Morgunblaðið - 03.06.1999, Qupperneq 54
>54 FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
INTER
Bíldshöfða 20 Reykjavík
^mb l.is
A.LLTAf= GITTHKSAG NÝTl
Hvað er hættulegt
í barnsfæðingum?
Margrét Eyrún
Jónsdóttir Ingadóttir
SUMARDAGINN fyrsta birtist
grein eftir Evu Einarsdóttur ljós-
móður þar sem hún brást við grein
okkar um framfarir og forræðis-
hyggju á Landsspítala. Grein Evu
einkenndist einmitt af þeirri for-
ræðishyggju sem við vorum að mót-
mæla og er í hróplegri mótsögn við
skelegga og fræðandi grein Jennýj-
ar Ingu Eiðsdóttur ljósmóður sem
birtist hinn 7. maí síðastliðinn.
Grein Jennýjar ber þess vitni að
skoðanir Evu eru til allrar ham-
ingju ekki almennar á fæðingar-
deild Landsspítalans.
Eva Einarsdóttir taldi grein okk-
ar vera lágkúrulega og ósmekklega
og okkur fullar af hroka og fáfræði.
Við látum þeim ásökunum ósvarað.
Pað sem fyrir okkur vakti var að
vekja athygli á því að læknisfræði-
leg stefna hátæknisjúkrahúsa hins
fiffl
RITARAR
Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699
Vefsíða: www.oba.is
vestræna heims undanfarin 25 ár
hefur afkynjað bamsfæðingar. Með
aukinni tækni, sem ekki er neitt
annað en gott um að segja þegar á
þarf að halda, var öllum barnsfæð-
ingum, eðlilegum sem afbrigðileg-
um, breytt í kynlausan atburð þar
sem tæknin tók völdin og þrengdi
móður náttúru út í horn. Konum
hefur lengi verið talin trú um að
kynfæri þeirra væru „óhrein", bæði
í heilögum ritningum og í vafasöm-
um bókmenntum.
Eva skrifar undir starfsheitinu
ljósmóðir og er ekki leikmaður
varðandi hag verðandi mæðra. Það
er vafasöm iðja, jafnvel fyrir þá sem
vilja ríghalda í gamlar venjur, að
bera fram hræðsluáróður gegn nýj-
ungum á opinberum vettvangi í
nafni starfsheitis. Pykir okkur rétt
að benda Evu á alþjóðlegar siða-
reglur ljósmæðra sem
Ljósmæðrafélag ís-
lands er nýbúið að
gefa út á íslensku. Par
kemur m.a. fram að
ljósmæður hvetji kon-
ur til þess að taka þátt
í allri umræðu sem á
sér stað í samfélagi
þeirra um málefni sem
varða heilsugæslu
kvenna og fjölskyldur
þeirra. Við tökum
þessari hvatningu
fagnandi og höldum
áfram skrifum okkar
um mæðravernd.
Forræðishyggja í
fæðingarþjónustu er
Fæðingar
s
Orökstuddur hræðslu-
áróður þröngsýnna
heilbrigðisstarfsmanna
er að mati Margrétar
Jónsdóttur og Eyrúnar
Ingadóttur það hættu-
legasta sem barnshaf-
andi konur geta lent í.
umhyggjukúgun og vantraustsyfir-
lýsing á þá sem hana þiggja. Ef
hægt væri að bjóða upp á hættu-
lausa fæðingu þar sem tryggt væri
að hvorki móðir né barn biðu skaða
af þá yrði það gert. Málið er bara
ekki svo einfalt. Ekkert er sjálfgef-
ið, ekki einu sinni það að eignast
heilbrigt barn. Lífinu fylgir ávallt
einhver áhætta og starfsfólk fæð-
ingardeilda er ekki öfundsvert að
eiga sífellt á hættu að vera ásakað
um handvömm þegar eitthvað fer
úrskeiðis. Við hvem á að sakast ef
illa fer? Fæðandi konur bregðast
við þessari óvissu með því að velja
þann kost sem veitir þeim mest ör-
yggi. Vegna sömu óvissu leggja sí-
fellt fleiri læknar stund á heimspeki
og heimspeki hefur verið kennd í
hjúkrunamámi til margra ára.
Læknar sjá nauðsyn þess að geta
tekið siðmenntaða afstöðu í heimi
þar sem þarf að sætta sambúð og
samspil hugmyndafræðilegra og
tæknilegra framfara, siðfræði og
vísinda við sjálfa móður náttúru.
Ljósmæður bera mikla ábyrgð og
konur treysta á þær. Engri konu
myndi detta í hug að ala barn sitt í
vatni fengi hún þær upplýsingar hjá
ljósmóður sinni að barnið myndi
sennilega drukkna. Ekki hefur ver-
ið sýnt fram á að það sé hættulegra
að eiga barn í vatni en á þurru landi
þrátt fyrir að komin sé áratuga
reynsla á vatnsfæðingar, t.d. í
Frakklandi. Það er hendi næst að
vitna til eins frægasta fæðingar-
læknis Frakka, Michel Odant, en
hann hefur lengi annast konur við
vatnsfæðingar. Þær konur sem
velja að fæða í vatni gera það vegna
þess að vatn hefur verkjastillandi
og slakandi áhrif. Kona á auðveld-
ara með að hreyfa sig í vatninu, en
hreyfing eykur aftur á kraft fæðing-
arinnar og möguleika á eðlilegri
fæðingu, og spöngin rifnar síður.
Við skulum ekki gleyma því að
það fylgir því áhætta að fá „venju-
legar“ deyfingar við fæðingu. Engri
konu dytti í hug að þiggja mænu-
deyfingu, þrátt fyrir óbærilega jóð-
sótt, fengi hún þær upplýsingar að
J SIX-TEX JAKKAR • FLÍS PEYSUR • DÚNÚLPUR GÖNGUSKÓR
JOGGING GALLAR • GALLABUXUR • MAX TEX JAKKAR
SLOPPAR • STUTTBUXUR • VANDAÐUR VINNUFATNAÐUR
OG FLEIRA OG FLEIRA
SKÚLAGÖTU 51
2. HÆÐ
SÍMI: 552 7425