Morgunblaðið - 04.05.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.05.1999, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ FOLK ■ AUSTURRÍSKI landsliðsmaður- inn Tony Polster hjá „Gladbach“ og Rainer Bonhof, þjálfari liðsins, eiga ekki skap saman. Hnútukast þein-a í milli er nú fastur liður í blöðunum. ■ VANDAMÁL „Gladbach“ er það að Polster, sem er 35 ára, á eftir þrjú ár af samningi sínum og þarf félagið að borga 50-60 milljón- ir á borðið til hans ætli þeir sér að segja honum upp. Þeir peningar eru ekki til hjá félaginu. Því hafa forráðamenn „Gladbach" þá einu von að þjálfarinn og leikmaðurinn nái sáttum og not verði fyrir þenn- an mikla markaskorara sem er markahæstur allra leikmanna, sem nú leika í efstu deild, í heiminum. ■ BAYERN Munchen hefur hug á að kaupa hinn 17 ára gamla leik- mann Roque Santa Crus frá Paragvæ. Crus, sem þegar er köll- uð stórstjama í heimalandi sínu, hefur mikinn áhuga á Bayern og talið er að Uli Höness, fram- kvæmdastjóri liðsins, og forráða- menn Olympic Asuncian gangi frá samningnum 26. maí í Barcelona. ■ OTTO Rehhagel, þjálfari Ka- iserslautern, er sagður á leið til Dortmund. Ekki sem þjálfari, heldur sem framkvæmdastjóri - með leikmannamál sem sérverk- efni. ■ DORTMUND tilkynnti um helg- ina að Thomas Hassler, leikmaður liðsins, fengi að fara til 1860 Munchen án félagaskiptagjalds. Mikill styrr hefur staðið um þenn- an fyrrverandi landsliðsmann, sem ekki hefur náð að festa sig í sessi hjá Dortmund og átt í útistöðum við hinn unga þjálfara Michael Skibbe, sem er 32 ára eins og Hassler. ■ HANS Peter Brígel, fyrrver- andi landsliðsmaður hjá Ka- iserslautern og fyrrverandi fram- kvæmdastjóri liðsins - hætti eftir ósætti við þjálfarann Otto Rehha- gel, er á föram til Tyrklands. ■ BRIGEL mun gerast aðstoðar- þjálfari Karl Heinz Feldkamp hjá Besiktas Istanbúl. Feldkamp var einmitt þjálfari Briegel hjá Ka- iserslautem. Briegel tekur hugs- anlega við Besiktas þegar samn- ingur Feldkamp rennur út. ■ SEAN Dundee, landsliðsmið- herji Þýskalands, er hugsanlega á leið frá Liverpool til Wolfsburg. Dundee, sem er Suður-Afríkumað- ur, fór til Liverpool á þessari leik- tíð og var búist við miklu af þessum efnilega leikmanni. Honum hefur gengið illa að ná fastri stöðu hjá Li- verpool og vill nú á ný til Þýska- lands. ■ STEFAN Effenberg var í sigur- liði Bayern í viðureigninni við Mönchengladbach, sem er gott sem fallið úr 1. deild. Effenberg sagði að liðið væri ekki í fallslag hefði hann verið í liðinu. Síðasta tímabil var „Gladbach" einnig í mikilli fallbaráttu. Það var hver stórleikur Effenberg af öðrum sem hindraði fall liðsins þá. ■ EFFENBERG segir að það sé liðinu fyrir bestu að falla og byggja upp nýtt lið. Hann segir jafnframt að brottrekstur Rolf Russmann framkvæmdastjóra og Bernd Krauss þjálfara hafi verið banabiti liðsins. Reuters DAVID Beckham fagnar glæsilegu marki sínu fyrir Man. Utd, sem hann skoraði beint úr aukaspyrnu gegn Aston Villa á Old Trafford. NOCOLAS Anelka fagnar sigurm; Spennan magn MANCHESTER United og Arsenal unnu góða sigra á toppi ensku úrvalsdeildarinnar um helgina. Leeds tryggði sér sæti í Evrópu- keppni með stórsigri á West Ham. Á botni deildarinnar stendur baráttan á milli Southampton, Blackburn og Charlton um hvaða lið heldur sæti sínu í deildinni. licolas Anelka, sem nýlega var Ivalinn efnilegasti leikmaður árs- ins í Englandi, tryggði Arsenal þýð- ingarmikinn sigur er hann gerði eina mark leiksins gegn Derby á Hig- hbury á sunnudag. Með sigrinum náði Arsenal efsta sætinu aftur af Manchester United, sem á leik til góða. Leikmönnum Arsenal tókst ekki að bæta við marki en Derby gerði nokkrum sinnum harða hríð að marki heimamanna og tókst að koma knett- inum einu sinni í netið en markið var dæmt af. Arsene Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal, hrósaði sigri og ekki síst markaskoranum Anelka, sem hefur gert 18 mörk á tímabilinu. „Það sem hann [Anelka] hefur áorkað á keppnistímabilinu er ótrúlegt, jafnt andlega sem líkamlega," sagði Wen- ger að leik loknum. legt mark beint úr aukaspymu í byrj- un síðari hálfleiks. Heimamenn höfðu tök á að auka forystuna en Denis Irwin lét verja vítaspyrnu frá sér. Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester, sagði að lið sitt hefði oft leikið betur en það gerði gegn Aston Vflla. „Við lékum ágætlega í síðari hálfleik en sigur liðsins var ekki ör- uggur og ég var ekki í rónni á bekknum fyrr en flautað var af. Aston Villa hefur náð sér á strik á ný því liðið lék vel gegn okkur í þessum leik.“ Sidustu leikir efstu lidanna I ensku MANCHESTER UTD. ARSENAL 5. maí Liverpool - Man. Utd. 9. mai Middlesboro - Man. Utd. 12. maí Blackburn - Man. Utd. 5. maí Tottenham - Arsenal 11. maí Leeds - Arsenal 16. maí Arsenal - Aston Villa 16. mai Man. Utd. - Tottenham Leeds tryggði sér Evrópusæti Draumamark Beckhams Manchester United hélt áfram at- lögu sinni að enska meistaratitlinum er liðið vann Aston Villa 2:1 á heima- velli. Heimamenn fengu óskabyrjun er Steve Watson setti knöttinn í eigið net á 20 mínútu. Julian Joachim tókst að jafna 13 mínútum síðar eftir send- ingu frá Watson, sem var fyrsta mark Aston Villa í síðustu fjórum leikjum á Old Trafford. David Beckham gerði út um leikinn er hann skoraði glæsi- Þremur leikmönnum West Ham var vikið af velli gegn Leeds. Fyrst fór Ian Wright af velli eftir aðeins 14 mínútur, nokkram mínútum síðar þurfti Harry Kewell að yfirgefa leik- völlinn og í síðari hálfleik fékk Shaka Hislop, markvörður liðsins, rautt spjald fyrir að brjóta á Jimmy Floyd Hasslebaink. Wright var ósáttur við ákvörðun Rob Harris dómara og þurftu leikmenn að grípa í hann og róa niður áður en hann fór af velli. Wright lét ekki staðar numið þegar hann var kominn af velli heldur hélt rakleitt inn í búningsherbergi Harris, og eyðilagði sjónvaipstæki. Atvikið hefur verið tilkynnt til dómai’asam- takanna og fær leikmaðurinn senni- lega langt bann fyrir hegðun sína. Leeds komst í 2:0 en Paolo di Canio náði að minnka muninn fyrir West Ham. En þá tóku leikmenn Leeds við sér á ný og skoruðu tvö mörk gegn fáliðuðu liði West Ham. David O’Leary, knattspyrnustjóri Leeds, var að vonum glaður eftir leik því lið hans hefur tryggt sér fjórða sætið í deildinni og sæti í Evrópukeppni félagsliða næsta haust. Glasgow Rangers meistari GLASGOW Rangers tryggði sér skoska meistaratitilinn í 10. sinn á 11 árum er liðið lagði Glasgow Celtic 3:0 á sunnudag. Leikur liðanna þótti skrautlegur, en þremur leikmönnum var vikið af velli og Hugh Dallas, dóm- ari leiksins, fékk aðskotahlut í höfuðið svo úr blæddi meðan á leiknum stóð. Gert var að sárum dómarans og lauk hann leiknum án frekari vandkvæða. 113 voru handteknir eftir leikinn íyrir ólæti. Hefur Celtie tekið ákvörð- un um að banna fótboltabullunum að koma á leiki félagsins, en það á engu að síður yfir höfði sér rannsókn enska knattspymusambandsins. Nefl McCann gerði tvö mörk fyrir Rangers í leiknum og Jörg Albertz eitt. Stepen Mahe og Vidar Rishet, Celtic, voru reknir af velli og Rod Wallace, Rangers, fékk einnig að líta rauða spjaldið undir lokin. Rangers hefur nú 10 stiga forystu á Celtic í defldinni. Spennandi fallbarátta Coventry, Sheffield Wednesday og Everton virðast laus við fallbar- áttuna, sem stendur nú á milli Charlton, Blackburn og Sout- hampton. Sannkallaður fallbaráttu- slagur fór fram á The Valley er heimamenn í Charlton tóku á móti Blackburn. Leiknum lauk með markalausu jafntefli, en Martin Pr- ingle, leikmaður Charlton, komst næst því að skora er hann skallaði knöttinn í þverslá Blackburn-liðsins. Ursltin komu sér vel fyrir Sout- hampton sem vann Leicester 2:1 á heimavellinum The Dell. Leicester náði reyndar forystu með marki frá Ian Marshall en Chris Marsden og James Beattie tryggðu Sout- hampton mikilvægan sigur, sem komst í 17. sæti deildarinnar. Dave Jones, knattspyrnustjóri Sout- hampton, fór fögram orðum um markaskorarann Beattie: „Hann [Beattie] vann vel fyrir liðið allan leikinn og fullkomnaði leik sinn með þessu þýðingarmikla marki,“ sagði Jones. Oliver sa r Gífurleg fallbarátta er hafin í þýsku 1. deildarkeppninni. Þegar sjö umferðir era eftir era að minnsta kosti tíu lið sem þurfa að hafa áhyggjur af falldraugnum. Eftir síðustu umferð eru Mönchengladbach, Frankfurt og Bochum í fallsætunum þremur. Þau töpuðu öll leikjum sínum og staða liðanna erfið því þau eru öll að leika illa sem stendur. Svo virt- ist sem stóra undrið ætlaði að ger- ast - leikmenn „Gladbach" vora yf- ir á Olympíuleikvanginum í Munchen þegar 20 mín. vora til leiksloka, 2:1. Þá gáfu leikmenn liðsins eftir undan stöðugum sókn- arþunga Bæjara, sem fögnuðu sigri, 4:2. Zieckler gerði út um von- ir gestanna, skoraði tvö mörk með stuttu millibili og Scholl innsiglaði svo sigur Bæjara með marki á 85. mín., þannig að „Gladbaeh“ fékk á sig þrjú mörk á fimmtán mín. kafla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.