Morgunblaðið - 05.05.1999, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
i
SLÖKKVILIÐSBILL keyrir í gegnum úthverfi í Oklahomaborg í gær, sem skýstrókar lögðu í rúst á mánudag.
Reuters
Mestu skýstrókar í manna minnum í Oklahoma og Kansas í Bandaríkjunum
Talið að 45
manns hafí
beðið bana
KONA og tvö börn hennar hafast við undir brú skammt frá Newcastle
í Oklahoma er skýstrókur reið þar yfir á mánudag.
Hundrað manns
enn leitað
Oklahomaborg. Reuters, AP.
TALIÐ er að allt að 45 manns hafi
látið lífið er mestu skýstrókar í
manna minnum, að sögn sérfræð-
inga, riðu yfir Oklahoma og Kansas
fylki í Bandaríkjunum á mánudag
og jöfnuðu þúsundir heimila við
jörðu. Hjálparstarfsmenn segja
óvíst um afdrif a.m.k. hundrað
manns.
Að sögn veðurfræðinga voru
skýstrókarnir tæplega fimmtíu
talsins og jöfnuðu þeir við jörðu
allt sem á vegi þeirra varð. Elding-
um laust niður og haglél, þar sem
komin voru á stærð við tennis-
bolta, reið yfir svæðið. Rafmagns-
línur slitnuðu niður og strókamir
þeyttu braki í allar áttir og lausa-
gróður þeyttist úr jarðvegi og lauf-
blöð af tjám.
Stærsti strókurinn mældist 1,6
km að breidd og sextán km að hæð
og sögðu sérfræðingar strókana
vera þá stærstu sem nokkru sinni
hefðu þekkst.
Oklahomaborg, höfuðborg Okla-
homa-ríkis, og Wichita í Kansas,
eru þær borgir sem fóru hvað verst
út úr óveðrinu en talið er að a.m.k.
40 manns hafi látist í Oklahoma-
borg einni, en þar lögðust heilu
hverfin í rúst. Að sögn hjálpar-
starfsmanna í Oklahomaborg er
talið að um þúsund hús hafi eyði-
lagst þar og fjölmörg hjólhýsi og
bifreiðar tókust á loft.
í Wichita, í um 250 km fjarlægð
frá Oklahomaborg, létu a.m.k. sex
manns lífið. í suðurhluta borgar-
innar feyktu skýstrókarnir
nokkrum hjólhýsum út í stöðuvatn
og mörg hús eyðilögðust.
Að sögn talsmanna á sjúkrahús-
um og heilsugæslustöðvum í Okla-
homaborg og Wichita, er ástandið
mjög slæmt og virtist straumur
slasaðra engan enda ætla að taka.
Aðstaða fyrir sjúka er að yfirfyllast
og eru dæmi þess að kaffistofur
séu notaðar undir sjúklinga.
Clinton lýsir yfir
neyðarástandi
Bili Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, lýsti yfir neyðarástandi í
Oklahomaborg í gær og búist var
við að hann gerði slíkt hið sama við
Wichita. Clinton lýsti áhyggjum
sínum yfir ástandinu og að beiðni
Frank Keating, ríkisstjóra Okla-
homa, tilkynnti hann að alríkis-
stjómin mundi veita ríkjunum fjár-
stuðning við uppbyggingu og hjálp-
arstörf.
Keating kallaði í gær til Þjóð-
varðlið Bandaríkjanna til að leita
fólks í rústum heimila þess og ann-
arra bygginga og gera ráðstafanir
til að draga úr hættu á að eldur
blossi upp vegna gasleka.
Leitarstarf heldur áfram og gera
hjálparstarfsmenn ráð fyrir að
fleiri fómarlömb finnist.
Islendingar í
Qklahoma og Kansas
„Þökk sé
sjón-
varpinu“
„ÉG VAR mjög hrædd. Loft-
vamaflautur glumdu auk þess
sem veðrið lét rosalega illa og
eldingum sló niður í sífellu. Við
gátum fylgst með skýstrókunum
í sjónvarpinu sem stefndu beint á
okkur,“ sagði Geirþrúður Jóns-
dóttir, sem býr í Tulsa í Okla-
homa ásamt eiginmanni sínum,
Michael Einari Reynissyni, flug-
virkjanema, og tveimur börnum
þeirra.
Geirþrúður kvaðst hafa fylgst
með voðaveðrinu í sjónvarpinu
ásamt fjölskyldu sinni.
„Við sátum fyrir framan sjón-
varpið allan timann og vorum
búin að setja dýnur og kodda inn
í minnsta herbergið í húsinu,
eins og ráðlagt hefur verið við
aðstæður sem þessar."
Hún sagði skýstrókana hafa
hætt að snerta jörðina er þeir
nálguðust heimabyggð hennar.
„Þökk sé sjónvarpinu, því án
þess hefðum við ekki getað vitað
svo fljótlega að við væmm úr
hættu,“ sagði Geirþrúður. Hún
bætti því við að það væri henni
mikill léttir að rafmagn hefði
ekki farið af, eins og oft gerist í
slíkum voðaveðrum, því þá hefði
sjónvarpsins til að mynda ekki
notið við.
„Tulsa er um einn og hálfan
tíma frá Oklahoma City þar sem
miklar skemmdir urðu. I minni
bæjum á milli okkar og borgar-
innar varð töluverð eyðilegging.
Við sáum hvar bflar þeyttust á
loft og fleira í þeim dúr. Hér í
Tulsa urðu engin slys eða
skemmdir sem betur fer, en við-
búnaður var mjög mikill," sagði
Geirþrúður.
Engan íslending
sakaði
Um 200 Islendingar eru bú-
settir í Tulsa í Oklahoma og enn
aðrir í Oklahoma City og
Kansas. Að því er Morgunblaðið
komst næst sakaði engan þeirra
í ofsaveðrinu, en fleiri íslending-
ar sem búsettir eru í Tulsa höfðu
svipaða sögu og Geirþrúður að
segja. Margir þeirra gistu ýmist
í holræsum og loftvarnabyrgjum
á mánudagsnóttina.
Að því er Vigdís Aðalsteins-
dóttir Taylor, ræðismaður í
Kansas, sagði í gær, sakaði eng-
an Islending í Wichita í Kansas
að henni vitandi, en þar ollu ský-
strókar töluverðu tjóni með þeim
afleiðingum að a.m.k. fímm
manns létust.
Lokahnykkur
kosningabaráttu
JOHN Prescott, aðstoðar-
forsætisráðherra Bretlands,
veitti í gær Donald Dewar,
leiðtoga Verkamannaflokks-
ins í Skotlandi, Iiðsinni sitt
á endaspretti kosningabar-
áttunnar til heimastjórnar-
þingsins nýja, en Skotar
ganga að kjörborðinu á
morgun. Prescott hélt ræðu
í Glasgow þar sem Verka-
mannaflokkurinn fékk
einnig Alex Ferguson,
knattspymusfjóra breska
liðsins Manchester United,
til liðs við sig, en andlit
Fergusons, sem er senni-
lega þekktastur skoskra
knattspymustjóra, prýðir
nýtt veggspjald flokksins.
Fyrr um daginn hafði
Dewar viðurkennt í fyrsta
sinn að Verkamannaflokkur-
inn væri reiðubúinn að
mynda stjóm með frjáls-
lyndum demókrötum að
Ioknum kosningum, en
Dewar hefur fram að þessu
haldið fast í vonina um að
flokkur sinn tryggði sér
sextíu þingsæti, sem senni-
lega myndi duga flokknum
til að mynda starfhæfa
minnihlutastjóra.
Reuters
Um 100.000
Kinverjar létust
af slysforum
Peking. Keuters.
ÁRIÐ 1998 létust um 100.000 Kín-
verjar af slysförum, við vinnu og í
umferðaróhöppum, að því er China
Daily skýrði frá í vikunni sem leið.
Þetta kemur fram í skýrslu sem
Efnahags- og viðskiptanefnd Kína
(SETC) birti nýlega. í skýrslunni
kemur ennfremur fram að flestir
hafi látið lífið í umferðaslysum, eða
78.067 manns, en umferðaróhöpp
voru alls 364.129 talsins. Samkvæmt
þessu hefur umferðaróhöppum í
Kína fjölgað um 13.8% frá árinu
1997.
I niðurstöðum nefndarinnar kem-
ur einnig fram að 14.660 manns hafi
látið lífið við námustörf og önnur
iðnaðarstörf árið 1998, en alls voru
óhöpp á þeim vettvangi 15.372 tals-
ins, sem nemur 16.6% fækkun á
slysum frá fyrra ári.
Þá fækkaði slysum við önnur
störf um 13.6% frá árinu 1997, en
árið 1998 létu 5.439 manns lífið við
störf í öðrum atvinnugreinar.
í skýrslu sinni hvatti SETC fyrir-
tæki í Kína til að „setja öryggi
starfsmanna í öndvegi jafnfætis til-
raun þeirra til að auka afköst við
framleiðslu."