Morgunblaðið - 05.05.1999, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999 13
FRÉTTIR
Menntaskólanemar afhentu ráðherra undirskriftarlista
NEMENDUR Menntaskólans í Reykjavík afhentu Birni Bjarnasyni
menntaraálaráðherra undirskriftalista á mánudag, þar sem ný
námskrá framhaldsskólanna er gagnrýnd.
Gagn-
rýna nýja
námskrá
MENNTASKÓLANEMAR úr
Menntaskólanum í Reykjavík af-
hentu Birni Bjarnasyni menntamála-
ráðherra undirskiáftai’lista, með um
500 undirskriftum, þar sem ný
námskrá framhaldsskólanna er
gagnrýnd.
A undirskriftarlistanum, sem af-
hentur var ráðherra, stóð skrifað:
„Með þessum undirskriftarlista, vilj-
um við, sem nemendm- Menntaskól-
ans í Reykjavík, sýna andstöðu við
þær afleiðingar, sem okkur virðist
ný námskrá menntamálaráðuneytis
fyiir framhaldsskóla ætla að hafa á
starf, en þó aðallega sérstöðu ein-
stakra skóla, einnig viljum við lýsa
yfir óánægju með kynningu á þess-
ari námskrá sem okkur finnst illa
staðið að, bæði varðandi tímasetn-
ingu og slæmt upplýsingaflæði. Að
loknum prófunum verður nánai'i
greinargerð komið á framfæri við
menntamálaráðherra.“
Skólar halda sérstöðu sinni
Þórdís Helgadóttir, nemandi í
MR, sagðist vera nokkuð ánægð með
undirtektir menntamálaráðherra,
hún sagði að hann hefði meðal ann-
ars sagt að skólarnir fengju að halda
sérstöðu sinni, þ.e. að ekki væri verið
að ógna tilvist bekkjaskólanna
svokölluðu, eins og MR, Menntaskól-
ans við Sund, Menntaskólans á
Akureyri eða Kvennaskólans í
Reykjavík. Hún sagðist hinsvegar
ekki vera sátt við kynningu
námski’ái’innar og þá sérstaklega
ekki á lokasprettinum.
Þórdís sagði að Félag framhalds-
skólanema myndi fjalla um málið á
fundi í lok maí þegai’ námskráin væri
öll tilbúin og nemendur búnir í próf-
um. Hún sagði að eftir þann fund
yrði nánari greinargerð komið á
framfæri til menntamálaráðherra,
því enn væri töluvert óljóst í sam-
bandi við skrána.
Mótmælin byggjast
á misskilningi
Sjöttu bekkingar eru að undirbúa
sig fyrir stúdentspróf og því náðist
ekki í þá til undirskriftar, en Þórdís
sagði að um þrír fjórðu hlutar hinna
þriggja árganganna hefðu skrifað
undir.
Jónmundur Guðmarsson, aðstoð-
armaður menntamálaráðherra, sagði
mótmæli nemenda að stórum hluta
byggjast á misskilningi því þeir
hefðu haldið að með nýná námskrá
væri verið að hefta starfsemi bekkja-
skólanna. Hann sagði að þessi mis-
skilningur hefði verið leiðréttur og
að bekkjaskólarnir myndu starfa
eins og þeir hefðu gert, en innan
ramma námskrárinnai’. Jónmundur
sagði þessa skóla hafa ákveðið svig-
rúm innan skrárinnar, en það væri
háð samþykki ráðuneytisins.
Varðandi gagnrýni á kynningu og
upplýsingaflæði vegna námskrárinn-
ar, vísaði Jónmundur henni alveg á
bug. Hann sagði að kennarasamtök-
in, skólastjórar, skólameistarar, full-
trúar foreldra og fulltrúar nemenda í
Félagi framhaldsskólanema væru
búin að leggja blessun sína yfir
námskrána fyrir nokkru síðan.
Almenni hluti námskrárinnar kom
úr prentun í gær og skráin tekur
gildi þann 1. júní næstkomandi.
Skólar hafa ár til að laga sig að
skránni og þeir þurfa því ekki að
byrja að kenna eftir henni fyrr en
skólaárið 2000 til 2001.
Skipulagsstofnun um fyrirhugaðar
framkvæmdir á Reykjavikurflugvelli
Framkvæmdir
samþykktar
með skilyrðum
Allt fylliefni verði flutt sjóleiðina
LOKIÐ er athugunum Skipulags-
stofnunar á frummati á umhverfis-
áhrifum fyrirhugaðra endurbóta á
Reykjavíkurflugvelh. Stofnunin
fellst á endurbæturnar með því
skilyrði meðal annars að allt fyll-
ingarefni verði flutt sjóleiðina að
geymslusvæði við suðurenda norð-
ur-suður flugbrautarinnar en ráð-
gert var að í fyrsta áfanga yrði efn-
ið sett á land við Ananaust og því
ekið þaðan á vallarsvæðið.
Þrjár
athugasemdir
Þrjár athugasemdir bárust
vegna framkvæmdanna og segir
Stefán Thors skipulagsstjóri þær
vera frá Samtökum um betri
byggð. Segir hann það víðtækar at-
hugasemdir um tilvist flugvallarins
á þessum stað. Einnig barst at-
hugasemd sama eðhs frá Erni Sig-
urðssyni og íbúar við Þórsgötu 18
mótmæla því sem nefnt er nýbygg-
ing flugvallar og telja að slík fram-
kvæmd hefði átt að fara í fullt um-
hverfismat.
Skiplagsstjóri segir að þrátt
fyrir þessar athuganir og að
fengnum umsögnum borgarráðs,
Náttúruverndar ríkisins og Holl-
ustuverndar ríkisins hafi Skipu-
lagsstofnun fallist á framkvæmd-
irnar með framangreindu skilyrði
varðandi efnisflutninga. Einnig er
sett það skilyrði að mældur verði
hávaði vegna framkvæmdanna
víðar en framkvæmdaraðili ráð-
gerði. Verður skilyrt í útboðs-
gögnum að hávaði fari ekki yfir
viðmiðunarmörk mengunarvarna-
reglugerðar. Ætlan framkvæmda-
aðila var að mæla hávaða einungis
við Einarsnes en skipulagsstofnun
telur að mæla verði einnig hávaða
við Litla Skerjafjörð og Hótel
Loftleiðir.
Kærufrestur
til 2. júní
Þá áréttar Skipulagsstofnun
mikilvægi þess að draga úr hávaða
á framkvæmdatímanum með því
að færa æfinga- og kennsluflugið
frá Reykjavíkurflugvelli. Einnig
leggur hann áherslu á að sett verði
inn í verksamning að gerð verði
öryggisáætlun í samvinnu við lög-
reglu vegna aksturs flutningabíla
yfir göngu- og hjólreiðastíginn við
suðurenda ‘norður-suður brautar-
innar.
Frestur til að kæra úrskurð
skipulagsstjóra til umhverfisráð-
herra er til 2. júní sem í framhaldi
af því tekur ákvörðun um framhald
málsins.
16 ventla vél með fjölinnsprautun, 85-96 hestöfl
Vökva- og veltistýri • Hæðarstillanleg kippibelti
Rafstýrðar rúður og speglar • Öryggisloftpúðar
Samlæsing • Krumpusvæði að framan og aftan
Þjófavörn • ABS hemlar • Styrktarbitar í hurðum
Upphituð framsæti • Útvarp með segulbandi
Rafstýrð hæðarstilling framljósa
Litaðar rúður • Samlitaðir stuðarar
$ SUZUKI
—-...... .
Ertu að hugsa um:
• Rými?
• Þægindi?
• Öryggi?
• Gott endursöluverð?
• Allt þetta sem staðalbúnað:
Renndu við hjá okkur í dag
og reynsluaktu Suzuki Baleno.
Hann kemur þér þœgilega á óvart.
TEGUND:
1.3 GL 3d
1.3 GL 4d
1,6 GLX4d, ABS
1,6 GLX 4x4, 4d, ABS
1,6 GLXWAGON, ABS
1,6 GLX WAGON 4x4, ABS
VERÐ:
1.195.000 KR.
1.295.000 KR.
1.445.000 KR.
1.575.000 KR.
1.495.000 KR.
1.675.000 KR.
Sjálfskipting kostar 100.000 KR.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00
Heimasíða: www.suzukibilar.is
Bfll sem er algjörlega hannaðurfyrirþig.
Og það leynir sér ekki...
Fæst í tískulitnum í ár: aluminium silver metallic.