Morgunblaðið - 10.04.1999, Síða 42

Morgunblaðið - 10.04.1999, Síða 42
42 LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Þetta má ekki segj a „Enginn þingmaður má greiða atkvæði með fjárveitingu til sjálfs sín. “ 64. grein þingskaparlaga frá 1991. Eftir Kristján Jónsson Við notum ýmsa vamagla í vlðskipt- um án þess að þar með sé verið að dylgja um ósann- sögli eða svik. Pegar ég tek út peninga í bankanum er ég beð- inn um skilríki og fínnst það ekkert undarlegt. Eg yrði hvumsa ef afgreiðslumaðurinn segði strax að ég gæti látið skil- ríkin eiga sig; heiðarleikinn skíni nefnilega af mér. Pví miður, svona trúgjömum fáráðlingi treysti ég nú ekki til að afgreiða mig skammlaust og sný mér því að VIÐHORF næsta af- greiðslumanni. Gert er ráð fyrir að bestu menn geti verið breyskir, að persónulegar aðstæður þeirra geti brenglað dómgreind og hlutlægni. Við treystum t.d. yf- irleitt dómskerfinu en dómari sem er of nátengdur ákveðnu máli af einhverjum orsökum, t.d. vegna ættartengsla eða beinna fjárhagslegra hagsmuna, er vanhæfur og víkur auðvitað sæti þegar umrætt mál kemur á borð hans. Ráðherra taldi sig fyrir skömmu ekki geta kveðið upp úrskurð í máli sem varðaði skipulag vegna þess að hann væri ættingi eins málsaðila. Annar ráðherra gerðist því um- hverfisráðherra tímabundið í hans stað og kvað upp úrskurð í deilunni. En vandamál af þessu tagi virðast yfirleitt ekki flækjast mikið fyrir íslenskum þing- mönnum. Hvað eru mörg dæmi um að alþingismenn sitji hjá í at- kvæðagreiðslu um kvóta eða annað og beri því við að þeir óttist að eiginhagsmunir geti brenglað þeim sýn? Að sögn heimildarmanna skrifara er slík hjáseta nær óþekkt hér. Al- menn ákvæði laga um vanhæfi ná ekki til þingmanna, þeir hafa sjálfdæmi í þeim efnum. í þing- skaparlögum er reyndar eitt ákvæði um þessi efni; menn mega ekki greiða atkvæði með fjárveitingu til sjálfs sín! Pen- ingarnir þurfa sem sagt að vera bókstaflega eymamerktir ákveðnum þingmanni til að ástæða sé að velta fyrir sér hagsmunaárekstri. Eigi þingmaður hlut í t.d. fiskiskipaútgerð eða líftæknifyr- irtæki, reki jafnvel fyrirtækið, er það í sjálfu sér ágætt. Hann hef- ur þá vonandi meiri innsýn en ella í atvinnulífið. Hann er þá betur að sér um raunveruleik- ann sem forráðamenn fyrirtækja þurfa að kljást við, reglugerða- frumskóginn sem lúsiðnir of- stjórar og blýantsnagarar í kerf- inu rækta og veit betur en ýmsir aðrir hvar skórinn kreppir. En - og því má aldrei gleyma - hann er líka milli steins og sleggju ef þjóðarhagur rekst illa á hagsmuni fyrirtækisins sem hann á eða á hlut í. Þetta blasir við. Á þingmaður að greiða atkvæði með lögum sem stangast beinlínis á við einka- hagsmuni hans þegar nauðsyn krefur? Á hann umsvifalaust að saga í sundur greinina sem hann situr á ef ótvíræðir hags- munir þjóðarinnar krefjast þess? Við vonum að hann geri það en erum ekki svo bláeygð að treysta því. „Nafngreindu þingmennina sem þú tortryggir!“ er sagt með þjósti, rétt eins og verið sé að benda á sökudólga í svikamáli. Segjum að ég leggi til að við treystum framvegis sérhverjum dómara til að dæma í öllum málum, jafnvel í máli makans gegn þriðja aðila, að ég vilji að lagaák\'æði um vanhæfi verði afnumin. Þá mótmælir vafalaust einhver. Má ég þá heimta að hann nafngreini ísienska dóm- ara sem hann treysti ekki? Málið snýst um gegnsæi, rétt okkar til að vita sem mest um málavexti þegar teknar eru ákvarðanir í þjóðmálum, allar forsendur þingmanna sem hægt er að upplýsa. Þjóðþing í mörgum löndum hafa skýrar reglur um að nýr þingmaður skuli gera opinber- lega grein fyrir eignum sínum og fjárhagslegum tengslum, ekki síst hlutafjáreign. Mark- miðið er að torvelda mönnum að dylja hagsmunatengsl sem geti skaðað löggjafarstarfið. Engar slíkar upplýsingareglur gilda hér á landi, almenningur verður að láta slúðrið eitt duga. Kröfur um vandaðri stjórn- sýslu og gegnsæi aukast og með þeim er ekki verið að væna um óheiðarleika heldur fyrirbyggja slys. Reglur um val fulltrúa í framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins voru nýlega hert- ar að gefnu tilefni. Þeir verða nú að upplýsa allt um fjárhags- leg persónutengsl sem gætu valdið spillingu. Þetta er ekki hnýsni heldur eðlileg varkárni. I Bandaríkjunum er eftirlit þingnefnda í þessu skyni svo harkalegt að mörgum finnst nóg um atganginn og segja að um ofsóknir sé að ræða. Við gætum reynt meðalhófið. Þegar ég heyri þingmann mæla með því að Islensk erfða- greining fái einkaleyfi til rann- sókna á heilsufarsupplýsingum eða mæla með óbreyttu gjafa- kvótakerfi eru það í fyrstu at- rennu rökin sem hann eða hún notar sem skipta mig máli. En að sjálfsögðu er líka mikilvægt að staðreyndir séu ljósar. Eg vil geta sjálfur vegið og metið alla þætti, eins og líkurnar á því að umræddur þingmaður sé einnig að biðja starfssystkin sín að tryggja sér áfram ómældar tekjur af hlutabréfum. Eg er ekki að dylgja um óheilindi eða skrök af hálfu ein- stakra þingmanna, aðeins að gera ráð fyrir að á Alþingi sitji að líkindum fólk en ekki 63 dýr- lingar. Enginn er að krefjast þess að fá upplýsingar um einkamál þingfulltrúa önnur en þau fjár- mál sem augljóslega geta skipt máli í atkvæðagreiðslum um fjárveitingar og lagasetningu. En þingseta er ekki eins og hver önnur vinna og þess vegna verður að gera sérstakar kröfur til þeirra sem hana stunda. Vilja líklegir nýliðar á þingi sýna gott fordæmi og upplýsa okkur - helst fyrir kosningar? EVELYN Glennie og Áskell Másson. Morgunblaðið/Kristinn Verki Áskels Mássonar vel tekið í Kennedy Center „Gifurlega sterk stemmning í salnum“ SKOSKA slagverksleikaranum Evelyn Glennie var geysivel tekið á opnunartónleikum þriggja daga slagverkshátíðar í Kennedy Center í Washington á fimmtudagskvöld. Þar lék hún einleik með bandarísku sinfóníuhljómsveitinni National Symphony Orchestra undir stjórn hins kunna hljómsveitarstjóra Le- onard Slatkins í verki Áskels Más- sonar, Konsertþætti fyrir sneril- trommu og hljómsveit. „Þetta var virkilega stór stund og gífurlega sterk stemmning í salnum," sagði Áskell í símtali við Morgunblaðið í gær, þar sem hann var staddur í Washington, en hann var kallaður upp að flutningnum loknum. Uppselt var á tónleikana en Kennedy Center tekur hátt á þriðja þúsund manns í sæti. „Það var mjög gaman að hitta hljóm- sveitarstjórann, Leonard Slatkin, sem er aðalstjórnandi þessarar hljómsveitar, sem er þjóðarhljóm- sveit Bandaríkjanna," sagði hann ennfremur. Er að ljúka við að skrifa stóran konsert fyrir Evelyn „Það var líka gaman að hitta Evelyn, en hún hefur verið að flytja þetta verk með mörgum þekktum sinfóníuhljómsveitum hér í Banda- ríkjunum að undanförnu. Ætli það séu ekki svona tvö eða þrjú ár síðan hún spilaði það íyrst. Núna eftir nokkrar vikur er hún að fara að spila það með Cleveland Orchestra, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Áskell. Verkið samdi hann árið 1982 og var það frumflutt á hátíð ungra nor- rænna tónlistarmanna síðar sama ár. „Eins og dóttir mín sagði: Æi pabbi, þetta er eldgamalt verk!“ segir Áskell og hlær. „En ég er mjög ánægður með að hafa farið hingað, því eftir að maður er búinn að semja þessi verk þá er það svo sjaldan sem maður getur fylgt þeim eftir," heldur hann áfram. Um þessar mundir er Áskell að ljúka við að skrifa stóran konsert fyrir Evelyn Glennie. Hann heitir einfaldlega Slagverkskonsert og mun taka um hálftíma í flutningi. „Þetta er geysilega stórt verk íyrir sinfóníuhljómsveit og slagverksein- leikara og hún er búin að biðja mig um frumflutningsréttinn á því. Mig langar til að það verði frumflutt héma, með þjóðarhljómsveit Bandaríkjanna," segir hann. Vaka til heiðurs Þorsteini Valdimarssyni í Salnum VAKA til heiðurs Þorsteini Valdi- marssyni skáldi verður haldin í Salnum í nýja tónlistarhúsi Kópa- vogs í dag. Að vökunni standa Kópavogsbær og tónlistarfólk í bænum auk annarra. Þar munu Signý Sæmundsdóttir söngkona og Anna Guðný Guðmundsdóttir pí- anóleikari flytja lagaflokk eftir Þor- kel Sigurbjörnsson við ljóð Þor- steins, lesarar munu lesa uppúr verkum hans og þrír kórar koma fram. Það em Skólakór Kársness- skóla, en stjórnandi hans er Þórunn Björnsdóttir, og Kór Menntaskól- ans í Hamrahlíð og Hamrahlíðar- kórinn sem stjórnað er af Þorgerði Ingólfsdóttur. Skáldið Þorsteinn Valdimarsson hefði orðið áttrætt sl. haust hefði það lifað en Þorsteinn dó langt fyrir aldur fram fyrir tuttugu og tveimur áram. Eftir hann liggja níu ljóða- bækur og stórt safn þýðinga á söng- leikjum, óperam og söngtextum. Hann hefur auk þess verið einkar þekktur fýrir limrarnar sínar. Þorgerður Ingólfsdóttir hefur lengi unnið með söngtexta og ljóð Þorsteins Valdimarssonar og hún var spurð nánar út í kynni sín af skáldinu og hvaða verk kórar henn- ar muni flytja við vökuna. „Þorsteinn Valdimarsson var mjög músíkalskur maður. Hann las Þorsteinn Þorgerður Valdimarsson Ingólfsdóttir nótur og söng vel. Það lék í höndum hans að þýða óperar og sönglög því ekki naut hann bara góðs af skáld- skaparhæfileikum sínum heldur gat hann líka sungið þetta allt. Þess vegna átti hann mjög auðvelt með að láta skáldskap fylgja tónmáli og gerði það vel. En það getur oft ver- ið erfitt að ná hrynjanda þegar t.d. þýtt er úr tungumálum sem hafa allt aðrar áherslur en íslenskan. Það var alltaf gaman að leita tO hans og biðja hann um að þýða fyr- ir sig þó ekki hafi liðið langur tími af minni starfsævi og þangað til hann lést. En ég þekkti hann frá því ég var barn. Hann var vinur foreldra minna og þýddi mikið fyrir Pólýfónkórinn sem pabbi minn, Ingólfur Guðbrandsson, stjórnaði. Pabbi stjórnaði líka barnakóram og óhemju mikið af þýddum ljóðum við barnalög eru til eftir Þorstein. í Salnum mun Hamrahlíðarkór- inn flytja tvo tónbálka. Annar bálk- urinn er eftir Béla Bartók og bygg- ir á slóveskum þjóðvísum og hinn bálkurinn byggist á júgóslavískum þjóðvísum í tóngerð tónskáldsins Mátyás Seiber. Þýðingar Þorsteins á textum þessara bálka lúta full- komlega músíkölskum lögmálum tónsmíðanna. Svo munum við framflytja nýtt tónverk eftir Fjölni Stefánsson skólastjóra Tónlistarskóla Kópa- vogs en það er samið við átta limr- ur Þorsteins. Og þrjár aðrar limrar munum við einnig flytja en þær fluttum við íyrst fyrir tuttugu og fimm áram og höfum flutt þær æ síðan víða um heim við ómælda at- hygli. Páll P. Pálsson samdi tónlist- ina við þær. Þá verður á efnis- skránni lag frá Sviss sem Þorsteinn orti fjóð við. Þorsteinn var óvenju næmur maður. Tónlistaræð hans sló svo djúpt í brjósti hans og var algjör- lega samofin skáldskaparhæfileik- um hans. Mér þótti hann vera hálf- gerður Orfeus sem situr með hörpu og getur laðað allt að sér með ljóði og söng,“ sagði Þorgerður Ingólfs- dóttir að lokum. Tónleikarnir í Salnum í nýja tón- listarhúsi Kópavogs hefjast klukk- an 20.30.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.