Morgunblaðið - 13.04.1999, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 13.04.1999, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1999 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRIL BLAÐ B Morgunblaðið/Golli Gamlir stríðsmenn fagna FH-ingar sýndu ótrúlegt keppnisskap þegar þeir tryggðu sér sigur á Fram í Safamýrinni í gærkvöldi, 22:18 - og þar með rétt til að leika við Aftureldingu um íslandsmeistaratitlinn. Hér á myndinni sjást gamlir stríðsmenn fagna sigrinum - Guðjón Árnason, fyrirliði, Kristján Arason, þjálfari og Gunnar Beinteinsson, sem urðu meistarar síðast með FH 1992 á Selfossi. KNATTSPYRNA / DÓMARAR Mikil mistök í Englandi Mistök dómaranna í undanúr- slitaleikjunum tveimur í Englandi á sunnudag hafa vakið hörð viðbrögð í breskum fjölmiðl- um. Enn á ný hefur sú umræða vaknað hvort ekki sé rétt að styðj- ast við nútímatækni í knattspyrn- unni og hafa myndavélar til hlið- sjónar við dómgæslu í leikjum sem skipta svo miklu máli. Paul Durkin, sem dæmdi leik Newcastle og Tottenham og missti af því er Grikkinn Dabizas handlék knöttinn innan eigin vítateigs í seinni hálfleik, viðurkenndi í gær að hann hefði gert mjög alvarleg mis- tök. Hann hefði einfaldlega ekki séð atvikið, annars hefði hann dæmt vítaspyrnu á Newcastle. Breskir fjölmiðlar eru nálega á einu máli um að þá hafi David Eller- ay, dómari í leik Man. Utd. og Ar- senal, gert alvarleg mistök er hann dæmdi af mark Roys Keanes eftir ábendingu aðstoðardómara síns. Elleray sá í gær ekki ástæðu til að viðurkenna mistök sín, sagði aðeins að þarna hefði hann í einu og öllu farið eftir ábendingu aðstoðardóm- arans sem talið hefði Dwight Yorke rangstæðan er Ryan Giggs hljóp upp vinstri kantinn og sú ákvörðun hefði því staðið þegar Giggs síðan sendi fyrir markið þar sem Yorke skallaði knöttinn til Keanes sem þrumaði knettinum í netið. „Aðstoðardómarinn taldi að Yor- ke hefði verið svo nálægt Giggs að hann hefði áhrif á leikinn, jafnvel þótt Giggs tæki boltann sjálfur. Hann taldi um sendingu að ræða, en Giggs var síðan svo snöggur að hann tók boltann frekar sjálfur og gaf fyrir. Ég samþykkti rök hans en hef ekki skoðað atvikið á mynd- bandi,“ sagði Elleray. Gylfi Orrason, milliríkjadómari í knattspymu, segir að enginn vafi leiki á því að markið hafi verið lög- legt. „Aðstoðardómarinn gerði þama alvarleg mistök og ég skil raunar ekki hvað honum og Elleray hefm' farið í milli. Þótt Yorke haifi verið rangstæður áður en Giggs fékk knöttinn er alls ekki þar með sagt að það gildi eftir að hann sendir fyrir frá endalínu. Það er ómögulegt að ein- hver hafi getað verið rangstæður þá og aðstoðardómarinn blandar þama saman tveimur óskyldum hlutum. Þegar Giggs gefur fyrir markið er Yorke klárlega réttstæður, jafnvel þótt hann hafi verið rangstæður fyrr í leiknum. Það er hreinlega eins og aðstoðardómarinn hafi farið þama úr sambandi," segir Gylfi. ■ Dómarar... / B9 GOLF: LÖNG LEIÐ AÐ BAKI HJÁ JOSÉ MARIA OLAZABAL/B4 — VINNINGSTOLUR LAUGARDAGINN ; Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð ; 1.5 af 5 0 2.008.430 2. 4 af 5+<#§ 1 301.030 3. 4 af 5 59 7.920 4. 3 af 5 1.963 550 \ TVÖFALDUR / 1. VINNINGURÁ ) LAUGARDAGINN Jókertölur vikurmar 0 8 7 0 9 Vinningar Fjöldi vinninga Upphæö á mann 5 tölur 0 1.000.000 4 síðustu 2 100.000 3 síðustu 7 10.000 2 síðustu 113 1.000 VINNINGSTOLUR MIÐVIKUDAGINN 1 07.04.1999 || AÐALTÖLUR t fy fe («to(í2 BÓNUSTÖLUR 11 K15J Vinningar 1. 6 af 6 2. 5 af 6 + BðflUS 3. 5 af 6 4. 4 af 6 3. 3 af 6+bónik Fjöldi vinninga 211 487 Vinnings- upphæð 28.846.930 2.933.630 115.500 2.610 480 Upplýsingar: Lottómiðinn með bónus- vinningnum sl. laugardag var keyptur í Söluturninum Glæsibæ við fllfheima í Reykjavík. Lottómiðarnir sem gáfu annan vinning í Jóker voru keyptir í Bitabæ við Ásgarð í Garðabæ og Toppmynd- um, Hólagarði í Reykjavík. Upplýsingar í síma: 568-1511 Textavarp: 281, 283 og 284 í þágu öryrkja, ungmenna og íþrótta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.