Morgunblaðið - 03.06.1999, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999 39
Dökkt útlit
f dag, á Suðurlandi, þegar litið
er til þeirra byggða sem frá því
land byggðist hafa lifað á sjósókn
og fiskverkun, er svo ægilegt um
að litast að það hálfa væri nóg.
Tökum Stokkseyri og Eyrarbakka
sem dæmi. Kvótinn farinn að
mestu, atvinnuleysi er viðvarandi
og fasteignaverð hríðfellur. Hvað
með Þorlákshöfn? Gamli Meitill-
inn er runninn saman við Vinnslu-
stöðina í Vestmannaeyjum og þar
brestur í böndum. Arnes er í
meirihlutaeign Granda. Heima-
menn ráða minnstu um það.
Vinnslustöðin
Sem fyrr segir berast váleg tíð-
indi frá Vestmannaeyjum með af-
komu Vinnslustöðvarinnar sem
talin er órekstrarhæf svo ég vitni í
Viðskiptablað Morgunblaðsins frá
sl. viku. Hverjir eru útgerðar-
mennirnir í Vinnslustöðinni? Olíu-
félag og fjárfestar með meirihlut-
ann. Hugsar það lið um atvinnuör-
yggi hundraðanna sem byggja sitt
lífsviðurværi á fyrirtæki eins og
Vinnslustöðinni hf. Nei, þeir hafa
áhyggjur af gengi hlutabréfa
sinna í fyrirtækinu. Núna hriktir í
stoðum atvinnulífs í Eyjum og
Þorlákshöfn og hætta er á að
verðmæti fólks í fasteignum sínum
séu í hættu, ef vinnan bregst.
Röng fiskveiðistjómun sviptir
fólk framtíðinni. Það er hin ískalda
staðreynd málsins hér á Suður-
landi sem og víða um landið. At-
vinnuöryggi og eignir fólks eru í
hættu ásamt því að ungdómurinn á
þessum stöðum missir trú á sjó-
mennsku og fiskverkun og sækir
annað. Stórir verksmiðjutogarar
sópa upp fiskinum, hirða það besta
- henda hinu. Er það framtíðin?
Svari hver fyrir sig.
Höfundur er fv. alþingismaður.
er að því að minnka vöxt ríkisins
með einkavæðingu. Það getur
gert það að verkum að einstak-
lingar standa berskjaldaðri en áð-
ur gagnvart fyrirtækjum og
markaðsöflum. Nýfrjálshyggja af
þessu tagi krefst þess að ríkið
gæti þess að réttur einstaklinga
sé ekki fótum troðinn. Ríkisvald-
inu ber að sjá til þess að þegnar
landsins geti tekið upplýsta
ákvörðun í þessu máli. Islensk
erfðagreining hefur hvatt al-
menning í heilsíðuauglýsingum til
þess að taka ábyrga afstöðu í
málinu. Það sérkennilega við
þetta ákall er að fólk þarf ekkert
að gera til að taka ábyrga af-
stöðu! Þögult samþykki nægir.
Vitaskuld væri réttara að fólk
þyrfti að skrá sig í gagnagrunn-
inn í stað þess að þurfa að segja
sig úr honum. Börn eru ofurseld
þessari skipan. Eiga þau ekki rétt
á því að foreldrar þeirra taki upp-
lýsta ákvörðun fyrir þeirra hönd?
En til þess þurfa foreldrar að
hafa hlotið nægilega uppfræðslu.
Gagnagrunnsmálið er afar
torskilið. Það tekur drjúgan tíma
að skilja hvernig miðlægir gagna-
grunnar virka og hvaða afleiðing-
ar notkun erfðaupplýsinga getur
haft í för með sér. I Morgun-
blaðsviðtali undraðist bandaríski
vísindasagnfræðingurinn Michael
Fortun hve fræðsluþáttur þessa
máls hefur verið vanræktur hér á
landi („Liggur okkur lífið á?“, 20.
sept. 1998). í Bandaríkjunum hef-
ur ákveðnu fjármagni verið varið
til fræðslu um svona mál. Hvers
vegna gera stjórnvöld það hér
ekki með skilvirkum hætti? Svo
lengi sem þau sinna ekki þessari
upplýsingaskyldu er full ástæða
til að framlengja frest til að segja
sig úr gagnagrunninum og koma
þannig í veg fyrir djúpstæðan
trúnaðarbrest í íslenskri heil-
brigðisþjónustu.
Höfundur erlektor í heimspeki
við Háskóla Islands.
Vandi
umhverfís-
ráðherra
VIÐ NÝJUM um-
hverfisráðherra blasa
fjölmörg erfið verkefni,
heima og að utan.
Staða hans er verri en
annarra ráðherra því
hann tekur við áhrifa-
litlu og veiku ráðu-
neyti, sem undanfarin
misseri hefur sífellt
farið halloka fyrir iðn-
aðar- og utanríkisráð-
herra. Erfiðasta verk-
efni nýs umhverfisráð-
herra verður því að
endurnýja traust al-
mennings á þessu mik-
ilvæga ráðuneyti,
vinna því verðugan
sess innan stjórnar-
ráðsins; að sýna og sanna að mark
sé tekið á umhverfisráðuneytinu við
stefnumótun ríkisstjórnarinnar
Skylt er að taka fram í upphafi að
umhverfisráðuneytið hefur gert
margt mjög vel. Ekki síst í alþjóð-
legu starfi að vemdun sjávar gegn
mengun af völdum þrávirkra líf-
rænna efna á borð við PCB. Þessi
stefnumótun byggðist á sterkri hefð,
Umhverfismál
Hinn nýskipaði
umhverfísráðherra
verður að sýna dug, þor
og metnað, segir Árni
Finnsson, til að marka
nýja stefnu og halda
sínu gagnvart öðrum
ráðherrum í ríkisstjórn
-------- "/-----------
Islands.
sem rekja má til daga Hjálmars R.
Bárðarsonar, fyrrverandi siglinga-
málastjóra. Sú þekking og reynsla
sem Siglingamálastofnun bjó að
nýttist umhverfisráðuneytinu mjög
vel. Ennfremur hefur umhverfis-
ráðuneytið stutt starf og sjónarmið
náttúruverndarsamtaka, sem er
þakkar vert.
Eitt skýrasta dæmið um slaka
stöðu umhverfisráðuneytisins er að
forræði þess yfir stefnumótun í
samningaviðræðum á vettvangi
Rammasamnings Sameinuðu þjóð-
anna um loftslagsbreytingar var
tekið af því. Sjónarmið ráðuneytis-
ins, að Island undirritaði Kyoto-bók-
unina, urðu ekki aðeins undir í
stjómarráðinu, heldur voru mögu-
leikar þess til að hafa áhrif takmark-
aðir í þágu stóriðjuhagsmuna. Enn-
fremur, ekki hefur enn tekist að
móta trúverðuga stefnu um hvernig
draga megi úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda á íslandi. Þess í stað hefur
starfskröftum og fjármunum verið
sóað í að sækja um frekari undan-
þágur frá þeim losunarmörkum sem
Islandi voru sett í Kyoto-bókuninni.
Þá hefur umhverfisráðherra sí og æ
orðið að láta í minni pokann fyrir
iðnaðarráðherra. Nægir þar að
nefna flýtiútgáfu starfsleyfis fyrir
álverið á Grundartanga.
Virkni umhverflsráðherra
Á síðasta ári sendi Náttúruvemd-
an-áð frá sér tvær afar mikilsverðar
yfirlýsingar. I íyrri ályktun sinni
skoraði ráðið á ríkisstjóm íslands að
fyrirskipa mat á umhverfisáhrifum
Fljótsdalsvirkjunar í samræmi við
lög. Einnig, að kannaðir yrðu mögu-
leikar á að friðlýsa Eyjabakka sam-
kvæmt Ramsar-sáttmálanum um
verndun votlendis. f hinni síðari
skoraði Náttúruvemdarráð á ríkis-
stjóm íslands „að beita sér fyrir end-
urskoðun virkjanaá-
forma sem byggja á
uppistöðulónum og
vatnaflutningum. Leit-
að verði nýrra leiða til
að viriqa vatnsföll og
beisla orku sem miða að
því að vemda ósnortin
víðemi og náttúmger-
semar íslands.“
Lögum samkvæmt er
N áttúruverndarráð
ráðgefandi aðili fyrir
umhverfisráðherra.
Ályktanir ráðsins vom
stílaðar á umhverfisráð-
herra. Því hefði mátt
ætla að umhverfisráð-
herra hefði kallað ráðið
á fund sinn til að ræða
þessar ályktanir - sem vom vel rök-
studdar. En það varð ekki. Hins veg-
ar átti Náttúruvemdarráð fund með
utanríkisráðherra og var það að
fmmkvæði ráðsins.
Kröfur á ráðherra
Það er krafa almennings að um-
hverfisráðuneytið verði hafið til
vegs og virðingar í stjórnarráði ís-
lands. Það þýðir að heildarstjórn
allra umhverfismála heyri undir öfl-
ugt umhverfisráðuneyti, að það lúti
stjórn ráðherra sem hefur metnað
til að sinna starfi sínu af dugnaði.
Trúverðugleiki umhverfisstefnu
næstu ríkisstjórnar mun m.a. ráðast
af eftirfarandi:
-að Kyoto-bókunin verði undir-
rituð hið fyrsta og áætlanir kynntar
um hvemig draga skuli úr losun
gróðurhúsalofttegunda hér á landi.
Að ísland taki ábyrgan þátt í við-
leitni þjóða til að afstýra loftslags-
breytingum;
-að ákveðið verði að Fljótsdals-
virkjun skuli sæta lögformlegu mati
á umhverfisáhrifum. Þar með verði
Fljótsdalsvirkjun hluti af Rammaá-
ætlun um verndun og nýtingu mið-
hálendisins;
- að áður en ráðist verði í frekari
virkjanir á hálendinu verði kannað
til hlítar hver sé framtíðarávinning-
ur þess að gera hálendi íslands allt
að þjóðgarði;
-að Hollustuvernd ríkisins verði
gert fært að sinna því hlutverki sem
leiðir af samstarfi Evrópuþjóða inn-
an hins evrópska efnahagssvæðis
(EES). Veralega skortir á að fjár-
veitingar til Hollustuvemdar dugi til
að mæta þeim kröfum sem umhverf-
islöggjöf ESB og aðrar alþjóðlegar
skuldbindingar setja á stofnunina;
-að Náttúravernd ríkisins verði
gert kleift að annast landvörslu á
friðlýstum svæðum. Vaxandi
straumur ferðamanna og aukin þörf
fyrir eftirlit kallar á auknar fjárveit-
ingar til Náttúruvemdarinnar, en
ekki fjársvelti.
- að fjárveiting til umhverfisvökt-
unar og umhverfisrannsókna al-
mennt verði aukin veralega; og
- að samstarf við frjáls félagasam-
tök um náttúruvernd verði eflt enn
frekar.
Veldur hver á heldur
Það er lýðræðisleg skylda
stjórnvalda og stjórnmálaflokka að
leggja fram trúverðuga stefnu í
umhverfismálum. Verndun ís-
lenskrar náttúru og ábyrg stjórnun
á nýtingu auðlinda sjávar er ávísun
á hvaða kröfur við getum gert til
annarra þjóða í umhverfismálum.
Siðferðilegur styrkur smáþjóða
felst í því fordæmi sem við gefum.
Hinn nýskipaði umhverfisráðherra
verður að sýna dug, þor og metnað
til að marka nýja stefnu og halda
sínu gagnvart öðrum ráðherrum í
ríkisstjórn íslands. Sýni Siv Frið-
leifsdóttir vilja til verksins mun al-
menningur standa með henni.
Höfundur er starfsmaður hjá Nátt-
úruvemdarsamtökum íslands.
Árni
Finnsson
R-listinn eykur
skattaáþján
Reykvíkinga
SKATTADAGUR-INN færist
fram eða aftur eftir því hvort opin-
ber umsvif aukast eða minnka. Hann
minnir íslendinga á þá staðreynd að
þrátt fyrir að skatt-
byrðin sé þung, þá er
hún ekki óumbreytan-
leg. Sumir stjórnmála-
menn era nefnilega
duglegri við að hækka
skatta þrátt fyrir háleit
loforð um annað.
Á síðasta ári gerðu
ríki og sveitarfélög
rúmlega 41% vergrar
landsframleiðslu upp-
tæka með sköttum og
opinberam gjöldum.
Samkvæmt því þarf
launafólk að vinna 150
daga af árinu fyrir opin-
bera aðila áður en það
getur farið að njóta ár-
angurs erfiðis síns.
Skattadagurinn er síð-
asti dagurinn, sem landsmenn vinna
eingöngu fyrir þessum skyldu-
greiðslum, og í ár var hann síðasta
Skattar
Skattalækkanir
ríkisstjórnarinnar duga
skammt einar og sér
þegar skattaglaður
borgarstjóri ræður í
Reykjavík, segir
Kjartan Magnússon í
tilefni skattadagsins.
sunnudag. Skattbyrðin hefur aukist
um 0,8% frá fyrra ári og skattadag-
urinn því færst fram um einn dag.
Skattalækkun ríkis -
skattahækkun borgar
Þessi óheillaþróun kemm- mörg-
um á óvart, ekítí síst í ljósi þess að
ríkisstjórnin hefur lækkað tekju-
skatta á einstaklinga í áfóngum á
undanförnum árum. Skýringuna á
auknum opinberum umsvifum má
hins vegar m.a. finna í sívaxandi
skattheimtu sveitarfélaga, ekki síst
Reykjavíkur. Skattahækkanir R-
listans hafa því gert það að verkum
að illa gengur að draga úr heildar-
skattbyrði í landinu þrátt fyrir til-
raunir ríkisstjórnarinnar og aðila
vinnumarkaðarins til þess.
Málflutningur R-listans fyrir
borgarstjórnarkosningar 1994 og
1998 var samhljóma að
því leyti að frambjóð-
endur hans, með Ingi-
björgu Sólrúnu Gísla-
dóttur í broddi fylking-
ar, lofuðu því hátíðlega
að skattar yrðu ekki
hækkaðir. Strax eftir
kosningarnar 1994 var
nýr holræsaskattur
lagður á ásamt marg-
víslegum öðram gjöld-
um, sem jók tekjur
borgarinnar um 4-5
milljarða á kjörtímabil-
inu.
Reykvíkingar rændir
skattalækkuninni
Um síðustu áramót
lækkaði ríkisstjórnin
tekjuskatt samkvæmt samkomulagi
við aðila vinnumarkaðarins.
Reykvíkingar fengu hins vegar ekki
að njóta þessarar lækkunar vegna
þess að R-listinn stökk til að hækk-
aði útsvarið um 6,7%. Með tekju-
skattslækkuninni missti ríkið um 600
milljóna króna skatttekjur í Reykja-
vík en talið er að útsvarshækkun R-
listans auki tekjur borgarinnar um
970 milljónir króna.
Þessar tölur sýna að skattalækk-
anir ríkisstjómarinnar duga skammt
einai' og sér þegar skattaglaður
borgarstjóri er við völd í Reykjavík.
R-listinn ræður ekki við fjármál
borgarinnar og kann ekki önnur ráð
en safna skuldum og hækka skatta.
Slík óráðsía hjá stærsta sveitarfélagi
landsins vekur athygli á sama tíma
og ríkið lækkar skatta og greiðir nið-
ur skuldir og hefur áhrif til aukning-
ar heildarskattbyrði.
Höfundur er borgarfulltrúi.
Kjartan
Magnússon
Vortilbo^
Einstaht or&spor i hólfa ölcí
Vlð jaðar Búðahrauns, þar sem
Búðaós mætir sjó og gullsandurinn
glóir standa Hótel Búðlr og hafa þar
verið I hálfa öld. Á löngum tlma hafa
margir og góðlr gestir hjálpað við að
byggja upp þaö elnstaka orð sem af
hótelinu fer, fyrlr góöan mat og
sérstaka stemmningu.
Verið velkomin.
Helqartilbofe
5900 kr
Gistinq, morqunmatur
oq þriqqjaréfta
kvöldveréur
*Verð á elnstakllng, per
nólt 12)a manna herbergl
miðað vlð dvöl I tvær
nætur.
Pantanir í síma 435 6700
|
!