Morgunblaðið - 05.05.1999, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Flugleiðum skipt í afkomueininKar og aukin áhersla lögð á markmiðsáætlanir
MEÐ skiptingu rekstursins upp í sex afkomusvið hyggjast stjórnendur
Flugleiða skipta ábyrgð á hverri einingu á hendur fleiri manna.
HÖNNUN / SMÍÐI / VIÐGERÐIR / ÞJÓNUSTA
= HÉÐINN =
Stórás 6 »210 Garöabæ
sími 569 2100 • fax 569 2101
#
Skýrslutæknitélag íslands Verkefnastjórnunarfélags íslands
Er þörf á verkefnastjórnun í
upplýsingatækni?
Ráðstefna, samstarfsverkefni Verkefnastjórnunarfélags íslands
og Skýrslutæknifélags íslands,
á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 6. maí 1999.
13:00 Innritun ráðstefnugesta.
13:15 Setning ráðstefnunnar.
13:20 Joel Black, aðstoðarframkvæmdastjóri Aladon Ltd.
• Lykilatriði verkefnastjórnunar
14:20 Margrét Guðmundsdóttir, forstöðumaður, Skeljungi hf.
• Verkefnastjórnun við endurskipulagningu tölvu- og
upplýsingakerfis Skeljungs hf.
14:50 Kaffihlé.
15:20 Jim Davis, sérfr. i örgjörvamálum Hewlett-Packard
• Áhættustjórnun í verkefnum sem spanna yfir mörg ár.
15:50 Símon Þorteifsson, starfsþróunarstjóri Nýherja hf.
• Dæmisaga sem byggist á verkefni í stórfyrirtæki í
Danmörku.
16:40 Ráðstefnuslit.
Þátttökugjöld
Félagsmenn í SÍ og/eða VSFÍ kr. 8.800.
Utanfélagsmenn kr. 11.800.
Fimmti hver maður frá fyrirtæki fær fría þátttöku.
Skráning
Þátttöku þarf að tilkynna Skýrslutæknifélagi íslands
í síðasta lagi 5. maí, sfmi 553 2460, netfang sky@sky.is.
Nánari upplýsingar á http://www.sky.is.
Móðurfélagið greint
í skýrar einingar
í DAG taka gildi hjá Flugleiðum
skipulagsbreytingar sem miðast að
því að skipta fyrirtækinu í afkomu-
einingar jafnframt því sem aukin
verður áhersla á markmiðsáætlan-
ir og aukið vægi upplýsingaþróun-
ar og upplýsingatækni í rekstrin-
um. „Það sem skiptir mestu í þess-
um breytingum er að við erum að
greina móðurfélagið í skýrar ein-
ingai- og skipta ábyrgð á hverri af-
komueiningu niður á fleiri menn,“
segir Einar Sigurðsson, einn fram-
kvæmdastjóra Flugleiða, í samtali
við Morgunblaðið.
Flugleiðum er nú skipt í sex af-
komueiningar. Stærsta einingin er
millilandafarþegaflug með um 18
milljarða króna veltu, önnur eining
er viðhaldsstöðin á Keflavíkurflug-
velli en þar er veltan um tveir
milljarðar króna og hinar fjórar
eru rekstur flugþjónustunnar á
Keflavíkurflugvelli, fraktflugið,
Saga Boutique og bílaleigan. Sam-
anlögð velta þessara fjögurra ein-
inga er yfir fimm milljarðar króna.
Sigurður Helgason forstjóri fer
með daglega stjórn á stærstu af-
komueiningunni, millilandafluginu.
Því er skipt í fimm svið sem hvert
hefúr sinn framkvæmdastjóra:
Steinn Logi Björnsson stýrir
markaðs- og sölusviði og ber
ábyrgð á gerð og framkvæmd sölu-
áætlana á öllum alþjóðlegum mark-
aðssvæðum Flugleiða.
Guðmundur Pálsson stýrir flug-
rekstrarsviði með gerð og fram-
kvæmd framleiðsluáætlana fyrir
flugreksturinn.
Leifur Magnússon stýrir flug-
flota- og öryggissviði, ber ábyrgð
á gerð flugflotaáætlana og er
ábyrgur fyrir eftirliti flugöryggis-
mála og eftirliti með viðbragðsá-
ætlunum fyrirtækisins vegna 2000
vandans.
Einar Sigurðsson stýrir stefnu-
mótunar- og stjórnunarsviði og
ber ábyrgð á almannatengslum,
starfsmannaþjónustu og stefnu-
mótunarverkefnum. Hann er
einnig ábyrgur fyrir heildar-
stefnumótunarferli samstæðunn-
ar, starfsmannastefnu og hlut-
hafasamskiptum.
Halldór Vilhjálmsson stýrir fjár-
málasviði og er ábyrgur fyiár dag-
legri fjármálastjóm móðurfélags-
ins og samstæðunnar allrar, einnig
áhættustýringu og innri endur-
skoðun.
Sjálfstætt uppgjör
og rekstur eininganna
Guðmundur Pálsson verður yfir-
maður einnar afkomueiningarinnai-,
viðhaldsstöðvarinnar á Keflavíkur-
flugvelli, auk þess sem hann ber
ábyrgð á flugrekstrarsviði eins og
geti var að framan. Viðhaldsstöðin.
á að selja þjónustu til millilanda-
flugs Flugleiða og annarra flugfé-
laga.
Þá stýrir Pétur J. Eiríksson fjór-
um afkomueiningunum en hann er
framkvæmdastjóri viðskiptasviðs.
Afkomusviðin fjögur verða öll með
sjálfstætt uppgjör og rekstur og
eru þau rekstur flugþjónustunnar
á Keflavíkurflugvelli, fraktflugið,
rekstur á Saga Boutique og bíla-
leigureksturinn.
Þá verður sú breyting að upplýs-
ingaþróunardeild heyrir nú beint
undir forstjóra Flugleiða en hún
heyrði áður undir fjármálasvið.
Einar Sigurðsson segir það endur-
spegla aukið vægi tölvuvæddrar
upplýsingaþróunar og upplýsinga-
tækni hvarvetna í rekstri félagsins.
Hjörtur Þorgilsson forstöðumaður
stýrir þeimi deild en tölvudeild
sem sér um rekstur vélbúnaðar,
samskiptanets og gagnagrunna
fyrirtækisins er á fjármálasviði.
Ný yfirflugfreyja, Guðný Hans-
dóttir, tekur við fyrsta júní. Hún
tekur við af Aslaugu Pálsdóttur
sem verið hefur yfii-flugfreyja frá
1990 og tekur nú við fyrra starfi
sem fyrsta flugfreyja. Guðný hefur
stai-fað sem flugfreyja hjá Flug-
leiðum í tæp sex ár. Hún hefur lok-
ið MBA prófi frá Florída Institute
of Technology í starfsmannastjórn-
un og rekstrarhagfræði.
„Breytingarnar eru gerðar með
það fyrir augum að skapa enn
skýrari rekstrarsýn á hverju sviði í
fyrirtækinu," segir Einar Sigurðs-
son ennfremur. „Heildarvelta sam-
stæðunnar er um 30 milljarðar
króna á þessu ári og það verður
.skýrari og meiri ábyrgð á hvern og
einn framkvæmdastjóra afkomu-
eininga og sviða. Jafnframt leggj-
um við meiri áherslu á markmiðin,
hverri einingu hafa verið sett ná-
kvæmari markmið en áður hefur
verið og þau verða notuð til að
stýra hverri einingu."
Leiðrétt
RANGT var farið með í töflu með
upplýsingum um veltu á Verðbréfa-
þingi íslands er birtist á viðskipta-
síðu í gær. Þar kom fram að heild-
arvelta á þinginu hafi minnkað um
1.580% fyrstu fjóra mánuði ársins
miðað við sama tímabil í fyrra. Hið
rétta er 40,5%.
Jafnframt kom fram í yfirfyrir-
sögn að um ársfjórðungsveltu væri
að ræða en hið rétta er fyrstu fjóra
mánuði ársins. Beðist er velvirðing-
ar á þessum mistökum.
Velta á Verðbréfaþingi íslands 1. jan. til 30. apríl 1998 og 1999
Allar tölur í milljörðum króna 1999 1998 Breyting
Allir flokkar: Húsbréf 28,1 27,9 +0,7%
Spariskírteini 9,7 24,0 -59,6%
Bankavíxlar 6,9 33,2 -79,2%
Ríkisvíxlar 7,0 30,7 -77,2%
Hlutabréf 10,6 2,5 +324,0%
Heildarvelta á þinginu 75,0 126,0 -40,5%
Dilbert á Netinu
Nú er opið frá kl. 8 til 16.
SJ0VA
ALMENNAR
Kringlunni 5 • Pósthólf 3200 • 123 Reykjavík
S 569 2500
www.sjal.is