Morgunblaðið - 16.04.1999, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ný reglugerð um bifreiðastyrki til hreyfihamlaðra
Styrkjum til bílakaupa fjölg-
að og upphæðir hækkaðar
hærri en almennu styrkirnir, eða 500 þúsund
krónur.
Sett er nýtt ákvæði í reglugerðina þess efnis að
einstaklingar sem ekki komast af án dýrrar og
sérútbúinnar bifreiðar fái 50% styrk af innkaups-
verði bifreiðar til allt að 6 ára í undantekningar-
tilvikum. Styrkir þessir hafa verið 4-7 á hverju
ári og styrkupphæð hefur numið um 1,5 millj.
króna.
Breyt ingar vegna
styrkja árið 2000
Að sögn Hauks ná breytingamar fyrst og
fremst til styrkja sem veittir verða á árinu 2000.1
bráðabirgðaákvæði er styrkþegum á þessu ári þó
einnig fjölgað. Hann sagði að fleiri hefðu sótt um
styrki sem veita á á þessu ári en verið hefði um
langt skeið og margir hefðu því fengið synjun.
BIFREIÐASTYRKJUM til hreyfihamlaðra
verður fjölgað og upphæðir slíkra styrkja hækk-
aðar á næsta ári samkvæmt nýrri reglugerð sem
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra undir-
ritaði í gær, en hún tekur gildi 1. maí. Hærri
styrkir sem veittir eru hækka úr 700 þús. kr. í
eina milljón kr. og verða veittir til fjögurra ára í
stað þriggja ára og lægri styrkirnir hækka úr 235
í 250 þús. kr. til fjögurra ára.
Haukur Þórðarson, formaður Öryrkjabanda-
Iagsins, segir að breytingarnar séu spor í rétta
átt. M.a. muni fleiri eiga kost á bílakaupastyrkj-
um og upphæðir verði hækkaðar. Hann bendir
hins vegar á að nefnd, sem slripuð var fullti-úum
Sjálfsbjargar, Öryrkjabandalagsins og heilbrigð-
isráðuneytisins, sem hafði það hlutverk að endur-
skoða reglur TR um bifreiðastyrki, hafi skilað
ráðherra tillögum sem gengu lengra en þær
Spor í rétta.átt, segir
formaður Oryrkja-
bandalagsins
breytingar sem reglugerðin kveður á um. Sam-
kvæmt reglugerðinni fjölgar hærri styrkjunum
úr 50 í 60, lægri styrkjunum úr 335 í 375, en auk
þess er með reglugerðinni bætt við 20 styrkjum
til þeirra, sem eru að kaupa sér bíl í fyrsta sinn.
Áætlað er að breytingar muni í heild fela í sér um
60 milljóna kr. útgjaldaauka á ári og að fjölgun
styrkja á þessu ári muni kosta rúmlega 16 millj-
ónir kr.
í reglugerðinni er kveðið á um nýjan flokk
styrkja fyrir hreyfihamlaða sem sækja um bif-
reiðastyrk í fyrsta sinn. Er hann hafður tvöfalt
Víðines
opnað eftir
breytingar
HJÚKRUNARHEIMILIÐ í Víði-
nesi hefur verið opnað á ný eftir
breytingar á húsnæði og starf-
semi þess hefur jafnframt verið
breytt. Verður það nú einvörð-
ungu rekið sem hjúkrunarheim-
ili fyrir aldraða og hefur efri
hæð hússins verið endurnýjuð.
Hjúkrunarr-ými ein 38 og eru
þegar 19 rúm skipuð en 19 til
viðbótar verða teknir inn á
næstu dögum. Eigendur eiii ríki
með 60% og Reykjavíkurborg
með 40% en rekstur verður í
höndum hjúkrunarheimilisins
Skógarbæjar.
Á myndinni má sjá hvar Ingi-
björg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra heimsækir fyrsta íbúa
álmunnar, Guðlaugu Úlfarsdótt-
ur, í fylgd Borghildar Ragnars-
dóttur hjúkrunarforstjóra.
Morgunblaðið/Sverrir
Flóttamennirnir frá Kosovo
flytja í Hafnarfjörð
Fjölskyldurnar fá
íbúðir á næstu
dögum eða vikum
Ofsaveður undir Hafnarfjalli
VANDRÆÐAASTAND skapaðist á
veginum undir Hafnarfjalli í gær-
morgun í aftakaveðri þegar vind-
hraði í norðaustanátt fór upp í 11
vindstig í hviðum og skyggni tapað-
ist með öllu í skafrenningi.
Fólksbifreið fauk í veg fyrir rútu
um klukkan 9 við Skorholt með
þeim afleiðingum að bifreiðin varð
óökufær á eftir, en engin slys urðu á
fólki. Þá fauk lögreglubíll út af við
Narfastaðamela en skemmdist ekki.
Björgunarsveitin Brák úr Borg-
arnesi var kölluð út um klukkan 9
og var á vettvangi til klukkan 10 til
að aðstoða ökumenn á fimm kfló-
metra kafla frá Hafnará að Skor-
holti þar sem veðrið var verst.
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi sást ekki milli vegstikna og
stöðvuðust bifreiðar á veginum m.a.
vegna bleytu í kveikjukerfi þeirra.
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðai- sam-
þykkti samhljóða í gær að beiðni
Rauða krossins og flóttamannaráðs
að taka við flóttamönnunum frá
Kosovo sem komu til íslands í sein-
ustu viku. Um er að ræða fimm fjöl-
skyldur sem fá íbúðir til búsetu í
Hafnarfirði og er reiknað með að
fólkið flyti í íbúðirnar á næstu dög-
um eða vikum, samkvæmt upplýs-
ingum Magnúsar Gunnarssonar
bæjarstjóra.
Bæjarráð Hafnarfjarðar fól
Magnúsi bæjarstjóra og Halldóri
Ái-nasyni, framkvæmdastjóra
stjómsýslu- og fjármálasviðs, að
ganga til samninga við félagsmála-
ráðuneytið um móttöku fjölskyldn-
anna fimm frá Kosovo. Haft verður
samráð við félagsmálaráðuneytið og
húsnæðisnefnd Hafnarfjarðar um
útvegun hentugs húsnæðis en að
sögn Magnúsar liggja nú þegar fyr-
ir lausnir í þeim málum.
Geta orðið íbúar Hafnarfjarðar
til frambúðar
„Við bjóðum þetta fólk velkomið
til Hafnarfjarðar og reynum að
greiða götu þess á allan hátt eins og
við getum. Við getum alveg eins bú-
ist við að fólkið verði íbúar bæjarins
til frambúðar og eins hitt að það
vilji flytja til síns heima ef aðstæður
breytast," segir Magnús.
Spurður um kostnað við móttöku
flóttamannanna sagði Magnús að
gengið yrði til samninga við félags-
málaráðuneytið og tekið yrði mið af
samningum sem gerðir voru á sín-
um tíma vegna flóttamanna sem
fóru til Blönduóss.
Viðamiklar breytingar gerðar á starfsemi SH fyrir 1. september
Forstjóri stjórnarfor-
maður dótturfélaga
STJÓRN Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hf. hefur ákveðið að gerðar
verði á næstunni viðamiklar breytingar á starfsemi fyi’irtækisins. Ná þær
bæði til móðurfyrirtækis SH á íslandi og dótturfyi’irtækja. Að sögn Ró-
berts Guðfínnssonar, stjórnarformanns SH, á hið nýja skipulag að vera
komið í gagnið fyrir 1. september næstkomandi. Forstjóri SH mun stýra
móðurfélaginu og bera ábyrgð gagnvart stjórn fyrirtækisins á afkomu sam-
stæðunnar allrar og mun hann jafnframt gegna stjórnarformennsku í öllum
dótturfyrirtækjum Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hf.
Róbert Guðfinnsson segir að nýr
forstjóri verði ráðinn að fyrirtækinu
innan tiltölulega skamms tíma.
Einnig er fyrirhugað að einfalda
nokkuð stjómskipulag félagsins og
verður m.a. fækkað umtalsvert í
stjórnurn riótturfélaga SH eða í þrjá
fulltrúa. í þeim munu sitja stjórnar-
formaður og framkvæmdastjóri
hvers dótturfyrirtækis auk eins ut-
anaðkomandi aðila, að sögn Ró-
berts.
Fara á yfir starfsemi dótturfélag-
anna með það að markmiði að ná
fram aukinni hagkvæmni, m.a. í inn-
kaupum. Einnig á að einfalda sam-
skipti milli markaðsfyrirtækja SH
og framleiðenda.
Lögð verður aukin áhersla á
markaðsstarfsemi til að tryggja að
félagið verði betur í stakk búið til að
mæta sífellt harðnandi samkeppni
um sjávarafurðir til markaðssetn-
ingar, bæði hér á landi og erlendis.
Samhliða þessum breytingum verða
einkasölusamningar við innlenda
framleiðendur teknir til endurskoð-
unar.
„Við erum að reyna að gera dótt-
urfyrirtækin sjálfstæðari og reka
þau sem hagnaðareiningar hvert
fyrir sig. Við ætlum að gera fyrir-
tækið skilvirkara og alla stjórnun
línulegri og skilvirkari. Við ætlum
einnig að reyna að skera niður
kostnað og auka hagnað samstæð-
unnar,“ segir Róbert.
Hanes gefur
sig fram
við lögreglu
vestra
BANDARÍSKA dagblaðið The
Arizona Republic skýrði frá
því í gær að Donald Hanes,
sem hefur verið eftirlýstur
ásamt eiginkonu sinni, Connie,
af lögreglu í Bandaríkjunum
fyrir glæpsamlega íhlutun í
forræði þá tveggja ára gamall-
ar ættleiddrar dótturdóttur
þeirra hjóna og fyrir að flýja
réttvísina, hefði verið handtek-
inn í Aiúzona síðastliðinn
þriðjudag.
I samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi sagði Connie, eigin-
kona Donalds, sem býr á Is-
landi og er ennfremur leitað af
yfirvöldum í Bandaríkjunum,
að Donald hafi farið utan í
þeim tilgangi einum að gefa
sig fram við lögreglu og svara
til saka.
Connie sagði að þau hjónin
hefðu fyrir alllöngu tekið þá
ákvörðun að Donald ílygi utan
til að gefa sig fram til að gera
hreint fyrir sínum dyrum en
sjálf mun Connie áfram dvelja
hérlendis.
Donald kom til Bandaríkj-
anna föstudaginn 9. apríl og
sagði Connie að eiginmaður
sinn hefði flogið frá Lundúnum
til Phoenix og að honum hefði
komið það á óvart að hann
hefði ekki verið handtekinn
strax á flugvellinum við kom-
una, en Interpol hafði gert yf-
iivöldum í Bandaríkjunum við-
vart um komu Donalds til
Phoenix hinn 7. apríl.