Morgunblaðið - 16.04.1999, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
JÓHANNA Berta Bernburg og Grétar
Ali Khan eru ungt par á uppleið og náðu
þau mjög góðum árangri.
HILMIR Jensson og Ragnheiður Eiríks-
dóttir unnu til 6. verðlauna í Quickstep
12-15 ára og fóru í undanúrslit í jive.
FRIÐRIK Árnason og Sandra Júlía Berg-
burg lentu í undanúrslituni í ballroom og
enskum valsi.
JÓNATAN Arnar Örlygsson og Hólm-
fríður Björnsdóttir lentu í undanúrslitum
í latín, vínarvölsum og ballroom.
: :
:
Islenzkir dansarar gera
]>að gott í Blackpool
GUNNAR Hrafn Gunnarsson og Sigrún Ýr Magnúsdóttir
sigurvegarar í jive (12-15 ára).
ÐANS
Itlackpool Englandi
Heimsmeistarakeppni
barna og unglinga
ÞAÐ er næstum jafnöraggt að ís-
lenzkir dansarar halda í víking til
Blackpool um hverja páska eins og
að á eftir vori komi sumar. Svo var
einnig að þessu sinni. Stór hópur
íslendinga hélt utan laugardaginn
fyrir páska og var ferðinni heitið til
Blackpool á Englandi til að taka
þátt í einni sterkustu og virtustu
danskeppni sem haldin er fyrir
börn og unglinga. Sumir hafa kallað
þessa keppni „óopinbera heims-
meistarakeppni" fyrir börn og ung-
linga. Ekki er ég viss um að það sé
réttnefni á þessari annars mjög
sterku keppni. Eitt af því sem veik-
ir keppnina er það að einungis
brezkir dómarar dæma keppnina
og því er hætta á því að dómgæslan
verði helzt til einsleit. Eins tel ég
aldursskiptingu ekki nógu réttláta,
mér fínnst ekki rétt að 12 ára börn
keppi við 15 ára unglinga, það er
ekki keppni á jafnréttisgrundvelli.
Að sögn Auðar Haraldsdóttur
danskennara var keppnin skemmti-
leg og gekk Islendingunum mjög
vel að venju.
Keppnin í Blackpool er nokkuð
löng, því hún tekur heila viku.
Flestir era þó sammála um að þessi
vika sé mjög skemmtileg en jafn-
framt mjög erfíð. Keppendur keppa
6 daga í röð í misstórri keppni. Hér
á eftir fylgir úttekt á keppnisvik-
unni í Blackpool og hverjum degi
fyrir sig gerð skil.
Mánudagur
Þennan fyrsta keppnisdag
keppti flokkur 12 óra og yngri í
cha, cha, cha. Til leiks voru skráð
80 pör, þar af 9 íslenzk. Sex þeirra
komust áfram í aðra umferð og
fjögur í þá þriðju sem var úrslit 29
para. Það voru Arnar Georgsson
og Tinna Rut, Friðrik Arnason og
Sandra Júlía Bernburg, Jónatan
Arnar Örlygsson og Hólmfríður
Björnsdóttir og Þorleifur Einars-
son og Asta Bjarnadóttir, en þau
síðastnefndu komust í undanúrslit
16 para.
Hópur 12-15 ára keppti í vínar-
valsi. Skráð til leiks voru 139 pör
þar af 15 frá íslandi. Öll íslenzku
pörin komust áfram í aðra umferð,
8 þeirra fóra í þriðju umferð, sem
var úrslit 45 para. Tvö pör náðu
þeim góða árangri að komast í 24
para úrslit, þau Hilmir Jensson og
Ragnheiður Eiríksdóttir og Gunnar
Hrafn Gunnarsson og Sigrún Ýr
Magnúsdóttir en þau síðarnefndu
komust alla leið í úrslit og unnu til
6. verðlauna.
Þriðjudagur
Fyrri „stóri“ dagur yngri kepp-
endanna var á þriðjudeginum en þá
átti flokkur 12 ára og yngri að
keppa í hinum sígildu samkvæmis-
dönsum. Af þeim níu íslenzku pör-
um sem skráð vora til leiks fóra sjö
áfram í aðra umferð. í 25 para úr-
slit komust þrjú íslenzk pör þau:
Þorleifur Einarsson og Asta
Bjarnadóttir, Friðrik Ámason og
Sandra Júlía Bernburg og Jónatan
Arnar Örlygsson og Hólmfríður
Björnsdóttir. Tvö síðarnefndu pör-
in náðu þeim frækilega árangri að
komast í undanúrslit 13 para.
A þriðjudeginum var boðið uppá
keppni fyrir 12-13 ára keppendur
og dönsuðu þeir cha,eha,cha og
rúmbu. Vora 53 pör skráð til leiks
þar af 4 pör frá Islandi. Öll fóra ís-
lenzku pörin áfram í aðra umferð
og tvö komust í undanúrslit 13
para, Davíð Gill Jónsson og Hall-
dóra Sif Halldórsdóttir og Hrafn
Hjartarson og Helga Björnsdóttir.
Það er ekki frá að vonir stóðu til að
bæði þessi pör færa í úrslit en það
gekk því miður ekki eftir.
Einnig var boðið uppá keppni
fyrir aldursflokkinn 12-15 ára og
var keppt í sömbu. Til leiks vora
skráð 156 pör þar af 15 íslenzk. Tólf
þeirra fóru áfram í aðra umferð og
þrjú í þá þriðju. Islenzku pörin þrjú
gerðu sér lítið fyrir og fóru öll
áfram í 24 para úrslit. Þetta vora
Gunnar Hrafn Gunnarsson og Sig-
rún Ýr Magnúsdóttir, Hilmir Jens-
son og Ragnheiður Eiríksdóttir og
Grétar Ali Khan og Jóhanna Berta
Bernburg.
Miðvikudagur
Yngri flokkurinn keppti einungis
í jive og af íslenzku pörunum níu
komust fímm áfram í aðra umferð.
I 25 para úrslit komust 2 pör þau
Friðrik Árnason og Sandra Júlía
Bernburg og Jónatan Arnar Ör-
lygsson og Hólmfríður Björnsdótt-
ir.
Fyrri „stóri“ dagur eldri kepp-
enda var á miðvikudeginum og
kepptu þeir í sígildum samkvæmis-
dönsum. Skráð til leiks voru 159
pör og 11 íslenzk pör fóru áfram í
aðra umferð. I þá þriðju fóru tvö
pör og í 24 para úrslit komust
Hilmir Jensson og Ragnheiður Ei-
ríksdóttir sem dönsuðu firnavel
þennan dag.
Fimmtudagur
Vínarvals var dans yngri hópsins
á fimmtudeginum og af 78 skráðum
pörum voru sem fyrr 9 frá Islandi.
Átta af þeim komust í aðra umferð
og 5 í 25 para úrslit, þau Ai-nar Ge-
orgsson og Tinna Rut, Baldur Kári
Eyjólfssop og Erna Halldórsdóttir,
Friðrik Árnason og Sandra Júlía
Bernburg, Þorieifur Einarsson og
Ásta Bjarnadóttir og Jónatan Ai’n-
ar Örlygsson og Hólmfríður
Björnsdóttir en þau síðastnefndu
komust í undanúrslit með glæsi-
brag.
Seinni „stóri" dagur eldri kepp-
endanna var á fimmtudeginum og
var þá keppt í suður-amerískum
dönsum. Alls vora skráð 173 pör til
leiks, þar af 15 íslenzk. Átta þeirra
komust áfram í aðra umferð og
þrjú í þá þriðju. I 25 para úrslit
komust Hilmir Jensson og Ragn-
heiður Eiríksdóttir og Gunnar
Hrafn Gunnarsson og Sigrún Ýr
Magnúsdóttir en þau síðarnefndu
komust alla leið í undanúrslit sem
verður að teljast góður árangur í
þetta sterkri keppni.
Föstudagur
Á fóstudeginum var seinni
„stóri“ dagur unga fólksins og var
keppt í suður-amerískum dönsum.
Sex íslenzk pör fóra áfram í aðra
umferð og í 24 para úrslit komust
Þorleifur Einarsson og Ásta
Bjarnadóttir. Jónatan Arnar Ör-
lygsson og Hólmfríður Björnsdóttir
fóru í undanúrslit 12 para, öragg-
lega ekki langt frá því að komast í
úrslit.
Jive var dans 12-15 ára hópsins
og komust 12 íslenzk pör áfram í
aðra umferð. I þá þriðju fóra þrjú
pör. Hilmir Jensson og Ragnheiður
Eiríksdóttir og Gunnar Hrafn
Gunnarsson og Sigi-ún Ýr Magnús-
dóttir náðu þeim glæsilega árangri
að komast í undanúrslit 12 para og
Gunnar og Sigrún gerðu sér lítið
fyi’ir og komust í úrslit og stóðu
uppi sem sigurvegarar. Þessi ár-
angur þeirra er mjög glæsilegur og
áttu þau gullverðlaunin fyllilega
skilin að sögn viðstaddra.
Laugardagur
Yngri hópurinn keppti í enskum
valsi þennan síðasta keppnisdag að
þessu sinni. Sjö pör fóru áfram í
aðra umferð og í 24 para úrslit fóru
Ásgrímur Geh’ Logason og Bryndís
María Björnsdóttir, Arnar Georgs-
son og Tinna Rut, Baldur Kári Eyj-
ólfsson og Erna Halldórsdóttir,
Jónatan Arnar Örlygsson og Hólm-
fríður Björnsdóttir. I undanúrslit
fóru Friðrik Árnason og Sandra
Júlía Bernburg og dönsuðu þau
mjög vel og er þetta einn bezti ár-
angur þeiraa í keppni á erlendri
grundu.
í flokki 12-13 ára var boðið uppá
keppni í foxtrott og tangó og
komust 3 íslensku paranna í aðra
umferð og eitt komst í undanúrslit,
þau Davíð Gill Jónsson og Halldóra
Sif Halldórsdóttir.
Hópur 12-15 ára keppti einungis
í einum dansi þennan síðasta
keppnisdag og var keppt í
quickstep. Fjórtan pör fóru áfram í
aðra umferð og í 23 para úrslit fóra
Grétar Ali Khan og Jóhanna Berta
Bernburg. Gunnar Hrafn Gunnars-
son og Sigrún Ýr Magnúsdóttir
fóra í undanúi-slit 12 para og Hilm-
ir Jensson og Ragnheiður Eiríks-
dóttir náðu þeim frækilega árangi'i
að komast í úrslit og vinna til 6.
verðlauna.
■
Landakeppni
Ávallt er boðið uppá landa-
keppni í Blackpool og var það
einnig svo að þessu sinni. Á þriðju-
deginum fór fram landakeppni fyr-
ir 12-15 ára. Það er skemmst frá
því að segja að íslenzka liðið vann ,
til þriðju verðlauna á eftir Bretum
og Slóvenum. í hverju liði eru fjög-
ur pör, tvö pör sem dansa suður- !
ameríska dansa og tvö pör sem
dansa sígilda samkvæmisdansa.
Það má segja að sjaldan hafi verið
almenn ánægja með val í liðið til að
taka þátt í landakeppninni frá því
að við tókum þátt í henni í fyrsta
sinn. Þó svo nokkuð vel hafi gengið
hjá liðinu í þetta sinn, tel ég að lið-
ið hefði getað verið sterkara. Eg ,
tek það skýrt fram að hér er ég
ekki að lasta þau danspör sem í lið-
inu voru, en mér finnst ekki eðli-
legt að gengið sé framhjá pari sem
keppir fyrir Islands hönd á heims-