Morgunblaðið - 03.06.1999, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
78 seglbátar leggjast á hliðina í snarpri vindhviðu
156 kappsiglinga-
mönnum bjargað
Weymouth. Reuters, AP.
Reuters
TVÆR siglingakonur fagna eftir að þeim var bjargað úr sjónum und-
an strönd Englands í gær. Snörp vindhviða hvolfdi bát þeirra og 154
annarra keppenda í kappsiglingu seglbáta.
mbl.is
Rannsókn brunans
í Gautaborg
Margt þyk-
ir benda til
íkveikju
Stokkhólmi. Reuters.
SÆNSKA lögreglan sagði í gær að
margt benti til þess að brennuvarg-
ar hefðu valdið brunanum í sam-
komuhúsi í Gautaborg í október
sem varð 63 ungmennum að bana.
Lögreglan í Gautaborg hefur yf-
irheyrt rúmlega þúsund manns
vegna rannsóknarinnar, að sögn
talsmanns hennar, Bengt Staaf.
Staaf skýrði ennfremur frá því að
lögreglan hefði handtekið tvo 19 ára
menn en leysti þá úr haldi á mánu-
dag vegna ónógra sannana. „Við
teljum auknar líkur á því að um
íkveikju hafi verið að ræða,“ sagði
hann.
Flest ungmennanna sem fórust í
brunanum voru innflytjendur og
lögreglan hefur aldrei útilokað þann
möguleika að kveikt hafi verið í
samkomuhúsinu.
„Lögreglumennirnir sögðu okkur
að þeir vissu að kveikt hefði verið í
og við ættum ekki að ljúga, heldur
játa,“ hafði sænska dagblaðið Ex-
pressen eftir öðrum mannanna sem
voru handteknir. Þeir sögðust báðir
vera saklausir.
„Mér hefur liðið hræðilega í
marga mánuði," hafði blaðið eftir
hinum manninum. „Eg missti
nokkra vini og ættingja í brunanum
og nú kemur lögreglan og segir að
ég hafi valdið honum.“
Lögreglan hefur líka sagt að þeir
sem skipulögðu dansleik ungmenn-
anna kunni einnig að bera ábyrgð á
manntjóninu.
156 siglingamenn köstuðust í sjóinn
þegar 78 seglbátar lögðust á hliðina
í snarpri vindhviðu í miðri kappsigl-
ingu undan suðurströnd Englands í
gær. Miklar björgunaraðgerðir
hófust strax nálægt strandbænum
Weymouth og lögreglan sagði í
gærkvöld að öllum keppendunum
hefði verið bjargað.
37 ára kona meðal keppendanna
var flutt með flugvél á sjúkrahús
vegna ofkælingar. Þyrlur bresku
strandgæslunnar, björgunarbátar
og aðrir bátar fluttu blauta og
hrakta siglingamennina á land.
„Frábærlega" staðið að
björguninni
Mesta mildi þykir að enginn
skyldi hafa farist. „Fólkið var í
miklum háska þarna og manntjónið
hefði getað orðið mikið,“ sagði einn
keppendanna, Mark May.
„Þetta var mjög ógnvekjandi,"
sagði May. „Þegar kappsiglingin
hófst Var veðrið mjög gott, en vind-
hviðan kom svo skyndilega að við
áttum enga möguleika.*1
May bætti við að „frábærlega“
hefði verið staðið að björguninni og
þyrla strandgæslunnar hefði komið
á staðinn tveimur mínútum eftir að
óskað var eftir aðstoð.
Kappsiglingin var fyrir litla hrað-
skreiða seglbáta með tvo skrokka
sem eru tengdir með þverbitum.
Tveir menn voru í hverjum þeirra.
Einn keppendanna, Wendy Ric-
hards, kvaðst hafa siglt að strönd-
inni þegar óveðrið hófst. „Það var
snarpur vindur,“ sagði hún í sam-
tali við fréttaritara Reuters-frétta-
stofunnar. „Vindurinn magnaðist
stöðugt og allt var á tjá og tundri."
Önnur siglingakona, Sally
Dixon, sem fylgdist með atburðin-
um af ströndinni eftir að hafa
ákveðið að taka ekki þátt í keppn-
inni, sagði að björgunarmennirnir
hefðu m.a. bjargað ellefu ára
dreng sem hafði siglt með föður
sínum.
„Einn bátanna sigldi yfir hann,“
sagði hún. „Ég veit ekki hvort þeir
sáu hann ekki eða gátu ekki siglt
framhjá honum. Hann rak upp
öskur.“
fimmtudag til sunnudags
áfimæðsla 4
íS"',«s
n» x duni «
Geislasópur
(cytisus purgans)
Blátoppur
(lonicera caerulea)
Firomtudag
úörgvinsson
JöntuvaUsumar
bústaðariand0^
ntnmtudag k •
Hengi-
petúnía
Plöntusalan Fossvogi
Indverjar
neita fréttum
um árásir
á skóla
Muzaffarabad í Pakistan. Jamrnu á Indlandi. Reuters.
ÞRJÚ börn biðu bana í gær þegar
sprengikúlur indverska hersins
lentu á bamaskóla Pakistanmegin
við markalínuna umdeildu er skiptir
Kasmírhéraði á milli Indverja og
Pakistana. Þetta er í annað sinn á
tveim dögum sem böm bíða bana er
Indverjar skjóta á skóla, að því er
pakistönsk yfirvöld greindu frá í
gær.
„Þrjú böm biðu bana og fimm
slösuðust, þar af tvö alvarlega,“
sagði Rashid Qureshi, talsmaður
pakistanska hersins í Islamabad. A
þriðjudag sögðu pakistönsk yfirvöld
að tíu böm hefðu látist er ind-
verskar sprengikúlur lentu á
drengjaskóla nærri markalínunni í
Kasmír.
Indverjar bám þessar fregnir til
baka í gær og sögðu ásakanir
Pakistana vera áróður af verstu
gerð. „Næst munu Pakistanar saka
okkur um að hafa ráðist á munaðar-
arleysingjahæli,“ sagði háttsettur
embættismaður í indverska varnar-
málaráðuneytinu við fréttastofu
Reuters.
„Pakistanar myrða óbreytta [ind-
verska] borgara með köldu blóði.
Við ráðumst eingöngu á hemaðarleg
skotmörk. Emm við þau fífl að ráð-
ast sífellt á skólana þeirra?" sagði
embættismaðurinn.
Mushahid Hussain, upplýsinga-
málaráðherra Pakistans, heimsótti í
gær vettvang árásarinnar á drengja-
skólann á þriðjudag og fordæmdi at-
vikið. Um eitt hundrað manns komu
saman íyrir utan indverska sendi-
ráðið í Islamabad og mótmæltu
árásinni.
Indverjar héldu í gær áfram árás-
um á bækistöðvar meintra flugu-
manna í norðurhluta Kasmír, nærri
markalínunni. Hafa árásir Indverja
nú staðið í á aðra viku. Segja Ind-
veijar skæmliðana njóta stuðnings
Pakistana og liðveislu pakistanska
hersins.
Muni árásunum verða haldið
áfram uns skæmliðarnir séu á brott
frá hinum indverska hluta Kasmír.
Lal Krishna Advani, innanríkisráð-
herra Indlands, sagði á fréttamanna-
fundi í gær að Pakistanar bæm alla
ábyrgð á átökunum, því aðgerðir
þeirra jöfnuðust á við innrás.
Pakistönsk yfirvöld segja skæm-
liðana vera heimamenn í Kasmír,
sem berjist gegn indverskum yfir-
ráðum í héraðinu.
Indverjar hafa tekið tilboði
Pakistana um að utanríkisráðherra
Pakistans verði sendur til Nýju-
Delhí til friðarviðræðna. I gær vildu
embættismenn í pakistanska utan-
ríkisráðuneytinu ekkert segja um
það, hvenær ráðherrann héldi til við-
ræðnanna.