Morgunblaðið - 27.05.1999, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1999 59
Hannes Hlífar sigrar á minn-
ingarmóti um Jóhann Þóri
SKAK
Viðey
MINNINGARMÓT UM JÓHANN
ÞÓRIJÓNSSON
21.-22. maí 1999
MINNINGARMÓT um Jóhann
Þóri Jónsson var haldið um helgina
21.-22. maí. Þetta var helgarskákmót
í anda Jóhanns, en
hann hafði einmitt
ætlað að kóróna
skálcmótahald sitt
um landið með
helgarmóti í
Reykjavík. Mótið
fór fram á
skemmtilegum stað
og þurftu keppend-
ur að sigla til Við-
eyjar til að taka
þátt í því. Þátttaka var mjög góð, en
45 manns mættu til leiks. Mótið var
geysisterkt og t.d. tóku 6 stórmeistar-
ar og 2 alþjóðlegir meistarar þátt í
mótinu. Keppnin um fyrsta sætið stóð
einkum á milli þeirra Hannesar Hlíf-
ars Stefánssonar og Jóhanns Hjartar-
sonar. Eftir tap Jóhanns fyrir Sævari
Bjamasyni í 7. umferð náði Hannes
eins vinnings forskoti. Reyndist það of
mikið fyrir Jóhann og sigraði Hannes
Hlífar á mótinu, fékk 7% vinning af
m'u. I öðru sæti varð svo Jóhann
Hjartarson með 7 vinninga og þriðja
til fímmta sæti deildu þeir Sævar
Bjamason, Margeir Pétursson og
Amar Þorsteinsson, allir með 6V4
vinning. Urslit mótsins urðu annars
þessi:
1. Hannes Hlífar Stefánsson ......7i4 v.
2. Jóhann Hjartarson................7 v.
3. -5. Sævar Bjamason............6‘/2 v.
Margeir Pétursson................6 'A v.
Amar Þorsteinsson.................6/2 v.
6.-8. Jón Garðar Viðarsson..........6 v.
Sigurbjöm Bjömsson ...............6v.
Jón Viktor Gunnarsson.............6v.
9.-14. Helgi Ólafsson ............5/2 v.
Jón L. Amason ....................5V2 v.
Friðrik Ólafsson .................5/2 v.
Askell Öm Kárason ................5'A v.
Tómas Bjömsson ..................5%v.
Stefán Kristjánsson ..............5/2 v.
15.-20. Ágúst SindriKarlsson........5 v.
Róbert Harðarson ...................A v.
Júlíus Friðjónsson .................5 v.
Hlíðar Þór Hreinsson................5 v.
Hannes Hlífar
Stefánsson
Sarajevo 1999
16.-28. maí
Nr. Nafn Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Vinn. Röð
1 Peter Leko 2694 1/2 1/2 1/2 1/2 1/2 1 1/2 0 4 6.-7.
2 Alexander Morozevic 2723 1/2 1/2 1/2 0 0 1 1 1 4,5 5.
3 Jan H. Timman 2670 1/2 1/2 0 0 0 0 0 0 1 10.
4 Michael Adams 2716 1/2 1/2 1 1/2 1 0 1 1/2 5 4.
5 Evgeny Bareev 2679 1/2 1 1 1/2 1/2 1/2 1 1/2 5,5 2.-3.
6 Gary Kasparov 2812 1/2 1 1 1/2 1 1/2 1 1/2 6 1.
7 Nigel D. Short 2697 0 0 0 1/2 0 1/2 1 1/2 2,5 8.
8 Veselin Topalov 2700 1/2 1 1 0 1/2 % | 1/2 0 4 6.-7.
9 Ivan Sokolov 2624 0 1 0 1/2 0 0 1/2 0 2 9.
10 Alexei Shirov 2726 1 0 1 1/2 1/2 1/2 1 1 5,5 2.-3.
Bergsteinn Einarsson .............5 v.
Torfi Leósson....................5v.
o.s.frv.
Bestum árangri keppenda 14 ára
og yngri náðu:
1. Dagur Amgrímsson ............4‘A v.
2. Guðmundur Kjartansson.........3‘/2 v.
3. Hjörtur Ingvi Jóhannsson..........2 v.
Samtímis mótshaldinu í Viðey var
stofnaður minningarsjóður um Jó-
hann Þóri. Markmið þessa sjóðs er að
styrkja skákmótahald með svipuðu
sniði og Jóhann stóð fyrir, en hann
stóð m.a. fyrir 49 helgarskákmótum
um allt land. Þeim sem vilja leggja
sjóðnum lið er bent á bankareikning
minningarsjóðsins í Islandsbanka við
Háaleitisbraut, m-. 525-26-5438.
Sarajevo
Nú er aðeins ein umferð ótefld á
stórmeistaramótinu í Sarajevo. Fyrir
áttundu umferð voru þeir Gary Ka-
sparov og Evgeny Bareev einir efstir.
Baarev varð hins vegar að sætta sig
við jafntefli gegn enska stórmeistar-
anum Michaei Adams í áttundu um-
ferð meðan Kasparov lagði Timman
með svörtu. Jan Timman er algjör-
lega heillum horfinn á þessu móti og
hefur aðeins náð tveimur jafnteflum
en tapað sex skákum. Situr hann nú á
botninum með einn vinning. Úrslit 8.
umferðar urðu þessi:
Alexei Shirov - Ivan Sokolov.......1-0
Michael Adams - Evgeny Bareev.....'k-'h
Alexander Morozevich - Nigel D. Short .1-0
Peter Leko - Veselin Topalov......'A-'h
Jan H. Timman - Gary Kasparov 0-1
I lokaumferðinni mætast:
Gary Kasparov - Michael Adams
Evgeny Bareev - Alexei Shirov
Veselin Topalov - Alexander Morozevich
Nigel D. Short - Jan H. Timman
Ivan Sokolov - Peter Leko
I eftirfarandi skák, sem tefld var í
sjöundu umferð, ber Kasparov mikla
virðingu fyrir ungu stjömunni. Hann
forðast aðalafbrigði slavnesku vamar-
innar og velur sjaldgæft afbrigði sem
ætti ekki að gefa mikið í aðra hönd.
Eftir að Morozevich missir af ná-
kvæmustu leiðinni nær Kasparov þó
undirtökunum. Morozevich veitir hins
vegar harða mótspyrnu og Kasparov
þarf að taka á öllu sínu til að innbyrða
vinninginn.
Hvítt: Gary Kasparov (2812)
Svart: Alexander Morozevich (2723)
Slavnesk vörn [D10]
l.d4 d5 2.c4 c6 3.Rc3 Rf6 4.e3 Ka-
sparov tekur núna þá ákvörðun að
forðast tískuafbrigðið 4.RÍ3 dxc4
5.a4, en Morozevich hefur teflt það
með góðum árangri. 4...a6 5.Dc2
Frekar sjaldséð afbrigði er nú komið
upp. 5.,.b5 6.b3 Bg4 7.Rge2 Rbd7
8. Rf4 Mun algengara er að leika
fyrst 8.h3 Bh5 og svo 9.RÍ4. 8...e5!?
9. dxe5 Rxe5 10.h3 Be6 ll.Be2 Bd6
12.0-0 0-0 Missir af nákvæmustu
leiðinni. Að sögn Kasparovs hefði
12...Rg6 leitt til tafljöfnunnar, en nú
nær hvítur frumkvæðinu. 13.Bb2
Rg6 14.Rxg6 hxg6 15.cxd5 cxd5
16.BÍ3 Hc8 17.Dd2
Línur hafa skýrst og er ljóst að hvít-
ur hefur undirtökin þar sem svartur
hefur ekkert mótspil fyrir staka peð-
ið. 17...Bb8 18.Hfdl Dc7 19.g3 Hfd8
Ef svartur reynir að losa sig við
staka peðið með 19...Bxh3 20.Rxd5
Rxd5 21.Bxd5 en þá myndu hvítu
biskuparnir ráða lögum og lofum.
20.Hacl Dd7 21.h4 Ba7 22.Re2 Nú
fara fram mikil uppskipti á léttu
mönnunum, en það er alkunna að
eftir því sem mönnum fækkar á
borðinu verður erfiðara að verja
staka peðið. 22...Hxcl 23.Dxcl Bg4
24.Bxg4 Dxg4 25.Bxf6 gxf6 26.Hd2
26.. . He8? Nú bregst svörtum boga-
listin. Nauðsynlegt var 26...De6 með
langa og erfiða vörn fyrir höndum.
Eftir textaleikinn vinnur Kasparov
peð, en vinningurinn er sýnd veiði en
ekki gefin! 27.Ddl Df3 28.Rf4
Dxdl+ 29.Hxdl d4 30.exd4 Hd8
31.d5 Bb8 32.Re2 Kg7 33.Kg2 f5
34.KÍ3 Bd6 35.RÍ4 Hd7 36.Rg2 Bb8
37.Re3 Ba7 38.h5 Bc5 39.a4 bxa4?!
Betra var að bíða með því að leika
39.. .Hd8, en þá hefði vinningurinn
orðið torsóttur fyrir hvítan. 40.bxa4
Bxe3 41.Kxe3 gxh5 42.Kd4 Kf8
43. Hbl?! 43.Hhl virðist vera ein-
faldasta leiðin til sigurs. 43...Í4!
44. a5 fxg3 45.fxg3 Ke7 46.Hb6 Hd6
47.Kc5 Hg6 48.d6+ Ekki 48.Hxg6
fxg6 49.Kb6 Kd7 50.Kxa6 g5 51.Kb7
h4 52.gxh4 gxh4 53.a6 h3 54.a7 h2
55.a8=D hl=D með jafntefli.
48.. .Kd7 Nú fór síðasti möguleikinn
forgörðum. Eftir 48...Ke6 er vinning-
urinn ekki svo einfaldur því 49.Kc6
virðist aðeins leiða til jafnteflis:
49.. .Hxg3 50.Kc7 Hd3 51.Hxa6 h4
52.Hc6 h3 53.a6 h2 54.a7 hl=D
55.a8=D Dh2 og það er ekki að sjá
að hvítur geti unnið þessa stöðu.
Best virðist því 49.Hb3! með góðum
vinningsmöguleikum á hvítt.
49.Hb7+ Kc8 50.Hc7+ Kd8 51.Ha7
Hxg3 52.Hxa6 Hc3+ 53.Kb4 Hcl
54.Ha8+ Kd7 55.a6 og svartur gafst
upp því eftir 55...Hal kemur 56.a7 og
við hótuninni Hf8 er ekkert svar. 1-0
Meistaramót Skákskólans
hefst í kvöld
Meistaramót Skákskóla Islands
hefst í kvöld, fimmtudaginn 27. maí,
klukkan 20. Mótið verður að venju
haldið í húsnæði skólans að Faxafeni
12 í Reykjavík. Alln- nemendur skól-
ans hafa þátttökurétt.
Alls verða sjö umferðir. Fyrstu
þrjár umferðirnar verða atskákir en
þær fjórar síðustu kappskákir. Mót-
inu Iýkur á sunnudag.
Skákmót á næstunni
Tilkynningar um skákmót og aðra
viðburði sendist til umsjónarmanna
skákþáttar Morgunblaðsins. Tölvu-
póstfangið er dadi@vks.is. Einnig
má senda annað efni og athugasemd-
ir við skákþættina á sama póstfang.
27.5. Meistaramót Skákskólans
29.5. S.f. Aðalfundur
30.5. Hellir. Kvennamót
4.6. Skákþing Hafnarfjarðar
7.6. Hellir. Atkvöld
9.6. Boðsmót T.R.
Daði Orn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson
FrimeMH
MERKI sýningarinnar í Sfðumúla 17 29. og 30. maí nk.
Frímerki
íslandspósts hf. 1998
FRIMERKI
TÖLUVERÐ BREYTING
Á FRIMERKJUM PÓSTSINS
NOKKUÐ er umliðið síðan ég minntist á
það, að í frímerkjaþáttum yrði eitthvað rætt
um frímerkjaútgáfu Póstsins á liðnu ári og
síðan áfram á þessu ári. Þannig yrði aftur tek-
in upp sú venja, sem lengi hefur verið fylgt í
þessum þáttum, að geta um útkomu nýrra frí-
merkja. Því miður hefur ýmislegt orðið þess
valdandi, að þetta hefur fallið niður og orðið
að þoka fyrir öðru og brýnna efni að mínum
dómi. Sú þögn, sem ríkt hefur í þáttum þess-
um um frímerki Póstsins, stafar auðvitað ekki
af því, að allir séu svo ánægðir með þau merki,
sem út hafa komið, að ekki sé ástæða til þess
að minnast á þau.
Nú er ár liðið, síðan hér var fjallað um frí-
merkjaútgáfú Póstsins. Var þá rætt um fjögur
frímerki, sem helguð voru nytjafiskum, eins
og það var orðað. í sambandi við þá útgáfu
fannst mér einna sízt, hversu latnesku heiti
fískanna voru yfirgnæfandi á myndfletinum.
Um það veit ég, að margir voru og eru mér
samdóma. Ekki virðist hönnuður þessara
merkja á sama máli, því að í janúar sl. bættust
tvö frímerki við þennan flokk og með sama
handbragði og áður. Þá hef ég heyrt saftiara
lýsa óánægju sinni með litaval merkjanna.
Benda þeir þá á, að litimir séu í litlu samræmi
við liti þeÚTa fiská, sem lýst er. Allt er þetta
satt og rétt, en því neita ég ekki, að yfirbragð
frímerkjanna er nýstárlegt og svo bjart er
a.m.k. yfir þeim, að stimplar sjást vel á merkj-
unum.
í sept. sl. komu út þrjú frímerki. Tvö þeirra
komu út í flokki, sem nefnist Steindir, en það
orð er nýyrði yfir það, sem á erlendum tung-
um nefnist m. a. Mineraler. A íslenzku hefur í
því sambandi oftast verið talað um steinteg-
undir. í tilkynningu Póstsins segir, að ísland
hafi um aldir verið frægt fyrir fallega seólíta
(geislasteina). Er Teigarhom í Berufirði
þekktast fundarstaðanna. Verðgildi þessara
frímerkja er 35 og 45 krónur. Á fyma merkinu
er tegund, sem nefnist stilbit, en hún er al-
gengust íslenzkra seólíta. Á síðara merkinu er
svonefnt skólesít. Aðalbjörg Þórðardóttir hef-
ur hannað þessi merki eftir eintökum í steina-
safni Náttúrfræðistofnunar Islands. Svo voru
þau prentuð hjá Joh. Ensehedé en Zonen í
Hollandi.
Heldur finnst mér aðallitur merkjanna
dökkur, en það er trúlega gert með vilja, svo
að steindimar njóti sín betur.
Þá kem ég að þriðja frímerkinu, 70 kr.,
minningarfrímerki á aldarafmæli Holds-
veikraspítalans í Laugai’nesi. Þetta merld tel
ég, að hafi algerlega misheppnazt hjá hönnuði
þess. Fer allt saman til þess að gera merkið
óásjálegt: stærð, litaval og leturgerð. Minnist
ég varla að hafa séð öllu nöturlegra íslenzkt
frímerki. Skil ég satt bezt að segja ekki,
hvemig útgáfunefnd Póstsins hefur getað lagt
blessun sína yfir það í þeirri mynd, sem það
birtist okkur. Einhverjir minnast trúlega af-
mælisfrímerkis Landspítalans frá 1980, sem
var vissulega ekki sérlega fallegt, en þó mikil
hátíð hjá þessu merki. Ef sama stærð hefði
verið valin á þetta merki og er á Landspítala-
merkinu og litimir hafðir bjartir, hefði um leið
mátt hafa letrið svo stórt og skýrt, að ekki
þurfi nánast stækkunargler til þess að geta
lesið það. Danskir Oddfellowar, sem gáfu ís-
lendingum spítalann fullbúinn fyrir einni öld,
hefðu átt annað betra skilið á aldarafmæli
þessa merka viðburðai- í heilbrigðissögu ís-
lendinga en þetta merld. Merldð var offset-
prentað hjá House of Questa í Englandi.
Næstu fn'merki Póstsins komu svo út í
október, en frá þeim og fyrstu frímerkjum
þessa árs verður greint í næsta þætti.
Frá félagsstarfi frímerkjasafnara
Um langt skeið hefur lítið verið sagt frá
starfsemi frímerkjasafnara og þeim félögum
þeirra, sem enn munu vera til, enda hefur ver-
ið hljótt um þau, því miður. Af því leiðir svo
trúlega það, að nær ekkert heyrist frá sjálfu
Landssambandi þeirra og þeim verkum, sem
stjóm þess er vonandi að vinna að. Umsjónar-
maður frímerkjaþátta Mbl. fær a.m.k.
stopular fréttir úr þeim herbúðum. Hið eina
lífsmark, sem ég veit um meðal frímerkja-
safnara, er í starfi Félags frímerkjasafnara.
Er ánægjulegt að verða vitni að því, að veru-
legur fjörkippur hefur orðið í heimsóknum til
félagsins í Síðumúla 17 á laugardögum. Eins
eru mánaðarfundir þess að jafnaði betur sótt-
ir en var á tímabili. Það lofar vissulega góðu,
hvað sem öðru líður innan samtaka safhar-
anna. Aðalfundur Félags frímerkj asafnara
var haldinn í marz sl. Sveinn Ingi Sveinsson
var endurkjörinn formaður þess. Aðrir stjóm-
armenn em Steinar Om Friðþórsson varafor-
maður, Guðni Friðrik Ámason ritari, Garðar
Schiöth gjaldkeri, Steingrímur Bjömsson
meðstjómarmaður og Eggert Ólafur Antons-
son varamaður. Félagsmönnum hefur fjölgað
þó nokkuð, enda má sjá það á aukinni aðsókn
á fundum þess og samkomum á laugardögum,
svo sem áður hefur verið minnzt á.
Landsþing Landssambands ísl. frímerkja-
safnara verður háð næstkomandi laugardag í
Kiwanishúsinu við Engjateig. Frímerkjasýn-
ing, Frímerki 99, verður í tengslum við þingið
og haldin í félagsheimili LÍF í Síðumúla 17.
Hefst hún á laugardag kl. 13.30 og verður op-
in til kl. 17.00. Á sunnudag verður hún opin
ft-á kl. 13.00 til 17.00. Sýningin er með nýju
sniði, þar sem hvert safn verður aðeins einn
rammi. Sami sýnandi getur hins vegar verið
með fleiri en eitt safti. Þetta er vitaskuld gert
til þess að fá fleiri safnara til þess að taka þátt
í frímerkjasýningu. Er það áreiðanlega rétt
stefna, því að það bæði örvar sjálfa sýnend-
uma og gefur öðrum söfnurum tækifæri til
þess að sjá, hverju má safna og hvernig. Hvet
ég þess vegna áhugamenn um frímerki ein-
di-egið til þess að sækja Frímerld 99 um
næstu helgi og kynna sér starfsemi íslenzkra
frímerkjasafnara.
Jón Aðalsteinn Jónsson