Morgunblaðið - 05.05.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999 35
TÖJVLIST
Sölvasalur Sólon ís-
I a n d u s
CARL OG JÓN MÖLLER
Píanó og rafpíanó. Birgir Bragason
bassa og Guðmundur Steingrímsson
trommur. Múlinn, þriðjudagskvöldið
2. maí 1999.
ÞAÐ er langt síðan maður hlust-
aði á þá Möller-bræður leika sam-
an á tvö píanó í Heita pottinum í
Duushúsi. Þá einsog nú var einn
flygill og einn Roland - og meira
að segja sami flygillinn; Steinwa-
yinn sem íslenskir djassleikarar
keyptu af Utvarpinu með hljóð-
færaleik og skenktu Heita pottin-
um sem arfleiddi Múlann að hon-
Menning-
arheimar
mætast
BÆKIIR
II a r ii a b ó k
SASHA
eftir Oddu Steinu Björnsdóttur. Æsk-
an. 1999 - 31 bls.
KYNÞÁTTAFORDÓMAR eru
með leiðinlegri löstum og oft birt-
ingarmynd djúpstæðrar ólgu sam-
félagsins. Þeir
nærast á þeirri
hugsun að einn
kynþáttur sé
öðrum æðri eða
rétthærri og svo
þjóna þeir oft
efnahagslegum
eða landfræði-
legum hagsmun-
Adda Steina um fáeinna Út-
Björnsdóttir valdra.
Barnasagan
Sasha eftir Öddu Steinu Björns-
dóttur er gefin út á alþjóðlegum
baráttudegi gegn kynþáttafordóm-
um. Æskan og Rauði kross Islands
standa sameiginlega að útgáfunni.
Hér er á ferðinni lítið kver um
ferðalag íslenskrar fjölskyldu í kaf-
sjó í Kasakstan. Hjón og sonur
þeirra verða fyrir því að missa bíl-
inn sinn út af veginum í ófærð. Inn-
fæddir koma þeim til hjálpar. Sag-
an fjallar að mestu um samskipti
sonarins og sonar fjölskyldu frá
Kasakstan, hvernig ólíkir reynslu-
heimar þeirra og menningarheimar
mætast. Hér er lögð áhersla á and-
stæðu kynþáttafordóma því að
samskiptin eru öll á jákvæðum nót-
um án átaka. I sögunni er leitt að
því líkum að hjörtunum líki saman í
Kasakstan og á íslandi og er gott
eitt að segja um þann boðskap.
Hitt er svo annað mál að Sasha
fjallar eiginlega frekar um mót
tveggja menningarheima, veraldar
borgarbarns og sveitabarns, en
mun á kynþáttum og leiðir nokkuð
hjá sér rætur kynþáttavanda. Bók-
in líkist því ýmsum skáldverkum
ísjenskum sem fjalla um árekstra
sveitar og þéttbýlis, forns tíma og
nútíma.
Söguflétta er ekki fyrirferðamik-
il enda vafasamt að slík flétta hent-
aði þeim aldurshópi sem sagan á
höfða til. Þó hygg ég að ekki hefði
skaðað að láta fleira gerast í sög-
unni. Persónur eru fáar en vandað
til þeirra.
Hér er á ferðinni lítil saga fyrir
yngstu lesendurna. Hún er laglega
skrifuð og af kunnáttu. Ekki veit
ég þó hversu sagan dugar sem
vopn í baráttunni gegn kynþátta-
fordómum nema sem jákvæð fyrir-
mynd. Hvorki ristir hún það djúpt
að hún veki til umhugsunar né er
efni hennar nægilega nærtækt.
Hins vegar stendur sagan ágæt-
lega fyrir sínu án þessa markmiðs.
Það er kannski fyrir mestu.
Skafti Þ. Halldórsson
___________LISTIR________
Píanóbræðurnir Möller
um. Hann hefur staðið víða ís-
lenskum djasspíanistum til af-
nota. Frá Duus-húsi lá leiðin í
Púlsinn, þaðan á Sólon, síðan á
Jómfrúna og nú aftur á Sólon þar
sem Jazzklúbburinn Múlinn hefur
haft aðsetur á annað ár.
Nú einsog þá þótti manni súrt í
broti að þeir bræður þyrftu að
nota rafpíanó og vonandi kemur
að því að tækifæri gefist til að
heyra þá leika dúetta á óraf-
mögnuð píanó - vel æfða og und-
irbúna.
Á hundrað ára afmælisári Duke
Ellingtons var við hæfi að hefja
tónleikana á I’m beginning to see
the light again. Jón sat við
Steinwayinn, en Carl við Roland-
inn og kynnti síðan bræðralag
Henry Manchinis áður en kom að
Blue Daniel Frank Rossolinis,
sem Carl hljóðritaði kornungur
með Gunnari Ormslev. Svo var
skipt um sæti og skellt undir nára
og fyrri hluti tónleikanna endaði
á ópus eftir Carl sem hann frum-
flutti í Norræna húsinu ásamt
strengjakvartetti. C.M.l nefnist
hann í handriti, en Sir Philip er
nafnið. Þetta er glettilega
skemmtilegt lag. Fullt af lífí og
gáska með norrænu ívafi og enn
meiri svíngari í flutningi bræðr-
anna á Sólon en í Norræna hús-
inu bresti mig ekki minni.
Eftir hlé léku þeir félagar m.a.
söngvadans Jóns Múla, Gettu hver
hún er? og var Jón aftur sestur við
flygilinn en Carl Rolandinn. Þeir
léku dansinn nokkuð hratt, en aft-
ur á móti var ballöðustíllinn ríkj-
andi í eina laginu sem þeir bræður
léku án Guðmundar og Birgis:
Stella by starlight og höfðu þá enn
skipt um sæti. Þeir hefðu að vísu
mátt sleppa Stellu því þeir voru
greinilega ekki undirbúnir að leika
án hrynsveitarinnar. Svo var end-
að á valsi: Alice in wonderland með
eligans.
Þeir bræður eru ólíkir píanist-
ar á margan hátt og liggur mun-
urinn kannski ekki síst í skapferl-
inu. Carl er expressjónískur,
kröftugur en Jón impressjónísk-
ari, innhverfari. Jón leikur leik-
andi fallegar línur í spuna sínum
og síðan koma oft blokk-
hljómakaflar; samt er ekki mikill
Shearing í honum. Carl er nær
boppinu og getur verið eih'tið
fönkaður á silveriskan máta á
góðri stund.
Birgir og Guðmundur studdu
þá bræður dyggilega og var
sveiflan örugg hjá þeim félögum
og vel heppnaðir sólóar þeirra
skreyttu tónlistina, sem var á
stundum dálítið einlit hjá þeim
bræðrum þetta kvöld.
Vernharður Linnet
SKOGARSJOÐURINN
Markmið Skógarsjóðsins
• Markmið sjóðsins er að stuðla að skógrækt á Islandi.
• Sjóðurinn styður hvers konar átak til að auka landgæði með ræktun
trjágróðurs á Islandi.
• Sjóðurinn styrkir einstaklinga og félög til skógræktar með afhendingu
trjáplantna.
• Sjóðurinn kaupir og leigir lönd á völdum skógræktarsvæðum á Islandi til
úthlutunar til einstaklinga og félaga sem vilja stunda skógrækt.
• Sjóðurinn styrkir óvenjuleg, sérstök eða sérhæfð rannsóknarverkefni á sviði
skógræktar.
• Sjóðurinn styrkir gerð skógræktarskipulags einstaklinga og félaga.
AÐSTANDENDUR SKÓGARSJÓÐSINS:
Stofnandi: Skógræktarfélag Reykjavíkur
Verndari: Forseti Islands herra Ólafur Ragnar Grímsson
Fjárgæsluaðili: Búnaðarbankinn
Auglýsing þessi er kostuð af:
BÚNAÐARBANKINN
-Traustur banki
Nú auglýsir Skógarsjóðurinn eftir þeim einstaklingum og félögum sem áhuga hafa á
upplýsingum um úthlutunarreglur og möguleika sjóðsins til styrkveitinga.
Skógarsjóðurinn Nafn
Skógræktarfélagi Reykjavíkur _________________
Fossvogsbletti 1 Heimilisfang
108 Reykjavík ________ _______
Póstnr. Staður
Netfang
Kennitala Sími