marga kosti fyrir mig og mína
viðkvæmu húð. Maður er fljótur að skella
þeim á sig, þau fara beint inn I húðina,
liggja ekki utan á, maður fær einhvern-
veginn hreina tilfinningu, finnur bók-
staflega að þau gera húðinni gott. Áhrifin
eru greinileg og ekki er verra að kremin
eru ótrúlega drjúg og verðið hagstætt.
Þurrkblettir I andliti sem voru búnir að
vera talsvert vandamál, hurfu eins og
dögg fyrir sólu um leið og ég byrjaði að
nota þetta að staðaldri.
ÞURÍÐUR HALLGRÍMSDÓTTIR, 44 ára
Ég er rosalega ánægð með þessar
snyrtivörur. Var með ansi slæma þurrk-
bletti I andlitinu áður fyrr, þeir eru nú
gjörsamlega horfnir. Þetta er eina
kremið sem hefur lagað þá og hef ég
þó reynt ýmislegt I þessum málum um
dagana. Nú llður mér vel I húðinni, get
notað andlitsmálningu án þess að hún
hlaupi I kekki og sjálfsálitið hefur aukist
til muna! Verð að minnast á hinn
undraverða duftandlitsmaska sem ég
nota samviskusamlega einu sinni I
viku. Maður finnur hvað hann tekur I,
hreinsar og nærir vel og hvað húðin
verður mjúk og fín á eftir. Hann virkar
næstum eins og andlitslyfting og er
meiriháttar! Allar snyrtivörurnar sem
ég hef prófað frá þessu fyrirtæki eru
ótrúlega drjúgar og verðið finnst mér
afar sanngjarnt.
20% KYNNINGARAFSLATTUR 24.3.-16.4.1999
SIGURLAUG LÁRUSDÓTTIR, 70 ára
GUÐRÚN ANTONSDÓTTIR, 24 ára
„Áður fyrr átti ég við ansi mikil húðvanda-
mál að stríða og prófaði ótal snyrtivöru-
tegundir til að reyna að ráða bót á afar
óþægilegum húðþurrki í andliti. En eftir að
ég prófaði Amerísku undrakremin heyra
þessi vandamál mín sögunni til. Um leið
og ég byrjaði að nota þessar vörur, gjör-
breyttist húðin hreinlega. Ég hefði aldrei
trúað því að óreyndu. Húðþurrkur er
horfinn og rakinn sem kremin veita, virðist
einhvernveginn endast og gefa þann raka
sem húðin þarfnast. Húð mín hefur sléttst
og raunverulega byggst upp. Árangur er
tvímælalaus, get ekki annað sagt."
Ég var satt að segja ansi illa haldin af
bólóttri húð um tíma. Þetta var það mikið
vandamál að ég þurfti að leita læknis og
fara í sérstaka meðferð. En eftir meðferð-
ina hef ég getað haldið bólunum algjör-
lega niðri með því að nota hina sérstöku
bólumeðferð sem Amerísku undrakremin
bjóða upp á. Ég mæli eindregið með
þessum ótrúlega áhrifamiklu vörum fyrir
unglinga og aðra sem þjást af feitri húð
og bólum og bendi á oliulausa
rakakremið sem hægt er að nota dags-
daglega, vegna þess að það glansar ekki
neitt.
Snyrtivörur fyrir allar húðgerðir, ilmefnalausar, náttúrulegar,
ofnæmisprófaðar, með og án ávaxtasýru. Fást aðeins á völdum
snyrtistofum í Kaliforníu og á íslandi hjá:
Snyrtistofunni MAJU, Bankastræti 14, R. s. 551-7762
Snyrtistofunni EVU, Ráðhústorgi 1, Akureyri, s. 462-5544
Snyrtistofunni DÖNU, Hafnargötu 41, Keflavík, s. 421-3617
og hjá KOSMETU ehf, Síðumúla 17, R. s. 588-3630
Sendum
vandaðan
upplýsingabækling
ásamt
verðlista
ef óskað er!
\Co4#hótfi‘
e.h.f.
Síðumúla 17 • 108 R • Sími: 588-3630 • Fax: 588-3731
Opið fráki. 14:00-18:00
Netfang: kosmeta@islandia.is