Morgunblaðið - 10.04.1999, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 10.04.1999, Qupperneq 2
2 LAU GARDAGUR 10. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Víkingaskip- in voru alnet ársins 1000 HILLARY Clinton, forsetafrú Bandaríkjanna, sagði á blaða- mannafundi í fyrradag, þar sem fyr- irhuguð víkingasýning Smithsoni- an-safnsins var kynnt, að víkingarn- ir hefðu flutt menningu og reynslu frá einum heimi til annars, og því hefðu víkingaskipin í raun verið al- net ársins 1000. „Þau komu á sam- bandi milli staða og fólks sem sjálft Klámspólur fundust við húsleit LÖGREGLAN í Reykjavík lagði í gærmorgun hald á hundruð klámspólna sem fund- ust við húsleit. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa áður fundist klámspólur hjá sama aðila og er hann grunað- ur um að hafa fjölfaldað og selt spólur. Maðurinn var tekinn til yfir- heyrslu en sleppt að henni lok- inni. Sala og dreifíng á klám- efni getur varðað sektum eða fangelsisvist. gat ekki einu sinni ímyndað sér hvað væri að fínna handan hafsins eða fjallgarðsins,“ sagði forsetafrú- in meðal annars. „Mér þótti gaman að heyra um það, að í samfélagi víkinga höfðu konur töluvert frelsi til að stunda viðskipti og til að taka virkan þátt í stjórnmálalífi í samfélögum sínum. Við höfum einnig verið að læra um það hvernig landkönnuðir víkinga reyndu að varðveita sögu sína og af- rek með nýrri tegund bókmennta sem festi rætur á þessum tíma.“ Víkingarnir fyrstir með þing- ræði fyrir þúsund árum Forsetafrúin sagði ennfremur að víkingarnir kynnu að hafa verið fyi'stu Evrópubúarnir til að líta Am- eríku augum og einnig verið þeir fyrstu sem komu á fót þingræði fyr- ir 1000 árum. Hún sagði að ísland, föðurland sæfaranna, hefði sett á stofn Alþingi árið 1000 og þar væru enn sett lög. „Ef þið komið til Martha’s Viney- ard getið þið séð ummerki um bú- setu víkinga," sagði forsetafrúin, en forsetahjónin hafa oft dvalið á þess- ari eyju við Þorskhöfða í sumarleyf- um sínum. Reuters HILLARY Clinton, forsetafrú Bandaríkjanna, kynnir víkingasýningu Smithsonian-safnsins í fyrrakvöld. Heimssýning EXPO 2000 Nöfn allra Islendinga á veggjum SKIPULEGGJENDUR íslenska sýningarskálans á heimssýningunni EXPO 2000, sem haldin verður í Hannover í Þýskalandi á tiæsta ári, ætla að hafa nöfn allra íslendinga frá upphafí íslandsbyggðar, 700 þúsund talsins, á veggjum skálans og jafnframt verður óskað eftir því að fólk sendi inn myndir úr daglega lífinu sem verða hengdar þar upp. Ríkisstjóm íslands hefur sam- þykkt að verja 200 milljónum króna til kynningar á sýningunni en heild- arkostnaður er áætlaður um 260 milljónir ki-óna. ■ Einstakt/16 -------------- SH missir við- skipti við MHF TVÖ stærstu útgerðarfyrirtæki Þýskalands, Deutsche Fischfang Union (DFFU), sem er dótturfyrir- tæki Samherja hf., og Mecklen- burger Hochseefíscherei (MHF), hafa stofnað sameiginlegt sölu- og markaðsfyrirtæki. MHF hefur undanfarin fimm ár selt afurðir sínar í gegnum Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna, en SH mun nú tapa þeim viðskiptum. ■ Vilji til aukins/24 Tillaga að deiliskipulagi fyrir Brúartorg í Borgarnesi Fyllt upp fyrir tvær GERT er ráð fyrir tveimur stórum lóðum fyrir þjónustu við vegfarend- ur á uppfyllingu við Brúartorg í Borgamesi, samkvæmt nýrri tillögu að deiliskipulagi sem er til umfjöll- unar í nefndum bæjarstjórnar. Fjögur fyrirtæki hafa sótt um að- stöðu á svæðinu, meðal annars Kaupfélag Borgfirðinga og Baugur, en ekki hefur verið ákveðið hvernig staðið verður að úthlutun lóða. I vetur var byrjað á uppfyllingu í krikanum sunnan við bensínstöð Skeljungs, milli vegarins út á Borg- arfjarðarbrú og klettanna Borgar- nesmegin. Gert hefur verið ráð fyrir að þar yrði úthlutað lóð fyrir „veg- sækna starfsemi" og sótti Kaupfé- lag Borgfírðinga um hana fyrir rámu ári. Nú hafa Baugur hf. sem rekur Hraðkaupsbúð í Borgarnesi og verktakafyrirtækið Borgarverk hf. einnig sótt um lóðina og Skelj- ungur hf. sótt um stækkun á at- hafnasvæði sínu út á umrædda lóð. Ágreiningur hefur verið um framkvæmdina í bæjarstjórn Borg- arbyggðar og var felldur samningur storar sem bæjarstjórinn hafði, samkvæmt ákvörðun bæjarráðs, gert við Borg- arverk hf. um að fylla í krikann. Rætt við umsækjendur Óli Jón Gunnarsson bæjarstjóri segir að unnið hafí verið að gerð deiliskipulags fyrir Bráartorg að undanförnu. Tillaga Vinnustofu arkitekta hf. hefur nú verið lögð fram í skipulagsnefnd og bæjarráði. Tillagan gerir ráð fýrir mun meiri uppfyllingu en í upphafi, það er að segja að fyllt verði í umræddan krika og áfram meðfram þjóðvegin- um og út fyrir gamla íþróttavöllinn, þó þannig að vík verði látin halda sér þar vestast. Á þessu svæði er hægt að koma fyrir tveimur stórum lóðum eða fleiri minni. Jafnframt eru settar fram hugmyndir um menningarhús fremst á uppfylling- unni og yrði það andlit bæjarins gagnvart vegfarendum sem koma yfir Borgarfjarðarbrána. Óli Jón telur að tillögumar geti orðið grundvöllur að lausn málsins og með útfærslu þeirra ætti að nást loðir ágætis nýting á svæðinu. Hann seg- ir hins vegar ekki ákveðið hvernig staðið verði að úthlutun lóða. Deiliskipulagstillagan verður lögð fram í bæjarstjórn næstkomandi fimmtudag og býst Óli Jón við því að eftir það verði rætt við alla um- sækjendur um lóð á svæðinu og kannaðar hugmyndir þeima um byggingar. Tillaga Vinnustofu arkitekta hf. gerir ráð fyrir mun meiri uppfyll- ingu en áður var reiknað með, þannig að hægt verði að koma þar fyrir tveimur stóram lóðum fyrir þjónustu við vegfarendur. Á loft- ljósmyndinni sést hluti af því svæði sem fyllt verður upp og á ljósmynd af skipulagsuppdrættinum sést hvernig svæðið mun líta út verði hún niðurstaðan. Fyllt er í krikann sem er við Shellstöðina og Hyrn- una, vel út fyrir klettana og íþrótta- völlinn, þó þannig að vík verður lát- in halda sér þar. Tvær stórar lóðir verða á uppfyllingunni, auk þess sem varpað er fram hugmynd um staðsetningu menningarhúss. Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson AÐ OFAN er tillaga Vinnustofu arkitekta hf. að deiliskipuiagi Brúar- torgs í Borgarnesi og fyrir neðan er loftmynd af svæðinu. Sérblöð í dag ALAUGARDÖGUM LLoDl>i\ Ríkharður Daðason verður áfram hjá Viking/B1 • •••••••• • • • • • • •,• •••••••••• Kolbrún Yr með Islandsmet í Lúxemborg/Bi www.mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.