Morgunblaðið - 30.04.1999, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1999 B 3
Morgunblaðið/Brynjar Gauti Sveinsson
gsveinsson og Bjarki Sigurðsson, eru í landsliðshópnum sem kallaður hefur verið saman.
Þorbjörn Jensson hefur valið 20 leikmenn
til æfinga fyrir verkefnin framundan
Bergsveinn
aftur í hópinn
MAGNÚS Már Þórðarson, línumaður Aftureldingar, er eini nýlið-
inn í landsliðshópi Þorbjörns Jenssonar sem hann tilkynnti á
blaðamannafundi hjá HSÍ í gær. Markvörðurinn Bergsveinn Berg-
sveinsson úr Aftureldingu kemur aftur inn í landsliðshópinn eftir
tveggja ára fjarveru. íslenska landsliðið tekur þátt í Norður-
landamótinu í Noregi um aðra helgi.
orbjöm valdi alls 20 leikmenn til
æfinga og undirbúnings fyrir
verkefnin sem framundan eru. Liðið
kemur saman til æfinga strax á
mánudag og verður meira og minna
saman allan már.uðinn. Fyrsta verk-
efnið er Norðurlandamótið sem fram
er í Stavangri um aðra helgi. Þar
verður leikið við Norðmenn laugar-
daginn 8. maí og daginn eftir annað-
hvort við Svía eða Dani. Þorbjörn fer
með 14 leikmenn til Noregs.
Helgina eftir verða tveir leikir við
Kýpur í riðlakeppni Evrópumótsins
og fara þeir báðir fram í íþróttahús-
inu Kaplakrika í Hafnarfirði 15. og
16. maí. Þá verður farið í æfíngaferð
til Þýskalands 21. maí og verða 16
leikmenn í þeirri ferð. Frá Þýska-
landi verður farið beint yfir til Sviss
og leikið þai- í riðlakeppni EM 27.
maí. Loks er það síðari leikurinn við
Sviss hér heima, í Kaplakiika,
sunnudaginn 30. maí.
Þorbjörn sagði að þeir leikmenn
sem leika erlendis yrðu flestir komn-
ir heim til æfínga 6. maí. Það eru að-
eins Julian Róbert Duranona og Geir
Sveinsson, sem leika í Þýskalandi,
sem koma ekki fyrr en 12. maí og
missa því af Norðurlandamótinu.
aekki
þessum meiðslum. Málið er ekki
svo einfalt, því Nettelstedt verð-
ur að samþykkja að leikmaður-.
inn leiki með landsliðinu því
hann getur ekki leikið með fé-
lagsliðinu næstu tvo leiki.
Annars er hópurinn skipaður
sömu leikmönnum sem verið
hafa í liðinu í vetur, auk þess
sem Volker Zerbe (Lemgo) er á
ný í liðinu.
með á HM?
Flensburg, keppinautur Kiel
um meistaratitilinn, urðu fyrir
miklu áfalli í síðasta leik gegn
Nettelstedt. Hvítrússinn, Andrej
Klimovets, slasaðist illa þegar
hann Ienti í samstuði við
Króatann Slavko Glouza. Leik-
menn Flensburgar voru síður en
svo ánægðir með framkomu
Króatans og vildu meina að brot
hans hefði verið framið af
ásetningi. Goluza gaf Klimovets
mikið kjaftshögg, sem leiddi til
þess að Hvítrússinn kinnbeins-
brotnaði og leikur ekki meira
með í vetur. Menn eru minnugir
þess, að Goluza lenti einnig í
samstuði við Frandsjö, leikmann
Minden, sem slasaðist það illa að
fjarlægja varð milta hans í
bráðaaðgerð.
Landsliðíð tilbúið á HM ef kallið kemur
Kínveijar
fyrstu
mótherjar
ÞORBJÖRN Jensson landsliðsþjálfari sagði að ef Júgóslövum
verður meinuð þátttaka á HM í Egyptalandi, eins og ESB er
að hvetja aðildarþjóðir sínar til, verður íslenska liðið í start-
holunum. fsland myndi leika í riðli með Svíum, Frökkum, Suð-
ur-Kóreumönnum, Kínverjum og
Kínverjar yrðu þá fyrstu
mótherjarnir á HM, 2. júní í
Port Said, þar sem D-riðillinn fer
fram. Síðan yrði leikið gegn Ástral-
íu 3. júní, Frakklandi 4. júní, Suð-
ur-Kóreu 6. júní og síðast gegn
Svíum 7. júní.
„Við verðum tilbúnir ef kallið kem-
ur. En ég er ekkert að hugsa of
mikið um HM á þessu stigi. Það
verður bara að koma í ljós. En und-
irbúningur okkar fyrir riðlakeppni
EM gæti nýst okkur vel íyrir HM.
Ef til þess kæmi myndum við
fresta leikjunum við Sviss í riðla-
keppninni sem eiga að fara fram í
lok maí. Það eina sem ég hef smá
áhyggjur af, ef Júgóslavar verða
settir út, er að margir landsliðs-
mannanna eru búnir að ákveða að
fara í sumarfrí með fjölskyldum
sínum á sama tíma og HM í Eg-
yptalandi stendur yfir,“ sagði Þor-
bjöm.
Islenska hðið verður saman við
æfingar og keppni allan maímánuð
og ætti því að vera tilbúið í slaginn
á HM, sem hefst 1. júní, ef til þess
kemur.
Áströlum.
Alfreð sagt
upp í sturtu
HANDBALL Woche, hið virta
þýska handknatt leiksrit, segir
fx-á því í vikunni að Alfreð
Gíslason, þjálfari Hameln, hafi
nánast verið rekinn frá félag-
inu í sturt.u eftir leik liðsins
gegn Willstadt. Fx-étt blaðsins
hefur vakið mikla athygli og
Ijóst er að foi'ráðatnenn liðsins
voru ineð uppsögnina tilbúna
ef Hameln myndi tapa leiknum
og voru því ekkert að hika við
hlutina.
„Við urðum að grípa til að-
gerða,“ sagði Hans Siegert,
formaður Hameln, „og treyst-
um Frank Walie til að koma
liðinu upp í 1. deild.“
Hameln keppir við Willstadt,
lið Gústafs Bjarnasonar, um
sæti í 1. deild og tapaði fyrri
leiknum heima.
KNATTSPYRNA
Guðni Bergsson
ekJki á heimleið
Aspjallsíðu enska knattspymu-
liðsins Bolton Wanderers er
greint frá orðrómi um að Guðni
Bergsson ætli að hætta hjá liðinu í
vor og snúa sér að lögfræðistörfum
á Islandi. Guðni, sem kom til
Bolton frá Val árið 1995, sagði í
samtali við Morgunblaðið að hann
hefði ekki hug á að hætta hjá
Bolton og ætlaði sér að ljúka samn-
ingi sínum við félagið, sem gildir til
ársins 2000.
Guðni hefur verið meiddur í vet-
ur og leikið fáa leiki með liðinu.
Hann hafði nýlega tryggt sér sæti í
liðinu þegar hann meiddist í leik í
1. deildinni fyrir tveimur vikum.
Ovíst er hvort hann verður með
Bolton gegn Wolves í deildinni á
föstudag. Sá leikur er þýðingar-
mikill fyrir bæði lið, sem berjast
um sæti í sérstakri úrslitakeppni
um sæti í úrvalsdeild.
Spánverjar heimsmeistarar
SPÁNVERJAR urðu heimsmeistarar landsliða, skipuðum leik-
mönnum 20 ára og yngri, eftir 4:0-stórsigur á Japan í úrslitaleik í
Lagos í Nígeríu. Yfirburðir spænsku piltanna í úrslitaieiknum voru
algjörir og skoraði Pablo Gonzalez tvö mörk í leiknum, en hann
leikur með Numancia I spænsku 2. deiidinni. Garcia de la Torre og
Saludes Barkero gerðu sitt markið hvor, en báðir eru þeir á mála
hjá Barcelona.
MARIA
LÖVISA
FATAHÖNNUN
SKÓLAVÖRÐUSTfG 3A • S 562 69V9