Morgunblaðið - 13.04.1999, Page 12

Morgunblaðið - 13.04.1999, Page 12
HTiaBBWMBiBBMWa ... ... .; .: .... ...j ^ mmmmmammm DHBBBKBHHBBHnBBHHBBHHBii BLAK / BIKARURSLIT KARLA ZRAVKO Demirev, þjálfari ÍS, fékk ókeypis flugfar frá lærisveinum sínum. Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Stúdentar meistarar ÍÞRÓTTAFÉLAG stúdenta varð bikarmeistari karla í blaki í sjö- unda skipti er liðið lagði KA 3:0 í úrslitaleik í íþróttahúsinu í Austurbergi á laugardag. Stúdentar voru ávallt skrefi framar og unnu fyrstu tvær hrinurnar, 25:20 og 25:20, af öruggi. í þriðju hrinu bitu KA-menn frá sér og undir lokin var mjótt á mununum. En Stúdentar reyndust sterkari og unnu 25:23 og tryggðu sér bikarmeistaratitilinn. Leikið var eftir nýjum stigareglum alþjóða blaksambandsins, veitt voru stig eftir hverja skorpu og leik- ið upp í 25 stig í hverri hrinu. Nýju reglurnar gerðu það að verkum að leikur liðanna var hraður og skemmti- legri fyrir áhorfendur, sem reyndar voru alltof fáir í íþróttahúsinu í Aust- urbergi. Zravko Demirev, þjálfari ÍS, sagði að fátt hefði komið sér á óvart í leiknum og hann hefði reynst léttur fyrir sitt lið. „KA-liðið hafði ekki er- indi sem erfíði gegn okkur og við kláruðum leikinn af krafti. Við höf- um unnið KA í öllum viðureignum sem liðin hafa leikið í vetur og því vissum fyrir þennan leik að við vær- um betri. Það kom líka á daginn.“ Zravko sagði að liðið hefði leikið mun betur nú heldur en gegn Þrótti í úrslitaleik Islandsmótsins á dögun- um. „Við vorum hreinlega ekki til- búnir gegn Þrótti, enda tóku þeir tit- ilinn.“ Zravko hefur þjálfað lið ÍS síðustu sex árin og kvaðst eiga von á að hann yrði áfram með liðið. Hann sagðist ekki eiga von á miklum breytingum á liðinu nú, ólíkt því sem hafði verið undanfarin ár. „Þjálfara- starfið hefur verið erfitt enda hafa orðið verulegar breytingar á mann- skapnum ár frá ári. Sem dæmi má taka að frá 1994 eru aðeins þrír enn að leika með liðinu.“ Zravko sagði jafnframt að grípa yrði til einhverra ráða til þess að fjölga áhorfendum á leikjum í blaki. „Það eru alltaf sömu andlitin í stúkunni og í dag voru áhorfendur fáir. Eg tel að þessu verði ekki breytt nema með aukinni umfjöllun um íþróttina og tíðari sj ónvarpsútsendingum. “ Pétur Ólafsson, fyrirliði KA, sagði að alla leikgleði hefði skort í sína menn og þeir hefðu verið óþarflega spenntir í leiknum. „Við gerðum okkur alveg grein fyrir því að leikur- inn gegn IS yrði erfiður, en ætluðum okkur sigur. IS-liðið er hins vegar með sterka útlendinga sem erfitt er að eiga við í leiknum.“ Pétur sagði að KA-liðið hefði stað- ið sig vel fram eftir vetri, en hefði Morgunblaðið/Kristinn GUÐMUNDUR Helgi Þorsteinsson, fyrirliði ÍS, fagnaði ógurlega er hann tók við bikarnum gefið eftir undir lok íslandsmótsins og tapað fyrir Þrótti í undanúrslit- um. „Við vorum á góðri siglingu fram í febrúar, eða um það leyti sem úrslitaleikurinn í bikarnum átti upp- haflega að fara fram, en síðan hefur leiðin legið niður á við og leikmenn ekki náð sér almennilega á strik.“ Pétur sagði að breytingar yrðu á KA-liðinu fyrir næsta leiktímabil, nokkrh’ leikmenn værú að fara utan í nám og einhverjir sem hygðust leggja skóna á hilluna. „Við ætlum hins vegar að byggja liðið á þeim leikmönnum sem eru fyrir hendi, enda hefur KA byggt upp ágætt yngri flokka starf,“ sagði Pétur Ólafsson, fyrirliði KA. Svali hætt- ur þjálfun hjá Val SVALI Björgvinsson er hættur þjálfun hjá meistaraflokki Vals í körfuknattleik. Valsmenn féllu úr úrvaisdeildinni í vetur eftir tveggja ára dvöl og leika í 1. deild næsta vetur. Búist er við að flestir leikmenn verði áfram en Valsmenn hyggjast leika án erlends leikmanns næsta vetur. Svali, sem samtals hefur þjálfað Valsliðið í fimm ár með hléum, sagði að hann hefði sinnt þjálfarastarfinu ásamt stjórnarstarfi undanfarin tvö ár. „Slfk blanda er óæskileg og fer engan veginn saman,“ segir Svali. Forráðamenn Snæfells hafa boðið Kanadamanninum Rob Wilson að halda áfram þjálfún liðsins næsta vetur. Wilson, sem jafnframt lék með liðinu, ték við þálfun þess í stað Birgis Mikaelssonar um mitt keppnistúnabil í vetur. Tveir erlendir leikmenn til viðbótar hafa leikið með liðinu en engin ákvörðun hefur verið tekin um leikmannamál hjá félaginu. Ólafur og samherjar heppnir ÓLAFUR Stefánsson og sam- herjar hans hjá Magdebm-g voru heppnir að fá ekki fleng- ingu á Spáni í fyrri leiknum í úrslitum EHF-keppninnar í handknattleik. Þegar aðeins átta mínútur vora til leiksloka var staðan 22:15 fyrir Spán- verjana - og slakir leikmenn Magdeburgar að missa leikinn úr höndunum. Spánverjarnir gerðu sig þá seka um mistök, þannig að þýska liðið náði að minnka muninn fyrir leikslok í fjögur mörk, 25:21. Þar með eiga Ólafur og samherjar ágæta möguleika í seinni leikn- um - ef þeir ná að nýta hinn sterka heimavöll sinn, með 7500 áhorfendur að baki sér. Ólafur náði sér ekki á strik í leiknum, skoraði aðeins tvö mörk, annað úr vítakasti. Mag- deburg lék afar illa í leiknum og getur þakkað sínu sæla eins og áður sagði að ekki fór verr. Svo virðist sem spænsku lið- in séu ekki veikari en liðin í Þýskalandi. Það sýndi sig í fyrri úrslitaleiknum í Evrópu- keppni félagsliða þegar Ciudad Real sótti efsta lið þýsku 1. deildarinnar, Flensburg, heim. Viðureigninni lauk með jafn- tefli, 27:27. Heimamenn áttu lengstum á brattann að sækja og það er næsta víst að seinni leikurinn - á Spáni - verður mjög erfiður fyrir Flensborg- ara. Barcelona gerði góða ferð til Króatíu, þar sem liðið náði jafntefli í fyrri leik sínum við Badel Zagreb í Evrópukeppni meistaraliða, 22:22. Caja Santander lagði Adem- ar í fyrri úrslitaleiknum í Evr- ópukeppni bikarhafa, 20:19.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.