Morgunblaðið - 05.05.1999, Blaðsíða 83
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1999 83*
MYNDBÖND
FOLK I FRETTUM
LITILL víkingur, John Husson að nafni, sat í vagninum ásamt stúlk-
um í íslenska þjóðbúningnum.
ÍSLENSKI vagninn og áhöfn hans í skrúðgöngunni niður Norfolkgötu.
Waters í
tónleikaferð
Gulrótar-
stappa
Stjórnarformaðurinn
(Chairman of the Board)_
G a m a n in y n d
>/2
Leikstjóri: Alex Zamm. Handritshöf-
undar: Zuri Meyer, A1 Septicn og
Alex Zamm. Aðalhlutverk: Seott
..Carrot Top“ Thompson og Courtney
Thorn-Smith. (95 nn'n) Bandarikin.
Stjörnubíó, apríl 1999. Öllum leyfð.
ÞAÐ er heldur kaldhæðnislegt að
tækifærissinnaður og gróðamiðaður
iðnaður á borð við Hollywood sé að
græða á því að búa
til skemmtiefni
sem prédikar heil-
indi, fórnfýsi og
hugsjónir í við-
skiptum. Dæmi um
þessa formúlu eru
a.m.k. þrjár nýleg-
ar fjölskyldumynd-
ir, „Small Soldi-
ers“, „Dr.
Doolittle" og „Chairman of the Bo-
ard“.
I þeirri síðastnefndu segir frá
veruleikafirrtum brimbrettastrák
sem erfir stóran hlut í vöruþróunar-
fyrirtæki þvert á vilja fláráðs frænda
sem hyggst sölsa undir sig fyrirtæk-
ið og kúga stai-fsmennina. Pilturinn
beitir hins vegar góðvild sinni og
uppfinningasemi til að snúa stefnu
íyrirtækisins til betri vegar. Sem
sagt leiðindaklisja sem verður enn
leiðinlegri með fíflalegri frammi-
stöðu aðalleikarans sem gengur und-
!(' listamannsnafninu Gulrótai'haus.
Orfá hlægileg atriði innan um sér-
lega ómerkilegan skopstíl ávinnur
myndinni þó hálfa stjörnu.
Heiða Jóhannsdóttir
Bíræfnir
bófar
Bófar
(Hoods)____________________
G a ni a n / s p e n ii a
★★
Framleiðendur: William og Robert
Vince. Leikstjóri og handritsliöfund-
ur: Mark Malone. Aðalhlutverk: Joe
Mantegna, Kevin Pollack og Jennifer
Tilly. (95 mín.) Bandarisk. Stjörnu-
bió, apríl 1999. Bönnuð innan 16 ára.
RÓTGRÓIN hefð er fyrir kvik-
'uyndum um mafíuna. Gjarnan er
starfsemi hennar sveipuð ljóma eins
og í Guðföður-röð-
inni en öllu sjald-
gæfara er að
vanköntum og
jarðbundnum
vandamálum
mafíulífernisins sé
lýst. Bófar fellur í
seinni flokkinn.
Fimmtugasti af-
mælisdagur Ang-
el° (Joe Mantegna) byrjar ekki vel
°g fer stöðugt versnandi. Hann er
sonur guðföður sem má muna sinn
fífil fegri og hlutverk Angelos ásamt
vlni sínum Rudy (Kevin Pollack) er
a(1 innheimta verndunarþóknanir og
útkljá smávægileg vandamál skjól-
stæðinga fóður síns. En þegar Ang-
el° og Rudy fá það verkefni að
^ynða meðlim óvinagengisins á það
eftir að ganga afar brösuglega.
I Bófum er reynt að draga upp
skondna mynd af glæpafjölskyldu
®ein fátt á sameiginlegt með
harðsvíruðum og svölum kollegum
sínum í öðrum myndum af sömu
fegund. En þrátt fyrir ýmsa kosti
niyndarinnar reynist erfítt að halda
jafnvægi á milli kímninnar og
hnamatísks kjarna sem er langt frá
Pví að vera léttvægur. Aðstandend-
nr Bófa hefðu betur ákveðið hvort
þeir vildu draga dár að hefðinni eða
reyna að bæta einhverju við hana.
Heiða Jóhannsdóttir
ÍSLENSKA prinsessan Elva
Hohn Hreinsdóttir ásamt
Söndru og Isabel Leitsch
standa við íslenska vagninn.
✓
Islensk
prinsessa
með hirð
sinni
NÝLEGA var haldin alþjóðlega
Azalea-hátíðin í Norfolk í Virginíu-
ríki Bandaríkjanna. Hátíðin er
haJdin árlega en í henni taka þátt
öll aðildarríki Atlantshafsbanda-
lagsins. Ár hvert er eitt ríkja
bandalagsins sérstaklega heiðrað á
hátiðinni og að þessu sinni varð
Þýskaland fyrir valinu. Frá útvalda
landinu keniur síðan drottning há-
tíðariimar sem valin er af sendi-
herra landsins í Bandaríkjunum.
Eftir krýningu drottingarinnar
er farið í skrúðgöngu þar sem
hvert aðildarlandanna er með vagn
og sína eigin prinsessu. Islenska
prinsessa hátíðariimar var Elva
Holm Hreinsdóttir en ásamt henni
og hirð hennar voi-u víkingai' og
stúikur í íslenska þjóðbúningnum
með í skrúðgöngunni sem íslensk-
ameríska félagið í Norfolk tók þátt
í að skipuleggja fyrir íslands hönd.
Elva er dóttir Ellu Magnúsdóttur
sem er búsett, í Bandaríkjunum.
Að ári verður Island heiðrað á
Azalea-hátíðinni og af því tilefni
verður landið kynnt sérstaklega en
hátíðin stendur yfir í eina viku.
ROGER Waters, annar stofnenda
Pink Floyd, heldur í fyrstu tónleika-
ferð sína um Bandaríkin í tólf ár í
sumar. Hann kemur fram á 17 tón-
leikum að því er plötufyrirtæki hans,
Columbia Records, tilkynnti á
þriðjudag.
Waters, sem er 54 ára, kom síðast
fram með Don Henley á góðgerðai'-
tónleikum árið 1993 og hefur ekki
farið í tónleikaferð síðan sólóskífa
hans „Radio KAOS“ kom út árið
1987.
Áætlað er að fyrri hluti tónleika-
ferðarinnar, sem er með yfirskrift- “C
inni „In the Flesh“, hefjist 23. júlí í
Milwaukee og að honum Ijúki í Atl-
anta 21. ágúst. Síðari hluti ferðarinn-
ar verður farinn vorið 2000. Waters
verður með stórsveit með sér og flyt-
ur sýnishorn af tónlist sinni, allt frá
lögum sem hann samdi fyrir Pink
Floyd til sólólaga sinna, þar á meðal
nýjasta lags hans „Amused to De-
ath“ frá áí'inu 1992.
Waters stofnaði Pink Floyd ásamt
Syd Barrett árið 1966 og var drif-
fjöður sveitarinnar eftir að Barrett
hætti nokki-um árum síðar. Hann
var hugsuðurinn á bakvið meistara-
verk á borð við „Dark Side of the
Moon“ frá árinu 1973 og breiðskíf-
una sjálfsævisögulegu „The Wall“
frá árinu 1979.
Það slettist síðan upp á vinskapinn
í hljómsveitinni og Waters fór í mál
við fyrrverandi félaga sína þar sem
hann fór fram á að dómstólar mein-
uðu þeim sem eftir voru í sveitinni að
halda nafninu Pink Floyd. Hann
hafði ekki erindi sem erfiði og sveitin
náði frekari vinsældum án hans.
Waters hefur gefið út nokkrar sól-
óskífur en engin þeirra hefur selst
sérlega vel. Undanfarin sjö ár hefur
hann unnið að óperunni „Ca Ira“
sem er bæði á ensku og frönsku. T—.
sumar
Glænýr humarágniiið
Glæný laxaflök
790 kr. kg
Stórlúðusteikur
30% afsláttur
Skötuselur - stórar úthafsrækjur
hörpudiskur - hákarl - harðfiskur
Fiskbúðin Vör
Höföabakka 1 v/Gullinbrú, sími 587 5070.
- Heimili fiskanna -