Morgunblaðið - 05.05.1999, Page 81
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999 81
I DAG
BRIDS
llm.vjilii (in0iiiiiniliir
l'áll Aniar.voii
AUSTUR á eina drottn-
ingu og flata skiptingu.
Sem eru ekki spil, sem
maður vill dveija lengi yfir.
En það var ekki á valdi
austurs að stjórna hraðan-
um í spilinu.
Norður
* ÁK105
¥ G64
* K7
* DG86
Vestur Austur
AG4
* 8752
♦ DG10843
*5
A 8763
¥ D109
♦ 65
* 7432
Suður
♦ D92
¥ ÁK3
♦ Á92
♦ ÁK109
Suður vakti í fyi-stu hendi
á tveimur gröndum (20-22
HP) og eftir ianga og þreyt-
andi sagnröð varð hann loks
sagnhafi í sjö laufum. Aust-
ur hafði sýnt sögnum tak-
markaðan áhuga og þegar
makker hans spilaði út
tíguldrottningu bjóst hann
við að spilið tæki fjótt af. En
sagnhafa virtist ekkert
liggja á. Hann horfði vel og
lengi á blindan og taldi á
fingnim sér.
Það ei-u aðeins tveir spil-
ai’ai- í heiminum sem ekki
eru í vanda staddir þegar
þeir hugsa sig lengi um.
Annar er Bretinn Andy
Robson, en hinn er íslensk-
ur. Þessi var hvorugur
þeirra. Þar með var áhugi
austurs kveiktur og hann
ákvað að nota jamann til að
telja punkta. í biindum sá
hann 14, sjálfur átti hann 2,
en sagnhafi hafði iofað
minnst 20. Með útspilinu
hafði makker sýnt 3, en þá
var aðeins einn punktur eft-
ir í stokknum. „Jæja, makk-
er á þá spaðagosann," hugs-
aði austur, en fylltist þó
engri sérstakri bjartsýni við
þá uppgötvun.
Loks kom hreyfing á
sagnhafa: Hann drap á tíg-
ulkóng og tók tvisvar
tromp. Spilaði svo tígulás og
trompaði tigul hátt í borði.
En nú var austur viðbúinn -
hann undirtrompaði!
,Athyglisvert,“ hugsaði
sagnhafi oggaf nú svolítið í.
Hann tók AK í hjarta, en
ekki kom drottningin. Þá
spilaði hann trompi á blind-
an, spaða úr borði og svín-
aði auðvitað níunni. Suður
dró þá rökréttu ályktun af
Undirtrompun austurs að
hann væri illa aðþrengdur
með hjartadrottningu og
gosann fjórða í spaða. Önn-
ur skýring var vart sjáan-
leg.
Þegar suður hafði jafnað
sig efth- áfallið hrósaði hann
austri fyrir glæsilega vörn.
(Sem er mjög snjallt bragð
þegai- maður klúðrai- borð-
leggjandi spilum, því það
dregur athyglina frá eigin
heimsku.) „Þetta vai- ein-
falt,“ svaraði austur. „Ég
kunni ekki við að leggja
mig, svo ég ákvað að hugsa
um spilið."
Arnað heilla
ÁRA afmæli. í dag,
i/U miðvikudaginn 5.
maí, verður níræð Ragn-
heiður Þorgeirsdóttir frá
Helgafelli, nú til heimilis
að Skólastíg 14, Stykkis-
hólmi. Hún og eiginmaður
hennar, Hinrik Jóhanns-
son, verða að heiman á af-
mælisdaginn.
fT A ÁRA afmæli. í dag,
t) \/ miðvikudaginn 5.
maí, verður fimmtugur
Helgi Eyjólfsson, Eini-
bergi 9, Hafnarfirði. Eig-
inkona hans er Sveindís
Sveinsdóttir. Þau hjónin
taka á móti gestum laugar-
daginn 8. maí í Frímúrara-
húsinu, Ljósatröð 2, Hafn-
arfirði, milli kl. 17-20.
HÖGNI HREKKVÍSI
COSPER
SKILURÐU hvernig fólk getur haft atvinnu
af því að veiða?
skák
Bxel 21. Bd6 er mát) 21.
bxa3 - Re8 22. Rf5 - Rdf6
23. Re7 - Dxh5 24.Rxc8 -
l insjou Margcir
1’étursNon
Staðan kom upp
á opnu alþjóðlegu
móti í Gel-
senkirchen í
Þýskalandi í vor.
Þjóðverjinn L.
Arnold (2.365)
hafði hvítt og átti
leik gegn H.
Grooten (2.405),
Hollandi.
18. Rxf7! - Kxf7
19. Dxe6+ - Kf8
20. a3 - Bxa3
(Svartur verður að
skila manninum til
baka því 20. -
Dg6+ 25. Kb2 - Dxg2 26.
De7+ - Kg8 27. Dxd8 -
Dxf2+ 28. Bd2 og svartur
gafst upp.
HVÍTUR leikur og vinnur
STJÖRNUSPA
cftir Franccs Drake
NAUT
Afmælisbarn dagsins: Þú
þarft að hafa nóg að starfa
og um ieið stöðuga tilbreyt-
ingu svo þér leiðist ekki.
Hrútur
(21. mars -19. aprfl)
Það er sjálfsagt að lífga upp
á tilveruna með léttu gríni ef
þú gætir þess bara að það sé
ekki á annarra kostnað.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft ekki að hafa
áhyggjur ef þú kemur til
dyranna eins og þú ert
klæddur. Mundu að sann-
leikurinn er sagna bestur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) nA
Ef þú ætlar að koma málum
þínum í örugga höfn þarftu
að sætta þig við tilslakanir.
Hlustaðu á ráð þeirra sem
þú treystir best.
Krabbi
(21. júní - 22. júií)
Nú er rétti tíminn til að
koma málstað sínum á fram-
færi en gættu þess að lofa
engu sem þú eist að þú get-
ur ekki staðið við.
Ljóti
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú veist af einhverjum sem
þarf á hjálp þinni að halda
en fær sig ekki til að biðja
um hana.Taktu frumkvæðið
og bjóddu fram aðstoð þína.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) (ÐiL
Nú verður ekki lengui' und-
an því komist að hrinda í
framkvæmd áætlun sem
hefur verið í startholunum.
Láttu ekkert koma í veg fyr-
ir að svo geti orðið.
v°s m
(23. sept. - 22. október) A 4*
Þú ert í skapi til að láta gott
af þér leiða og þar sem þú
átt auðvelt með að fá aðra í
lið með þér skaltu notfæra
þér það núna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Það er í góðu lagi að hafa
áhrif á fólk mcð framkomu
sinni ef þú bara gætir þess
að fæla það ekki frá við nán-
ari kynni. Vertu bara ein-
lægur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) flkt
Þú ert eitthvað ósáttur við
lífið og tilveruna og ættir að
leita að ástæðunni hjá sjálf-
um þér áður en þú ásakar
aðra.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) 4w
Leggðu ekki árar í bát því
þú hefur alla burði til að
klára dæmið og auk þess
færðu stuðning úr óvæntri
átt sem gefur þér byr undir
báða vængi.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar)
Þú kynnist manneskju sem
hefur mikil áhrif á þig en
gleymdu því ekki að oft er
flagð undh' fógru skinni.
Vertu því bara á verði.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Fátt er svo með öllu illt að
ekki boði nokkuð gott. Láttu
því óvæntar fréttir ekki
koma þér úr jafnvægi því
þær eru hreint ekki eins
slæmar og þær virðast vera.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á tra ustum
grunni vísindalegra staðreynda.
BRIDS
Umsjón Arnór (í.
Ragnarsson
Bikarkeppni Brids-
sambandsins 1999
Skráning er hafin í Bikarkeppni
BSÍ 1999. Skráningarfrestur er til 21.
maí. Dregið verður í 1. umferð á kjör-
dæmamótinu á Akureyri, sem fram
fer um hvítasunnuna. Lokadagarnir í
hverri umferð eru:
1. umferð 20. júní
2. umferð 18. júlí
3. umferð 15. ágúst
4. umferð 12. september
Undanúrslit og úrslit verða helgina
18.-19. september. Keppnisgjald er
kr. 4.000 á sveit fyrir hverja umferð.
Tekið er við skráningu í s. 587 9360,
eða póstfang isbridge@islandia.is.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Mánudaginn 3. maí sl. var spilaður
tvímenningur. 22 pör mættu. Hæsta
skor í N/S
Jens Jensson - Guðm. Baldursson 319
Halldór Þorvaldss. - Baldur Bjartmarss. 303
Unnur Sveinsd. - Inga Lára Guðmunds. 291
Hæsta skor í A/V
Gróa Guðnad. - Eðvarð Hallgrímsson 326
Kristinn Kai'lss. - Jóhann Magnússon 312
Unnar A. Guðm. - Vilhj. Sigurðss. jr. 309
Meðalskorvai'270.
Mánudaginn 10. maí nk. ljúkum við
tímabilinu með tvímenningi. Rauðvín
í verðlaun fyrir bestu skor í N/S og
A/V. Þá verða afhent verðlaun þrem-
ur sveitum sem bestum árangri náðu
í aðalsveitakeppninni.
Þá verða afhent verðlaun til konu
og karls sem hafa unnið flest brons-
stig í vetur.
Þetta síðasta spilakvöld á þessu
vori verður spilui-um boðið upp á "kaffi
og með því á kostnað deildanna.
Félag eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni
Mánudaginn 26. apríl spiluðu 22
pör Mitchell-tvímenning. Úrslit urðu
þessi:
NS
Jón Stefánsson - Sæmundur Bjömsson 260
Sigurleifur Guðjónss. - Oliver Kristóferss. 249
Magnús Thejll - Ari Jónsson 237
AV
Júlíus Guðmundsson - Rafn Kristjánsson 235
AuðunnGuðmundss.-AlbertÞorsteinss. 233
Þórarinn Amason - Fróði B. Pálsson 232
Fimmtudaginn 29. apríl spiluðu 19
pör Mitchell tvímenning. Úrslit urðu
þessi:
NS
Þórarinn Amason - Fróði B. Pálsson 277
Jón Stefánsson - Sæmundur Bjömsson 242
Þórólfur Meyvantsson - Viggó Nordquist 234
AV
Halla Ólafsdóttir - Magnús Halldórsson 258
Siguróli Jóhannss. - Sigurður Jóhannss. 234
Ásta Erlingsdóttir - Ingibjörg Kinstjánsd. 227
Meðalskor báða daga var 216
Finimtudags-
brids BSI
Ágætis þátttaka hefur verið síðast-
liðin fimmtudagskvöld í húsnæði
Bridgesambandsins að Þönglabakka.
Spilaður er eins kvölds tvímenningur
með forgefnum spilum og veitt rauð-
vínsverðlaun fyrir efsta sætið (í báðar
áttir ef spilaður er Mitchel). Síðastlið-
inn fimmtudag mættu 16 pör til leiks.
Eftirtalin pör náðu hæsta skorinu
(meðalskor 210):
Kristinn Karlsson - Böðvar Magnússon 259
Páll Jónsson - Bogi Sigurbjömsson 237
Jón V. Jónmundss. - Leifur Aðalsteinss. 234
Friðrik Egilsson - Sturla Snæbjömsson 234
Hrafnhildur Skúlad. - Jörundur Þórðars. 230
HaUdór Armannss. - Gísli Sigurkarlss. 215
Fimmtudaginn 6. maí verður síð-
asta rauðvínskvöldið, áður en sumai'-
spilamennskan byrjar. Allh- velkomn-
ir.
•300° beygju-
radíus
•Henta fyrir
langa hluti
ARVÍK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
Meö vog
fyrir allt að
1500 kg.
Nákvæmni
upp á
0,03%.
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
Vítamín ocy notkun beirra
Námskeið um VÍTAMlN og notkun þeirra verður haldið fimmtu-
dagskvöldið 6. maí nk. á Grand Hótel Reykjavík kl. 19.30-22.00.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir vefjagigtar- og síþreytusjúklinga og
aðra þá er vilja styrkja ónæmiskerfið. Námskeiðið fer fram á ensku.
Skráning og frekari upplýsingar í síma 565 0453, Anna.
ARBONNE
INTERNATIONAL
Kynning
í dag kl. 13-18.
Kynnt verður nýja
Nutramin C-línan.
Náttúrulegar
snyrtivörur
án ilmefna.
Háaleitisbraut 58—60.