Morgunblaðið - 27.05.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 27.05.1999, Blaðsíða 56
56 FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR GUÐMUNDSSON, Sunnuhlíð, Kópavogi, lést að morgni þriðjudagsins 25. maí sl. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstu- daginn 4. júní kl. 15.00. Lára Pálsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, MATTHÍAS SVEINN VILHJÁLMSSON, Urðarvegi 64, ísafirði, verður jarðsunginn frá (safjarðarkirkju laugar- daginn 29. maí kl. 14.00. Guðrún S. Valgeirsdóttir, Sesselja M. Matthíasdóttir, Kristján Hilmarsson, Ómar H. Matthíasson, Jarnbrá Hilmarsdóttir, Ingibjörg M. Matthíasdóttir, Jökuil Jósefsson, Auður K. Matthíasdóttir, Aðalsteinn Ómar Ásgeirsson, Vilhjálmur V. Matthíasson, Ásdís B. Pálsdóttir, Guðmundur F. Matthíasson, Asía Sara Pétursson, Koibrún Matthíasdóttir, Erlendur Geirdal, Guðrún S. Matthíasdóttir, Sigurður H. Dagbjartsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir og tengdasonur, ÁGÚST NORDGULEN verktaki, Fannafold 24, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum að morgni hvíta- sunnudags, verður jarðsunginn frá Bústaða- kirkju föstudaginn 28. maí kl. 13.30. Ásta Þórunn Þráinsdóttir, Halla Sjöfn Ágústsdóttir, Friðrik Már Steinþórsson, Anna Rut Ágústsdóttir, Ágúst Orri Ágústsson, Lúðvík S. Nordgulen, Sigríður S. Einarsdóttir, Þráinn Jónsson, Halla Gunnlaugsdóttir og fjölskyldur. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN VETURLIÐASON matsveinn, Hrafnistu Hafnarfirði, áður til heimilis á Hringbraut 39, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 27. maí, kl. 15.00. Eyjólfur Jónsson, Kristinn Jónsson, Björk Aðalsteinsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Jóhannes Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. A * t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma , KRISTÍN GRÍMSDÓTTIR, síðast til heimilis á Skúlagötu 40a, Reykjavlk, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 28. maí kl. 15.00. Guðrún Erna Sæmundsdóttir, Ingunn Ragna Sæmundsdóttir, Siggeir Jóhannesson, Bjarni Sæmundsson, Gíslfna Vilhjálmsdóttir, Gylfi Sæmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Guðmunda Ingi- björg Einars- dóttir fæddist 15. nóvember 1905 að Stafni í Deildardal í Skagafirði. Hún lést 16. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Birgitta Guð- mundsdóttir og Ein- ar Ásmundsson. Ingibjörg átti einn albróður, Ásmund Hólmfreð, f. 1901, sem drukknaði 22 ára gamall. Hálf- systkini Ingibjargar sammæðra: Karlotta, f. 1909; Jón Hjaltdal, f. 1911, d. 1999; Júlíana, f. 1915, d. 1987; Sigur- iaug, f. 1918, d. 1975, og Frið- fríður, f. 1923, d. 1992. Hálfsystkini Ingibjargar sam- feðra: Felix, f. 1918, d. 1979; Ása, f. 1925, og Kjartan, f. 1933. Ingibjörg giftist árið 1927 Marinó Steini Þorsteinssyni frá Litlu-Hámundarstöðum. Hann fæddist 28. september árið 1903, dáinn 4. september 1971. Böm þeirra era: 1) Valgerður, f. 5.12. 1927, d. 18. mars 1963, gift Valdimar Óskarssyni og áttu þau sex böm. 2) Ása, f. 9.2.1932, gift Sveini E. Jónssyni og eiga þau fjögur börn. 3) Þorsteinn, f. 30.12. 1934, var kvæntur Fjólu Kr. Jóhannsdóttur, f. 31.8. 1980, og áttu þau fimm böra. 4) Birgir, f. 27.10. 1939, kvæntur Önnu Maríu Jóhannsdótt- ur. Börn hans af fyrra hjónabandi með Böðvínu Maríu Böðvarsdóttur era fjögur, og Anna María á tvær dætur af fyrra hjónabandi. 5) Hildur, f. 24.9. 1941, gift Gylfa Baldvinssyni og eiga þau fjögur böra. Af- komendur Ingi- bjargar og Marinós eru 78. Ingibjörg útskrif- aðist úr Ljósmæðra- skóla Islands vorið 1929 og tók þá við Árskógshreppsumdæmi sem Ijósmóðir og starfaði þar samfleytt til 1. jan. árið 1961. Auk þess gegndi hún fleiri um- dæmum svo sem Dalvík, Svarf- aðardal og Hrísey. Einnig tók hún á móti böraum í Amames- hreppi og víðar. Marinó andaðist árið 1971 og nokkru eftir það fluttist Ingi- björg til Akureyrar. Þar starfaði hún um tíma á Dvalarheimilinu Hlíð og tók að sér sumarafleys- ingar sem ljósmóðir á Blönduósi, í Neskaupstað og á Höfn í Homafirði. Marinó og Ingibjörg byggðu nýbýið Engihlíð árið 1934 og bjuggu þar til ársins 1971. Utför lngibjargar fór fram frá Stærri-Árskógskirkju þriðju- daginn 25. maí. Mig langar til að setja á blað nokkur kveðjuorð um góða vinkonu mína, Ingibjörgu Einarsdóttur. Kynni okkar Ingibjargar hófust fyrst þegar ég tvítug að aldri ræð mig sem kaupakona að Krossum, Árskógsströnd. Guðný systir mín og eiginmaður hennar, Jóhann Olafsson voru þá að Krossum. Ingi- björg bjó þá á næsta bæ, að Engi- hlíð. Mikill vinskapur var alla tíð á milli Guðnýjar systur minnar og Ingibjargar. Á þessum tíma kynnist ég fyrst Ingibjörgu og okkar vinskapur hef- ur haldist óslitið síðan. Árið 1984 kaupi ég mér íbúð að Skarðshlíð 15j, Akureyri, þá býr Ingibjörg í sama stigahúsi, eða í íbúð 15d. Við heimsóttum hvor aðra daglega og ég minnist þess hve gott var að koma til hennar og hve hún var glaðvær og gestrisin. Þegar ég hugsa til löngu liðinna ára rifjast upp góðar minningar frá okkar kynnum, þar sem Ingibjörg veitti af ástúð og umhyggju. Ingibjörg var hlý og góð kona sem reyndist mér ávallt vel. Þegar kvödd er góð vinkona, þá mega mín orð sín ekki mikils. Nú er komin kveðjustundin. Börnum hennar, tengdabörnum, barnaböm- um og ástvinum öllum sendi ég mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Megi hún hvfla í friði. Nú legg ég augun aftur ó, Guð þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engill, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Sigrún Gunnarsdóttir. GUÐMUNDA INGIBJÖRG EINARSDÓTTIR KRISTINN R UNÓLFSSON + Kristinn Run- ólfsson fæddist í Reykjavík 14. sept- ember 1912. Hann andaðist í Reylgavík 16. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Runólfur Þórðarson frá Móum á Kjalar- nesi, f. 24. ágúst 1874, d. 20. apríl 1947, og Kristín Jónsdóttir, f. 9. júh' 1874, d. 12. nóvem- ber 1912. Systkin: Karl, f. 2.11. 1897, d. 4.3. 1995; Jón, f. 9.6. 1910, d. 3.7. 1978. Seinni kona Runólfs var Ingiríður Ein- arsdóttir og eignuð- ust þau eina dóttur, Svövu, f. 5. júlí 1920. Kristinn kvæntist 23. maí 1941 Guð- björgu Eiríksdóttur, f. 3. apríl 1920. Böra þeirra eru: 1) Guðný Edda, f. 27.9. 1941 (kjördóttir). 2) Guð- mundur, f. 9.9. 1947. 3) Halldór, f. 15.2. 1952. Fyrir hjóna- 12.5. 1970; Þórður, f. 15.9. 1899, d. 31.7.1994; Jódís, f. 12.8. 1901, d. 25.9. 1994; Ástríður, f. 6.7. 1904, d. 28.1. 1962; Vilborg, f. 31.1. 1907, d. band átti Kristinn dótturina Elúiu, f. 14.11. 1930, með Magneu Sigurveigu Guðjóns- dóttur. Kristinn Runólfsson fóðurbróðir minn er látinn á áttugasta og sjöunda ári. Hann var yngstur sjö bama hjón- anna Runólfs Þórðarsonar frá Móum á Kjalamesi og Kristínar Jónsdóttur. Þau systkin era nú öll látin. Eftirlif- andi hálfsystir er Svava Runólfsdóttir sem nú býr í Reykjavík ásamt manni sinum Skafta Friðfinnssyni. Kristinn var fæddur í Reykjavík 14. septem- ber 1912 en missti móður sína er hann var aðeins tveggja mánaða gam- all og var hann þá tekinn í fóstur af móðurbróður sínum Guðmundi Jóns- syni jámsmið á Bakka við Bakkastíg og konu hans Sigurbjörgu Stefáns- dóttur. Gengu þau honum í foreldra stað allt til fullorðinsára. Kristinn lærði jámsmíði ungur hjá frænda sín- um Guðmundi en fór síðan í Vélskóla Islands og lauk þaðan vélstjóraprófi. Starfaði hann við vélstjóm til sjós í mörg ár bæði á togurum og farskip- um. Á miðjum aldri fór Kristinn í land og gerðist starfsmaður Kassa- gerðar Reykjavíkur. Sá hann þar um allt viðhald á tækjum og búnaði verk- smiðjunnar og fórst vel úr hendi. Var hann metinn að verðleikum af eigend- um fyrirtækisins og fékk að starfa þar svo lengi sem hann treysti sér til. Kristinn var hvers manns hugljúfi og hlýr persónuleiki. Það var ávallt stutt í brosið hjá honum. Þeir bræður Þórður, faðir minn, og Kristinn vora miklir mátar alla tíð og héldu sam- bandi hvor við annan meðan báðir lifðu. Áttu þeir meðal annars sameig- inlegt áhugamál þar sem málaralistin var. Þá voru þeir báðir félagar í Odd- fellow-reglunni og í sömu stúku þar. Kristinn var flinkur málari og teikn- ari og í eðli sínu mjög listfengur. Þá var hann og smiður góður bæði á járn ogtré. Við hjónin sendum fjölskyldu Kristins allri okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning Kristins Runólfssonar. Runólfur Þórðarson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII- skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úr- vinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 669 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heima- síðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skímarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VIGGÓ JÓNSSON frá Rauðanesi, Borgarhreppi, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju laugar- daginn 29. maí kl. 14.00. Börn, tengdabörn og afkomendur þeirra. t Móðir okkar, ANNA MARGRÉT SIGURGEIRSDÓTTIR frá Steinum, Kirkjuhvoli, Hvolsvelli, verður jarðsungin frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn 29. maí kl. 14.00. Bílferð verður frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 11.30 með viðkomu á Selfossi kl. 12.30 og Kirkjuhvoli, Flvolsvelli, kl. 13.00 Börnin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.