Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 B 5 IÞROTTIR Júlíus mætir Lee í úrslit- um í Sviss JÚLÍUS Jónasson og sam- herjar í St. Otmar komust um helgina í úrslit svissneska handknattleiksins er þeir lögöu meistaralið síðasta árs, Pfadi Winterthur, 29:25 á heimavelli í oddaleik. í úrslit- um mætir St. Otmar liðs- mönnum TV Sulir sem lagði Kadetten Schaffhausen, 28:20, í oddaleik, en með Su- hr leikur m.a. Suik Hyung Lee fyrrverandi markvörður FH. Fyrsti leikur St, Otmar og Shur verður á lieimavelli St. Otrnar á fimintudagskvöldið, en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki verður svissneskur ineistari. Dormagen öruggt upp „ÍSLENDINGALIÐIГ Ba- yer Dormagen hefur tryggt sér sigur í suðurriðli 2. deild- ar þýska handknattleiksins þegar ein umferð er eftir. Um leið á liðið víst sæti í 1. deild að ári eftir eins árs veru í 2. deild. Uin helgina lagði Dormagen lið Leuters- hausen, 25:24, á heimavelli á sama tíma og aðalkeppni- nauturinn, Willstátt, náði að- eins jafntefli á heimavelli við Östringen, 23:23. Þar með er ljóst að WiIIstatt getur ekki komist upp fyrir Dormagen í efsta sæti hvernig sem úrslit verða í síðustu umferðinni. Héðinn Giisson skoraði þrjú mörk fyrir Dormagen í sigurleiknum á Leuters- hausen og Róbert Sighvats- son og Daði Hafþói'sson voru með 1 mark hvor. Gústaf Bjarnason var hins vegar með 3 inörk fyrir Willstatt gegn Östringen. Aron og Skjern í úrslit SKJERN, lið Arons Krist- jánssonar, komst um helgina í úrslit dönsku deildakeppn- innar f handknattleik er liðið lagði FIF í öðrurn og síðari leik liðanna í undanúrsiitum, 25:22. Leikurinn fór fram á heimavelli FIF í Kaupmanna- höfn, en fyrir helgina vann Skjern heimaleikinn. Aron skoraði þrjú mörk. Slyern mætir annað hvort Kolding eða Virum í úrslit- um, en liðin liafa umiið einn leik hvort í undanúrslituin. Árangur Skjern hefur ein- stakur á þessu keppnistíma- bili undir stjórn Andres Dahl Nielsen. Hann tók við liðinu er það kom upp í 1. deild danska handknattleiksins sl. vor og hefur nú stýrt því í úrslít á fyrsta ári. KÓRFUKNATTLEIKUR KNATTSPYRNA / NOREGUR Rúnar og Helgi á skot- skónum KEPPNI hófst í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um helgina. Meistarar sjö síðustu ára, Rosenborg frá Þrándheimi, sýndu mátt sinn á heimavelli gegn Moss með 5:0-stórsigri. Árni Gautur Arason varð að gera sér að góðu að sitja á varamannabekk meistaranna, því hinn gamalreyndi Jorn Jamfalt var öryggið uppmálað í markinu. Sigurd Rushfelt, markakóngur þriggja síðustu leiktíða í Noregi, var ekkert að tvínóna við hlutina og gerði þrennu í leiknum og Ijóst að Rosenborg-Iiðið mætir griðarsterkt til leiks. Einar Guðmundsson skrífar frá Noregi olde og Stabæk eru talin geta veitt Rosenborg keppni í bar- áttunni um meistaratitilinn og þau unnu bæði stórsigra í fyrstu umferð. Molde vann Tromsö á heima- velli, 4:0, þar sem Andreas Lund gerði tvö mörk. Tryggvi Guðmundsson lék allan tímann með Tromsö, en var lítt áberandi. Stabæk gjörsigi’aði nýlið- ana í Skeid, 5:0, og skoraði Helgi Sig- urðsson fjórða mark Stabæk af stuttu færi. Pétur Marteinsson lék ekki með Stabæk, þar sem hann er enn ekki búinn að jafna sig af meiðslum. Morgunblaðið/Einar Falur SÆMUNDUR Oddsson, einn af leikmönnum Keflavíkurliðsins, skorar í undanúrslitum gegn Grindavík. Fyrsti úrslitaleikur Keflvíkinga og Njarðvíkinga í kvöld Útlit fýrir frá- bæra skemmtun ÚRSLITARIMMA Keflvíkinga og Njarðvíkinga úr Reykjanesbæ um íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla hefst í kvöld í íþróttahúsi Keflvíkinga. Það lið verður íslandsmeistari sem fyrr vinnur þrjá leiki og geta því viðureignirnar minnst orðið þrjár en mest fimm. Keflavík og Njarðvík mættust síð- ast í úrslitum úrvalsdeildarinnar árið 1991, en liðin léku einnig til úr- slita í bikarkeppninni í vetur og Njarðvíkingar höfðu þá betur með ævintýralegum endaspretti í frábær- um leik. Jón Kr. Gíslason, landsliðsþjálfari, telur að leikir liðanna verði frábær skemmtun. „Leikir liðanna i úrslita- keppninni voru mjög góðir og svo er bikarúrslitaleikurinn í vetur mönn- um enn í fersku minni,“ segir hann. Bæði liðin koma úr Reykjanesbæ og því er um sannkallaðan hverfaslag að ræða. Þrátt fyrir ná- lægðina telur Jón Kr. að heimavöll- urinn komi til með að ráða úrslitum. „Eg er alveg viss um það. Þarna er um ólíka velli að ræða og það skiptir mestu, enda þótt áhorfendurnir verði þeir sömu. Ég tel ljóst að það lið sem nær að stela sigri á útivelli komist í lykilstöðu. Svo hefur það einnig sýnt sig að það lið sem fyrr nær öðrum sigri sínum verður ís- landsmeistari. Að þurfa aðeins einn leik til að tryggja sér titilinn hefur oftast reynst nægileg hvatning,“ segir þjálfarinn. Keflvíkingar eru á heimavelli í fyrsta leiknum, enda urðu þeir efstir í deildinni og Jón telur að Njarðvík- ingar muni eflaust leggja áherslu á að byrja vel. „Nái þeir að sigra í Keflavík í íyrsta leik er ljóst að staða þeirra yrði afar sterk,“ segir Jón og bætir því við að leikirnir verði ef- laust frábær skemmtun. „Vonandi verður um fimm leikja úrslitarimmu að ræða - það væri frábært fyrir körfuboltann á Islandi.11 FIMLEIKAR / NM UNGLINGA Tvenn gullverðlaun í Malmö ÍSLENSKIR fímleikamenn kræktu sér í tvenn gullverðlaun á Norðurlandamóti unglinga í fiinleikum sem fram fór í Malmö í Svíþjóð um helgina. Viktor Kristmannsson sigraði á tvíslá og Þórir Arnar Garðarsson varð hlutskarpastur í æfíngum á hringjum. Viktor verður 15 ára í júlí nk. og glæsileg framganga hans á mótinu vakti athygli, hann fékk t.d. 8,35 í einkunn fyrir æfingar sínar á tvíslá, en næsti maður var með 7,90 í einkunn. Þá komst hann einnig í úrslit á bogahesti og lenti þar í 5. sæti. Þá keppti Þórir Arnar alls til úrslita á þremur áhöldum, hann varð í 6. sæti á svifrá, 2. sæti á bogahesti og sigraði svo í hringjum. Árangur íslensku stúlknanna var einnig atliyglisverður. Lilja Erlendsdóttir og Inga Rós Gunnarsdóttir komust báðar í úrslit á slá, Erna Sigmundsdóttir í gólfæfingum og Sigríður Harðardóttir á tvíslá. Reglan er sú að sex efstu á hveiju áhaldi komast í úrslit en þó mega aðeins tveir frá hverju landi keppa á áhaldi og varð niðurstaðan sú að Sigríður gaf Ernu eftir réttinn til að keppa á tvíslá. Viking frá Stavangri hefur einnig verið spáð góðu gengi, en liðið lá óvænt fyrir nýliðunum Odd-Gren- land á heimavelli, 1:2. Odd náðu for- ystunni á 2. mínútu og bættu um bet- ur á þeirri 11. Markvörður Viking bjargaði liði sínu frá algerri niður- lægingu með því að verja vítaspyrnu fyrir leikhlé og staðan var 0:2 í hálf- leik. Viking náði að minnka muninn í síðari hálfleik, en var aldrei nálægt því að jafna metin. Auðun Helgason var í byijunarliði Viking, en náði sér ekki á strik og var tekinn af leikvelli í seinni hálfleik. Þá var Ríkharður Daðason heldur ekki með Viking, en hann hefur ekki náð sér að fullu af hnjámeiðslunum sem urðu til þess að hann missti af landsleikjum Islands gegn Lúxemborg, Andoixa og Úkra- ínu. Ávallt eru miklar væntingar í Bergen til knattspyrnuliðs borgar- innar, Brann. Um 14.000 áhorfend- ur mættu um helgina til að sjá heimamenn taka á móti Lilleström, sem flestir eiga von á að verði í botnbaráttunni í sumar. Svo var þó ekki að sjá í þessum leik; Lilleström tók snemma forystu með marki Ar- ild Sungots eftir hörkuskalla Heið- ars Helgusonar. Heiðar var svo enn að verki í seinni hálfleik er hann komst einn inn fyrir vörn heima- manna og var gróflega felldur af Magnus Kilsted, markverði Brann, sem hlaut rauða spjaldið að launum. Eftirleikurinn var auðveldur, Rúnar Kristinsson kom Lilleström í 2:0 skömmu síðar með marki af stuttu færi og Sundgot skoraði svo annað mark sitt eftir sendingu Heiðars. Brann minnkaði muninn undir lok- in, en lengi'a komust þeir ekki og l:3-sigur Lilleström því staðreynd. Áhorfendur á bandi heimamanna bauluðu hástöfum eftir leik, en Bjarki Gunnlaugsson var ekki í leik- mannahópi liðsins að þessu sinni. Besti maður vallarins var án efa Rúnar Kristinsson og hann hlaut þá nafnbót t.d. í umsögn Aftenposten um leikinn. í Drammen kom lið heimamanna í Stromsgodset nokkuð á óvart með 2:l-sigri á Kongsvinger. Jostein Flo gerði bæði mörk heimamanna, en Stefán Þórðarson fiskaði vítaspyrnu fyrh- Kongsvinger og úr henni minnkaði Andreas Alm muninn. Steinar Dagur Adolfsson lék einnig með Kongsvinger, en í liði heima- manna voru bræðurnir Valur Fann- ar og Stefán Gíslasynir báðir í byrj- unarliðinu og léku allan tímann og áttu góðan leik, Valur sem hægiá bakvörður en Stefán á miðjunni. Válerengen og Bodö/Glimt skildu svo jöfn, 1:1, í tilþrifalitlum leik í Ósló að viðstöddum átta þúsund áhorfendum. ■ Urslit/ B10 ■ Staðan/B10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.