Morgunblaðið - 05.05.1999, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999 19
Einar Váídimar Ólafsson ' “
Vesturlandi
Þórunn Magnúsdóttir
Vestfjörðum
Kolbeinn Friðbjamarson
Norðurlandi vestra
Málmfríður Sigurðardóttir
Norðurlandi eystra
Sigfinnur Karlsson
Austurlandi
Sigurður Björgvinsson
Suðurlandi
Höskuldur Skarphéðinsson
Reykjanesi
Páll Bergþórsson
Reykjavík
Ólöf Ríkharðsdóttir
Reykjavík
a
efri árum
Við sem undirritum þetta ávarp til kjósenda í landinu eigum það sameiginlegt
að vera komin á efri ár og skipa sæti neðst á framboðslistum fyrir
Vinstrihreyfinguna - grænt framboð í alþingiskosningunum 8. maí 1999.
Þó að við ætlum okkur ekki að ná kosningu til Alþingis viljum við láta til
okkar heyra um lífssýn okkar og óskir um framtíð íslensku þjóðarinnar.
Löng ævi hefur kennt okkur að samfélaginu beri að tryggja frelsi, réttlæti
og friðsamlega sambúð einstaklinga og þjóðfélagshópa. Undirstaða þess
er að hver maður sé jafnborinn til virðingar og réttinda sem ekki verða
af honum tekin, eins og segir í mannréttindayfirlýsingu
Sameinuðu þjóðanna.
Við teljum að mikið vanti á að þjóð okkar standi við þá mikilvægu yfirlýsingu.
Ýmsir minnihlutahópar, þar á meðal öryrkjar og margt eldra fólk, eru
rangindum beittir. En þegar litið er lengra fram í tímann beinist athygli
okkar sérstaklega að hagsmunum yngstu þjóðfélagsþegnanna, fæddra og
ófæddra. Ef þroski þeirra og virðing fær notið sín hlýtur það smátt og
smátt að leiða til meira öryggis og hamingju allra landsmanna.
Við teljum að stefhuyfirlýsing sú sem Vinstrihreyfingin - grænt framboð
hefur kynnt alþjóð sé mjög í anda þessarar lífssýnar okkar. Skilyrði þess
að hvért barn njóti virðingar og réttinda er sem jöfnust tekjuskipting
foreldranna og jafnrétti þeirra til atvinnu, menntunar og lífsgæða hvar
sem er á landinu. Þau markmið nást með félagshyggju en ekki með
markaðshyggju. Það er líka í þágu framtíðarinnar að vernda íslenska
náttúru og hafha erlendu forræði yfir auðlindum lands og sjávar, en nýta
þær skynsamlega. Enn eitt skilyrði fyrir velferð nýrra kynslóða er að
friður og gagnkvæm virðing ríki í samskiptum þjóða. Okkur ber því að
hafa sjálfstæða utanríkisstefnu, taka virkan þátt í ffiðar- og framfara-
samtökum þjóðanna en hafna handleiðslu hernaðarbandalaga og dvöl
erlends hers á íslandi.
Þessum mikilvægu málum teljum við að sé vel komið til skila í
stefnuyfirlýsingunni sem Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur
sett fram. Við sem eldri erum hvetjum alla landsmenn til að kynna
sér þessa stefnu og veita gott brautargengi þeirri vösku sveit sem
skipar efstu sætin á ff amboðslistum flokksins.
Jón Böðvarsson
Reykjavík
Margrét Guðnadóttir
Reykjavík
VINSTRIHREYFINGIN
grænt framboð
Helgi Seljan
Reykjavík