Morgunblaðið - 05.05.1999, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999 65*
FRETTIR
Holtarahátíð
GLATT var á lijalla á fyrstu Holtarahátíðiuni.
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir
aldraða kl. 13-17.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl.
12.10 í safnaðarheimilinu. Orgel-
leikur á undan. Léttur málsverður
á eftir.
Grensáskirkja. Samverustund
eldri borgara kl. 14-16. Biblíulest-
ur, samverustund, kaffíveitingar.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Starf eldri borg-
ara í dag. Farið verður í ferðalag
upp á Kjalarnes kl. 13. Kyrrðar-
og fyi-irbænastund kl. 18.
Neskirkja. Mömmumorgunn kl.
10-12. Kaffi og spjall. Opið hús fyr-
ir eldri borgara kl. 15-17. Skoðum
myndir úr vorferð. Umsjón Kristín
Bögeskov, djákni.
Seltjarnarneskirkja. Kyi'rðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra, opið hús í dag kl. 13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum
er hægt að koma til presta safnað-
arins.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyr-
irbænir. Léttur málsverður í safn-
aðarheimilinu á eftir.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnai'
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl.
16.30.
Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbæna-
efnum í kirkjunni og í síma
567 0110. Léttur kvöldverður að
bænastund lokinni. Fundur Æsku-
lýðsfélagsins kl. 20.
Vídalínskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar-
stund í hádegi í kirkjunni kl. 12-
12.30. Æskulýðsstarf, eldri deild
kl. 20-22 í minni Hásölum. Kl. 20-
21.30 íhugun og samræður í safn-
aðarheimilinu í Hafnarfjarðai'-
kirkju. Leiðbeinendur Ragnhild
Hansen og sr. Gunnþór Ingason.
Landakirkja Vestmannaeyjum.
Morgunsamvera foreldra ungra
barna kl. 10. Bænar- og kyrrðar-
stund í hádeginu kl. 12.05. Aglow-
fundur í safnaðarheimihnu kl. 20.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Kl.
18.30 fjölskyldusamvera sem hefst
með léttri máltíð á vægu verði. Kl.
19.30 er kennsla og þá er skipt nið-
ur í deildir. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Njarðvíkurkirkja. Foreldramorg-
un verður 5. maí kl. 10.30 í safnað-
arheimilinu. Baldur Rafn Sigurðs-
son.
Hólaneskirkja, Skagaströnd.
Mömmumorgunn í Fellsborg kl.
10.
HOLTARAHÁTÍÐ verður haldin í
Gullhömrum, Iðnaðarmannahús-
inu, 15. maí nk. Miðar verða seldir
í versluninni Trélist, Listhúsinu í
Laugardal og einnig við inngang-
inn. Hófið hefst kl. 20.30.
I fréttatilkynningu segir: „Það
var á haustdögum árið 1996 að
hugmynd kviknaði um að gaman
væri að stefna saman þeim fl)ú-
um er bjuggu í Holtahverfi í
Reykjavík á árunum í kringum
1940 og voru þær íbúðir við Há-
teigsveg. Hafist var handa við að
fá fólk í undirbúningsnefnd og
voru 2 íbúar frá þessum árum úr
hverri götu í nefndinni þ.e. göt-
urnar voru Háteigsvegur, Ein-
holt, Meðalholt, Stórholt, Stang-
arholt.
Holtarahátíðin var síðan f Iðnað-
armannahúsinu (Gullhömrum) í
maí 1997. Skemmst er frá að segja
að aðsókn fór fram úr björtustu
vonum nefndarfólks og var mikil
ánægja með framtakið. Þar hittist
fólk sem ekki hafði sést í áratugi
og mikið var talað, hlegið og mörg
bernskubrek rifjuð upp. Lista-
meun uppaldir í hverfinu komu
fram og fóru á kostum, má þar
nefna Omar Ragnarsson, sem
samdi brag af þessu tilefni, Helenu
Eyjólfsdóttur, Ragnar Bjarnason
og Pétur Kristjánsson.
En það voru lflía margir sem
ekki sáu sér fært að mæla og
vegna þessa fólks og einnig hversu
vel tókst til, hefur verið ákveðið að
halda aðra Holtarahátíð 15. maí
nk. á sama stað; í Iðnaðarmanna-
húsinu.“
-ALl.TAf= GITTHVAO I
mbl.is er lifandi fréttamiðill sem birtir stöðugt nýjar fréttir. Hlustendur þessara stöðva fá
þvf ávallt ferskar, áreiðanlegar og vandaðar fréttir frá belsta fréttamiðli landsins á Netinu.
Fréttimar verða lesnar reglulega á þessum tfma á öllum stöðvunum þannig að þú missir
ekki af neinu á meðan. Hlustaðu á góða tónlist og áreiðanlegar og nýjar fréttir á
Létt 96,7 Gullinu 90,9 og Klassík 100,7.
Xétt 967