Morgunblaðið - 05.05.1999, Qupperneq 56
56 MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Igrunduð sjávar-
útvegsstefna
KÆRU samborgar-
Þið eruð kannski
eins og ég hef verið
lengi, hundleið á öOum
kosningaloforðunum
og langtölum þing-
manna um eigið ágæti
og hvað allt hafí verið
gott og vel gert hjá
þeim síðasta kjörtíma-
bil, hvort sem menn
eru í stjóm eða stjóm-
araðstöðu. Svo fer
maður á kjörstað og
kýs einhvem líklegan
og uppgötvar að ekk-
ert hefur breyst.
Þetta er í fyrsta
skipti sem mér finnst raunverulega
að við getum breytt einhverju.
Eg er ekki að segja að sá flokkur
sem ég ákvað að helga krafta mína
rísi upp, geri hallarbyltingu og geti
ráðið öllu eftir kosningar. Nei al-
deilis ekki. En ég segi: Við getum
samt breytt heilmiklu, og bara það
að þessi flokkur kom fram með vel
ígrundaða sjávarútvegsstefnu hef-
ur nú þegar breytt hinu pólitíska
landslagi. Nú segjast allir stjórn-
málaflokkar vilja gera breytingar á
sjávarútvegsstefnunni kannski
meira í orði en á borði. Það var sko
aldeilis ekki á dagskrá hjá Fram-
sóknarflokknum eða Sjálfstæðis-
flokknum bara fyrir stuttu. En það
kom nú reyndar í ljós á framboðs-
fundi í Norðurlandskjördæmi
eystra að tvíhöfði ætlar í raun og
vem ekki að breyta neinu svo sem.
Enda kannski ekki von í kjördæmi
Samherja og UA.
Ef þið ákveðið að kjósa Frjáls-
lynda flokkinn - og því fleiri sem
ákveða að gera það því betra -
emð þið að senda skýr skilaboð um
að þið viljið raunvemlega breyta
þessari helstefnu í sjávarútvegs-
málum. Þá fer það ekkert á milli
mála að þið viljið breytingar. Þessi
flokkur stendur nefnilega fyrst og
fremst fyrir því mjög svo brýna
máli.
En það er ekki bara það, þama
em líka mörg önnur góð mál sem
þarf að huga að. Mig langar að
tæpa á nokkrum sem mér þykja
vel þess virði að gefa gaum. Það
fyrsta sem ég nefni er: Skýr fjöl-
skyldustefna, ganga út frá að
grunneining samfélagsins sé
kjamafjölskyldan, og hlú að þeirri
einingu. Jafnréttisfræðsla verði
tekin upp í gmnnskólum, ég get
ekki annað en tekið undir það sem
kona. Að í staðinn fyrir atvinnu-
leysistryggingasjóð komi verkefna-
trygging, þ.e. það verði ekki
greiddar atvinnuleysisbætur ein-
göngu, heldur verði menn látnir
gera eitthvað vitlegt, fara í skóla,
námskeið, eða annað uppbyggilegt,
læra betur að takast á við sjálfa sig
þegar færi gefst. Aukin áhersla á
heilbrigðismál, færa heilsugæsluna
til sveitarfélaganna, og styrkja
sjálfstæði sjúkrahúsanna. Sterkari
sveitarfélög, sem geta tekið sín eig-
in mál fastari tökum, ekki veitir af.
Síðast en ekki síst: samþykkja
Kyoto-sáttmálann og endurskoða
áætlanir um stórfelldar virkjanir á
hálendinu, og umfram allt virkari
náttúmvemd. Þetta er allt skyn-
samlegt og raunhæft. Umhverfís-
mál og eyðing úrgangs, bæði líf-
ræns og ólífræns, verður brátt mál
málanna, ef við ætlum ekki að
kafna í rusli.
Eg hef líka persónulega áhuga á
að endurskoða fangelsismál, og
hverju við viljum ná með innilokun
einstaklingsins, ég held að þessi
mál séu í miklum molum, og þurfí
að skoða þau mjög vel. Það er til
dæmis fullvissa mín að fíkniefna-
neytendur eiga ekki
heima í fangelsi, þeir
eiga heima í lokuðum
meðferðarstoftiunum,
þar sem þeir fá um-
önnun og hjálp til að
takast á við lífið að
nýju. Það þarf að átta
sig á því að þeir em
sjúkhngar en ekki
glæpamenn.
En fyrst og fremst
er það sjávarútvegur-
inn, lifibrauð okkar
flestra hér, það sem
tilvera okkar er
Ásthildur Cesil grandvölluð á, sem
Þórðardóttir þarf að kippa í lag til
að stöðva fólksflóttann
suður.
Þessi ungi flokkur er ekki bund-
inn neinum gömlum loforðum eða
kvöðum og ef við náum inn á þing
mun rödd okkar heyrast og það er
Stjórnmál
Sameinaðir stöndum
-----------3---------
vér, segir Asthildur
Cesil Þórðardóttir,
sundraðir föllum vér.
mikilvægt. Þið þekkið kannski sög-
una um maurinn Emil, hann hékk á
nokkmm háram á hálsinum á stór-
um fíl. Allir hinir maurarnir stóðu
íýrir neðan og kölluðu kyi-kt’ann
Emil, kyrkt’ann Emil! Allir vita að
maurinn heitir Emil, en það eina
sem menn vita um fílinn er að hann
var með hár á hálsinum. Þannig
getur sá litli orðið aðalatriðið þótt
hann virðist ekki merkilegur í byrj-
un%
Ég gæti aldrei beðið nokkum
mann að gera neitt gegn eigin
sannfæringu, þess vegna segi ég:
Skoðið málefnin og trúverðugleik-
ann og ákveðið út frá því hvort þið
viljið leggja málefninu lið. Erað þið
kannski tilbúin að ieggja í smáæv-
intýri með okkur, og sjá hvað ger-
ist? Vegna þess einfaldlega að:
Frjálslyndi flokkurinn er eini
flokkurinn sem vill taka á kvóta-
málunum NIJNA. Oft var þörf en
nú er nauðsyn. Þið þekkið sjálf óör-
yggið og óttann í fólkinu í kringum
ykkur. Menn halda að sér höndum.
Er ekki betra að gera eitthvað?
Jafnvel eitthvað jafn hrikalegt og
að setja x við Frjálslynda? Það
yrðu ágætis skilaboð inn á næsta
Alþingi Islendinga. Skilaboð sem
segðu: Vestfirðingar vilja sjá að-
gerðir. Vestfirðingar em að
springa úr óþolinmæði og vilja sjá
bréytingar. Vestfirðingar vilja
fiska í sínum eigin sjó. Ekki á
morgun, ekki hinn, heldur NUNA!
Ef fram fer sem horfir er þetta í
síðasta skipti sem við kjósum til Al-
þingis sem Vestfirðingar. I næstu
kosningum verðum við í samkralli
við Vestlendinga og Guð má vita
hverja. Þá verður Reykjavíkur-
valdi komið á af fullum þunga. En
kannski verður þá enginn eftir til
að spyrna við fótum. Er það þannig
sem við viljum hafa það? Þá mun
fokið í flest skjól.
Þess vegna segi ég; við þurfum
að hefja stríðsöxina á loft og verja
tilvemgmndvöll okkar, berjast fyr-
ir þeim sjálfsögðu réttindum að
mega yrkja okkar eigin jörð og
nýta okkar eigin auðlindir. Ekki
láta binda hendur okkar á bak aft-
ur, og láta meina okkur að brauð-
fæða okkur. Við viljum ekki vera
bónbjargarmenn eða þurfalingar.
Við viljum ekki láta skammta okk-
ur peninga, menningarhús eða op-
inbera stofnun af náð og miskunn.
Við viljum fá að hafa það heima í
héraði sem við eigum og ráða sjálf
hvernig við vinnum úr því.
HALELÚJA.
Og þess vegna segi ég aftur og
enn: Sameinaðir stöndum vér,
sundraðir föllum vér.
Með baráttukveðju,
P.S. Ég ætla að segja ykkur dá-
lítið í trúnaði, þið verðið að lofa að
segja engum frá því, en ég held ör-
ugglega að Sighvatur Björgvinsson
ætli að kjósa mig. Ég hitti hann um
daginn og þegar hann vissi að ég
væri frambjóðandi með stóru effi
þá horfði hann á mig þýðingar-
miklu augnaráði og sagði: „Maður
þarf nú ekki endilega að kjósa
flokk þótt maður sé á framboðslist-
anum.“
Höfundur er fjórði innður á lista
Frjálslynda flokksins á
Vestfjörðum.
Egkýs
framsókn
I KOSNINGUNUM U
sem fram fara á laug-
ardaginn er landslagið
í stjórnmálunum að
mörgu leyti breytt frá
því sem gerðist fyrir
fjórum ámm. Þar
skiptir mestu máli að
línur hafa skýrst hvað
grandvallarstefnur
varðar í hinu pólitíska
litrófi. Nú hafa kjós-
endur val um tvo
flokka á vinstri vængn-
um, einn flokk til hægri
og Framsóknarflokkr
inn. Framsóknarflokk- Einar
urinn hafnar öfgum til Skúlason
hægri og vinstri, stað-
setur sig á miðjunni og beitir skyn-
semi og raunsæi í hverju máli.
Öflugt atvinnulíf, stöðugleiki
og framfarir
í kosningastefnuski’á Framsókn-
arflokksins fyrir þessar kosningar
er byggt á stöðugleika og framför-
um. Þar ber íyrst að nefna fjöl-
breytt og öflugt atvinnulíf um allt
Kosningar
Framsóknarflokkurinn,
segir Einar Skúlason,
staðsetur sig á miðjunni
og beitir skynsemi og
raunsæi í hverju máli.
land, sem hlýtur að vera undirstaða
bættra kjara í félags- og velferðar-
málum. Við viljum halda áfram
sókn í atvinnumálum og tryggja
fjölbreytt og öflugt atvinnulíf um
allt land. Ný tækifæri felast meðal
annars í þekkingariðnaði, vetnis-
framleiðslu, ferðaþjónustu auk
hinna hefðbundnu atvinnuvega
landsmanna.
Bætt kjör
barnafjölskyldna
Framsóknarflokkurinn leggur
mikla áherslu á bætt kjör barna-
fjölskyldna í kosningastefnuskrá
sinni. Við viljum gefa út sérstök
barnakort sem tryggi foreldrum kr.
30.000 í skattafslátt á hverju ári.
Einnig er það áhersla á lengingu
fæðingarorlofs, að per-
sónuafsláttur verði
millifæranlegur að
fullu milli samvistar-
fólks og að fram fari
heildarendurskoðun á
skattkerfinu með -
hagsmuni fjölskyld-
unnar í huga. Fjöl-
skyldan er undh’staða
samfélagsins og því
viljum við tryggja
samheldni og styrk-
leika hennar af öllum
mætti.
Menntun er lykill
að lífsgæðum
I menntamálum
mun Framsóknarflokkurinn eftir
sem áður stefna á fullt jafnrétti til
náms óháð efnahag og búsetu.
Framlög til menntamála eru fjár-
festing til framtíðar og mikilvægt
er að tryggja hænri framlög til
málaflokksins á öllum stigum svo
við komumst upp að hlið annan-a
OECD-ríkja hvað styrkleika
menntakerfisins varðar. I þessu
skyni viljum við framsóknarmenn
hækka framlögin jafnt og þétt svo
aukningin verði orðin tveir millj-
arðar í lok kjörtímabilsins.
Framsóknarflokkurinn mun
áfram standa gegn kröfu Sjálfstæð-
isflokksins um að skólagjöld verði
lögð á nemendur í Háskóla Islands
og í öðrum ríkisreknum háskólum
og ungh’ framsóknannenn leggja á
það þunga áherslu að ráðuneyti
menntamála komi í hlut Framsókn-
arflokksins í næstu ríkisstjórn sem
hann á aðild að.
Merktu X við B á kjördag
Framsóknarflokkurinn er fram-
sækinn miðjuflokkur, sem hafnar
öfgum og treystir á raunsæi og
skynsemi í lausnum hinna sameig-
inlegu mála. Sú skýi’a staða sem
komið hefur upp milli hægri- og
vinstriaflanna í kosningunum hefur
enn styrkt stöðu flokksins sem
miðjuflokks í íslenskum stjórnmál-
um. Ég bið þig, kæri kjósandi, að
velja öfgalausa miðjustefnu, öflugt
atvinnulíf og stöðugleika, aukna
áherslu á fjölskylduna og jafnrétti
til náms, kjósa framsókn og merkja
X við B á laugardaginn.
Höfundur er varnfornmður Sam-
bands ungra framsóknarmanna.
Lítil kvótasaga
HVAÐ með litla
kvótasögu til mótvægis
við hvað málflutningur
gjafakvótasinna getur
verið fjarri sannleikan-
um og fullur af blekk-
ingum? Liggur þeim
enda mikið við að verja
vondan málstað og gíf-
urlega fjárhagslega
hagsmuni. Grein þing-
manns Sjálfstæðis-
flokksins á Reykjanesi,
Árna Ragnars Árna-
sonar, í Mbl. 30. apríl
sl. er í þessum anda en
þar segir hann m.a.:
„Ýmsir telja úthlutun
aflaheimilda gjöf til fá-
menns hóps og því þjóðfélagslegt
ranglæti. Ég tel þetta sjónarmið
ekki á rökum reist.“
Skoðum nú hvemig fullyrðingar
frambjóðandans standast eitt af
fjöldamörgum dæmum úr raun-
veruleikanum:
Fimm systkini frá Ólafsfirði,
þrír bræður og tvær systur, erfðu
útgerðarfélag eftir foreldra sína.
Félagið rak skuttogara og lítinn
Valdimar
Jóhannesson
bát. Bræðurnir vildu
gjarnan eignast fyrir-
tækið. Þeir keyptu því
hlut annarrar systur
sinnar, 20%, á 30
milljónir króna sem
greiðist á 10 áram.
Gengið var frá sölunni
27. janúar 1992 en við
söluna töldu bræðurn-
ir ekki rétt að greiða
fyrir kvótann. Hann
væri sameign þjóðar-
innar samkvæmt lög-
um. Var það tekið gott
og gilt.
Líður nú til ársloka
1996 þegar fyrirtækið
sameinast öðm út-
gerðarfélagi. Eigið fé félagsins
nam 70 milljónum 31. desember
1996 skv. ársreikningi. En nú
verða mikil tíðindi. Þegar nýr dag-
ur rennur 1. janúar 1997 verður
eigið fé fyrh’tækisins skyndilega að
verðmæti 1.216 milljónir króna.
Hafði vaxið um litlar 1.146 millj. kr
nýársnóttina. Veiðiheimildirnar
era nú orðnar verðmæt eign sem
eigendur félagsins fá í sinn vasa!
Kvótinn
Með því að kjósa þessa
menn aftur, segir
Valdimar Jóhannes-
son, munu kjósendur
hefja siðleysi og rang-
læti á stall.
Hvert systkinanna sem enn áttu
sinn hlut fær þvi 304 milljónir
króna í sinn hlut greiddan í hluta-
bréfum í hinu nýja fyrirtæki eða tí-
faldan hlut systur sinnar, sem er
kennari á höfuðborgarsvæðinu.
Einn bróðirinn var einnig kennari
syðra. Hann var ekki að tvínóna við
hlutina og seldi bréfin um hæl og
var ekki skráður fyrir einni krónu í
útgerðarfyrirtækinu að nokkram
mánuðum liðnum.
Systirin fékk 30 milljónir fyrir
sinn hlut án kvóta en bróðir hennar
fékk 304 milljónir fyrir sinn hlut
með kvóta. Þetta telur þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi
flokksins í sjávarútvegsmálum ekki
vera gjöf til fámenns hóps eða
þjóðfélagslegt ranglæti! Hvernig
er hægt að rökræða við svona
menn? Ætla kjósendur á Reykja-
nesi að láta bjóða sér málflutning
af þessu tagi?
Víst er að þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins mun hlotnast verðugur
sess í sögunni fyrir það að hunsa
dóm Hæstaréttar í kvótamálinu
mínu og virða ekki eiða sína að því
að halda stjórnarski’ána. Hæsti-
réttur felldi þann dóm að kvóta-
kerfið stríddi gegn ákvæðum
stjórnarskrárinnar um jafnræði og
atvinnufrelsi. Það traflaði ekki
þinglið Sjálfstæðis- og Framsókn-
arflokka, sem samtaka eins og
strengjabrúður hertu aðeins kvóta-
tökin á þjóðinni.
Með því að kjósa þessa menn
aftur munu kjósendur hefja sið-
leysi og ranglæti á stall. Ég skora á
kjósendur að fella réttlátan dóm
yfir þessum mönnum með því að
kjósa F-hstann, sem einn flokka
býður jafnræði, réttlæti og skyn-
semi í fiskveiðistjórninni.
Höfundur er í 1. sæti lista Frjáls-
lynda flokksins á Reykjancsi.