Morgunblaðið - 05.05.1999, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Alþingis-
kosninga-
sýning í
Slunkaríki
KRISTJÁN Guðmundsson mynd-
listarmaður opnar fjórðu „alþingis-
kosningasýningu" sína í Slunkaríki
á Isaíírði laugardaginn 8. maí ki.
16. Að þessu sinni sýnir Kristján
málverk og teikningar.
I fréttatilkynningu segir að
stjórn Slunkaríkis leggi ríka
áherslu á stöðugleika og jafnvægi í
málefnum sínum og landsmanna
allra og eru alþingiskosningasýn-
ingar Kristjáns tillegg beggja aðila
að það markmið megi.
Fyrirtæki Kristjáns, „Silver
press“, hefur einnig valið þennan
dag sem útgáfudag bókarinnar
Tólf drápu kver eftir Halldór Ás-
geirsson með rekaristum eftir Jón
Sigurpálsson og mun höfundur af
því tilefni lesa upp úr bókinni.
Sýningin stendur til 30. maí.
Slunkaríki er opið fímmtudaga til
sunnudags kl. 16-18.
♦ ♦♦
Sýningum
lýkur
Hafnarborg
SÝNINGU á nýjum verkum
bandarísku listakonunnar Margar-
et Evangeline sem flest eru unnin á
álpiötur, lýkur mánudaginn 10. maí.
Sýningin er opin alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 12-18.
KVENNAKÓRINN Vox Feminae ásamt stjórnandanum, Margréti Pálmadóttur.
Málsvörn stjórnmálaferils
BÆKUR
F r æ ð i i’ i t
SJÁLFSTÆÐIÐ ER SÍVIRK
AUÐLIND
eftir Ragnar Arnalds. 1998. Reykja-
vfk, Háskólaútgáfan.
RAGNAR Arnaids hefur verið
áberandi stjórnmálamaður á ís-
landi um áratuga skeið. Hann kem-
ur inn í stjórnmál í gegnum Pjóð-
varnarflokkinn og hefur verið þjóð-
legur andmælandi aðiidarinnar að
Atlantshafsbandalaginu alla tíð.
Hann hefur staðið vinstra megin í
stjórnmálum, lengst af verið þing-
maður Alþýðubandalagsins og for-
maður þess. Hann hefur nú ritað
eins konar málsvörn stjórnmálafer-
ðs síns, apologiu skoðana sinna í
stjórnmálum þar sem sjálfstæðið er
rauði þráðurinn.
Það má að vísu ekki skilja þessi
orð sem svo að Ragnar Arnalds sé
að gera grein fyrir og verja allan
sinn stjórnmálaferil. Það er hann
ekki að gera. Hann beinir athygl-
inni að sambandi íslands við Evr-
ópubandalagið og öryggismálum Is-
lands í aldarlok. Hann leitast við að
horfa fram á veginn en mér virðist
þungi bókarinnar sé í fortíðinni,
sögu íslands á þessari öld og
reynslu Ragnars sjálfs af stjórn-
málum. Þess vegna er bókin
málsvörn fremur en framtíðarsýn,
lit til fortíðar fremur en vegvisir inn
í framtíðina. Bókin er góð lesning,
vel skrifuð, skýr og skipuleg. Hún
er markvert framlag til rökræðu
um stjórnmál samtímans.
Það er samt svo að mér virðist
höfundur hafa rangt fyrir sér í þeim
ályktunum sem hann vill draga af
þeim staðreyndum sem hann vekur
athygli á. Þetta þarf ekki að koma á
óvart enda eru ályktanir í stjórn-
málum yflrleitt umdeilanlegar en
þær eru samt misvel undirbyggðar.
Mér virðist ekki takast sem skyldi
að forsendurnar verði nægilega
sennilegar til að ályktanirnar verði
sterkar og ótvíræðar.
Það má 1 raun skipta
efni bókarinnar í
tvennt. Kaflar eitt til
sjö fjalla um Evrópu-
sambandið og tengsl
Islands við það. Átt-
undi kaflinn og sá síð-
asti snýst síðan um ör-
yggismál. Eins og sjá
má af þessu er stærsti
hluti bókarinnar um
hagsmuni Islands
gagnvart Evrópusam-
bandinu.
Það er engum blöð-
um um það að fletta að
tengsl Islands við Evr-
ópusambandið eru
sennilega mikilvæg-
asta mál íslenzkra stjórnmála þessi
árin og verður það næstu áratug-
ina. I vissum skilningi má segja að
tengsl Islands við umheiminn hafí
verið mikilvægasta hagsmunamál
landsins frá upphafí vega, Islend-
ingar vildu tryggja siglingar til Is-
lands með samningum við Noregs-
konung 1262. Á þessari öld hefur
ísland orðið sjálfstætt ríki árið 1918
og síðan lýðveldi árið 1944.
Tvenns konar verkefni hafa verið
mikilvægust fyrir íslenzka ríkið á
lýðveldistímanum. Annars vegar
eru það öryggismál. Árið 1918 lýsti
ísland yfir ævarandi hlutleysi en í
síðari heimsstyrjöldinni áttuðu
ráðamenn sig á því að sú afstaða
væri landinu engin vörn og í kjölfar
stríðsins gerði Island varnarsamn-
inginn við Bandaríkin og gekk í
NATO. Þessi skipan hefur haldizt
síðan. Ragnar Arnalds hefur verið
andstæðingur þessarar skipanar og
notar síðasta kafla bókar sinnar til
að draga fram hefðbundin rök gegn
þessu fyrirkomulagi öryggismála.
Þar kemur ekkert nýtt fram um
fortíðina og lítið hugað að nútíðinni.
Hitt meginverkefni íslenzka rík-
isins í utanríkismálum hefur verið
að tryggja efnahagslega hagsmuni
Islendinga í umheiminum. Það hef-
ur verið gert með því að taka þátt í
margvíslegu alþjóðlegu samstarfi
enda eru Islendingar háðari utan-
ríkisviðskiptum en
flestar þjóðir aðrar.
Einangrunarhyggja
gagnvart alþjóðlegum
viðskiptum er hættu-
legri Islendingum en
öðrum þess vegna. ís-
lenzka ríkið hefur
tryggt hagsmuni sína
með aðild að EFTA,
GATT, EES og fjölda-
mörgum öðrum al-
þjóðastofnunum.
Hvernig ætli Ragnar
méti þessa reynslu
sem við höfum af al-
þjóðlegu viðskiptasam-
starfi og hver ætli hafi
verið viðhorf hans þeg-
ar taka þurfti ákvarðanir um þau?
Hann hefur setið á þingi þegar
ákvarðanir hafa verið teknar. Það
kemur ekki fram hvaða afstöðu
hann hafði til EFTA en hann var á
móti EES og ítrekar andstöðu sína
við þann samning en leitast þó við
að meta kosti hans og galla. Mér er
ekki alveg ljóst hvort hann er enn
andstæður þeim samningi.
Stóra málið sem Ragnar leitast
við að rökstyðja skoðanir sínar á er
andstaða við aðild að ESB. Enginn
lesandi bókarinnar fer í grafgötur
um þá skoðun Ragnars að hann tel-
ur að aðild að ESB væri stórslys
fyrir Islendinga og leitast við að
rökstyðja það. Nú er það svo um
flókin mál eins og aðild að ESB að
þar eru fá augljós sannindi. Því
fylgja bæði kostir og gallar að
verða aðilar þess sambands. Ragn-
ar tínir fram ýmislegt sem telja
mætti galla en sér á því fáa kosti.
Ef lesinn er þriðji kafli bókarinnai'
þá blasir við að höfundurinn sér fáa
ef nokkra kosti á því að verða hluti
af ESB. Hann útskýrir samruna-
þróunina sem verk stjórnmála-
mannanna og embættismannanna
gegn vilja almennings. Þetta er vill-
andi ef ekki beinlínis rangt. Ragn-
ari virðist alveg fyrirmunað að
skilja að venjulegum Islendingi geti
fundist það eftirsóknarvert að vera
íbúi í Evrópusambandinu um leið
og hann er íslendingur.
Mér virðist hann líka ekki greina
áhrifaþættina í þróun ESB og horfa
á þetta nánast eins og samsæri
stjórnmálamanna og embættis-
manna. En málið er miklu flóknara.
Flest þau atriði sem eru tiltekin í
bókinni til marks um valdasókn
ESB eru ákvarðanir Evrópudóm-
stólsins. Það er alveg rétt að Evr-
ópudómstóllinn hefur tekið ákvarð-
anir sem hafa umtalsverð áhrif í
allri álfunni. En það má hins vegar
ekki gleyma því að hinn aðalvalda-
aðilinn í ESB eru þjóðríkin og þær
stjórnir sem þar fara með völd
hverju sinni.
Rök Ragnars gegn aðild Islands
að ESB duga engan veginn. Til að
sjá það er sennilega auðveldast að
benda á að fullveldishugtakið sem
hann notar er ákaflega frumstætt.
Það er rétt hjá honum að aðild að
ESB mun skerða fullveldi íslands.
Við verðum bundnir af sameiginleg-
um reglum ESB. En það leiðir að
líkindum til þess að við getum haft
meiri áhrif á hagsmunamál okkar í
Evrópu. Þannig að það að afsala sér
hluta fullveldisins gæti leitt til þess
að við réðum meiru um örlög okkar
en ella væri. Það mætti því draga
þá ályktun að fullveldið ykist með
því að gefa eftir hluta þess. Þetta
kann að virðast mótsagnakennt en
er það ekki. ísland er smáríki sem
er háð greiðum viðskiptum við um-
heiminn. Það veltur á vilja annarra
en okkar sjálfra hvort þessi við-
skipti eru greið. Ein augljós leið til
að tryggja þetta er að við göngumst
undir sömu reglur og aðrir. Það
höfum við gert með EES-samn-
ingnum. Það eru mun sterkari rök
fyrir því að stíga skrefið til fulls inn
í ESB en hægt er að finna í þessari
bók.
Það er rétt að ítreka það að þetta
ætti að vera kærkomin bók áhuga-
mönnum um stjórnmál hvort sem
þeir eru samþykkir skoðununum
sem í henni eru rökstuddar eða
ekki. Hún er skýr og ljós og lipur-
lega skrifuð.
Guðmundur Heiðar Frímannsson
Vox Fem-
inae syngur
í Krists-
kirkju
KVENNAKÓRINN Vox Fem-
inae heldur vortónleika í
Kristskirkju við Landakot á
morgun, fimmtudag, kl. 20.30.
Stjórnandi er Margrét J.
Pálmadóttir og orgelleikari tíl-
rik Ólason. Tónleikarnir bera
yfirskriftina „Da Pacem
Domine - in diebus nostris" sem
útleggst á íslensku „Gef oss
frið, Drottinn, nú á vorum dög-
um“ og eru haldnir til styrktar
Orgelsjóði Kristskirkju.
Á efnisskrá eru m.a. verk
eftir Brahms, Palestrina,
Deutschmann, Rheinberger og
Þorkel Sigurbjörnsson.
-----♦-♦♦----
Smásagna-
samkeppni
Vikunnar
VIKAN stendur fyi’ir smásagna-
samkeppni annað árið í röð. Verð-
launasagan verður birt í Vikunni og
sigurvegarinn fær frá Vikunni og
Úrvali-Ötsýn tveggja vikna ferð til
Gran Canaria veturinn 1999-2000.
Vikan kaupir einnig birtingarréttinn
að fleiri sögum sem berast í keppn-
ina.
I fyrra bárust 200 sögur í keppn-
ina og varð Ægir Hugason í 1. sæti.
í öðru sæti varð Guðmundur Ólafs-
son og í þriðja sæti Gerður Kristný.
Skilafrestur er til 10. júní. Sögun-
um þarf að skila undir dulnefni og
senda með í lokuðu umslagi dul-
nefni, rétt nafn og símanúmer.
Æskileg lengd er 3-4 vélritaðar síð-
ur.
Dómnefnd skipa Aðalsteinn Ás-
berg Sigurðsson, foiTnaður Rithöf-
undasambandsins, Kristín Marja
Baldursdóttir rithöfundur og Sigríð-
ur Arnardóttir, ritstjóri Vikunnai-.
Ragnar
Arnalds