Morgunblaðið - 05.05.1999, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVTKUDAGUR 5. MAÍ 1999 43
UMRÆÐAN
Af hverju
kjósum við Sam-
fylkinguna?
ÞAÐ STYTTIST í
Alþingiskosningar en
næstkomandi laugar-
dag, 8. maí, verður kos-
ið um það hvort Islend-
ingar búi við óbreytt
ástand eða ekki á næsta
kjörtímabili. Samíylk-
ingin er eina stjóm-
málaaflið sem á mögu-
leika á því að verða
verðugur keppinautur
Sjálfstæðisflokksins,
sem hefur verið ráðandi
afl í stjórnmálasögu Is-
lendinga alla þá öld sem
nú er að líða. Atkvæði
greidd öðmm stjóm-
málaflokkum en Sam-
fylkingunni era því mið-
ur tfl þess fallin að styrkja stöðu
hægriaflanna á kostnað félagshyggj-
unnar, því þeir flokkar eiga ekki
möguleika á að nálgast Sjálfstæðis-
flokkinn hvað stærð varðar, að
minnsta kosti ekki á næstu áram.
Samfylkingin á möguleika á því og
þess vegna breyta vinstrimenn rétt
með því að kjósa Samfylkinguna.
Af hverju Samfylking
vinstrimanna?
Það er rétt að rifja upp aðdrag-
anda þess að Samfylkingin varð tíl.
Saga vinstrihreyfíngarinnar á Is-
landi hefúr alla þessa öld verið þym-
um stráð, saga átaka og sundrangar.
A meðan klofningur á klofning ofan
einkenndi vinstrivænginn styrktu
hægriöflin stöðu sína sameiginlega í
einum stjómmálaflokki, Sjálfstæðis-
flokknum. Áhiif þessa skipulags í
stjómmálunum hefur gert það að
verkum að jöfnuður og réttlæti ein-
kennh- ekki á sama hátt íslenskt
þjóðfélag og það gerir á Norðurlönd-
um þar sem stórir jafnaðarmanna-
flokkar hafa mótað samfélagið í
krafti stærðar sinnar og langrar
stjórnarsetu. íslenskt þjóðfélag ein-
kennist meira af hægri áherslum og
á síðasta kjörtímabfli hafa þær stór-
lega aukist. Góðærið nýtist sumum
en öðram ekki, þeir ríku verða ríkari
og þeir fátæku fátækari. Útgjöld til
félags- og velferðarmála era hér
minni en víðast í Evrópu, fjár-
magnstekjuskattur er hinn sami á
spamað almenns launafólks og stór-
fjái-magnseigenda og fjöldi manns
býr hér undir fátæktarmörkum á
meðan aðrir lifa góðu lífi af sameig-
inlegri auðlind allra landsmanna, án
þess að greiða sann-
gjamt gjald í sameigin-
lega sjóði. Samfylking-
arfólk vill stöðva þessi
áhrif og gera veg fé-
lagshyggjunnar meiri í
íslensku samfélagi. Það
gerist með því að nýta
samtakamáttinn o'g
þess vegna hafa þau
stjómmálaöfl sem
standa að Samfylking-
unni ákveðið að sam-
eina kraí'ta sína í einni
hreyfingu.
Nýtum sögulegt
tækifæri - kjósum
Samfylkinguna!
Samfylkingin varð til
svo jöfnuður og réttlæti mættu í
meira mæli einkenna íslenskt þjóð-
félag. Það gerist ekki á meðan Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur þau tök að
vera svo til einráður um landstjóm-
ina. Sagan sýnir að litlir flokkar
sem fara í stjórnarsamstarf með
Kosningar
Samfylkingin varð
til, segir Bryndís
Hlöðversdóttir, svo
jöfnuður og réttlæti
mættu í meira mæli
einkenna íslenskt
þjóðfélag.
Sjálfstæðisflokknum fara illa út úr
því, enda ekki við öðru að búast þar
sem stærri flokkurinn ræður frekar
ferðinni þegar á hólminn er komið.
Nú eiga vinstrimenn á íslandi kost
á því að nýta sögulegt tækifæri og
verja atkvæði sínu í stjórnmála-
hreyfingu af þeirri stærðargráðu að
hún getur breytt samfélaginu í átt
til meiri jafnaðar. Það tækifæri hef-
ur ekki verið fyrir hendi í Alþingis-
kosningum hér á landi í áratugi -
notum þessar sögulegu kosningar
til að breyta áherslunum í íslensku
samfélagi. Setjum x við S og kjósum
Samfylkinguna hinn 8. maí.
Höfundur er alþingismaður fyrir
Samfylkinguna.
Bryndís
Hlöðversdóttir
íbúar Grímsness og
Grafningshrepps
Kjörstaður vegna alþingiskosninga 8. maí 1999
verður í Ljósafossskóla.
Kjörstaður opinn miLLi kl. 12.00-20.00.
Kjörnefndin
Sumartiminn er kominn
Skrifstofur VÍS eru
opnar frá 8-16 alla
virka daga í sumar.
VÁTRYGGINGAFÉLAG íslands hf
- þar sem tryggingar snúast um fólk
Skrifstofur VÍS í útibúum Landsbankans á Höfn í Hornafirði og í Ólafsvík eru opnar frá 9:15-16:00.
Sími 560 5000 í þjónustuveri VÍS er opinn frá 8:00-19:00 alla virka daga.
ÞÚ ERT Á BESTA ALDRI
40 - 60 ára
OKKAR SÉRFRÆÐINGAR - ÞÍN ÁVÖXTUN
Fólk á aldrinum 40-60 ára þarf að huga að stöðu sinni við
starfslok. Einnig er mikilvægt að tryggja hámarksávöxtun
sparifjár án verulegrar áhættu með blönduðu safni verðbréfa.
Viðskiptavinir okkar geta fengið aðstoð sérfræðinga okkar sem
sjá þá um að kaupa og selja verðbréf samkvæmt fyrirfram
ákveðinni fjárfestingarstefnu.
z Hafðu sambancL ogfáðu bækl-
° inginn okkar „Þúertá besta aldri“.
5 Þarfinnur þú ítarlegri upplýsingar
í um spamaðarkosti okkar.
SÍMI 525 6060
Við bendum þeim sem eru á
aldrinum 40-60 ára að kynna
sér sérstaklega:
• Fjárvörslu og eignastýringu
• Eignarskattsfrjáls bréf
• Kosti í reglubundnum spamaði
• Möguleika í lífeyrissparnaði
• 2% viðbótar lífeyrissparnað
• Skattaafslátt vegna hlutabréfakaupa
• Alþjóðasjóði Búnaðarbankans
• ÍS-15 hlutabréfasjóðurinn
BUNAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
- byggir á trausti
Ilafnarstræti 5 www.bi.is verdbref@bi.is