Morgunblaðið - 05.05.1999, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Afmælisárgangur 20 ára stúdenta færði Flensborgarskóla veglega gjöf
• •
Oflugt tölvu-
og netkerfí
tekið í notkun
Morgunblaðið/Halldór
SAMSTARFSVERKEFNI Flensborgarskóla og fyrirtækja um upplýs-
ingatækni kynnt. Á myndinni eru (f.h.) Árni Mathiesen oddviti 20 ára
stúdenta, Einar Birgir Steinþórsson skólameistari og í pontu Björn
Bjarnason menntamálaráðherra.
SÉRSTAKT samstarfsverkefni
Flensborgarskóla, atvinnufyrir-
tækja og Hafnarfjarðarbæjar um
uppbyggingu tölvu- og upplýsinga-
miðla var kynnt á fundi í skólanum
nýlega. Undirbúningur verkefnisins
hófst í fyrravor, að frumkvæði ár-
gangs stúdenta skólans sem þá áttu
20 ára afmæli, en til stendur að all-
ur búnaður verði til staðar í skólan-
um og tilbúinn til notkunar í haust.
Einar Birgir Steinþórsson, skóla-
meistari, lýsti yfir ánægju sinni með
samstarfsverkefnið og þakkaði
þeim sem ýttu því úr vör. Um væri
að ræða „óvenjulega gjöf“ og eina
þá stærstu sem skólanum hefði ver-
ið færð. Markmið verkefnisins væri
að byggja upp öflugt tölvu- og net-
kerfi sem uppfyllti ströngustu kröf-
ur. Auk Hafnarfjarðarbæjar eru
Opin kei-fi, Landssíminn og Spari-
sjóður Hafnarfjarðar lykilfyrirtæki
í samstarfmu.
Rúmlega tuttugu manns eru í 20
TAL er eins árs í dag
Selur GSM-
síma á eina
krónu
TAL er eins ár í dag, miðviku-
daginn 5. maí. „í tilefni af af-
mælinu selur TAL GSM-síma á
eina krónu. Hægt verður að
kaupa sírnana í öllum verslun-
um TAL. Sumartilboð TAL
heldur áfram en viðbrögð við
því hafa verið góð og seldust
1.000 símar á fyrstu vikunni,“
segir í tilkynningu.
„Afmælisgjöf TAL til við-
skiptavina sinna er sú að hægt
er að hringja ókeypis á milli
tveggja TAL GSM-síma,“ segir
þar ennfremur.
ára afmælisárgangnum sem stendur
að gjöfínni. Forsvarsmenn hópsins
eru Ami M. Mathiesen alþingismað-
ur, Ásgrímur Skai-phéðinsson for-
stöðumaður tölvudeildai- Kaupþings
og Þórður Helgason forstöðumaður
Eðlis- og tæknideildar Landspítala.
Fram kom í kynningarræðu Árna
M. Mathiesen að þar sem afmælis-
árgangurinn væri ekki stór hefðu
samskot, t.d. til tölvukaupa, dugað
skammt og því verið ákveðið, í sam-
vinnu við skólanefnd, að marka
stefnu í tölvumálum og koma verk-
efni þar að lútandi á laggirnar.
Kostnaður 20 milljónir
Ásgrímur Skarphéðinsson út-
skýrði tæknilegu hliðar verkefnis-
ins. „Við ákváðum að leggja inn í
skólann breiðustu „hraðbraut“ (eða
ATM-band) sem völ er á. Settar
verða upp tvær stofur, hvor með 24
tölvum, og verður kerfíð sérhannað
fyrir mikla flutningsgetu á hljóði,
mynd og öllu margmiðlunarefni."
Kerfið sem um ræðir er dýrt í upp-
setningu, að sögn Ásgríms, uppkom-
ið í haust kosti það um 20 milljónir.
„Þetta verður að okkar viti alveg ný
vídd sem skapast þama í skólakerf-
inu,“ segir Ásgn'mui'. „í framhaldi
verða stofnuð hollvinasamtök til að
þróa verkefnið. Það er okkar von að
sá félagsskapur haldi áfram að
byggja kerfið upp. Okkar hlutverk er
að koma boltanum af stað.“
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra var viðstaddur og óskaði hann
samstarfsaðilum til hamingju með
verkefnið. Hann áréttaði mikilvægi
þess að allir kæmu úr grunnskóla í
framhaldsskóla með góða kunnáttu
í upplýsingatækni. Samstarfsverk-
efnið væri mikilsverður áfangi í því
að gera góðan skóla enn betri.
Einar Birgir, skólameistari, kvað
verkefnið hafa mikla þýðingu fyrir
skólann. „Við fáum þarna til sam-
starfs fólk sem er framarlega í at-
vinnulífinu og sem kemur til með að
leggja fram sína sérþekkingu í upp-
lýsingakerfið.“
verið teknar stefnir allt í að hann
komi,“ sagði Olafur í samtali við
Morgunblaðið í gær og er gert ráð
fyrir að heimsókn Obuchis standi yf-
ir dagana 21.-23. júní.
Við undirbúning komu Obuchi er í
mörg hom að líta en talið er að með
honum komi allt að á þriðja hundrað
manns. Er það fylgdarlið, fjölmiðla-
fólk og áhafnir flugvélanna sem flytja
ráðheirann hingað. Að sögn Olafs
miðast allur undirbúningur við það
sem var í Bergen fyrir tveimur árum
og var hópurinn þá um 220 manns.
Unnið er að undirbúningi af fullum
ki-afti og er búið að vinna að því í
þónokkum tíma að leysa þann vanda
sem skapast gæti varðandi gistingu
slíks fjölda yfir sumartímann.
Lúðvík Emil Kaaber
um rök fyrir nýrri
málshöfðun
Neitunin er
andstæð
jafnræði og
atvinnufrelsi
„ENN em landsmenn hindraðir í
því að geta notið sama atvinnurétt-
ar í sjávarútvegi og tiltölulega fáir
einstaklingar njóta enn í trássi við
dóm Hæstaréttar í kvótamálinu,"
segir Lúðvík Emil Kaaber, lög-
maður Valdimars Jóhannessonar,
sem hefur stefnt sjávarútvegsráð-
herra og krafist þess að lýst verði
ógild neitun Fiskistofu á synjun á
umsókn Valdimars til aflahlut-
deilda.
Valdimar krefst þess að viður-
kennt verði með dómi að stjórn-
völdum beri að veita honum, að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum,
heimild til að veiða sjávarafla án
þess að þurfa að leita um það til
þeirra sem þegar hafa fengið til
þess rétt.
Lúðvík Emil Kaaber segir að
stjórnvöld neiti skjólstæðingi sín-
um um rétt til að veiða úr ákveðn-
um fiskistofnum sem hann hafði
sótt um nema að hann kaupi þann
rétt af þeim sem hafi hann í krafti
þeirra sömu lögbundnu forréttinda
og Hæstiréttur hafi talið andstæð
jafnræðisreglu 65. greinar stjórn-
arskrárinnar og atvinnufrelsis-
reglu 75. greinar hennar.
Lúðvík vitnar til dóms Hæsta-
réttar þar sem segir að þótt tíma-
bundnar aðgerðh- til varnar hruni
fiskistofna kunni að hafa verið
réttlætanlegar, en um það hafi
ekki verið dæmt í málinu, verði
ekki séð, „að rökbundin nauðsyn
hnígi til þess að lögbinda um
ókomna tíð þá mismunun, sem
leiðir af reglu 5. gr. laga nr.
38/1990 um úthlutun veiðiheimilda.
Stefndi hefur ekki sýnt fram á, 'að
aðrar leiðir séu ekki færar til að ná
því lögmæta markmiði að vernda
fiskistofna við ísland."
Lögmaðurinn segir ljóst að regl-
um stjómskipunarlaga um jafn-
ræði og atvinnufrelsi sé ekki full-
nægt með því einu að veita kost á
veiðileyíi sem ekki verði notað
nema þeim sem forréttindanna
njóti sé greitt fé fyrir.
Forsætisráðherra Japans
til Islands í sumar
Forsætisráðherra
Japans, Keizo Obuchi,
er væntanlegur hingað
til lands í júní ásamt
220 manna fylgdariiði.
Að sögn Ólafs Davíðs-
sonar, ráðuneytisstjóra
forsætisráðuneytisins,
liggur formleg ákvörð-
un af hálfu Japans ekki
fyi’ir en undirbúningur
að heimsókninni hefur
staðið yfir hérlendis í
nokkurn tíma. Mun
Obuchi funda með for-
sætisráðherrum allra
Norðurlandanna.
Aðdragandi heim-
sóknarinnar er fundur
Keizo
Obuclii
forsætisráðherra Norð-
urlandanna ásamt þá-
verandi forsætisráð-
herra Japans í Bergen
fyrir tveimur árum. Að
sögn Ólafs var talað um
að halda slíkan fund
aftur og kemur það í
hlut íslands að halda
forsætisráðherrafund
Norðurlanda nú þegar
ísland er í forsæti í
N orðurlandasamstarfi
ríkisstjórnanna. Davíð
Oddsson forsætisráð-
herra bauð forsætiráð-
hema Japans til fund-
arins. „Þó að endanleg-
ar ákvarðanir hafi ekki
Verkefnisstjdrn um upplýsingasamfélagið
Bóndi kærður fyrir að spilla arnarvarpi á Breiðafirði
Netnotkun vex
hröðum skrefum
Grafalvarlegl brot að mati
Fuglaverndarfélagsins
SAMKVÆMT nýrri skoðanakönnun
Gallup hafa nú ríflega 82% lands-
manna á aldrinum 16-75 ára aðgang
að Netinu, á heimili, í vinnu eða
skóla. Þetta og fleira kom fram á
blaðamannafundi verkefnisstjórnar
um upplýsingasamfélagið á vegum
forsætisráðuneytis sem haldinn var í
gær.
Guðbjörg Sigurðardóttir, formað-
ur verkefnisstjórnar þróunarverk-
efnisins um íslenska upplýsingasam-
félagið, reifaði niðurstöður nýútkom-
innar markaðsrannsóknar Gallup á
íslandi um tölvu- og Netnotkun Is-
lendinga sem gerð var í mars og apr-
íl á þessu ári.
Verkefnið'stendur yfir í 5 ár, eða
fram til 1. sept. 2002 og áætlað er að
veita um 352 m.kr. til upplýsinga-
tækniverkefna á því tímabili, þar af
um 70 m.kr. á þessu ári. Þá er í fjár-
lögum fyrir árið 1999 í fyrsta sinn
gert ráð fyrir sérstökum fjárveiting-
um til nýrra verkefna sem falla að
stefnu stjómvalda að upplýsingasam-
félaginu. Ríflega 300 m.kr. eru ætlað-
ai- til þessara verkefna og að auki er í
fjárlögum sérstök viðbótarfjárveiting
til fjarkennslumála upp á 60 m.kr.
Könnunin sem nú var kynnt er sú
þriðja sem verkefnisstjórn hefur lát-
ið gera en hinar áttu sér stað í febrú-
ar og september 1998. Samanburður
á niðurstöðum sýnir mikla aukningu
á Netnotkun á þessu tímabili. Sem
dæmi má nefna að í könnuninni í
febrúar 1998 kváðust 27,2% að-
spurðra ekki hafa aðgang að Netinu
en í nýju könnuninni eru aðeins
17,7% í sömu sporum.
Fjölmargt kemur fram í könnun-
inni, s.s. að munur er á Netnotkun
eftir búsetu. Á höfuðborgarsvæðinu
sögðust 15% ekki hafa aðgang að en
23% aðspurðra á landsbyggðinni. Þá
munu tölvur vera á tveimur af hverj-
um þremur heimilum á landinu.
í stöðuskýrslunni, sem verkefnis-
stjórn og samráðshópur ráðuneyta
og Alþingis tóku saman, er greint frá
þróun upplýsingasamfélagsins
1996 1998 og þeim fjölmörgu verk-
efnum sem unnin hafa verið á sama
tímabili. Meðal atriða má nefna að
ýmsa opinbera þjónustu er nú hægt
að nálgast beint í gegnum vefi; fram-
boð á sérmenntun hefur aukist; kom-
ið hefur verið á víðtæku samráði um
málefni upplýsingasamfélagsins sem
tengir opinbera aðila, atvinnulífið og
almenning.
FUGLAVERNDARFÉLAG ís-
lands kærði síðdegis í gær bónda í
Austur-Barðastrandarsýslu til emb-
ættis sýslumanns á Patreksfirði,
fyrir að hafa „með ólögmætum
hætti raskað hefðbundnum varp-
stað arna“ í hólma á Breiðafirði með
því að brenna sinu í hólmanum.
Athæfi þetta telja forsvarsmenn
félagsins vera brot sem varði við
ákvæði laga frá 1994 um vernd, frið-
un, veiðar á villtum fuglum og villt-
um spendýrum og einnig ákvæði
reglugerðar frá 1996 um friðun til-
tekinna fuglategunda, friðlýsingu
æðaivai’ps, fuglamerkingar, ham-
skurð o.fl. Jafnframt þessu er bónd-
inn kærður fyrir að hafa brennt
sinu án þess að afla sér tilskilinna
leyfa hjá sýslumanni.
„I ljósi þess hve arnarstofninn er
fáliðaður, þ.e. um 40 pör, og hve
varpárangur hefur verið lélegur á
undanförnum árum, er brot bónd-
ans grafalvarlegt að mati félagsins,"
segir m.a. í kærunni.
Kristinn Haukur Skarphéðins-
son, líffræðingur á Náttúrufræði-
stofnun, flaug sunnudaginn sein-
asta, 2. maí, yfir Breiðafjörð ásamt
öðrum félagsmanni í Fuglaverndar-
félagi íslands, vegna árlegs eftirlits
félagsins með arnarstofninum. Þeir
urðu þess varir að sina hafði verið
brennd í hólmanum nýlega, senni-
lega í seinni hluta aprílmánaðar. í
kærunni kemur fram að umræddur
hólmi er kunnur varpstaður arna
allt frá fym hluta seinustu aldar og
þar hafi ernir seinast gert tilraun
til varps árið 1997 en það rnisfórst
af ókunnum ástæðum. Á þessu
svæði hafa ernir orpið á nokkrum
stöðum meira og minna samfellt frá
1959.
„Næsta dag ræddi ég við bónd-
ann símleiðis og upplýsti hann þá að
hann hefði sjálfur brennt sinu í
hólmanum og einnig í öðrum hólma
lengi’a frá. Hann kvaðst hafa brennt
hólmana án leyfis sýslumanns. Til-
ganginn kvað bóndinn vera þann að
auka æðarvarp í hólmanum en þar
hefðu þrjár kollur orpið í fyrra.
Fuglaverndarfélagið telur ekki
nokkrum vafa undirorpið að bónd-
inn hafi brennt sinu í hólmanum til
þess að koma í veg fyrir að ernir
hreiðruðu þar um sig og til að fæla
þá burtu af svæðinu," segir Kidstinn
Haukur.
„Oll röskun á varpstöðvum arna
er að mati félagsins óviðunandi og
því er kæran lögð fram. Ernir verpa
venjulega upp úr miðjum apríl, yfir-
leitt 2-3 eggjum, og klekjast þau út
á um 35 dögum. Ungarnir eru blind-
ir og ósjálfbjarga þegar þeir klekj-
ast út og verða ekki fleygir fyrr en
um miðjan ágúst. Varptími arnarins
er því óvenjulegur,“ segir Kristinn.
„Ef arnarvarp misferst eða fuglarn-
ir hrekjast af þeim stað sem þeir
ætla sér að verpa á verpa þeir ekki
það árið.“
Önnur mál í biðstöðu
Hann segir að félaginu sé kunn-
ugt um nokkra bændur á þessu
svæði sem hafi truflað eða skemmt
arnarvarp á undanförnum árum,
m.a. með sinubruna á varpstöðum
arna. Sum þessara mála séu nú
fyrnd og muni félagið bíða átekta
um niðurstöða málsins sem kæran
fjallar um áður en ákvarðanir verða
teknar um frekari kærur.