Morgunblaðið - 05.05.1999, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kosningarannsóknir
dr. Ólafs Þ. Harðarsonar 1983-1995
40% ákváðu
sig vikuna
fyrir kjördag
STÓR hópur kjósenda gerir ekki
endanlega upp hug sinn um hvað
hann ætlar að kjósa í alþingiskosn-
ingum fyrr en í seinustu vikunni
íyrir kjördag, skv. kosningarann-
sóknum sem dr. Ólafur Þ. Harðar-
son, dósent í stjómmálafræði við
HÍ, hefur gert fyrir þingkosningar
sem fram hafa farið allt frá árinu
1983. Þannig sögðust 40% hafa tek-
ið endanlega ákvörðun um hvaða
flokk þeir ætluðu að kjósa í síðustu
vikunni fyrir kosningamar 1995,
þar af sögðust 13-19% hafa tekið
ákvörðunina á kjördag. Þetta kem-
ur fram í grein í nýjasta hefti tíma-
ritsins Lifandi vísindi, þar sem fjall-
að er um niðurstöður þessara rann-
sókna Ólafs.
Kosningarannsóknir Ólafs sýna
að mikill fjöldi íslenskra kjósenda
skiptir um flokk milli kosninga. í
greininni í Lifandi vísindum segir:
„Um fjórðungur kjósenda 1983 kaus
annan flokk en hann hafði gert 1979
og um þriðjungur kjósenda skipti
um flokk í kosningunum 1987, 1991
og 1995. Það er hátt hlutfall í al-
þjóðlegum samanburði.“
Flokkshollusta
með minna móti
Rannsóknir Ólafs hafa einnig leitt
í ljós að flokkshollusta er með minna
móti hér á landi og hefur farið
minnkandi. „I kosningarannsóknun-
um eru kjósendm- spurðir að því
hvort þeir líti á sig sem stuðnings-
menn einhvers stjórnmálaflokks eða
samtaka. 1983 taldi tæpur helming-
Flokkshollusta 1983 - 1995
100-
80-
60-
40-
20-
0-
1983 1987 1991 1995
Hlutfall kjósenda sem tók endanlega
ákvörðun um hvað skyldi kjósa í
síðustu vikunni fyrir kjördag 1983 -1995
ur kjósenda sig stuðningsmenn
flokka, en 1995 var hlutfallið komið
niður í rúm 40%.
Margir kjósendur velkjast
í vafa og flökta á milli flokka
Þeir sem ekki töldu sig stuðnings-
menn flokka voru spurðir hvort þeir
stæðu einhverjum flokki nær en
öðrum. Tæpur þriðjungur kjósenda
samsinnti því öll árin, en sá hópur-
inn sem hvorki telur sig stuðnings-
mann flokks né standa einhverjum
flokki nær hefur farið vaxandi: 1983
höfðu 19% kjósenda þannig enga
flokkshollustUj en hlutfallið var 27%
árið 1995. Ahugi almennings á
stjórnmálum minnkaði hins vegar
ekki á árunum 1983-1995,“ segir í
greininni.
Þar kemur einnig fram að þeim
kjósendum hefur líka fjölgað sem
hugleiða fyidr kosningai- að kjósa
annan flokk en þeir á endanum
gera. 47% kjósenda hugleiddu þetta
1983, en 60% fyrir seinustu kosn-
ingar 1995, skv. kosningarannsókn-
um Ólafs. „Samkvæmt þessu eru
það einungis 40% kjósenda sem eru
svo tryggir flokki sínum, að þeir
velta ekki öðrum kostum fyi-ir sér,“
segir í greininni.
I skoðanakönnunum fyrir kosn-
ingar eru oft 20^10% óráðin en
Ólafur benti á í samtali við Morgun-
blaðið að margir telji að þessi hópur
hljóti að fara minnkandi af sjálfu
sér þegar dregur nær kosningum
en málið sé ekki svo einfalt. Stórir
hópar kjósenda séu að velkjast í
vafa vikurnar fyrir kosningar.
Þannig geti kjósandi skýrt frá því í
könnun mánuði fyrir kosningar að
hann búist við að kjósa flokk A,
viku síðar býst hann við að kjósa
flokk B, viku seinna segist hann
vera óráðinn og svo kýs hann
kannski á endanum flokk C á kjör-
degi. Hópur kjósenda sé þannig á
fleygiferð á milli flokka í kosninga-
baráttunni.
rwr
victory
W
Teg. 168/169/170____{
Verð kr. 2.990
Stœrðir 28-45
E3
RR SKOR
SKÓHÖLLIN
Bœjarhraum 16, simi 555 4420
Kringlunni og Skemmuvegi
Skattaívilnanir styrki menninguna
SAMFYLKINGIN vill styðja
menningarmál með skattaívilnunum
og leggja áherslu á mikilvægi þeirra
með því að breyta nafni mennta-
málaráðuneytisins í mennta- og
menningarráðuneytið. Þetta kom
fram í máli Ágústar Einarsonar, al-
þingismanns á menningarhátíð
Samfylkingarinnar á Reykjanesi í
gær.
Fjölmenni var á hátíðinni sem
haldin var í nýja tónlistarhúsinu í
Kópavogi. Lítið fór fyrir stjórn-
málaumræðu en menn höfðu „gam-
an af því að vera saman í Samfylk-
ingunni", eins og Rannveig Guð-
mundsdóttir, oddviti hennar á
Reykjanesi, komst að orði, og naut
tónlistar- og skemmtiatriða sem
boðið var upp á.
Meðal þeirra sem fram komu
voru Kristján Jóhannsson óperu-
söngvari, Örn Árnason leikari,
karlakórinn Fóstbræður og skóla-
hljómsveit Kópavogs.
Morgunblaðið/Kristinn
ÞORUNN Sveinbjarnardóttir, sem áer í 4. sæti á lista Samfylkingar- /
innnr Rí»vkiunpsi. setti mennine’arhátíðina.
Davíð Oddsson
Engin
rök fyrir
ESB-
aðild
DAVÍÐ Oddsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagði á opnum
stjórnmálafundi í Garðaskóla í
Garðabæ í gær að^ kæmi einhvern
tíma til gi'eina að ísland sækti um
aðild að Evrópusambandinu (ESB)
þyrfti þjóðin að fá að greiða um það
atkvæði. „Ég er þeirrar skoðunar að
ef þetta mál [aðildarumsókn íslands
að ESB] kemur upp þá yrði þjóðin
að fá málið allt á borðið og segja já
eða nei. Það er um slíkt fullveldisaf-
sal að ræða. Það má vel vera að menn
neyðist til þess einn góðan veðurdag
að horfast í augu við það að heimur-
inn þróist þannig og þá taka menn á
því. Þá gerir þjóðin það með opnum
huga. En það er út af fyrir sig engin
sérstök rök fyrir því að það sé nauð-
synlegt. Að minnsta kosti er efna-
hagsþróunin hjá okkur annars vegar
og í Evrópusambandinu hins vegar
Morgunblaðið/Kristinn
FUNDUR með Davíð Oddssyni og frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi var vel sóttur í gær.
ekki þannig að eigum að skipta. Þar
er atvinnuleysi, svo dæmi sé tekið,
ellefu til fjórtán prósent.“
Davíð sagði ennfremur að allt tal
um undanþágur íslendinga frá fisk-
veiðistjórnun ESB gæfi mönnum að-
eins gyllivonir. Norðmenn hefðu til
að mynda reynt að fá undanþágur
frá fiskveiðistjórnuninni en án ár-
angurs. „Innganga í ESB er ekki
eins og að koma á matsölustað, líta á
matseðilinn og segja: ég ætla að fá
þetta, sleppa þessu, fá þetta en
sleppa þessu. Þú verður að éta allt af
matseðlinum, en þá yrði nú mörgum
bumbult og þar á meðal mér. En það
er ekkert óeðlilegt [...] að menn gefi
til kynna að það sé hægt að fá und-
anþágu frá þessu öllu saman,“ sagði
Davíð og taldi að besta undanþágan
sem ESB veitti væri tími. Tími til að
aðlagast stefnu sambandsins. „Þess
vegna finnst mér að menn sem að
minnsta kosti vita þetta eigi ekki að
tala eins og [það sé hægt að fá und-
anþágur] og gefa mönnum þannig
gyllivon.“
DogU
bæta
við sig
FRÉTTASTOFA Ríkissjón-
varpsins greindi frá því í gær-
kvöldi að Sjálfstæðisflokkurinn
og Vinstri hreyfingin - Grænt
framboð bættu við sig fylgi
samkvæmt könnun Gallups,
miðað við fyrri kannanir fyrir-
tækisins.
Könnunin er svo kölluð rað-
könnun og munu slíkar kann-
anir birtamst á hverjum degi
fram að kosningum. Sjálfstæð-
isflokkurinn fær 42,3% at-
kvæða samkvæmt könnuninni
og 28 þingmenn, Samfylkingin
27,1% og 19 þingmenn, Fram-
sóknarflokkkurinn 18,3% og 11
þingmenn, Vinstri flokkurinn -
Grænt framboð fær 8,3% og 5
þingmenn, Frjálslyndi flokkur-
inn fær 3,2% atkvæða og
Húmanistar 0,9% atkvæða.
Önnur framboð mældust ekki í
könnuninni. I úrtakinu voru
eitt þúsund manns og þar af
voru fimm hundruð spurð í
fyrrakvöld. Svarhlutfall var
72%, en 16,6% vora óákveðin
eða neituðú að svara.