Morgunblaðið - 27.05.1999, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FRÁ hátiðarhöldunum í menningar- og stjórnsýsluhúsinu.
Olfushreppur
Sveitarfélagið Ölfus
(3.99 S)
Morgunblaðið/Anna Ingðlfs.
SIGRÍÐUR Sigurðardóttir, frá-
farandi formaður Bláklukku,
afhenti Aðalbjörgu Pálsdóttur,
leikskólastjóra Leikskólans
Tjarnarlands, peningagjöf.
Bláklukkan
gefur gjafír
Egilsstöðum - Kvenfélagið Bláklukka
á Egilsstöðum bauð eldri borgurum á
Héraði til kaffisamsætis í Valaskjálf
á Egilsstöðum. Kvenfélagskonur af-
hentu einnig afrakstur vetrarins en
það voru 140.000 kr.
Sigríður Sigurðardóttir, fráfarandi
formaður Bláklukku, afhenti Aðal-
björgu Pálsdóttur, leikskólastjóra
Leikskólans Tjarnarlands, 40.000 kr.
sem varið verður til kaupa á hljóð-
færum fyrir leikskólann. Helgi Hall-
dórsson, skólastjóri Egilsstaðaskóla,
tók við 100.000 kr. fyrir hönd skólans
en þeir fjármunir verða notaðir í
skólaeldhús.
Þorlákshöfn - Fyrsti fundur bæjar-
stjómar í Sveitajíélaginu Ölfusi var
haldinn nýlega. A dagskrá fundarins
voru tvö mál; kynning á nýju nafni
sveitarfélagsins og samþykktum um
stjóm og fundarsköp þess og fyrri
umræða ársreikninga.
I lok síðasta árs óskaði sveitar-
stjóm Ölfushrepps eftir því við fé-
lagsmálaráðuneytið að nafni sveitar-
félagsins yrði breytt í Ölfus. Það var
samþykkt að því tilskildu að fyrir
framan kæmi sveitarfélagið. Þegar
þetta var fengið ákvað sveitarstjóm
að breyta hrepp í bæ. Þetta hefur í
för með sér að í Ölfusi verður starf-
andi bæjarstjórn, bæjarráð, bæjar-
stjóri, bæjarritari og svo framvegis.
Félagsmálaráðuneytið samþykkti þó
beiðni oddvita um að fá að halda
sínu starfsheiti óbreyttu. Sesselja
Jónsdóttir bæjarstjóri mun vera eini
starfandi kvenbæjarstjóri landsins
auk þess að vera þeirra yngst.
Hátíðarhöld í menningar-
og stjórnsýsluhúsinu
I tilefni dagsins bauð bæjarstjórn
bæjarbúum í veislu í nýja menning-
ar- og stjómsýsluhúsinu sem að
hluta til verður tekið í notkun á
næsta ári. Skólalúðrasveitin lék.
Sesselja bæjarstjóri kynnti þær
breytingar sem fylgja því að breyta
hrepp í bæ. Einnig kynnti hún fram-
kvæmdir við menningar- og stjóm-
Morgunblaðjð/Jón H. Sigurmundsson
FRÁ fyrsta fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Ölfuss. Frá vinstri:
Sigurður Þráinsson, B-lista, María Sigurðardóttir, Þ-lista, Dagbjartur
Sveinsson, Þ-lista, Sesselja Jónsdöttir bæjarstjóri, Hjörleifur Brynj-
ólfsson, oddviti D-lista, Guðni Pétursson bæjarritari, Sigurður Bjarna-
son, formaður bæjarráðs, D-lista, Sesselja Pétursson, D-lista, Jón
Hólm Stefá
sýsluhúsið og fjárhagsáætlun fyrir
árið 1999. Síðan voru boðnar veit-
ingar.
I fjárhagsáætluninni má sjá að
tekjur eru áætlaðar 266.200.000 kr.
í rekstur er áætlað að verja
214.495.000 kr. Eignfærð fjárfesting
er áætluð 87.360.000 kr. stærstur
hlutur fer í menningar og stjórn-
sýsluhúsið eða 72.000.000 kr. Það
ion, D-lista.
vekur athygli að í vexti og afborgan-
ir langtímalána fara aðeins 8.600.000
kr. og á móti koma innborganir og
vextir af langtímakröfum upp á
6.580.000 kr. þannig að greiðslu-
byrði lána er 2.020.000 kr. Afkoma
ársins er neikvæð upp á 45.955.000
kr. og verður því mætt með sölu
eigna, lántökum og breytingu á
langtímaskattkröfum.
Stærðir 40-46
Mjúkir og þægilegir
Vinsælu herra mokkasínurnar komnar aftur!
Vandaðir svartir leðurskór á frábæru verði.
Aðeins 3.995-
Grandagarði 2, Rvík, sími 552-8855. Opið virka daga 8-18 og laugardaga 10-14
Vinsælu herra
LEÐURSKÓR MEÐ
LEÐURFÓÐRI
NEYTENPUR
Hollustuvernd ríkisins
Ungbörn geta
fengið eitrun
með hunangi
HOLLUSTUVERND ríkisins hefur
sent frá sér fréttatilkynningu þar
sem varað er við að gefa börnum
yngri en tólf mánaða hunang. Til-
efnið er ábending Norsku matvæla-
stofnunarinnar um að nýlega hefði
ungbarn í Noregi fengið svokallaða
bótúlinum-eitrun og veikst mjög al-
varlega eftir að hafa borðað hun-
ang. Er það í fjórða sinn á skömm-
um tíma sem ungbarn veikist alvar-
lega í Noregi með þessum hætti.
Barnið sem um ræðir fékk eitrunina
eftir að hafa fengið hunang, sem
dreift er undir merkinu Eldorado.
„Hunangsdósin sem barninu var
gefið úr var orðin gömul og því er
fólk einnig varað við hunangi sem
kann að hafa dagað uppi í eldhús-
skápnum."
Samkvæmt upplýsingum frá Holl-
ustuvernd ríkisins hefur bútólinum-
eitrunar í ungbörnum ekki orðið
vart á íslandi. „Hollustuvemd íákis-
ins hefur kannað sérstaklega hvort
sú tegund hunangs sem eitruninni
olli í Noregi sé á markaði hérlendis
og svo mun ekki vera. Stofnunin vill
samt vara foreldra ungbarna við að
gefa þeim hunang,“ segir í tilkynn-
ingu frá Hollustuvernd
Sljóleiki og öndunarerfíðleikar
Hunang getur innihaldið dvalar-
gró Clostrídium botulinum bakterí-
unnar. „Dvalargróin geta tekið við
sér í meltingarvegi barna sem eru
yngi'i en 12 mánaða vegna sérstakra
aðstæðna sem þar er að finna. Nái
gróin að umbreytast í lifandi bakter-
íur mynda þær bótúlinum, eitur sem
getur valdið mjög alvarlegum, jafn-
vel banvænum eitrunum," segir í
fréttatilkynningu Hollustuverndar.
„Einkenni bótúlinum-eitrunar í ung-
börnum em sljóleiki, skert sogvið-
brögð, kyngingarerfiðleikar, lömun
og öndunarerfiðleikar. Barn með
slík einkenni þarf að komast tafar-
laust undir læknishendur.“
Morgunblaðið/Ásdís
SIGURJÓN Gunnlaugsson, verslunarstjóri í nýrri 11-11 verslun.
Ný 11-11 verslun
á Laugavegi
NY11-11 verslun hefur verið opnuð á
Laugavegi 116 í gömlu húsakynnum
Nðatúns. Verslunin er um 300 fer-
metrar að stærð og er hin þrettánda
sem er opnuð undir nafni 11-11 á höf-
uðborgarsvæðinu, að sögn Siguijóns
Gunnlaugssonar, verslunarstjóra
11-11 á Laugavegi. Búðin er opin alla
daga frá kl. 10-11 og segir Siguijón
að vöruúrvalið sé mildð. Þá verður
lögð áhersla á að bæta vöruúrvalið
með þai-fii- neytandans í huga.
Linsan opnuð
á Laugaveginum
NÝ verslun Linsunnar hefur verið
opnuð á Laugavegi 8 í Reykjavík. I
fréttatilkynningu frá Linsunni segir
að í versluninni verði lögð sérstök
áhersla á óvenjulegar og litríkar
gleraugnaumgjarðir frá hönnuðum á
borð við Valentino, Anne et Valent-
in, Beasouleil, Pinton svo og sólgler-
augu frá Max Mara og Ferré. Lins-
an á Laugavegi er opin alla virka
daga milli kl. 10 og 18 og á laugar-
dögum frá kl. 10 til 14.
NÝ verslun Linsunnar á Laugavegi 8,
-:.'3l mm jgm-
j " ! pSEiiHIHMj'
1 * “ ■
í|- ■ í