Morgunblaðið - 15.05.1999, Side 8

Morgunblaðið - 15.05.1999, Side 8
8 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stórsi'gur Frfálslynda flólcRsins á Vestfjöröum: Tramar björtustu vonum - sagði Guðión Amar Kristiánsson alþingismaður Skipulagsstofnun fjallar um mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmda á hringvegi Segir að frekara mat sé nauðsynlegt SKIPULAGSSTOFNUN hefur lok- ið mati á umhverfisáhrifum fyrirhug- aðra framkvæmda á hringvegi milli Smyrlabjargaár og Staðarár í Suður- sveit. Niðurstaða skipulagsstjóra skiptist í tvo hluta því framkvæmd- inni er skipt í tvo áfanga, en skipu- lagsstjóri fellst á fyrri áfanga en ekki hinn síðari. í niðurstöðum kem- ur fram að umhverfisáhrif fram- kvæmdarinnar lúti einkum að raski á landi, lífríki og fomminjum þar sem nýr vegur víkur frá núverandi vegi. Fyrri áfangi framkvæmdarinnar nær frá Staðará að Tröllaskörðum og hinn síðari frá Tröllaskörðum að Smyrlabjargaá, en markmið fram- kvæmdanna er að auka umferðarör- yggi og greiða fyrir umferð. I niður- stöðum skipulagsstjóra segir að sú leið sem Vegagerðin hafi valið í fyrri áfanganum valdi minna raski en aðr- ar leiðir sem kannaðar hefðu verið enda verði farið að kröfum Þjóð- minjasafns Islands varðandi rústir og að fengnu leyfi fomleifanefndar ef þörf krefur. Samanburð á milli leiða skortir Skipulagsstjóri telur hins vegar að ráðast þurfi í frekara mat á umhverf- isáhrifum síðari áfanga framkvæmd- arinnar. Það er mat hans að ekki hafi verið gerð nægileg grein fyrir áhrif- um lagningar nýs vegar milli Trölla- skarða og Smyrlabjargaár á gróður- far og fomleifar. Þá segir m.a. að samanburð skorti á milli nýju leiðar- innar og endurbyggingar þeirrar gömlu. Stefnt er að því að framkvæmdir við fyrri áfangann hefjist nú í vor og hinn síðari árið 2001. Um er að ræða 11,7 km langan veg, sem lagður verður bundnu slitlagi, ásamt nýjum brúm yfir Smyrlabjargaá og Stað- ará, en ræsi í Uppsalaá. Einnig verð- ur lögð ný heimreið að Sunnuhlíð og að Smyrlabjörgum. Skipulagsstofnun tók málið form- lega til umfjöllunar í mars og var það þá auglýst og kynnt, en alls bárust þrjár athugasemdir. Samkvæmt 14 gr. laga nr. 63/1993 má kæra úr- skurð skipulagsstjóra til umhverfis- ráðherra, en kærufrestur er til 9. júní. ■ Nú fer hver að verða IVltMlvVcj 1 Æ ff jjj g jj% æ 'm ^ síðastur að ná sér í | ■ 1 % H % a C W. % fellihýsi á þessu verði a9einsfcr.399.500 aftur á frábæru verði 6 manna fuUbúin bandansk fellihýsi a 12" hjólbörðum hletsalan ehf. Simi 565 6241 - fax 588 2670. Netfang netsalan@itn.is ■ www.itn.is/netsalan Þú sparar a.m.k. 150.000 kr. * Sölusýning á ... Qarðatorgi 3, L:Zte::L't Qarðabæ Ráðstefna um NATO 50 ára Sammála stefnumörkun NATO Birgir Ármannsson RÁÐSTEFNA um Atlantshafsbanda- lagið er haldin í dag í tilefni af því að í vor voru fimmtíu ár liðin frá stofnun bandalagsins. Það eru Samtök um vestræna samvinnu (SVS) og Varð- berg, sem er félag ungra áhugamanna um vest- ræna samvinnu, sem standa að þessari ráð- stefnu. Birgir Armanns- son er formaður Varð- bergs og hefur átt þátt í undirbúningi ráðstefriunn- ar ásamt Jóni Hákoni Magnússyni SVS og Dagnýju Lárusdóttur framkvæmdastjóra Upp- lýsingaskrifstofu NATO á Islandi. Birgir var spurð- ur hvort hann teldi að for- sendur fyrir þátttöku íslands í NATO hefðu eitthvað breyst upp á síðkastið að hans mati? - Aðstæður í öryggis- og vam- armálum hafa breyst mjög mikið á undanfömum árum, eftir hrun hins sósíalíska þjóðskipulags í ríkjum Austur-Evrópu, en hins vegar er ég þeirrar skoðunar að Atlantshafsbandalagið hafi afar mikilvægu hlutverki að gegna í hinu breytta umhverfi. Það er ennþá afar mikilvægt fyrir lýð- ræðisríki í Evrópu og Norður- Ameríku að hafa með sér náið samstarf í öryggis- og varnarmál- um, enda geta átök og ógnanir af ýmsu tagi enn átt sér stað í næsta nágrenni bandalagsríkjanna. Ég tel t.d. það hafi bæði verið óhjá- kvæmilegt og mikilvægt fyrir Atl- antshafsbandalagið að grípa til aðgerða vegna ofbeldisverka Serba í Kosovo, enda getur ófrið- arástand í löndum sem liggja jafnnálægt hefðbundnu vamar- svæði NATO breiðst út og haft áhrif á bandalagsríkin. Auðvitað er valdbeiting, einsog NATO hef- ur þurft að grípa til á þessu svæði, óæskileg. En eins og at- burðir þróuðust tel ég hana hafa verið og vera óhjákvæmilega. - Hvuð fer fram á ráðstefnunni fyrrnefndu ? - Tilgangur ráðstefnunnar er að vekja umræðu um hlutverk NATO, bæði með því að líta til fortíðar og um leið að líta til líð- andi stundar. Á ráðsteftiunni munu tala forystumenn þeirra þriggja stjómmálaflokka sem stutt hafa aðild íslands að NATO í gegnum tíðina, en þeir era Sjálf- stæðisflokkur, Framsóknarflokk- ur og Alþýðuflokkur. Þá munu flytja þarna ræður þrír ungir fé- lagsmenn í Varðbergi, þau Alda Sigurðardóttir, Gunnar Alexand- er Ólafsson og Lilja Dögg Al- freðsdóttir, en þau hafa tekið virkan þátt í starfsemi félagsins á undanfómum áram og kynnt sér vel starfsemi NATO. I þriðja lagi verða þama afhent verðlaun í rit- gerðarsamkeppni Varðbergs, en félagið efndi í vor til þessarar samkeppni meðal fólks á aldrinum 18 til 25 ára, til þess að fá fram skoðanir þess á hlut- verki NATO í breyttu alþjóðlegu umhverfi. Að lokum munu tveir fræðimenn halda fyrirlestra, þeir Þór Whitehead prófessor og Val- ur Ingimundarson sagnfræðing- ur, en báðir hafa fjallað mikið um málefni Atlantshafsbandalagsins og stöðu íslands í alþjóðamálum í skrifum sínum. - Hvað getur þú sagt mér um ► Birgir Ármannsson er fæddur í Reykjavík 12. júní 1968. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1988 og prófi í lögfræði frá Háskóla Is- lands 1996. Á árunum 1988 til 1994 var Birgir blaðamaður á Morgunblaðinu í leyfum og með námi. Hann var í stjórn Varð- bergs frá 1993 og formaður frá því í mars 1998. Birgir hóf störf hjá Verslunarráði íslands 1995 þar sem hann er nú skrifstofu- stjóri, hann er ókvæntur og barnlaus. starfsemi félaganna sem að þessu standa? -Samtök um vestræna sam- vinnu og Varðberg vora stofnuð þegar „kalda stríðið“ stóð sem hæst og hart var sótt að aðild ís- lands í NATO og vera vamarliðs- ins hér á landi. Félögin vora þannig vettvangur stuðnings- manna aðildarinnar og höfðu þann tilgang að koma á framfæri sjónarmiðum bandalagsins. Fólk úr þremur stjómmálaflokkum, Sjálfstæðisflokki, Alþýðuflokki og Framsóknarflokki, hefur frá upp- hafi staðið að félögunum en jafn- framt hefur óflokksbundnum fé- lagsmönnum fjölgað á síðari ár- um. I dag era þessi félög mikil- vægur vettvangur fyrir umræður um alþjóðamál og fundir félag- anna era jafnan vel sóttir og vekja allnokkra athygli. - Eru félagsmenn í þessum fé- lögum almennt sáttir við þá þróun sem orðið hefur í starfi NATO, þ.e. að það hefur nú að sumra mati orðið „árásabandalag“ en er ekki lengur aðeins vamarbanda- lag? -Félagsmenn í þessum félög- um era samtals yfir þúsund manns og hafa vafalaust margvís- legar skoðanir á þeim atburðum sem nú eiga sér stað, en ég held að ég geti fullyrt að flestir þeirra sé í meginatriðum sammála stefnumörkun forystumanna bandalagsins. Ég tel að í hugum flestra ef ekki allra félagsmanna í Varðbergi og SVS sé NATO enn vamar- bandalag en ekki árás- arbandalag. Hins veg- ar hafa félögin sem slík ekki ályktað um þetta mál eða þessa þróun frekar en önnur álitaefni á síðari tímum. Félögin skilgreina sig sem umræðuvettvang fremur en að taka formlega afstöðu til einstakra mála, og það verður ekki gert á þessari ráðstefnu sem hefst í dag í Súlnasal á Hótel Sögu klukkan 12.00 á hádegi. Hefur enn mikilvægu hlutverki að gegna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.