Morgunblaðið - 27.05.1999, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1999 37
LISTIR
48 styrkir úr
Menningarsj óði
útvarpsstöðva
Undirspil náttúrunnar
ÚTHLUTAÐ hefur verið styrkj-
um úr Menningarsjóði útvarps-
stöðva. Auglýst var eftir umsókn-
um í janúar s.l. og bárust umsókn-
ir um styrki til 279 verkefna.
Styrkumsóknimar námu samtals
600 milljónum króna og heildar-
kostnaðaráætlanir verkefnanna
námu 1.800 milljónum króna. Út-
hlutað var kr. 64.640.000. Þar af
eru styrkir til framleiðslu og und-
irbúnings dagskrárefnis fyrir
hljóðvarp kr. 11.890.000, en kr.
52.750.000 til framleiðslu og undir-
búnings dagskrárefnis fyrir sjón-
varp. Styrkir verða greiddir út í
byrjun júlí.
Eftirtaldir fengu styrk til undir-
búnings og framleiðslu dagskrár-
efnis fyrir hljóðvarp:
Delos ehf., íslendingabyggðir í
Hull og Grimsby, 507 þús. kr.
RÚV, Heimskautalandið unaðs-
lega, 450 þús. kr. Síðu-Hallur, 200
þús. kr., Nú rökkvar um allan hinn
kringlótta heim, 450 þús. kr.,
Margmiðlunarverkefni fyrir börn,
800 þús. kr. Frostið ehf., Morg-
unútvarp barnanna, 378 þús. kr.
íslenska fjölmiðlafélagið ehf. Ljóð-
list, upplestur, 450 þús. kr., ís-
lenskt mál, 750 þús. kr., Astar-
söngvar Island 360 þús. kr. Friðrik
Páll Jónsson, Út úr skugganum
750 þús. kr. Þórarinn Hjartarson,
Frá Seli til Klettafjalla 850 þús. kr.
Fínn miðill hf., Tónlistarskóla-
kvöld 825 þús. kr. Sinfóníuhornið,
615 þús. kr. Hjálmar Sveinsson,
Sömu lygar og vanalega, 350 þús.
kr. Sævar Ari Finnbogason,
Mannamál 1.400 þús. kr. Ema
Indriðadóttir og Ragnheiður Kri-
stjánsdóttir, Sögubrot í aldarlok -
nokkrar svipmyndir frá 20. öld 200
þús. kr. Jón Asgeirsson, Islending-
ar erlendis 900. þús. kr. Jón Jóns-
son og Rósa Þorsteinsdóttir, Föru-
menn, 365 þús. kr. Pétur Hrafn
Arnason, Þorleifur Friðriksson og
Jón Ingvar Kjartansson, Kristni
og kirkja á íslandi í 1000 ár, 400
þús. kr. Jón Karl Helgason, Síð-
ustu hetjurnar 240 þús. kr. ís-
lenska útvarpsfélagið-Fjölmiðlun
hf., Síðasti áratugur aldarinnar,
650 þús. kr.
Styrkir til framleiðslu
sjónvarpsefnis
Eftirtaldir fengu styrk til und-
irbúnings og framleiðslu dag-
skrárefnis fyrir sjónvarp: Jón Eg-
ill Bergþórsson, Lífsins þúsund
þættir - Jóhann Sigurjónsson, 2
millj. kr. Delos ehf., Sesselja - Að
fylgja Ijósinu, 1.5 millj. kr. Alvís,
Maður er nefndur - Kona er nefnd
2 millj. kr., Tuttugasta öldin 1
millj. kr. Seylan ehf., Dönsk spor,
1,5 millj. kr. Páll Steingrímsson,
Kjarval 3 millj. kr. Zik Zak,
Gauragangur 3 millj. kr. Samver
hf., Sá hæsti í heimi, 800 þús. kr.
Anna Th. Rögnvaldsdóttir, Allir
litir hafsins era kaldir, 7 millj. kr.
Hrafn Gunnlaugsson, Glæpur
skekur húsnæðisstofnun, 1 millj.
kr. Arcticfilm ehf., Aldahvörf -
Sjávarútvegur á tímamótum, 1
millj. kr. Halldór Carlsson, ís-
lenskar myndasögur, 700 þús. kr.
Morefílms ehf., Kisa Kiss, 3 millj.
kr. Nýja Bíó hf. og í einni sæng, í
faðmi hafsins, 1,5 millj. kr. Nýja
Bíó hf., I gegnum linsuna, 2 millj.
kr., Stephan G. Stephansson 2
millj. kr. Saga Film hf., Hálendi
Islands, 1,5 millj. kr., Geysisslysið
- Jökull, 1,5 millj, kr., Iðnó - vagga
listar og hús gleðinnar, 2 millj. kr.,
Fjögur hjörtu, 750 þús. kr. Leifur
heppni og fundur Ameríku, Sig-
urður Örn Brynjólfsson, 500 þús.
kr. Magus, Hetjur hafsins -
Þorskastríðin 1958-1976, 2 millj.
kr. Arfur, Kristján Eldjárn -
heimildarmynd, 1 millj. kr. Knút-
ur Braun, Heiðarleiki listamanns-
ins, 1,5 millj. kr. Kvikmyndasmiðj-
an, Viktor, 1 millj. kr. íslenska út-
varpsfélagið - Fjölmiðlun hf.,
Ormstunga, 2 millj. kr. RÚV, Her-
bergi sex, 6 millj. kr.
BÆKUR
Þýdd skáldsaga
UPPVÖXTUR LITLA TRÉS
eftir Forrest Carter í þýðingu Gyrðis
Elíassonar, Mál og menning,
1999 - 224 bls.
KLUKKAN í Brekkukotsbæ í
annál Halldórs Laxness um það
kot og íbúa þess hafði ef grannt
var skoðað söngtón í ganghljóðinu.
Þessi söngvísa klukka tifaði
stöðugt tveggja atkvæða orð, ei-
líbbð. Slíkan söng er að finna í
undirspili náttúrannar í bók
Forrest Carters, Uppvöxtur Litla
trés, sem út kom fyrir skömmu í
þýðingu Gyrðis Elíassonar. Fleira
vekur hugrenningatengsl milli
þessara tveggja verka, ekki síst
kíminn frásagnarstfll og tvírætt
sjónarhom. Að auki verður Litla
tré, aðalpersóna verksins og sögu-
maður, munaðarlaus fimm ára
gamall. Enda þótt ekkert ólfldnda-
legt sé sagt um hollustu slíkra ör-
laga í þessari bók líkt og í Brekku-
kotsannál, fær drengurinn skjól
hjá afa sínum og ömmu í fjallakofa
þeirra það stundarkom sem þau
hjón eiga eftir ólifað. Um líf þeirra
saman, samlífi þeirra með náttúru
og átök þeirra við stjómvöld, sem
telja hina öldnu indíána óheppilega
uppalendur, snýst þessi fallega
saga.
Bókin er færð í letur 1976 og
hefur síðan verið að vinna sér sess
meðal heimsbókmenntanna. Höf-
undurinn lést 1979 og fékk því
ekki að njóta þeirrar sigurfarar.
Það era raunar áhöld um hvers
eðlis sagan sé. I bókinni er skörp
lýsing á tímabilinu í kringum 1930.
Sagan segir frá barnæsku sögu-
manns og ljóst er að höfundur
skrifar hér um bamæsku sína. Um
ævisögueðli bókarinnar hefur þó
verið deilt. Sá þáttur skiptir okkur
þó litlu máli því að mikilvægast er
að hér er á ferðinni frábært skáld-
verk.
Saga Carters er góð skemmtun
frá upphafi til enda, litrík og öllum
aðgengileg. Hún kemur frá hjart-
anu. Höfundurinn er sögumaður af
guðs náð. I gegnum auga barnsins
sjáum við ótal kúnstugar persónur
íjallahéraðanna, stórbrotnar og
sérkennilegar. Þær lifna á síðun-
um í litlum skoplegum frásögnum
sem ekki bara era kímnar heldur
varpa einnig ljósi á lífsskilyrði
fólksins og örlög. A bak við kímn-
ina er ef vel er skoðað sögð grimm
saga af illri meðferð Bandaríkja-
manna á frambyggjum landsins og
fátæklingum. Við upp-
lifum kynþáttahatur
og misbeitingu póli-
tísks valds. Ekki fer
milli mála andúð höf-
undar á stjórnvöldum,
ekki síst Norðurríkja-
mönnum. Það er því
dálítil þverstæða sem
þýðandi veltir fyrir
sér í eftirmála. Carter
mun hafa verið einn af
ræðuskrifurum þess
fræga stjómmála-
manns, George
Wallace, sem hann tel-
ur með kynþáttaað-
skilnaðarmönnum og
hægri öfgasinnum.
Sennilega hafa þeir Carter þó átt
sameiginlega andúðina á norðan-
mönnum.
Einn meginstyrkleiki sögunnar
er fólginn í lýsingum á hugrekki
og útsjónarsemi fjallabúanna í lífs-
baráttunni, hvemig þeir takast á
við harðneskjulega náttúrana og
hömlur og á tíðum ofsóknir yfir-
valda. Þannig verða jafnvel lestir
þeirra stórbrotnir. Afi Litla trés
hefur þannig framfæri af braggi
og sprúttsölu sem var alvarlegt
lögbrot á bannáranum. Otal fyndn-
ar sögur spretta upp úr þeim iðn-
aði og tilraunum stjórnvalda til að
stöðva hann. En frásögnin er 'með
þeim hætti að lesandi fyllist aðdá-
un í stað fordæmingar á atferli
afans. Glæpurinn verður dyggð í
augum Litla trés því að fjallabú-
amir eiga enga aðra leið til að
komast af.
Nálægð náttúrannar er mikil í
bókinni. Litla tré hefur ekki feng-
ið nafn sitt af tilviljun og hann
upplifir verar náttúrunnar sem
persónulega vini, ekki síst trén.
Því er náttúrusýnin sterk. Höf-
undur beitir jafnvel því stílbragði
að gefa náttúranni raddir og eyk-
ur það á náttúraljóðrænuna svo að
minnir á töfraraunsæi. Þegar
Litla tré er eitt sinn neytt til að
yfirgefa fjallið og afa og ömmu til
að fara á munaðarleysingjahæli
upplifir drengurinn sorg náttúr-
unnar. Greinar og rætur trjánna
reyna að krækja í hann í örvænt-
ingu, lækurinn verður
taugastrekktur, skvettist og fyss-
ar og kráka gargar:
„Öll sögðu þau: „Ekki
fara, Litla tré, ekki
fara, Litla tré...“ Ég
skildi hvað þau sögðu.
Og augu mín blinduð-
ust af táram og ég
staulaðist áfram á
hæla afa. Það tók að
kula, og vindurinn
andvarpaði og hnippti
í lögin á gula frakkan-
um mínum. Deyjandi
rannar teygðu sig inn
á stíginn og flæktust
um fætur mína. Sorg-
ardúfa kveinaði, lengi
og einmanalega - og
henni var ekki svarað,
svo ég vissi að hún var að kveina
mín vegna.“
Lífsspeki sögunnar er einfold.
Kannski túlkar amman hana best.
Hún hefur andúð á kapítalisma og
efnishyggju en leggur áherslu á
innri gildi. Mikilvægara væri að
hagnast andlega en efnislega. Þeir
sem hugsuðu fyrst og fremst um
efnisleg gæði væru dauðir hið
innra: „Amma sagði að maður
gæti auðveldlega borið kennsl á
dautt fólk. Hún sagði að dauðir
menn hugsuðu ekkert nema
óhreinar hugsanir þegar þeim yrði
litið á konur; þegar þeir litu á ann-
að fólk sæju þeir ekkert nema hið
slæma; þegar þeim yrði litið á tré
sæju þeir ekkert nema timbur og
hagnað; aldrei fegurð. Amma
sagði að þetta fólk væri dautt í lif-
anda lífi.“
Það fer ekki milli mála að mín-
um dómi að Uppvöxtur Litla trés
er í alla staði prýðileg bók. Hún er
einföld aflestrar í úrvalsþýðingu
Gyrðis Elíassonar. Hún er góð
skemmtun en jafnframt býr hún
yfir hjartahlýju, djúpri speki og
ekki síst töfrandi stíl.
Skafti Þ. Halldórsson
Gyrðir
Elíasson
Sverrir Krist-
insson formað-
ur Listskreyt-
ingasjóðs
SVERRIR Kristinsson fram-
kvæmdastjóri hefur verið skipaður
formaður Listskreytingasjóðs rík-
isins. Menntamálaráðhera hefur
skipað stjóm sjóðsins sem starfar
samkvæmt lögum um listskreyt-
ingar opinberra bygginga og List-
skreytingasjóð rikisins sem öðluð-
ust gildi 1. janúar sl.
Samkvæmt 4. gr. laganna er
stjórn Listskreytingasjóðs skipuð
fimm mönnum til tveggja ára í
senn. Skulu tveir nefndarmenn
skipaðir samkvæmt tilnefningu
Sambands íslenskra myndlistar-
manna, einn samkvæmt tilnefningu
Arkitektafélags íslands, einn sam-
kvæmt tilnefningu samstarfsnefnd-
ar um opinberar byggingar og hinn
fimmta, sem jafnframt er formaður
nefndarinnar, skipar ráðherra án
tilnefningar. Varamenn skulu skip-
aðir með sama hætti.
I stjóm eiga sæti, auk Sverris,
Anna Eyjólfsdóttir, myndlistar-
maður og Valgerður Hauksdóttir
myndlistarmaður, Andrés Narfi
Andrésson arkitekt, Ema Hjalte-
sted lögfræðingur.
Varamaður Sverris Kristinsson-
ar og jafnframt varaformaður er
Freyr Jóhannesson tæknifræðing-
ur.
Konunglegi danski
ballettinn sýnir
í Þjóðleikhúsinu
Ljósmynd/Martin Mydtskov Renne
SILJA Schandorff og Peter Bo Bendixen eru
meðal dansara sem dansa í Þjóðleikhúsinu.
KONUNGLEGI
danski ballettinn sýn-
ir í Þjóðleikhúsinu
miðvikudaginn 2. og
fimmtudaginn 3. júní
kl. 20. Rúmlega tveir
áratugir eru síðan
hópur á vegum Kon-
unglega danska ball-
ettsins sýndi síðast í
Þjóðleikhúsinu.
Að þessu sinni eru
það sólódansarar úr
fremstu röðum baU-
ettsins sem sækja fs-
land heim, stómöfn
úr hópnum: Mette
Bödtcher, Silja
Schandorff, Peter Bo
Bendixen, Christina
Olsson, Mads Blangstrup, Jo-
hann Kobborg, Alexei Ratman-
sky, Henning Albrechtsen, Tina
Höjlund og Diana Curi.
A efnisskrá eru fjögur dans-
verk, af ýmsum toga: Ballett
Peter Martins „Barber Violin
Concerto", við tónlist Samuel
Barber, „Witness", eftir Alvin
Ailey, við tónlist Negro Spiritu-
als, Pas-de-deux úr „Blóma-
veislan í Genzano“ eftir August
Bournonville við tónlist H.S.
Pauli og síðast en ekki síst sýn-
ir allur hópurinn hluta úr 3.
þætti hins þekkta og sígilda
„Napoli" eftir Bournonville, við
tónlist Edvard Helsted og H.S.
Pauli.
Það er Danska sendiráðið á
Islandi sem stendur að komu
listamannanna til landsins, í
samstarfí við Þjóðleikhúsið, og
Kaupþing styrkir viðburðinn.
L0ND0N
frá kr. 16.645
í SUMAR MEÐ HEIMSFERÐUM
Heimsferðir bjóða nú beint leiguflug vikulega til London í sum-
ar, en við höfum stórlækkað verðið fyrir íslenska ferðalanga til
þessarar mestu heimsborgar Evrópu. Nú getur þú valið um að
kaupa flugsæti eingöngu, flug og bfl eða valið um eitthvert ágæt-
is hótel Heimsferða í hjarta London. Brottför alla miðvikudaga í
sumar. Bókaðu strax og tryggðu þér lága verðið.
Verð kr. ] L6.645 Verð kr. ] L9.99C >
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, flugsæti og skattar. Flug og skattur.
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is