Morgunblaðið - 10.04.1999, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999 41
PENINGAMARKAÐURINN
FRÉTTIR
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Órói dregur úr hækk
un evrópskra bréfa
EVRÓPSK hlutabréf hækkuðu í verði
og evran átti í erfiðleikum í gær eftir
óvenjumikla vaxtalækkun á evrusvæð-
inu, en óró vegna afstöðu Rússa til
NATO og dræm byrjun í Wall Street
höfðu neikvæð áhrif. Hlutabréfavísitöl-
ur í Bretlandi, Frakklandi og Finnlandi
höfðu aldrei mælzt hærri þegar við-
skipti hófust eftir vaxtalækkun evr-
ópska seðlabankans (ECB) í fyrra-
kvöld. Staðan breyttist þegar forseti
Dúmunnar sagði að Jeltsín forseti
hefði miðað langdrægum eldflaugum á
ríki sem ráðast á Júgóslavíu. Um
0,75% lækkun eftir opnun í Wall Street
bætti gráu ofan á svart, en ástandið
batnaði þegar rússnesku ummælin
voru dregin til baka. Lokagengi þýzkra
bréfa hækkaði um 1,09%, franskra um
0,75% og brezkra um 0,54%. Dollar
styrktist gegn evru, sem var veik fyrir
vegna vaxtalækkunarinnar, sem var
tvöfalt meiri en spáð var. Vonir um að
lækkunin muni styrkja evruna stranda
á trú manna á því að ECB virðist sætta
sig við veikan gjaldmiðil. Olíuverð
hækkaði um 59 sent í 14,80 dollara
tunnan vegna Rússafréttarinnar og
spádóma um rýrnandi olíubirgðir í
heiminum. Verð bréfa í franska verk-
fræðifyrirtækinu Alcatel hækkaði um
5,09% og í Deutsche Bank um 3,6%.
Bréf í pappírsfyrirtækinu Arjo Wiggins
Appleton hækkuðu um 11,38% vegna
frétta um niðurskurð og endurskipu-
lagningu. ( Tókýó komst Nikkei vísital-
an í yfir 17.000 punkta í fyrsta sinn síð-
an í marz í fyrra.
VIÐMIÐUNARVERÐ Á HRÁOLÍU frá 1. nóv. 1998
Hráolía af Brent-svæðinu í Norðursjó, dollarar hver tunna
lö,UU i ■ '
17,00_ i <&.
16,00_ , 1
15,00 ■ *eA r -\14,59
14,00- if
13,00_ y\ J
12,00- V J rv j
11,00 ■ A t vv r
10,00 ■ ■
9,00 ■ Byggt á gögi Nóvember num frá Reuters Desember Janúar Febrúar Mars April
FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - HEIMA
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
09.04.99 verð verð verð (kíló) verð (kr.)
ALLIR MARKAÐIR
Grálúða 39 39 39 20 780
Hlýri 125 109 110 319 35.107
Hrogn 130 130 130 3.032 394.160
Karfi 92 63 74 2.206 163.463
Keila 88 72 72 5.238 377.630
Langa 113 92 102 2.475 251.583
Langlúra 39 30 37 636 23.634
Lúða 380 380 380 9 3.420
Lýsa 60 60 60 12 720
Rauðmagi 220 38 94 146 13.682
Skarkoli 200 137 139 1.668 231.672
Skötuselur 165 130 158 109 17.180
Steinbítur 120 71 86 5.304 453.931
Sólkoli 173 51 64 144 9.230
Ufsi 70 53 67 3.489 232.652
Undirmálsfiskur 127 92 110 1.711 187.967
Ýsa 251 127 193 2.611 502.851
Þorskur 170 100 148 35.571 5.280.539
AUSTFJARÐAM. FÁSKRÚÐSFIRÐI
Hlýri 109 109 109 298 32.482
Langa 104 104 104 55 5.720
Steinbítur 93 93 93 112 10.416
Ufsi 66 66 66 1.626 107.316
Samtals 75 2.091 155.934
FMS Á ÍSAFIRÐI
Skarkoli 139 137 138 1.644 226.872
Steinbítur 104 104 104 2.000 208.000
Þorskur 127 120 124 2.700 335.907
Samtals 121 6.344 770.779
FAXAMARKAÐURINN
Karfi 92 63 91 86 7.825
Langa 101 92 93 745 69.076
Rauðmagi 46 38 46 74 3.392
Steinbítur 96 74 82 383 31.532
Sólkoli 173 51 52 108 5.630
Ufsi 65 53 59 388 23.036
Ýsa 251 127 171 1.451 248.106
Þorskur 165 110 148 1.907 283.094
Samtals 131 5.142 671.692
FISKMARKAÐUR BREIÐAFJARÐAR
I Þorskur 170 117 152 14.300 2.167.594
I Samtals 152 14.300 2.167.594
FISKMARKAÐUR DALVÍKUR
Grálúða 39 39 39 20 780
Hlýri 125 125 125 21 2.625
Karfi 88 88 88 134 11.792
Ufsi 60 60 60 75 4.500
Undirmálsfiskur 127 127 127 873 110.871
Ýsa 220 220 220 19 4.180
Samtals 118 1.142 134.748
FISKMARKAÐUR SUÐURL. ÞORLÁKSH.
Hrogn 130 130 130 3.000 390.000
Karfi 71 71 71 270 19.170
Langa 111 111 111 800 88.800
Ufsi 69 69 69 200 13.800
Þorskur 170 140 156 5.850 913.478
Samtals 141 10.120 1.425.248
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA
Hrogn 130 130 130 32 4.160
Karfi 79 79 79 142 11.218
Keila 88 88 88 16 1.408
Langa 108 108 108 107 11.556
Lýsa 60 60 60 12 720
Skötuselur 165 165 165 86 14.190
Ýsa 215 215 215 91 19.565
Samtals 129 486 62.817
FISKMARKAÐUR VESTFJ. PATREKSF.
I Steinbítur 72 72 72 2.655 191.160
I Samtals 72 2.655 191.160
FISKMARKAÐUR VESTMANNAEYJA
Karfi 92 63 64 289 18.496
Langlúra 39 39 39 506 19.734
Samtals 48 795 38.230
FISKMARKAÐUR VOPNAFJARÐAR
I Rauðmagi 220 220 220 35 7.700
I Samtals 220 35 7.700
FISKMARKAÐURINN í GRINDAVÍK
Keila 72 72 72 5.205 374.760
I Samtals 72 5.205 374.760
I
Tryggingastofnun rflrisins
framhaldi af
opnu bréfí
MORGUNBLAÐINU hefiir borist
eftirfarandi tilkynning frá Sæmundi
Stefánssyni, fyrir hönd Trygginga-
stofnunar ríkisins:
„Gunnar Sturlaugsson Fjeldsted
sendir Tryggingastofnun tóninn í
opnu bréfi í Morgunblaðinu í gær.
Þar gagnrýnir hann reglur er gilda
um niðurfellingu lífeyris ef sjúkra-
hússvist elli- eða örorkulífeyi-isþega
hefur varað lengur en fjóra mánuði
og þar af lengur en í einn mánuð
samfellt á undanförnum 24 mánuð-
um. Tekur hann dæmi af sjálfum sér
í þessu sambandi sem engar brigður
verða bornar á. Til frekari skýringa
er þó nauðsynlegt að upplýsa um
nokkur atriði.
Niðurfelling lífeyris vegna sjúkra-
hússvistar lífeyrisþega sem hefur
varað lengur en fjóra mánuði og þar
af lengur en í einn mánuð samfellt á
undanförnum 24 mánuðum er bund-
in í lög um almannatryggingar.
Tryggingastofnun ber að framfylgja
lögunum, annað væri brot á þeim.
Starfsfólk stofnunarinnar getur ekki
að eigin geðþótta vikið frá þeim, þótt
ýmsir agnúar blasi við. í tilviki sem
þessu þyifti lagabreytingu frá Al-
þingi ef breyta á viðkomandi reglum.
Með þessu er Tryggingastofnun ekki
að skýla sér á bak við löggjafann eða
ráðuneyti. Vegna starfa sinna og sér-
þekkingar kemur starfsfólk Trygg-
ingastofnunar fjölda ábendinga á
framfæri um ýmis atriði sem lúta
einmitt að því að leiðrétta misræmi
eða ágalla. Starfsfólkið setur hins
vegar ekki lögin eða reglugerðimar,
þótt því beri á hinn bóginn að fram-
fylgja þeim og svara fyrir þau.
I annan stað er rétt að benda á að
til þess að koma að einhverju leyti til
móts við þá sem lenda í aðstæðum
sem Gunnar lýsir er heimilt að sækja
um framlengingu á greiðslum og að-
stoða félagsráðgjafar viðkomandi
stofnana við útfyllingu þeirra um-
sókna og veita nánari upplýsingar.
Má geta þess að í hverjum mánuði
eru slíkar framlengingar afgreiddar
og samþykktar hjá stofnuninni en
um þær verður að sækja sérstaklega
eins og allar aðrar greiðslur frá
Tryggingastofnun."
Atkvöld Tafl-
félagsins Hellis
TAFLFÉLAGIÐ Hellir heldur at-
kvöld mánudaginn 12. apríl og hefst
mótið kl. 20. Fyrst eru tefldar 3
hraðskákir þar sem hvor keppandi
hefur 5 mínútur til að Ijúka skákinni
og síðan þrjár atskákir með tuttugu
mínútna umhugsun.
Sigurvegarinn fær verðlaun, mat
fyrir tvo frá Pizzahúsinu. Þá hefur
einnig verið tekinn upp sá siður að
draga út af handahófi annan kepp-
anda, sem einnig fær máltíð fyrir
tvo hjá Pizzahúsinu. Þar eiga allir
jafna möguleika, án tillits til árang-
urs á mótinu.
Þátttökugjöld eru 300 kr. fyrir fé-
lagsmenn (200 kr. fyrir 15 ára og
yngri) og 500 kr. fyrir aðra (300 kr.
fyrir 15 ára og yngri). Allir velkomn-
ir.
FRÁ versluninni Koffortinu.
Koffortið
flytur
VERSLUNIN og heildsalan Kof-
fortið ehf. hefur flutt sig um set hér í
bæ og er nú á Strandgötu 21 í Hafn-
arfirði í stærra og betra húsnæði.
Verslunin selur handunnar vörur
frá Bandaríkjunum t.d. dagatöl, hill-
ur, kransa, klukkur, mottur, ilmkerti
og smávörur. Koffortið er opið
mánudaga til föstudaga kl. 10-18 og
laugardaga kl. 11-16.
Fljótagangan
LENGSTA skíðaganga á íslandi,
Fljótagangan, fer fram í dag, laugar-
daginn 10. apríl, í grennd við félags-
heimilið Ketilás í Fljótum og hefst
hún kl. 11.
Þetta er önnur Fljótagangan en
stefnt er að því að um árlegan við-
burð verði að ræða. Keppt verður í
50 km, 25 km og 10 km göngu og
einnig boðið upp á 5 km skemmti-
göngu. Ef veðurskilyrði verða góð er
áætlað að þeir sem lengst fara gangi
50 km hring í Fljótunum og liggur
brautin þá milli endabæjanna í Aust-
ur-Fljótum, Hrauns og Þrasastaða.
Að lokinni keppni verður verð-
launaafhending og veitingar í félags-
heimilinu KetUási.
GENGISSKRANING
Nr. 64 9. april 1999
Kr. Kr. Kr. GENGI
Ein. kl. 9.15 Kaup Sala Gengi GJALDMIÐLA
Dollari 72,86000 73,26000 72,80000 Reuter, 9. apríl
Sterlp. 116,86000 117,48000 117,92000
Kan. dollari 48,58000 48,90000 48,09000 Eftirfarandi eru kaup og sölugengi helstu
Dönsk kr. 10,57300 10,63300 10,54000 gjaldmiðla gagnvart evrunni á miödegis-
Norsk kr. 9,34100 9,39500 9,34800 markaði:
Sænsk kr. 8,77600 8,82800 8,74700 NÝJAST HÆST LÆGST
Finn. mark 13,21380 13,29600 13,16780
Fr. franki 11,97720 12,05180 11,93550 Dollari 1.078 1.0813 1.0731
Belg.franki 1,94750 1,95970 1,94080 Japanskt jen 130.47 130.93 129.75
Sv. franki 49,21000 49,49000 49,04000 Steríingspund 0.671 0.6736 0.6684
Holl. gyllini 35,65140 35,87340 35,52740 Sv. Franki 1.5999 1.6005 1.5951
Þýskt mark 40,16980 40,42000 40,03020 Dönsk kr. 7.4318 7.4324 7.432
ít. líra 0,04057 0,04083 0,04044 Grísk drakma 324.18 324.66 323.9
Austurr. sch. 5,70950 5,74510 5,68970 Norsk kr. 8.392 8.419 8.395
Port. escudo 0,39190 0,39430 0,39050 Sænsk kr. 8.9247 8.9515 8.9231
Sp. peseti 0,47220 0,47520 0,47060 1.7105 1.7214 1.7074
Jap. jen írskt pund 0,60050 99,75750 0,60430 100,37870 0,60720 99,41070 Kanada dollari 1.6196 1.6212 1.6075
SDR (Sérst.) 98,65000 99,25000 98,84000 Hong K. dollari 8.3704 8.3977 8.3426
Evra 78,57000 79,05000 78,29000 Rússnesk rúbla 28.13 28.2398 27.87
Tollgengi fyrir apríl er sölugengi 29. mars. Singap. dollari 1.8694 1.8725 1.8617
Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 562 3270
FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - HEIMA
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (kíló) verð (kr.)
FISKMARKAÐURINN HF.
Karfi 76 73 74 1.285 94.962
Keila 86 86 86 17 1.462
Langa 113 113 113 275 31.075
Langlúra 30 30 30 130 3.900
Lúða 380 380 380 9 3.420
Rauðmagi 70 70 70 37 2.590
Skarkoli 200 200 200 24 4.800
Skötuselur 130 130 130 23 2.990
Steinbítur 120 100 117 41 4.800
Sólkoli 100 100 100 36 3.600
Ufsi 70 70 70 1.200 84.000
Ýsa 220 220 220 1.050 231.000
Þorskur 150 100 146 10.814 1.580.466
Samtals 137 14.941 2.049.064
SKAGAMARKAÐURINN
Langa 92 92 92 493 45.356
Steinbítur 71 71 71 113 8.023
Undirmálsfiskur 92 92 92 838 77.096
Samtals 90 1.444 130.475
VIÐSKIPTI Á KVÓTAÞINGI ÍSLANDS
26.3.1999
Kvótategund Viðskipta- Viðskipta- Hxsta kaup- Lsgsta söfu- Kaupmagn Söiumagn Vegið kaup- Vegið sölu Síðasta
magn (kg) verð (kr) tilboð (kr). tilboð (kr). eftir(kg) eftir(kg) verð (kr) verð(kr) meðalv. (kr)
Þorskur 138.564 105,00 105,00 105,32 158.936 226.417 105,00 107,34 107,27
Ýsa 49,99 0 190.755 51,74 51,25
Ufsi 61.841 29,98 30,00 31,00 41.481 263.598 28,07 32,55 30,09
Karfi 40,99 0 181.303 42,25 41,42
Steinbítur 18,50 13.087 0 18,49 17,06
Úthafskarfi 32,00 0 296.144 32,00 21,00
Skarkoli 5.000 38,74 35,00 37,49 30.500 26.126 35,00 39,07 38,74
Langlúra 79 35,96 36,91 36,99 170 10.000 36,91 36,99 36,80
Sandkoli 177 11,50 12,01 19.823 0 12,01 12,00
Skrápflúra 1.005 10,52 11,03 37.995 0 11,03 11,16
Loðna 0,20 0 3.660.000 0,50 0,22
Humar 400,00 25 0 400,00 400,00
Úthafsrækja 114.265 6,64 6,10 6,50 98.825 100.000 4,89 6,50 6,36
Rækja á Flæmingjagr. 32,00 35,00 250.000 250.185 32,00 36,00 34,85
Ekki voru tilboð í aðrar tegundir
Urslitakvöld
í spurninga-
keppni átt-
hagafelaga
NU er lokið undankeppni í spum-
ingakeppni átthagafélaga hér á höf-
uðborgarsvæðinu. Haldnar voru
fjórar undankeppnir þar sem þátt
tóku 16 félög. Sigurvegari hverrar
keppni vann sér rétt tU þátttöku í úr-
slitakeppni.
TU úrslita keppa að þessu sinni lið
frá Ámesingafélaginu, Breiðfirð-
ingafélaginu, Húnvetningafélaginu
og Svarfdælingafélaginu.
Urslitakeppnin fer fram á Hótel
Sögu - Súlnasal sunnudaginn 11.
aprU kl 20. Stjórnandi er Ragnheiður
Erla Bjamadóttir.
Óperan Boris
Godúnov sýnd
í bíósal MÍR
KVIKMYNDASÝNINGIN í bíósal
MIR, Vatnsstíg 10, sunnudaginn 11.
apríl kl. 15 er liður í kynningu á
verkum Alexanders S. Púshkins í til-
efni 200 ára aímælis skáldsins nú í
vor.
Sýnd verður óperan Boris
Godúnov eftir Modest Mússorgsky,
gömul mynd, gerð á sjötta áratugn-
um með þátttöku margra af bestu
óperusöngvurum Sovétríkjanna á
þeim tíma.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimUl.
Bingó SVFÍ-
kvenna
SLYSAVARNAKONUR í Reykja-
vík verða með bingó að Sóltúni 30
(Höllubúð) í dag, laugardaginn 10.
aprU kl. 14.
Mörg fyrirtæki hafa veitt stuðning
með því að gefa vinninga. Allir eru
velkomnir að koma og spUa bingó.