Morgunblaðið - 16.04.1999, Qupperneq 36
36 FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
BÓKASALA í mars
RQð Titill/ Hðfundur/ Útgefandi
1 Sálmabók íslensku kirkjunnar/ Róbert a. ottósson vaidi lögin/ Skáihott
2 íslensk orðabók/ Ritstj. Árni Böðvarsson/ Mál og menning
3 Ensk-íslensk skólaorðabók/ Jón Skaptason/ Mál og menning
4 Sjálfstætt fólk/ Halldór Kiljan Laxness/ Vaka-Helgafell
5 Lítill leiðarvísir um lífið/ H. Jackson Brown/ Forlagið
6 Goðsagnir heimsins/ Ritstj. Dr. Roy Willis/ Mál og menning
7 Heimsatlas/ Ritstj. Björn Þorsteinsson og Kristján B. Jónasson/ Mál og menning
8-9 Amazing lceland-ýmis tungumál/ Helgi Guðmundsson/Sigurgeir Sigurjónsson/ Forlagið
8-9 Listin að lifa/ Nils Simonsson og Karen Glente söfnuðu efni/ Forlagið
10 Ensk-ensk orðabók m. ísl. lykilorðum/ Geir Svansson þýddi/ Mál og menning
Einstakir fiokkar: ÍSLENSK QG ÞÝDD SKÁLDVERK
1 Sjálfstætt fólk/ Halldór Kiljan Laxness/ Vaka-Helgafell
2 Uppvöxtur litla trés/ Forrest Carter/ Mál og menning
3 Bjargið baminu/ Margaret Watson/ Ásútgáfan
4 Þar sem djöflaeyjan rís/ Einar Kárason/ Mál og menning
5 Vita Brevis/ Jostein Gaarder/ Mál og menning
6-7 Skuggar í grasi/ Karen Blixen/ Mál og menning
6- 7 Faðir, móðir og dulmagn bernskunnar/ Guðbergur Bergsson/ Foriagið
8 Engin spor/ Viktor Arnar Ingólfsson/ Mál og menning
9 Hrafnkels saga Freysgoða//vaka-Heigafeii
10 Á hjólum/ Páll Pálsson/ Forlag
ÍSLENSK OG ÞÝPD LJÓÐ
1 Sálmabók íslensku kirkjunnar/ Róbert a. ottósson vaidi lögin/ skáihoit
2 Spámaðurinn/ Kahlil Gibran/ islendingasagnaútgáfan
3 Passíusálmar/ Hallgrímur Pétursson/ Landsbókasafn islands
4 Ljóð Tómasar Guðmundssonar/ Mái og menning
5 Tuttugu Ijóð um ást og einn örvæntingarsöngur/ Pablo Neruda/ Háskólaútgáfan
6 Perlur úr Ijóðum íslenskra kvenna/ Silja Aðalsteinsdóttir valdi Ijóðin/ Hörpuútgáfan
7 Hávamál - ýmis tungumál/ / Vaka-Heigafeii
8-10 íslensk kvæði/ Frú Vigdís Finnbogadóttir valdi efni/ Mál og menning
8-10 Ljóðasafn/ Steinn Steinarr/ Vaka-Helgafell
8-10 Sperðill/ Snorri Björnsson á Húsafelli/ Jóhann Pétursson
ÍSLENSKAR OG ÞÝDPAR BARNA OG UNGLINGABÆKUR
1 Flikk kemur til bjargar/ Walt Disney/ Vaka-Helgafell
2 Snúður og Snælda á skíðum/ Probst Pierre/ Setberg
3 Snúður og Snælda í sumarleyfi/ Probst Pierre/ Setberg
4 Stafakarlarnir/ Bergljót Arnalds/ Virago
5 Anna getur það/ Margo Lundell/ Björk
6 Bangsímon hittir Kaninku/ Walt Disney/ Vaka-Helgafell
7- 8 TÍU kátir kettlingar/ Þórarinn Eldjárn íslenskaði/ Myndabókaútgáfan
7-8 Kíara og KÓVÚ/ Walt Disney/ Vaka-Helgafell
9 Augun hvarfla til og frá - Bátsferðin/ Stefán Júlíusson íslenskaði/ Setberg
10 Lína langsokkur í Suðurhöfum/ Astrid Lindgren/ Mál og menning
ALMENNT EFNI OG HANPBÆKUB
1 íslensk orðabók/ Ritstj. Ámi Böðvarsson/ Mál og menning
2 Ensk-íslensk skólaorðabók/ Jón Skaptason/ Mál og menning
3 Lítill leiðarvísir um lífið/ H. Jackson Brown/ Forlagið
4 Goðsagnir heimsins/ Ritstj. Dr. Roy Willis/ Mál og menning
5 Heimsatlas/ Ritstj. Björn Þorsteinsson og Kristján B. Jónasson/ Mál og menning
6-7 Amazing lceland - ýmis tungumál/ Helgi Guðmundsson/Sigurgeir Sigurjónsson/ Forlagið
6-7 Listin að lifa/ Nils Simonsson og Karen Glente söfnuðu efni/ Forlagið
8 Ensk-ensk orðabók m. ísl. lykilorðum/ Geir Svansson þýddi/ Mál og menning
9 Biblían// Hið íslenska Biblíufélag
10 Ensk-íslensk/íslensk-ensk orðab./ Ritstj. Sævar Hilbertsson/ Orðabókaútgáfan
Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni______________________________________
Höfuðborgarsvæðið:
Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi
Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla
Bókabúðin Hlemmi
Bókabúðin Mjódd
Bóksala stúdenta v/Hringbraut
Eymundsson, Kringlunni
Penninn-Eymundsson, Austurstræti
Samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu bóka I mars 1999 Unnið fyrir Morgunblaðið,
Félag íslenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með þær
bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tlmablli, né kennslubækur.
Penninn, Hallarmúla
Penninn, Kringlunni
Penninn, Hafnarfirði
Utan höfuðborgarsvæðisins:
Bókabúð Keflavíkur, Keflavík
Bókval, Akureyri, KÁ, Selfossi
Stjörnuspá á Netinu v^' mbl.is
ALLTAf= GITTH\SA£> A/ÝT7
LISTIR
KÓR Menntaskólans á Laugarvatni á æfingu.
Laugvetningar syngja á Norðurlandi
KÓR Menntaskólans á Laugar-
vatni heldur tvenna tónleika á
Norðurlandi í kvöld og á morgun.
Kórinn syngur í sal Bóknáms-
húss Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra á Sauðárkróki í
kvöld kl. 20.30. Á morgun, laug-
ardag, taka Laugvetningar stefn-
una á höfuðstað Norðurlands og
haida þar tónleika á Gamla sal
Menntaskólans á Akureyri ki.
17.00.
Á efnisskránni er {jölbreytt úr-
val laga eftir íslenska jafnt. sem
erlenda höfunda. Stjórnandi
kórsins er Hilmar Orn Agnars-
son, organisti Skálholtsdóm-
kirkju.
SILKISLÆÐA eftir Aðalbjörgu
Erlendsdóttur.
Slæðudagar í
Islenska hand-
verkshúsinu
SLÆÐUDAGAR verða í íslenska
handverkshúsinu, Lækjai'götu 4,
vikuna 17.-24. apríl. Þar verða
handunnar silkivörur eftir Aðal-
björgu Erlendsdóttur (Buddu),
fatahönnuð, s.s. slæður af ýmsum
stærðum og gerðum, púðar, kjóla-
efni, myndir og gardínur.
Opnað verður á laugardag, kl. 16,
en sýningin opin á verslunartíma.
---------------
Leikfélag
Keflavíkur
sýnir Stæltu
stóðhestana
LEIKFÉLAG Keflavíkur frumsýn-
ir gamanleikritið Stæltu stóðhest-
amir, „Ladies Night“, í kvöld kl. 21
í Frumleikhúsinu, Vesturbraut 17.
Leikritið er eftir Stephen Sinclair
og Anthony McCarten í íslenskri
þýðingu Júlíusar Guðmundssonar
og Omars Olafssonar, félaga í LK.
Leikritið fjallar um unga drengi
sem ákveða eitt kvöld, að lokinni
misheppnaðri skemmtan, að snúa
sér að uppbyggilegri hlutum.
AJls taka 14 leikarar þátt í sýn-
ingunni sem er í leikstjórn Andrés-
ar Sigurvinssonar.
Næstu sýningar verða sunnu-
dagskvöldið 18. apríl, síðasta vetr-
ardag og sumardaginn fyrsta. Sýn-
ingar hefjast kl 21.
Mikílleikur
mannsins
TOM.IST
S a 1 u r I n n
SAMLEIKUR Á FLAUTU OG
PÍANÓ
Guðrún S. Birgisdóttir og Peter
Máté fluttu verk eftir Hindemith,
Bartók, Martin og Prokofiev. Mið-
vikudaginn 14. apríl.
TÓNLEIKARÖÐ undir yfir-
skriftinni Tíbrá er skipulögð af
hálfu Salarins í Kópavogi og sl.
miðvikudag voru það Guðrún S.
Birgisdóttir flautuleikari og Pet-
er Máté píanóleikari sem buðu
til tónveislu Tíbrár að þessu
sinni. Tónleikamir hófust á
sónötu eftir Paul Hindemith,
sem er samin 1936, en á þeim
tíma vom stofnanir eins og Kult-
urgemeinde og
Reichsmusikkammer á víxl að
banna og leyfa fiutning á verkum
Hindemiths og 1936 hafði
Göbbels ráðist sérstaklega á
hann og sakað hann um að hafa
svikið köllun sína sem þýskt tón-
skáld. Árið 1938 flyst Hindemith
frá Þýskalandi tii Sviss og til er
bréf frá honum, þar sem hann
segir að „tvennt er mikilvægt;
góð tónlist og hrein samviska".
Það er ljóst, að erfitt getur
reynst að vera maður undir
þvingandi ráðríki yfirvalda, en
þessi persónulegu átök mátti
heyra í sérlega áhrifamiklum
miðþætti flautusónötunnar, er
var mjög vel fluttur, svo sem
reyndar öll sónatan.
Annað verkið á tónleikunum
var svíta af ungverskum alþýðu-
lögum eftir Bela Bartók, verk
sem upphaflega var samið fyrir
píanó. Þar er leikið mjög fallega
með ýmis blæbrigði, þótt merkja
mætti, að tónmálið væri ekki
upphaflega hugsað fyrir flautu.
Samleikurinn var í heild mjög
fallega mótaður. I efnisskrá er
því haldið fram að Bela Bartók
hafi fyrstur manna gert „sér mat
úr þjóðlögum í tónsmíðum sín-
um“, sem ekki er rétt, því jafnvel
Beethoven notar króatísk þjóð-
lög í „þeirri sjöttu“ og Brahms,
Liszt, Dvorák, Mussorgsky og
Tsjaikovskíj, svo nokkrir séu
nefndir, notuðu þjóðlög í tón-
verkum sínum. Ef átt er við
söfnun þjóðlaga, þá áttu jafnvel
Færeyingar og Islendingar að-
kvæðamikla þjóðlagasafnara á
19. öldinni, löngu áður en Bartók
og Kodaly tóku að safna ung-
verskum þjóðlögum.
Eftir hlé voru flutt tvö verk,
Ballade eftir Frank Martin og
flautu/fiðlusónatan fræga eftir
Serge Prokofiev. Ballaðan eftir
Martin er svolítið tilbúin, keppn-
isverk, ætluð sem tæknisýning
fyrir flautuieikara, til nota í tón-
listarkeppni flautuieikara í Genf
árið 1939, en var að þessu sinni
aldeilis vel flutt. Hápunktur tón-
leikanna var flutningur sónöt-
unnar efth’ Prokofiev, þar sem
leikið var með snjallar tónhend-
ingar meistarans á sérlega mús-
íkalskan máta. Guðrún S. Birgis-
dóttir er góður flautuleikari og
mótaði tónmál verkanna með
sérlega skýrum dráttum og þá
var ekki síður ánægjulegt að
heyra samleikinn, sem var af-
burðavel útfærður af Peter
Máté, svo að tónleikarnir í heild
voru hinir ánægjulegustu, þrátt
fyrir fáa hlustendur.
Það er nokkurt umhugsunar-
efni þeim sem láta sig varða
framgang listar, að þrír að fjór-
um höfundum á þessum tónleik-
um þurftu að þola ofríki og árás-
ir yfirvalda vegna viðhorfa til
listsköpunar, en þeim tókst,
þrátt fyrir þessar árásir, að
halda sínu og þegar viðkomandi
stjómir höfðu fallið á illverkum
sínum stóð það eitt eftir, sem
þessir höfðu gert, sem eins kon-
ar tákn þess mikilleiks og þol-
gæðis, sem gerir manninn að
manni.
Jón Ásgeirsson