Morgunblaðið - 05.05.1999, Síða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Er þetta árang-
ur fyrir alla og*
stöðugleiki?
ÍBÚUM á Austur-
landi hefur fækkað
um 700 manns á kjör-
tímabilinu og virðist
ekkert lát á fólks-
flutningum úr fjórð-
ungnum. Sjálfstæðis-
flokkurinn boðar „ár-
angur fyrir alla“ og
stöðugleika. Er
byggðaþróun fólks-
flutninga „árangur
fyrir alla“? Ríkir efna-
hagslegur stöðugleiki
á heimilum láglauna-
fólks með 15-20 þús-
und krónur í útborguð
vikulaun? Ríkir efna-
hagslegur stöðugleiki
hjá fjölmörgu landsbyggðarfólki
sem situr uppi með verðlitlar hús-
eignir sínar vegna rangrar
byggðastefnu? Verðhrun á hús-
eignum landsbyggðarfólks er
þungur skattur sem fólkið hefur
orðið fyrir. Er það „árangur fyrir
alla“? Ríkir efnahagslegur stöðug-
leiki hjá mörgum öldruðum og ör-
yrkjum sem hafa þolað kjara-
skerðingar í mesta góðæri Is-
landssögunnar, hjá fjölmörgum
bændafjölskyldum sem búa við
lífskjör undir fátæktarmörkum?
Ríkir efnahagslegur
stöðugleiki hjá út-
gerðaraðiljum sem
þurfa að greiða yfir
100 krónur í veiði-
leyfagjald fyrir
þorskílóið í leigu og
800 krónur fyrir afla-
hlutdeildina? Ríkir
efnahagslegur stöðug-
leiki hjá mörgum
sveitarfélögum sem
stöðugt safna skuld-
um? Ríkir efnahags-
legur stöðugleiki í
mörgum sjávarbyggð-
um þar sem kvótinn er
horfinn eða hvílir á
mjög ótryggum
grunni? Er þetta „árangur fyrir
alla“? Nei. Þetta er ástand og þró-
un sem er dýrkeypt og óviðunandi
fyrir alla.
Störfum á Austurlandi
hefur fækkað
Framsóknarflokkurinn lofaði 12
þúsund nýjum störfum íýrir síð-
ustu kosningar og frambjóðendur
hans segjast hafa efnt loforðið og
að störfm séu orðin 14 þúsund sem
orðið hafa til á kjörtímabilinu. En
hvar eru störfin? Ekki á Austur-
Gunnlaugur
Stefánsson
Við bjóðum hærri
skatta, Fylkingin
og Vinstri grænir
b
ÞEGAR þetta er
skrifað er tæp vika til
kosninga. Flokkamir
hafa kynnt stefnuskrá
sína og bjóða þeir allir
gull og græna skóga
nema Sjálfstæðisflokk-
urinn. Mönnum finnst
hann bjóða lítið, reynd-
ar em fréttamennimir
alveg í vandræðum
með að finna engin lof-
orð. Reyndar taka þeir
ekki eftir stærsta lof-
orðinu sem gefið er
fyrir þessar kosningar,
sem er stöðugleiki. Jó-
hönnu Sigurðardóttur
var mikið niðri fyrir í
útvarpi um daginn þegar hún sagði
að Sjálfstæðisflokkurinn byði ekki
Kosningar
Fréttamenn virðast
ekki taka eftir stærsta
loforðinu sem gefið hef-
ur verið fyrir þessar
neitt nema óbreytt
ástand, - óbreytt
ástand, er það ekki það
sem við viljum? Þessi
staða héfur aldrei
komið upp í íslenskum
stjórnmálum áður, að
það skuli vera heilla-
spor að kjósa óbreytt
ástand. Hver vill hafna
áframhaldandi kaup-
máttaraukningu, lágri
verðbólgu og lægri
sköttum, ég bara spyr?
Vinstriflokkamir
Fylkingin og Vinstri-
grænir boða hærri
skatta, þeir segja þetta
ekki undir rós, þeir
hreinlega koma beint fram öfugt
við Ingibjörgu Sólrúnu, og boða
hærri skatta á mýs og menn. Eng-
inn kemur til með að sleppa.
Lesandi góður, viltu borga hærri
afborganir af bílnum þínum, íbúð-
inni, námsláninu, fá minna fyrir
þúsundkallinn í Bónus og borga
hærri skatta? Ef svarið er nei þá er
valið auðvelt á laugardaginn kem-
ur, X-D.
Ólafur
Bergmann
kosningar, segir Ólafur
Bergmann, en það er
loforð Sjálfstæðisflokks-
ins um stöðugleika.
fV
GÓLFEFNABÚÐIN
Borgartúni 33
i^jyaeða flísar
í jpæða parket
i^jjyóð verð
^jyóð þjónusta
Höfundur er véla- og
iðnrekstrarfræðingur.
V erðmætasóun
Kosningar
Samfylkingin heitir
því, segir Gunnlaugur
Stefánsson, að setja
lífskjör og búsetu
fólksins á landsbyggð-
inni í forgang.
landi. Þar hefur störfum fækkað.
Er það Islandsmet í efndum kosn-
ingaloforða? Nei, það er vitnis:
burður um ranga byggðastefnu. I
þeirri byggðaáætlun sem Alþingi
samþykkti að ríkisstjórnin skyldi
starfa eftir á kjörtímabilinu stóð að
opinberum störfum skyldi fækka á
höfuðborgarsvæðinu en fjölga á
landsbyggðinni. Niðurstaðan varð
að ríkisstjórnin fjölgaði störfum á
höfuðborgarsvæðinu um 450 en
fækkaði þeim á landsbyggðinni um
30. Tæpast getur slík þróun talist
árangur fyrir alla? Ljóst er að
byggðaáætlanir hafa reynst mark-
laust plagg. Eftir þeim er ekkert
farið og engar líkur á að svo verði
með gildandi áætlun. Því ber nauð-
syn til að lögbinda byggðaáætlanir,
svo einhver von sé til þess að eftir
þeim verði farið.
Lífskjör og búseta í forgang
Samíylkingin heitir því að setja
lífskjör og búsetu fólksins á lands-
byggðinni í forgang fái hún til þess
kjörfylgi í kosningunum. Samíylk-
ingin heitir því að setja kjör fólks-
ins sem hefur orðið útundan hjá
ríkisstjóminni í forgang, aldraða og
öryrkja og láglaunafólkið til sjávar
og sveita. Samíylkingin vill að beitt
sé öflugri byggðastefnu með skýr-
um skilaboðum um að byggðina í
landinu skuli efla með fjölbreyttu
atvinnulífi, traustri menntun, jöfn-
un húshitunarkostnaðar, átaki í
samgöngumálum, eflingu opinberr-
ar þjónustu á landsbyggðinni og
réttlátu fiskveiðistjómunarkerfi.
Byggðaþróunin er ekki náttúralög-
mál, heldur er hún fóst í vítahring.
Þá stöðnun verður að rjúfa með
kraftmikilli byggðastefnu sem
byggist bæði á framkvæði heima-
manna og stjórnvalda.
Sögulegt tækifæri
Nú er sögulegt tækifæri, að fé-
lagshyggjufólki auðnist að samein-
ast í öfiugri stjómmálahreyfingu
Samfylkingarinnar í baráttu fyrir
bættum kjörum almennings, að fé-
lagshyggjufólk sameinist í öflugri
Samfýlkingu sem setur lífskjör og
búsetu í forgang. Um það er kosið.
Höfundur cr sóknarprestur í
Heydölum og skipar 2. sæti á
franiboðslista Samfylkingarinnar
á Austurlandi.
NÚ HAFA tölur lit-
ið dagsins Ijós um
hugsanlegt verðgildi á
þeim afla sem hent er í
hafíð. 30 til 40 milljarð-
ar króna sem fara í
súginn árlega. Eg trúi
ekki öðru en að þetta
veki hroll hjá stuðn-
ingsfólki ríkisstjórnar-
flokkanna eins og hjá
okkur sem viljum
breytingar. Þetta er
sanngirnismál og hlýt-
ur að vera kappsmál
allra sem vilja láta
taka sig alvarlega. Að
rauntölur um brott-
kast verða að koma
upp á yfirborðið. Sama gildir hvort
um er að ræða eitt tonn eða
100.000 tonn. Allt brottkast er sóun
og slæm umgengni um auðlindina.
Landsmenn verða að gera sér
grein fyrir því að í næstkomandi
kosningum er síðasta tækifærið til
að knýja fram breytingar á fisk-
veiðistjórnunarkerfinu. Frjálslyndi
flokkurinn er eini valkosturinn fyr-
ir þá sem vilja breytingar. Annars
festist gjafakvótinn í sessi og verð-
ur eign á grandvelli hefðar. Veiði-
leyfagjald stoppar þá þróun ekki.
Gjafakvótinn verður varanleg eign
sæaðalsins. Hefðin útilokar rétt-
mætum eigendum að ná til sín afla-
heimildunum, nema greiða úr ríkis-
sjóði beinharða peninga fyrir
hvern sporð. Veiðiheimildir sem fá-
einir fengu gefins.
Landsfundi Sjálfstæðisflokksins
er lokið. Hvað stendur upp úr? Jú,
nú breiðir forsætisráðherra út
faðminn á móti lýðnum og segir
„sjá ég boða yður mikinn fógnuð,
nú er ég tilbúinn að hlusta á ósætt-
ir ykkar, því kosningar era í nánd“.
Það er ánægjuefni þegar forsætis-
ráðherra opnar hug sinn fyrir
þeirri birtu sem skín frá sjávarút-
vegsmálum Frjálslynda flokksins.
Það þarf ekki að rökræða frekar
nauðsyn þess að stoppa brottkast-
ið. Allt sjávarfang sem veiðist skal
borið á land til verðmætasköpunar.
Einnig gefur það vísindamönnum
betri spO á hendi þegar spáð er í
veiðiþol fískistofna. Þegar ég segi
allt sjávarfang á ég ekki bara við
fisk sem veiðist, líka sæbjúgu,
krabba, krossfíska o.fl. Allt er
þetta verðmætt hráefni ef menn
kunna að versla með það. Sannið
þið tO, um leið og Hafró fær frið til
að vinna undirbúningsvinnuna,
spretta upp menn sem vilja verka
og flytja út þessa afurð. Menn hafa
komið frá Austurlöndum fjær til
Islands og falast eftir fiskafskurði
svo sem þunnildum, hnakkastykkj-
um og hausum. Era tilbúnir að
borga vel ef rétt verk-
un er við höfð. En fá
ekki vegna þess að við
Islendingar leyfum að
þessu sé fleygt fyrir
borð á verksmiðjutog-
uranum. Sumir halda
að þetta komi þorskin-
um til góða. Sé viðbót-
arfæða fyrir hann. En
ég veit að hann japlar
ekki á þessu. Það era
botnlæg dýr eins og
kuðungar, maðkar eða
í besta falli rækja sem
gæða sér á þessu, en
stór hluti fúlnar og
mengar sjóinn.
Formaður LÍÚ tek-
ur stórt upp í sig þegar hann segir
að Davíð Oddsson fari með öfug-
mæh og sé í raun að gera grín að
Stjómmál
Það er ánægjuefni þeg-
ar forsætisráðherrann
opnar hug sinn, segir
Björgvin Egill Arn-
grímsson, fyrir þeirri
birtu, sem skín frá
sj ávarútvegsmálum
Frjálslynda flokksins.
þúsundum íslendinga þegar hann
segir að ósátt ríki um fisk-
veiðistjónunarkerfíð. Það ríldr líka
ósátt um það ofríki sem LIÚ hefur
á Hafró. Efla þarf Hafrannsókna-
stofnun. Gera hana sjálfstæða svo
þekking vísindamannanna fái að
njóta sín. Eg átti þann draum, að í
Gufunesi risi byggðakjami sjávar-
vísinda. Þar yrðu allar stofnanir
sem tengdust sjávarútvegi. Hafnar-
mannvirki sem þar era fyrir fengju
nýtt og betra hlutverk. Aburðar-
verksmiðjan færð austur fyrir fjall í
heilnæmara loftslag og framleiddi
enn betri áburð en hún gerir í dag.
Þetta er sjálfsagt fjarlægur draum-
ur eftir einkavæðinguna.
Agætu landsmenn, það hnígur
allt að sama branni. Ef Frjálslyndi
flokkurinn verður ekki í næstu rík-
isstjóm verða engar breytingar.
Eða í fýrsta lagi eftir fjögur ár ef
við gefiim okkur að næsta ríkis-
stjóm sitji út sitt kjörtímabil. Þjóð-
félagið tapar milljóna tugum, jafn-
vel milljarða tugum, ár hvert sem
ekkert er aðhafst.
Höfundur er í miðstjórn
Ftjálslynda flokksins.
Björgvin Egill
Arngrímsson
Sunnlendingar, tryggjum Sjálf-
stæðisflokknum þrjá þingmenn
NÚ ERU nokkrir
dagar til kosninga. Við
vitum að stjórnmál lúta
eigin lögmálum og fáu
er að treysta. Skjótt
skipast veður í lofti.
Skoðanakannanir
benda til þess að staða
Sjálfstæðisflokks á
Suðurlandi sé sterk, og
að flokkurinn njóti
mikils trausts. En
kosningar vinnast ekki
á skoðanakönnunum
heldur með ábyrgri af-
stöðu og samstöðu. Við
gætum spurt á þessari
stundu: „Um hvað verð-
ur kosið 8. maí?“ Ef-
laust er það margt, en
ef kosið er um traust stjórnmála-
flokka er líklegt að við þurfum ekki
að óttast úrslitin. Verði kosið um
aukna velmegun í landinu, ættu úr-
slit að geta orðið okkur hagfelld.
Verði kosið um stöðugleika, stefnu-
festu og öryggi, ættu
kjósendur að vera lík-
legri til að horfa fyrst
til okkar áður en aðrir
kostir verða skoðaðir.
Vilji kjósandinn byggja
upp kaupmátt sinn,
forðast ringulreið í
stjórnmálalífi og auka
möguleika sína og
sinna og fjölga tæki-
færunum, ætti Sjálf-
stæðisflokkurinn við
núverandi aðstæður að
vera álitlegur kostur.
Framundan eru mikil
tækifæri fyrir okkur
Sunnlendinga, við bú-
um á gjöfulu svæði til
sjávar og sveita og höf-
um yfir miklum mannauði að ráða.
Það bendir allt til þess að tuttug-
asta og fyrsta öldin geti orðið Sunn-
lendingum öld tækifæranna. Sunn-
lendingar nú er tækifærið! - Grípum
það, en glutrum því ekki niður. Til
Kosningar
Verði kosið um aukna
velmegun í landinu, tel-
—
ur Olafur Björnsson
að Sjálfstæðisflokkur-
inn ætti við núverandi
aðstæður að vera álit-
legur kostur.
þess að svo megi verða er nauðsyn-
legt að tryggja Sjálfstæðisflokknum
3 þingmenn í kosningunum 8. maí
nk. Kjósum áfram ábyrga og
trausta forystu í landsmálunum. x-
D á kjördag.
Höfundur er hæstaróttarlögmaður
og skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðis-
flokksins á Suðurlandi.
Ólafur
Björnsson