Morgunblaðið - 05.05.1999, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
„ Morgunblaðið/Ásdís
EYÞORA Hjartardóttir tekur við viðurkenningu sinui úr hendi Björns
Bjarnasonar menntamálaráðherra.
Verzlingurinn Eyþóra Hjartardóttir
hlýtur Frelsispennann
„Vekur ungt fólk
til umhugsunar“
EYÞÓRA Hjartardóttir, nemi í
fímmta bekk Verzlunarskóla Is-
lands, hlýtur Frelsispennann, aðal-
verðlaunin í ritgerðarsamkeppni
Sambands ungra sjálfstæðismanna,
sem efnt var til fyrir skemmstu.
Tók hún við pennanum, ásamt 100
þúsund króna verðlaunafé, úr hendi
Björns Bjarnasonar menntamála-
ráðheiTa við athöfn á Vegamótum í
gær.
Tvær stúlkur úr Menntaskólanum
á Akureyri, Jóna Rún Daðadóttir í
ars Hanssonar til að ætla megi að
bann sé vænlegur kostur.
Leikmyndin var skemmtilega
stílfærð gamaldags stofa, búning-
arnir af einföldustu gerð, svo og
Ijósin, enda sýningin öll færanleg
og ætluð til sýninga á vinnustöð-
um. Hljóðmyndin var ágæt til síns
brúks en ruglingslegt að hljóðin
virtust ekki koma frá sviðinu, sem
lítið mál væri að kippa í liðinn.
Leikstjórnin var þétt, hröð og
snaggaraleg en nokkuð bar á því
að Gunnar Helgason hnyti um
texta í látunum.
Karl Agúst er án efa mikil-
virkasti höfundur gamanmála hér
á landi nú um stundir. Það leikur
enginn vafí á því að hann getur
skrifað skemmtilegan texta og
skapað aðstæður sem fá áhorf-
endur til að veltast um af hlátri ef
hann hefur tíma og svigrúm til
þess. Þátturinn er enda bráðfynd-
inn og grínið hittir beint í mark
og ákveðinn ferskleikabragur yfir
því. Aftur á móti verða vangavelt-
ur höfundar um föðurhlutverkið
svolítið útundan, þær eru ekki
ofnar nógu vel inn í efnið heldur
skiptist á annars vegar grín og
hins vegar ljúfsárir sprettir um
umönnun ungbarna. Þrátt fyrir
þennan annmarka er ekki að efa
að þátturinn fær áhorfendur til að
velta vöngum um hvernig föðurí-
myndin hefur þróast á þessari öld
og gerir þá sér meir meðvitandi
um hvaða áhrif feður í dag hafa á
sjálfsmynd sona sinna. Það er at-
hyglisvert að í verkinu er ekki
verið að velta upp tilvistarlegum
spurningum. Grannurinn er
traustur: Tilgangurinn með líflnu
er að eiga börn og ala þau upp.
Þátturinn undirstrikar að þó að
breytingarnar virðist ofurhægar
frá sjónarmiði okkar sem lifum
þessa tíma þá hefur okkur miðað
þó nokkuð áleiðis ef litið er aftur
um tvær kynslóðir. Áhorfendur
eiga án efa auðvelt með að setja
sig í fótspor persónanna því ef
þeir hafa ekki beina reynslu af
barnauppeldi eru þeir þó án efa
afsprengi þeirrar kynímyndar
sem hefur verið haldið að þeim.
Sveinn Haraldsson
fyrsta bekk og Eygló Svala Arnars-
dóttir í þriðja bekk, hlutu aukaverð-
laun fyrir athyglisvert framlag í rit-
gerðarsamkeppninni. Tómas Ingi
Olrich alþingismaður afhenti verð-
launin á sal skólans, Hólum, í gær.
I dómnefndinni var einhugur um
að veita Eyþóru aðalverðlaunin en
ritgerð hennar heitir Frelsið.
„Frelsi er eitthvað sem allir hafa
skoðun á. Það tengist svo ótal
mörgu,“ segir Eyþóra og bætir við
að verðlaunin hafi komið henni á
óvart, hún hafí fyrst og fremst
skrifað ritgerðina sér til gagns - og
auðvitað gamans. „Það var óvænt
ánægja að hreppa verðlaunin, þau
eru mjög vegleg."
Eyþóra hefur einu sinni áður tek-
ið þátt í ritgerðarsamkeppni. Það
var fyrir tveimur árum er hún hafn-
aði í 2.-5. sæti í keppni á vegum
danska sendiráðsins. Segir hún
helsta kostinn við keppnir af þessu
tagi vera að þær veki ungt fólk til
umhugsunar og hvetji það til að láta
skoðanir sínar í ljós.
Verðlaunahafínn er nemi á stærð-
fræðibraut og skellir upp úr þegar
blaðamaður spyr hvort hún sé ekki
komin út fyrir sitt svið. „Nei, nei,
alls ekki. Stærðfræðingum er ekk-
ert óviðkomandi!“
Þriðja viðurkenningin
Þetta er í þriðja sinn sem efnt er
til ritgerðarsamkeppni um
Frelsispennann og hefur Eygló
Svala, sem er á málabraut í MA,
ávallt hlottö viðurkenningu í sam-
keppninni. í fyrsta sinn voru það
fjórir nemendur sem deildu fyi-stu
verðlaunum og var hún ein þeirra.
A síðasta ári var þemað ísland
tækifæranna og hlaut hún þá einnig
aukaverðlaun fyrir sitt framlag.
„I ritgerðinni sé ég fyrir mér
ákveðna framtíðarsýn. Allur heim-
urinn hefur verið lagður í eyði, en
nokkrir einstaklingar hafa lifað af.
Þeir búa allir saman í eins konar
hvelfingu þar sem allt er þaulskipu-
lagt og hver hefur sitt hlutverk. Ein
stúlka í hvelfingunni veltir fyrir sér
hugtökunum frelsi og friður og
kemst að þeirri niðurstöðu að frels-
ið er mikilvægt," sagði Eygló Svala
um ritgerð sína.
Hún segist alltaf hafa verið að
semja eitthvað, mest í huganum,
það komist ekki allt niður á blað.
Auk þess sem hún hefur tekið þátt í
samkeppninni um Frelsispennann
síðustu þrjú ár hefur hún tekið þátt
í barnabókasamkeppni. „Ég skrifa
vonandi meira í framtíðinni, ég
stefni að því þegar fram líða stundir
að finna mér starf þar sem skriftir
koma við sögu,“ sagði Eygló Svala.
I dómnefndinni áttu sæti Björn
Bjarnason menntamálaráðherra,
Helga Bachmann leikkona, Margrét
Friðriksdóttir skólameistari, Birgir
Tjörvi Pétursson, ritstjóri Stefnis,
og Eyrún Magnúsdóttir, foi-maður
nemendafélags Kvennaskólans.
Hans Jörg Mammel á ljóðatónleikum í Salnum í kvöld
Lög eftir Schubert
við ljóð eftir Goethe
Morgunblaðið/Árni Sæberg
DRENGURINN við fótskör afa síns, animan fylgist með: Gunnar Hansson, Gunnar Helgason og Björk
Jakobsdóttir í hlutverkum sínuin.
Föðurbetrungar?
LEIKIjIST
Hafnarfjarðarleik-
li ú s i ð II e r in ó ð u r
og lláðvör
STÓLLINN HANS AFA
Höfundur: Karl Ágúst Úlfsson. Leik-
stjóri: Hilmar Jónsson. Leikmynd:
Finnur Arnar Arnarson. Hljóðmynd:
Margrét Ornólfsdöttir. Ljósahönn-
un: Kjartan Þórisson. Gervi: Sigríð-
ur Rósa Bjarnadóttir. Tæknimaður:
Jón Ingvi Reimarsson.
Þriðjudagur 4. maí.
MENNINGAR- og fræðslu-
samband alþýðu og Félag bóka-
gerðarmanna veittu Karli Ágústi
Ulfssyni fyrir réttu ári styrk til að
semja leikþátt um karlmanninn
og heimilið. Karl Ágúst tekur
þann pól í hæðina að einskorða
sig við fóðurímyndina, hvernig
hlutverk karlmannsins inni á
heimilinu erfíst og breytist frá
kynslóð til kynslóðar.
I leikþáttum sem þessum
sveiflast höfundur á milli tveggja
andstæðna. Annar póllinn er að
koma sjónarmiðum sínum á fram-
færi; snýst í raun um áróðursgildi
þáttarins. Hinn póllinn snýst um
lífsnauðsyn leiklistar - að efnið
veki áhuga áhorfenda. Áhrifa-
mest er hæfileg blanda af þessu
tvennu, verk sem er svo vel skrif-
að að áhorfendur skemmta sér
svo við að innbyrða boðskapinn
að þeir samsama sig jafnóðum því
sem þeim er innrætt.
Það er mjög erfitt að halda jafn-
vægi á línunni sem strengd er á
milli þessara andstæðu póla. Ef
höfundinum er of mikið niðri fyrir
tekur hann þá áhættu að verkið sé
andvana fætt; að rökleiðslan gangi
af því dauðu. Aftur á móti er mun
algengara að sjónarmið höfundar
kafni í gríni og glensi, leiklausnum
sem færa verkið frá kjamanum og
gera það að umgjörð í kringum
syo sem ekki neitt.
Hin þríeina persóna Sveins er
leikin af Gunnari Hanssyni, Gunn-
ari Helgasyni og Björk Jakobs-
dóttur. Gunnar Hansson sýndi
innilegan, hæglátan meðalmann -
hinn nýja karlmann. Björk Jak-
obsdóttir hélt að honum mjúku
gildunum og lék ömmu hans og
móður. Gunnar Helgason bjó til
þrjá skemmtilega karaktera: hina
hörðu hlið persónunnar Sveins,
föður hans og afa. Hann tók full-
mikið rými í leiknum þannig að í
raun beindist öll athyglin að per-,
sónum þeim sem hann skapaði.
Við hlið hans urðu Gunnar Hans-
son og Björk fulllitlaus. Það er
kannski ætlun höfundar að draga
tennurnar úr gömlu hörkutóls-
ímyndinni með háðinu en einhvem
veginn verður hinn nýi karlmaður
of óspennandi í meðfórum Gunn-
ÞÝSKI tenórsöngvar-
inn Hans Jörg Mammel
og píanóleikarinn Lud-
wig Holtmeier flytja
sönglög Franz
Schuberts við ljóð eftir
Johann Wolfgang von
Goethe á tónleikum í
Salnum í Kópavogi í
kvöld kl. 20.30.
Tilefni tónleikanna
er að á þessu ári verða
liðin 250 ár frá fæðingu
Goethes en að tónleik-
unum stendur þýska
menningarmiðstöðin
Goethe-Zentrum í
Reykjavík. Auk laga
Schuberts við ljóð
Goethes munu þeir félagar flytja
sönglög eftir Ludwig van Beet-
hoven, Carl Friedrich Zelter og
Carl Loewe.
„Náðum nánum tengslum við
skáldskaparanda Goet,hes“
„Við Ludwig Holtmeier gerðum í
íyrra upptöku á ljóðum Goethes við
lög Schuberts í húsi Goethes í
Weimar. Stofnunin „Weimarer
Klassik" stóð að upptökunni, en til-
efnið var tvíþætt - í ár er Weimar
menningarhöfuðborg Evrópu og
250 ár liðin frá fæðingu Goethes.
Fyrir þessa upptökudagskrá völd-
um við að sjálfsögðu
lög Schuberts við texta
Goethes, en einnig
nokkur lög eftir Carl
Friedrich Zelter, sem
var mikill vinur skálds-
ins. Við tókum upp á
heimili Goethes, sem er
haldið í upprunalegu
horfí, og spiluðum á
flygilinn sem Goethe
keypti sjálfur árið
1821. Með þessu náðum
við mjög nánum tengsl-
um við skáldskapar-
anda Goethes og tón-
listina," segir Hans
Jörg Mammel.
„Plötunni með þess-
ari upptöku var mjög vel tekið og í
kjölfar þess datt okkur í hug að
halda á þessu Goethe-minningarári
nokkra ljóðatónleika og eina þein-a
einmitt í höfuðborg Islands. Það
gleður okkur mjög að það skyldi
vera mögulegt," heldur Mammel
áfram.
I fréttatilkynningu segir að
Mammel hafí á síðustu ái’um eink-
um getið sér nafn sem konsert-
söngvari í Þýskalandi og nálægum
löndum. „Hann hefur sungið á
mörgum merkum tónlistarhátíðum,
m.a. í Utrecht, Schwetzingen, Jer-
úsalem, Wroclaw, Brúgge, Brussel,
Hans Jörg Manmiel
Vín og svo Reykjavík, þar sem hann
hlaut einróma lof fyrir söng sinn.
Mammel söng líka við mjög góðan
orðstír hlutverk Orfeos í sam-
nefndri óperu Monteverdis þegar
óperan var fiutt hér á landi árið
1993. Hann hefur haft gestasöngv-
arasamning hjá Borgarleikhúsinu í
Freiburg, Ríkisóperunni Unter den
Linden í Berlín og Óperuhátíðinni í
Múnchen," segir þar ennfremur.
Að þessu sinni er Hans Jörg
Mammel staddur hér á landi vegna
tónleikauppfærslu Kammerkórs
Kópavogs, barokksveitar og ein-
söngvara á ævintýraóperunni
Arthúri konungi, sem flutt verður í
Salnum 9. og 11. maí nk. undir
stjórn Gunnsteins Ólafssonar.
Ludwig Holtmeier hefur lokið
konsertprófí með besta vitnisburði
sem gefinn er í Sviss. Á liðnum ár-
um hefur hann haldið tónleika innan
og utan Þýskalands og tónlistar-
flutningur hans hefur margsinnis
verið tekinn upp fyrir útvarp og til
útgáfu á geisladiskum. Holtmeier er
forseti félagsins „Musik und Ást-
hetik“, auk þess sem hann gegnir
starfí kennara við Tónlistarháskól-
ann í Freiburg.
Forsala aðgöngumiða er í Tónlist-
arhúsi Kópavogs, Vedu í Hamraborg
og Eymundsson Kringlunni. Tón-
leikarnir hefjast kl. 20.30 í kvöld.