Morgunblaðið - 27.05.1999, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BÁRUJÁRN SKOMMÓÐA Önnu Málfnðar Jónsdóttur.
VERÐLAUNALAMPI Dagrúnar Jónsdóttur
úr gleri og grjóti.
ÞESSA dagana stendur yfir sýn-
ing útskriftarnema af hönnunar-
braut Iðnskólans í Hafnarfirði. Á
sýningunni kennir margra grasa
og ímyndunaraflinu hefur víða
verið gefin laus taumur, enda
segir Þorkell Guðmundsson, ....
við hönnunardeildina, að það sé
allt mögulegt sem nemendum
detti í hug að gera.
Verkin á sýningunni eru öll
nytjahlutir og segir í fréttatil-
kynningu á skólinn leggi áherslu
á listræna hönnun og fallegt
handverk. Efniviður nemenda er
af ýmsum toga en finna má verk
unnin úr efnum eins og plasti,
gleri, járni og hreindýraskinni.
Þá eru verkin af ýmsum stærð-
argráðum og gerðum, en á sýn-
ingunni má sjá allt frá armbönd-
um upp í sófaborð og arinhillu.
Veitt voru verðlaun fyrir þijú
verkanna, kommóðu Önnu Mál-
fríðar Jónsdóttur, lampa Dag-
Vorsýning
Iðnskólans 1
Hafnarfirði
rúnar Jónsdóttur og skál Sæ-
bjargar Freyju Gísladóttur.
Sagði Þorkell dómnefndina hafa
verið undrandi á því hversu
marga góða gripi var að sjá á
sýningunni. Kommóða Önnu Mál-
fríðar er unnin að hluta úr báru-
jámi og segir Anna hafa fengið
hugmyndina af því að búa í
gömlu bámjárnshúsi. Hún hafi
endilega viljað finna ný not fyrir
efnið og dottið í hug að vinna
kommóðu úr járninu. Hún sagð-
ist hafa íhugað formið vandlega
og því megi sjá bylgjur bám-
járasins endurspeglast í formi
kommóðunnar sjálfrar. Að sögn
Önnu hefur hún fengið góð við-
brögð við gripnum, þó sumir iðn-
aðarmenn láti í ljós efasemdir
þegar hún lýsi efninu.
Þorkell Guðmundsson segir
viðbrögð við sýningunni hafa
verið góð. Þetta sé fjórða sýning-
in sem Iðnskólinn haldi og fjöldi
fólks hafi komið að skoða þá
daga sem sýningin hefur staðið
yfír. Þorkell sagði jafnframt að
nemendum hefði íjölgaði við
deildina sem nú er orðin tíu ára.
En 22 nemendur útskrifast í ár.
Námið er, að sögn Þorkells,
hugsað sem undirbúningur að
frekara námi og sagði hann
marga hafa lagt leið sína í MHI
eða hönnunarnám erlendis að
iokinni hönnunnarbraut Iðnskól-
ans, auk þess sem sumir leggi út
í frekara handverk. Vorsýningu
Iðnskólans í Hafnarfirði lýkur
sunnudaginn 30 maí.
György Sebök held-
ur masterclass
UNGVERSKI píanó-
leikarinn og kennar-
inn György Sebök
heldur tónleika í
Salnum í Kópavogi
sunnudaginn 6. júní
og í framhaldi af því
verður hann með
námskeið (master-
class) í píanóleik og
kammertónlist dag-
ana 7.-11. júm'. Nám-
skeiðið er ætlað
hljóðfæraleikumm og
langt komnum tón-
listamemendum auk
þess sem námskeiðið
er opið til áheymar
öllum tónlistanmnendum. Nám-
skeiðið er haldið á vegum Félags
íslenskra hljómlistarmanna í sal
félagsins að Rauðagerði 27.
Györgi Sebök fæddist í Ung-
veijalandi 1922 og hóf tónlistar-
nám 5 ára gamall. Hann var að-
eins 11 ára gamall þegar hann
hélt sína fyrstu tónleika og 14
ára lék hann fyrsta píanó-
konsert Beethovens undir stjóm
Ferenc Fricsay. Hann stundaði
nám í Franz Liszt akademíunni í
Búdapest og meðal kennara
hans þar vom Zoltan
Kodály og Leo Wein-
er. Hann varð pró-
fessor í píanóleik við
Bela Bartók tónlist-
arháskólann í Búda-
pest 1949 og árið
1950 var hann sæmd-
ur alþjóðlegum verð-
launum sem kennd
em við Berlín og
ungversku Liszt
verðlaunin. Hann
settist að í Frakk-
landi árið 1957 en
fór víða, hélt ein-
leikstónleika og lék
með öllum fremstu
hljómsveitum heims og þekktir
urðu kammertónleikar sem
hann hélt með Arthur Gmmiaux
og Janos Starker. Auk þess lék
haiui inn á fjölda hljómplatna.
Árið 1962 Flutti Sebök til
Bandaríkjanna og kennir nú við
tónlistardeild Indiana-háskóla í
Bloomington auk þess sem hann
kennir í Berlín, Tókýó og
Kanada og heldur námskeið víða
um heim. Síðan 1974 hefur Se-
bök haldið sumaraámskeið í
svissnesku fjallaþorpinu Eraen.
György Sebök
Nýjar bækur
• HVALREKI eða kvalræði er
ritgerð eftir Jón Kr. Gunnarsson.
Undirtitill á baksíðu er Keikó,
leiksoppur fáránleikans.
Höfundur fjallar vítt og breitt
um hvalamál, ekki síst um að-
dragandann og sögulegan flutn-
ing á Keikó til Vestmannaeyja,
segir í fréttatilkynningu.
Þó að undirtónninn í ritgerð-
JónKr.
Gunnarsson
inni sé á alvar-
legum nótum er
slegið á ýmsa
strengi.
Útgefandi er
Bókaútgáfan
Rauðskinna.
Ritið er 80 bls.
og kostar 1.680
kr.
Sunnlenskar söngdísir
ÚR seríunni „Energia", vasar gerðir úr jámi og gleri
eftir Dögg Guðmundsdóttur.
Mýkt og harka
MYNPLIST
Stöðlakot
HÖNNUN
DÖGG GUÐMUNDSDÓTTIR
Opið alla daga frá 14-18. Til 30. maí.
í STÖÐLAKOTI gefur að líta at-
hyglisverða sýningu á hönnun eftir
ungan iðnhönnuð, Dögg Guðmunds-
dóttur. Dög hefur numið bæði í
Mflanó, einni af höfuðborgum hönn-
unar í Evrópu, og í Kaupmannahöfn.
Þar hefur hún sest að og tekið sam-
an við hóp hönnuða sem kallar sig
Globus, og hefur IKEA nú nýverið
leitað eftir samstarfi við hana.
Dögg vinnur aðallega með gler, og
á sýningunni er sitthvað sem hún
hefur verið að vinna að í gler og með
glermuni. Flestir munimir eru úr
seríu sem hún kallar „Energia“, og
eru vasar sem gerður eru úr jámi og
gleri. Innblásturinn sótti Dögg til
eldsumbrotanna í Vatnajökli og
þeirra hrikalegu andstæðna sem
heilluðu menn á sínum tíma, þar sem
bráðið jarðefnið braut sér leið í
gegnum gjána í jöklinum. Dögg læt-
ur blása gleri inn í sívala og ferkant-
aða jámhólka, dökka af ryði. Á járn-
hólkana hafa verið sagaðar rifur og
göt og hefur bráðið glerið þrýst sér í
gegum rifumar og gúlpast út um
götin. Vasarnir á sýningunni eru út-
færðir í ýmsum tibrigðum við þessa
einföldu hugmynd. Það er ekki
óþekkt að handverksfólk og hönnuð-
ir noti saman gler og málm til að tjá
andstæður efnis og forms, en Dögg
finnur hér einfalda lausn sem býður
upp á óvæntar útfærslur.
Aðrir munir á sýningunni sýna að
hugmyndin að vösunum var engin
hending. Dögg sýnir einnig lampa,
sem er raðað saman eins og stuðla-
bergi, og vegglampa, sem líkjast
flugdrekum, þar sem saman fara
snjallar hugmyndir og hugvitsam-
legar útfærslur.
Gunnar J. Árnason
TÓNLIST
Hallgrímskirkja
Kórtónleikar
Cantina, stúlknakór Hallgrímskirkju
undir stjóm Bjarneyjar Ingibjargar
Gunnlaugsdóttur, söng erlend og ís-
lensk kórlög. Gestur kórsins á tón-
leikunum var Stúlknakór Selfoss-
kirkju undir stjóm Margrétar Bóas-
dóttur. Píanóleikari var Lára Rafns-
dóttir og organisti Glúmur Gylfason.
Þriðjudagskvöld kl. 20.
CANTINA, heitir telpnakór,
starfræktur í Hallgrímskirkju. Kór-
inn er skipaður aðeins átta stúlkum,
og segir sig sjálft að hver og ein
þarf að vera afbragðsgóð til að góð-
ur árangur náist, þar sem hver ein-
staklingur er svo stór partur af
heildinni. Gestur kórsins á tónleik-
unum var Stúlknakór Selfosskirkju,
- um það bil þrefalt stærri og þar af
leiðandi einnig öflugri í hljómrænu
tilliti. Þótt kóramir hafi verið ólíkir
að ytri gerð, áttu þeir ýmislegt sam-
eiginlegt, og þar íyrst og fremst
góðan og hreinan söng.
Kóramir sungu ýmist saman eða
hvor í sínu lagi, og stundum var
kórunum skipt í minni hópa, og
einnig sungu sex stúlkur úr báðum
kórum einsöng við undirleik Láru
Rafnsdóttur. Efnisskráin var blönd-
uð, madrigalar og mótettur, íslensk
og útlend þjóðlög, norræn lög, þýsk
rómantík, íslensk lög, negrasálmar,
söngleikjamúsík, dægurlög og
fleira.
Það fór ekki á milli mála þegar
sameinaðir kórarnir hófu upp raust
að hér voru úrvalskórar á ferð.
Engum sögum fer af því hve mikið
kórarnir hafa æft saman, en þeir
voru sannarlega vel samstilltir og
stúlkurnar þrjátíu sungu algjör-
lega einum rómi. Hljómur kórsins
var mikill og þéttur, klingjandi
hreinn, með sindrandi háa sóprana
á toppnum og hljómmikla alta á
botninum. Milliröddin pottþétt.
Það var einskær unun að hlusta á
söng stúlknanna. í fýrsta hluta efn-
isskrárinnar sem samanstóð af ís-
lenskum þjóðlögum og kórlögum
voru þjóðlagið Gloria tibi og sálm-
urinn Til þín, Drottinn frábærlega
fallega sungin, af mikilli tilfinningu
og músíkalskri dýpt. Kórarnir
sungu einnig hvor í sínu lagi, en
sameinuðust aftur nokkrum sinn-
um.
Cantina kórinn söng einn nokkur
lög. Kórinn söng með afbrigðum
hreint og fallega, þótt vissulega
væri hann hljómminni en stóri kór-
inn. Ef eitthvað er hægt að finna að
söng Cantina kórsins, er það að
hann mætti syngja meira út, og
leyfa hljómnum að óma og lifa -
ekki halda aftur af honum. Með
svona frábærar stelpur sem allar
eru auðheyrilega miklar söngpípur
ætti þetta að vera leikur einn. Bestu
lög kórsins á öðrum hluta efnis-
skrárinnar voru Alleluja eftir
Alessandro Constantini og Ljúfur
ómur eftir Bortniansky, sem sann-
arlega er ekki síðra í útsetningu
fyrir bjartar raddir en í vinsælli út-
setningu fyrir karlaraddir.
Stúlknakór Selfosskirkju söng
einnig einsamall. Kórinn er einstak-
lega góður og hefur á að skipa úr-
valsröddum. Þar var gengið hreint
til verks, og hvert lagið af öðru
sungið músíkalskt og fallega. Það
var áberandi hvað núansar í inn-
komum og í endaatkvæðum hend-
inga voru vel æfðir og kórinn hund-
rað prósent samtaka. Það þarf mik-
inn aga, þjálfun og einbeitingu til að
gera þetta jafnvel. Spænska endur-
reisnarmótettan Tanquam agnus
eftir Vittoria var skínandi góð í
flutningi kórsins og einnig Jubilate
Deo eftir Agazzari, þar sem stúlkur
úr tíunda bekk sldpuðu tvo minni
kóra sem sungust á við hinn hluta
kórsins.
Það yrði löng runa að telja allt
það upp sem fallega var gert á þess-
um indælu tónleikum. Það er þó
ekki hægt annað en að minnast á
söngkonumar sex sem stóðu upp
einsamlar og sungu við undirleik
Láru Rafnsdóttur á píanó. Þar gat
að heyra hvern úrvals efnivið þær
Bjamey Gunnlaugsdóttir og Mar-
grét Bóasdóttir hafa í kómm sínum.
Þarna sungu þessar frábæra stúlk-
ur af mikilli einlægni og músíkölsku
næmi, - allar efnilegar.
í tónleikalok sungu kórarnir sam-
an negrasálminn Go down Moses
feikna vel, sem og aukalagið Maí-
stjörnuna, og fór vel á því að meðan
kórinn söng síðamefnda lagið bratu
kvöldgeislar maísólarinnar sér leið
inn í salinn um örmjóa gluggana og
slógu töfrabirtu á söngdísimar
sunnlensku.
Bergþóra Jónsdóttir
Tónleikar í
Stykkis-
hólmskirkju
KRISTÍN R. Sigurðardóttir
sópransöngkona, Jóhann Stef-
ánsson trompetleikari og
Bi-ynhildur Ásgeirsdóttir pí-
anóleikari halda tónleika í
Stykkishólmskirkju í kvöld,
fimmtudag, kl. 20.30.
Flutt verða verk eftir
Allessandro Scarlatti, Johann
Sebastian Bach, Georg
Friedrich Handel, Henry
Purcell og Aldrovandini.