Morgunblaðið - 05.05.1999, Page 61

Morgunblaðið - 05.05.1999, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ __________UMRÆÐAN__________ Ymstristjórn = skatta- hækkanir og1 atvinnuleysi HINN 8. maí göng- um við íslendingar að kjörborðinu og veljum þá ríkisstjóm sem að á að koma okkur farsæl- lega inn í nýja öld. Við verðum að gera það upp við okkur hvemig við viljum sjá framtíð- ina fyrir okkur. Viljum við að ný öld taki á móti okkur með vinstristjórn með hækkandi sköttum og auknum skuldum eða hægristjóm með Sjálfstæðisflokkinn 1 fomstu og áframhald- andi stöðugleika í þjóð- félaginu? Loforðalistar! Þessa dagana sjáum við auglýs- ingar í blöðum, heyrum viðtöl við stjómmálamenn í ljósvakamiðlun- um og inn um bréfalúguna streyma inn loforðalistar frá öllum framboð- um sem bjóða sig fram fyrir Alþing- iskosningarnar. Flestir flokkar boða betri tíð ef þeir komast til valda, þeir segja að skattamir muni lækka, skuldirnar lækki og við eig- um eftir að hafa það betra en við höfum það í dag á tímum góðæris. En mörg em loforðin og misjöfn og vitað er að ekki fá allir flokkarnir það vald sem þarf til þess að koma sínum loforðum í framkvæmd. Utanríkisstefna Iitla vinstra aflsins! Eftir að hafa skoðað stefnu hins nýja Vinstra - grænaframboðs þá komst ég að því að þama er á ferð flokkur með nýjar um- búðir utan um sig en innihaldið er það sama og hefur verið einkenn- andi fyrir vinstriflokk- ana á íslandi. Þai-na á ég við þá stefnu sem þeir kalla utanríkismál. Þar segja þeir frá því að þeir vilji að við segjum okkur úr Atlantshafs- bandalaginu og varnar- liðið fari sem fyrst af landinu. Þátttaka okkar starfí Atlantshafs- bandalagsins skipth- okkur giáðarlegu miklu máli, þátttakan hefui- auðveldað okkur til muna þau samskipti sem við eigum við vestræn ríki ásamt því að tryggja öryggi okkar. Kostir við veru varnarliðsins! Vera varnaliðsins á landinu hefur í gegnum árin skilað okkur gríðar- legum tekjum og einnig hefur það margsinnis komið okkur til hjálpar með tækjum sínum, t.d. við björgun úr sjávarháska. Og seint gleyma Vestmannaeyingar þeirri aðstoð sem varnarliðið veitti þeim er eld- gosið hófst á eynni 1973. Þessu öllu vilja vinstrimenn kasta burt og gera okkur að einhverjum hlutlausum friðarhippum úti í ballarhafí. Það sem vinstri menn hafa greinilega ekki gert sér grein fyrir er að með hvarfi varnarliðsins þarf ríkissjóður að sjá á eftir gríðarlegum fjármun- um. Samkvæmt upplýsingum frá vamarmálaskrifstofu utanríkisráðu- neytisins voru gjaldeyristekjur af varnarliðinu 1995 137,3 milljónir Stjórnmál Atkvæði greitt öðrum en Sjálfstæðisflokkn- um, segir Kjartan Ólafsson Vídó, er ávísun á aukna skatta og skuldir. bandaríkjadala eða 9.061.800.000 milljónir kr. og í janúar 1999 unnu 852 Islendingar hjá varnarliðinu. Þama er á ferðinni gríðarlegt fjár- magn sem vinstrimenn vilja kasta út um gluggann og auka þar með atvinnuleysi í landinu. En hvernig hyggjast þeir ná þessum peningum til baka inn í ríkissjóð? Það er að- eins ein leið til þess að ná þessum peningum aftur og það er með skattahækkunum. Það virðist hafa loðað við ríkisstjórnir sem vinstri- menn hafa átt aðild að, að á þeim tíma hafa skattar hækkað upp úr öllu valdi og ríkisafskipti aukist. Þarna er á ferðinni stórhættuleg stefna sem ber að varast. Valið er einfalt! Hinn 8. maí næstkomandi verður valið einfalt. Atkvæði greitt öðmm en Sjálfstæðisflokknum er ávísun á aukna skatta og skuldir. Vöndum val okkar og setjum X við D og ti-yggjum þannig áframhaldandi stöðugleika í þjóðfélaginu. Höfundur er fjölbrautaskólanemi. Kjartan Ólafsson Vídó MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999 61 Atvinna handa öllum FRAMSOKNARFLOKKURINN Vertu með á miðjunni Kjartan, Árni, Drífa, Ólafur. Vaxtarbroddurinn fylgir stefnu Sjálfstæðisflokksins. X-D á Suðurlandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.