Morgunblaðið - 10.04.1999, Page 10

Morgunblaðið - 10.04.1999, Page 10
10 LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „Við erum ekki að gera okkur vonir um að lengja líf fólks, heldur auka lífsgæði þess í ellinni. Fyrir utan aukin lífsgæði fyrir einstaklingana, þá er augljóst hvaða sparnað það hefur í för með sér fyrir þjóðfélagið, ef hægt er að bæta heilsu aldraðra.“ Nikulás segir að Hjartavernd hafi ávallt notið velvildar íslensks almennings og hann sé sannfærður um að sú verði raunin þegar kemur að nýju rannsókninni. „Síðasti hlutinn af stórri hóprannsókn sem við gerðum á Reykjavíkursvæðinu beindist að öldrun. Sú rannsókn var í umsjá Björns Einarssonar öldrunarlæknis. Þá komu 70% fólks yfir 70 ára aldri af þeim sem boðaðir voru til rannsóknarinnar, sem hlýtur að teljast góðar heimt- ur og sýnir afstöðu fólks til starfs- ins hér. Ég veit því að við njótum velvildar þjóðarinnar, nú sem fyrr.“ Vilmundur Guðnason er bjart- sýnn á að einhverjar niðurstöður fáist fljótlega eftir að rannsóknir hefjast. ,A-uðvitað getum við engu lofað fyrirfram. Þetta verður sjálf- stæð rannsókn, sem Bandaríkja- mennimir ætla ekki að tengja sín- um rannsóknum á nokkurn hátt, enda hefur Hjartavemd fullt for- ræði á rannsókninni frá upphafi til enda. Svona ítarleg rannsókn hefur aldrei verið gerð áður á þessu sviði, raunar verður þetta stærsta, um- fangsmesta og fullkomnasta rann- sókn á heilbrigði öldranar sem gerð hefur verið í heiminum.“ Gunnar Sigurðsson segir að gmnnur Hjartavemdar hafi ávallt verið nýttur til ýmissa rannsókna. „Núna verður kallaður inn til rann- sókna eldri hópur en áður, sem gefur okkur ný færi. Við munum til dæmis gera ítarlegar rannsóknir á heilastarfsemi, með fullkomnan aðferðum en við höfum haft bol- magn til að beita hingað til. Þá von- umst við til að geta séð hvaða heilsufarsþættir endurspeglast í góðri heilastarfsemi í ellinni. Þetta getum við séð með ítarlegum rann- sóknum á heila og hjarta- og æða- kerfi.“ Vilmundur segir að reynt verði að finna þá þætti, sem ákvarða fæmi fólks á efri áram. „Við erum ekki að gera okkur vonir um að lengja líf fólks, heldur auka lífs- gæði þess í ellinni. Fyi-ir utan auk- in lífsgæði fyrii' einstaklingana, þá er augljóst hvaða sparnáð það hef- ur í för með sér fyrir þjóðfélagið, ef hægt er að bæta heilsu aldraðra." Mun vekja mikla athygli Þremenningarnir hjá Hjarta- vernd efast ekki um að væntanleg- ar rannsóknir munu vekja mjög mikla athygli í heimi læknisfræð- innar. Vilmundur segir ekki ólík- legt að rannsóknarhópar víða um heim muni leita samstarfs við Hjartavernd. Ef slíkir hópar búi yfir þekkingu, sem geti bætt rann- sóknina, sé Hjartavemd að sjálf- sögðu tilbúin til slíks samstai-fs. Samningurinn við Öldrunar- stofnun Bandaríkjanna verður undirritaður á næstunni. Ekki er ljóst hvað rannsóknin mun kosta, en Öldrunarstofnunin hefur fengið vilyrði bandaríska yfirvalda um að hún muni fá það fjármagn sem til þarf. Gunnar, Nikulás og Vilmund- ur segja of snemmt að vera með getgátur um upphæðir, en augljós- lega sé þar um miklu hærri upp- hæðir að ræða en íslenskir vísinda- menn eigi að venjast hjá hinu opin- bera. Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir VILMUNDUR Guðnason, verðandi yfirlæknir Hjartaverndar, Gunnar Sigurðsson, formaður Hjartaverndar, og Nikulás Þ. Sigfússon, fráfarandi yfirlæknir, leggja á næstunni lokahönd á samning við Öldrunarstofnun Bandaríkjanna. Ný störf skapast fyrir tugi íslenskra lækna og vísindamanna Stærsta öldrunar- rannsókn í heimi Heilbrigðismálastofnun Bandaríkjanna hafði samband við Hjarta- vernd fyrir um einu ári og óskaði eftir að fá að kynna sér nánar rannsóknir sem unnið hefur verið að hér á landi. „Bandaríkja- menn þekkja að vísu ágætlega til rannsókna okkar, þar sem niður- stöðumar hafa verið kynntar í er- lendum fræðiritum," segir Gunnar Sigurðsson, formaður Hjai'ta- vemdar. „Innan Heilbrigðismálastofnun- arinnar starfar Öldranarstofnunin, National Institute of Aging, sem hefur lengi leitað að samstarfsað- ila, sem hefði miklar og nákvæmar upplýsingar um stóran hóp fólks sem komið væri á efri ár. Þeir höfðu í huga að fá sem nákvæmast- ar upplýsingar til að geta rannsak- að hvað það væri sem stuðlaði að sjúkdómum eða efldi heilbrigði meðal aldraðra." Vísindamenn frá Öldrunarstofn- uninni hafa komið hingað til lands þrívegis undanfarið og kynnt sér rækilega gögn Hjartavemdar. „Eftir að hafa skoðað gögn um fólk, sem hefur tekið þátt í rann- sóknum Hjartavemdar undanfarin 30 ár og er nú á aldrinum 65 ára og eldri, sögðu þeir að þetta væri sá hópur sem þeir hefðu verið að leita að,“ segir Gunnar. „I kjölfarið var gengið til samninga um áframhald- andi hóprannsóknir, með það í huga að kalla aftur í þennan elsta hóp.“ Fimmtán þúsund manns rannsakaðir á ílmm árum Rannsóknir Hjartaverndar og bandarísku samstarfsaðilanna munu ná til 15 þúsund manns. Bú- ist er við að Hjartavemd geti hafist handa í janúar 2001 og að rann- sókninni ljúki á fimm árum. Öldr- unarstofnunin mun leggja Hjarta- vemd til fullkomnari tækjabúnað en stofnunin hefur nú yfir að ráða, en gert er ráð fyrir að rannsókn- imar fari fram á Rannsóknarstöð Hjartavernd undirritar á næstunni samn- ing við Öldrunarstofnun Bandaríkjanna, National Institute of Aging, um viðamiklar rannsóknir sem unnar verða hér á landi á árum 2001-2005. Ragnhildur Sverrisdóttir ræddi við formann, fráfarandi yfirlækni og nýráðinn yfirlækni Hjartaverndar um rannsóknirnar, sem þeir segja að verði stærsta og umfangsmesta rannsókn á heilbrigði öldrunar sem gerð hefur verið í heiminum. Hjartavemdar við Lágmúla. Enn er ekki ljóst hvort núverandi hús- næði rámar alla þessa starfsemi, en ljóst er að ráða þarf fleiri lækna og vísindamenn til starfa. „Við metum það svo að íslenskir læknar og vísindamenn geti gert þessa rannsókn, með fjárhagslegum stuðningi Bandaríkjamanna, auk tækjabúnaðarins sem þeir leggja til,“ segir Gunnar. Vilmundur Guðnason, sem tekur við starfi yfirlæknis Hjartavernd- ar af Nikulási Þ. Sigfússyni hinn 1. júní næstkomandí, hefur unnið að undirbúningi samningsins við Öldranarstofnun Bandaríkjanna undanfarið ár. Hann segir þetta stærsta verkefni sitt hingað til, en hann taki við góðu búi í fræði- mennskunni af Nikulási Þ. Sigfús- syni. „Við erum komin vel á veg með undirbúning og mér finnst ánægjulegt að geta skýrt frá þess- um samningi á Ari aldraðra,“ segir Vilmundur. „Við höfum þegar haft samband við fjölda íslenskra lækna og vís- indamanna, sem starfa erlendis, og boðið þeim starf við rannsóknimar. Þeir hafa margir tekið því fagn- andi, því hér skapast spennandi tækifæri fyrir ýmsa sérfræðinga, sem hafa ekki getað sinnt fræði- grein sinni hér á landi. Við þui-fum að ráða tugi starfsmanna til viðbót- ar við þann hóp sem starfar núna hjá Hjartavernd og mér finnst sér- staklega ánægjulegt ef við náum að laða fólk heim frá útlöndum. Samkvæmt samningnum við Öldranarstofnunina leggur Hjarta- vemd til þekkingu sína og núver- andi starfsfólk, en allt sem við þurfum til viðbótar er fjármagnað af Bandaríkjamönnum. Ef við eig- um að meta framlag þeima til fjár, þá er það án efa meira en framlag Hjartavemdar, en við höfum þann þekkingargrann, sem byggja þarf á við rannsóknirnar." Niðurstöður opinberaðar jafn óðum Vilmundur segir að Öldranar- stofnunin muni þjálfa fólk til starfa, enda miði rannsóknin að því að svara mörgum nýjum spuming- um og því þurfi jafnvel að þróa nýja rannsóknartækni. „Niðurstöð- urnar, hverjar sem þær verða, standa öllum til boða um leið og þær liggja fyrir,“ segir hann. „Við eigum það sameiginlegt með Heilbrigðismálastofnun Bandaríkjanna að gera allar niður- stöður opinberar, svo þær nýtist þjóðinni um leið og mögulegt er og þá jafnframt öðram þjóðum. Hjartavernd var stofnuð vegna stærsta heilsufarsvandamáls á Vesturlöndum á þeim tíma og nú eram við að ganga til rannsókna á stærsta heilsufarsvandamáli næstu aldar, öldran. Við bendum miklar vonir við að niðurstöður þessara rannsókna auki okkur skilning á öldraninni." Hjartavemd býr sannarlega að miklum heilsufarsupplýsingum, því þar hafa verið stundaðar hóprann- sóknir frá 1967. Nikulás Þ. Sigfús- son hefur verið yfirlæknir stofnun- arinnar síðasta aldarfjórðunginn, en lætur af störfum í vor. Hann segir að samningurinn við Öldrun- arstofnun Bandaríkjanna sé vissu- lega viðurkenning á starfi Hjarta- verndar. „Heilbrigðismálastofnun Bandaríkjanna var búin að grand- skoða allar rannsóknir af þessu tagi í Bandaríkjunum og raunar um allan heim,“ segir Nikulás. „Niðurstaðan varð sú, að hér væri eftir mestu að slægjast.“ Velvild almennings Nikulás segir að hópurinn sem Hjartavernd rannsakaði hafi verið mjög stór í upphafi, eða um 30 þús- und manns. „Þessum hópi höfum við fylgt eftir í þrjátíu ár með end- urteknum rannsóknum samkvæmt stöðluðum aðferðum. Gögn okkar era bæði umfangsmikil og áreiðan- leg og því kjörin til að byggja frek- ari rannsóknir á. Því til viðbótar kemur, að þjóðin er einsleit, svo væntanlega munu einnig vera gerðar erfðafræðilegar rannsóknir, samhliða framhaldsrannsókninni. Loks má nefna, að hér á landi er hægt að nálgast góðar upplýsingar um ýmis atriði sem geta skýrt við- fangsefnið betur, til dæmis um fæðingarþyngd, menntun og fleira. Rannsóknina er því auðveldlega hægt að útvíkka, ef áhugi er á.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.